Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Síða 35
„ég Tek þá
hjarTað
og nýrun“
MÖrður
Laganna
35Helgarblað 5.–7. apríl 2013
börn á aldrinum fimm til þrettán ára urðu fórnarlömb óhugnanlegs ódæðis foreldra sinna föstudaginn
11. maí 2012. Foreldrar barnanna, Mick og Mairead Philpott, báru eld að heimili sínu í Nottingham á Englandi
með þeim afleiðingum að börnin fórust. Paul Mosley, vinur hjónanna, hjálpaði þeim að skipuleggja verknað-
inn. Í gær féll dómur í málinu; Mick fékk lífstíðardóm, Mairead fékk 17 ára dóm sem og Paul Mosley . 6
F
rá frændum vorum í Svíþjóð
berast helsti óhugnanleg
tíðindi. Sagt er að fjöldi er-
ítreskra fjölskyldna sem þar
halda til sæti kúgun óprúttinna,
svo vægt sé til orða tekið, náunga.
Um er að ræða svíðinga sem leita
logandi ljósi í flóttamannabúðum
í Egyptalandi að ættingjum fjöl-
skyldna í Svíþjóð og nema þá
á brott. Hingað til hafa sænskir
Erítreumenn ekki þorað að op-
inbera þetta, en nú hefur orðið
breyting þar á.
Á meðal þeirra sem tjáð sig
hafa um málið er Lola nokkur
Habtom. Í viðtali við sænsku
fréttaveituna TT sagði Lola:
„Mannræningjar höfðu tekið
bróður minn, tvítugan, og kröfð-
ust 35.000 Bandaríkjadala í
lausnar gjald. Ég man enn þegar
síminn hringdi og krafan var lögð
fram.“
Lola sagðist hafa spurt hvern-
ig í ósköpunum hún ætti að geta
útvegað slíka fjárhæð og „mér var
svarað: „Ókei, ég tek þá hjartað og
nýrun úr bróður þínum“.“
Lola fékk fimm mánaða frest
og reglulega var hringt í hana og
hún gat heyrt bróður sinn veina
í bakgrunninum. Lola Hab tom
hafði samband við egypska
Rauða hálfmánann, sendiráð
Erítreu í Stokkhólmi og sænsku
lögregluna – enginn rétti henni
hjálparhönd.
Að lokum tókst Lolu að fá lán-
aða upphæðina og bedúínageng-
ið, sem hafði haldið bróður
hennar föngnum, sleppti hon-
um og einum fanga að auki og
þeir gengu til Ísrael. Samfangi
bróður hennar var þá orðinn svo
máttfarinn að honum varð ekki
lífs auðið. Frásagnir sænsku Er-
ítreumannanna eru ekki geðs-
legar. „Allir Erítreumenn óttast
að fá svona upphringingu,“ sagði
Medhanie Neraio, en fjölskylda
hans greiddi fyrir skemmstu
38.000 Bandaríkjadali fyrir frelsi
ungs ættmennis í búðum það
sem aðstæður eru ólýsanlegar;
hópnauðganir, barsmíðar með
keðjum og rafstuð.
„Þetta er á hvers manns vör-
um,“ sagði Tesfay Berhe, en
barnabarni bróður hans var rænt
og ættingjum víðs vegar um lönd
tókst í sameiningu að reiða fram
lausnarféð.
Samkvæmt Sameinuðu
þjóðunum flýr fólk í stríðum
straumum frá Erítreu og í Svíþjóð
búa tugþúsundir sem rætur eiga
að rekja til Erítreu. Mikill fjöldi
þeirra sem flýja Erítreu hafnar í
flóttamannabúðum í Sínaí-eyði-
mörkinni þar sem lögleysa ríkir.
Sérfræðingur í málefnum
flóttamannabúðanna, Meron
Estefanos, telur að allt að 300 er-
ítreskar fjölskyldur í Svíþjóð hafi
sætt kúgun af hálfu mannræn-
ingja hinum megin á hnettinum.
G
erard John Schaefer fæddist
25. mars, 1946. Hann ólst
upp í Atlanta í Georgíu-fylki
í Bandaríkjunum til 1960, en
þá flutti fjölskylda hans til
Fort Lauderdale í Flórída. Samband
Gerards og föður hans var stirt, enda
taldi Gerard að föður hans væri hlýrra
til systur hans.
Á unglingsaldri fékk Gerard mikið
dálæti á kvennærfatnaði – dálæti sem
varð að þráhyggju með tímanum.
Einnig hafði hann mikið yndi af því að
liggja á gægjum og njósnaði grimmt
um nágrannastúlku eina, Leigh Hain-
line. Sagan segir að síðar hafi hann
viðurkennt að hafa klæðst kven-
mannsfatnaði á sínum yngri árum og
hafa haft gaman af því að drepa dýr.
Gerard lauk námi í menntaskóla
1964 og fór í háskóla í kjölfarið og
kvæntist á þeim tíma. Árið 1969 gerð-
ist hann kennari en sá ferill varð enda-
sleppur því hann var rekinn fljótlega
vegna „gjörsamlega óviðeigandi hegð-
unar. Síðar var umsókn hans í guð-
fræði hafnað og greip hann þá til þess
ráðs að reyna við lögregluna. Það tókst
og 25 ára að aldri, 1971, útskrifaðist
hann sem umferðarlögreglumaður.
„Svolítið heimskulegt“
Þann 21. júlí, 1972, var Gerard á
ferðinni, eins og títt er um vegalög-
reglumenn, og tók upp tvær tánings-
stúlkur. Gerard rændi þeim og fór með
þær út í skóg þar sem hann batt þær
við tré. Hann hafði í hótunum við þær,
meðal annars að drepa þær eða selja
þær í vændi.
En Gerard var truflaður í miðjum
klíðum þegar hann var kallaður upp í
talstöðinni. Hann neyddist til að yfir-
gefa stúlkurnar en hét því að hann
kæmi aftur og þá skyldu þær fá að
finna til tevatnsins.
Stúlkunum tókst í fjarveru Gerards
að losa sig og fóru rakleitt á næstu lög-
reglustöð – sem var reyndar lögreglu-
stöð Gerards – og sögðu farir sínar
ekki sléttar.
Þegar Gerard snéri aftur í skóginn
greip hann í tómt og um hann fór, eins
og sagt er. Hann hafði samband við
stöðina og sagðist hafa gert „svolítið
heimskulegt“; hann hafi þóst ræna
tveimur stúlkum og haft í hótunum
við þær með það fyrir augum að gera
þeim ljósa þá hættu sem fylgt gæti
puttaferðalögum.
Yfirmaður Gerards lagði ekki trún-
að á frásögn Gerards, skipaði honum
að koma á stöðina og gerði honum að
afhenda skjöld sinn og skotvopn. Ger-
ard var síðan kærður fyrir frelsissvipt-
inu og líkamsárás.
Eins árs dómur
Gerard greiddi tryggingu og gat því
um frjálst höfuð strokið þar til mál
hans yrði tekið fyrir. Tveimur mánuð-
um síðar, 27. september, 1972, nam
Gerard á brott tvær unglingsstúlkur,
Susan Place, 17 ára, og Gerorgíu Jess-
up, 16 ára. Án þess að fara út í smá-
atriði skal það upplýst að hann pynt-
aði stúlkurnar, myrti þær og gróf lík
þeirra á Hutchinson-eyju.
Í desember var mál hans, vegna
stúlknanna tveggja sem sluppu með
skrekkinn í júlí, dómtekið. Gerard
tókst að ná samningi við ákæruvaldið
og með því að játa sig sekan um eitt
ákæruatriði, líkamsárás, slapp hann
með eins árs dóm.
Í apríl 1973, meira en hálfu ári eftir
að þær hurfu, fundust líkamsleifar
Susan og Georgíu. Rannsókn leiddi
í ljós að þær hefðu verið bundnar
við tré á einhverjum tímapunkti og
þær höfðu, þegar þær hurfu, verið á
puttaferðalagi.
Þessi líkindi með meðferð Gerards
á stúlkunum tveimur sem sluppu fóru
ekki framhjá rannsóknarlögreglumönn-
um, sem urðu sér úti um heimild til hús-
leitar á heimili Gerards og konu hans.
Hórur og dræsur
Í svefnherbergi Gerards hnaut lög-
reglan um sögur sem hann hafði
skrifað. Sögurnar samanstóðu af lýs-
ingum af misþyrmingu, nauðgunum
og morðum á konum. Gerard talaði
í frásögnum sínum um konur sem
„hórur“ og „dræsur“.
En lögreglan gerði enn mikilvægari
fund; persónulegar eigur – skart, dag-
bækur og meira að segja eina tönn – að
minnsta kosti átta ungra kvenna sem
höfðu horfið undanfarin ár.
Í ljós kom að eitthvað af skartinu
hafði tilheyrt konu sem hafði verið ná-
granni Gerards sem táningur – Leigh
Hainline. Leigh hafði horfið 1969 eftir
að hafa sagt eiginmanni sínum að
hún hygðist rugla reytum með vini úr
bernsku. Einnig fann lögreglan muni
úr fórum Susan Place.
Gerard var ákærður fyrir morðin á
Susan Place og Georgíu Jessup og var
hann sekur fundinn, í október 1973,
og fékk tvo lífstíðardóma. At mati yfir-
valda tengdist Gerard John Schaefer
um 30 horfnum konum og stúlkum.
Leiddar hafa verið að því líkur að
Susan og Georgía hafi ekki verið síð-
ustu fórnarlömb Gerards því tvær fjórt-
án ára stúlkur, Mary Briscolina og Elsie
Farmer, hurfu 23. október 1972 – aðeins
örfáum vikum eftir að Susan og Ge-
orgía voru myrtar. Líkamsleifar Mary
og Elsie fundust síðar og skartgripir úr
þeirra eigu fundust á heimili Gerards
Schaefer.
Höfðaði mál á báða bóga
Gerard áfrýjaði dómnum og fullyrti
að hann hefði verið hafður fyrir rangri
sök. Öll slík viðleitni af hans hálfu var
til einskis, en Gerard var ekki af baki
dottin. Hann hóf vegferð málshöfðana
á báða bóga; gegn einum rithöfundi,
Patrick Kendrick, sem hafði lýst hon-
um sem „of þungum, hvapholda, mið-
aldra manni sem legðist á fórnarlömb
sem væru andlega og líkamlega veik-
ari en hann“. Einnig reyndi Gerard
málssókn gegn tveimur öðrum rit-
höfundum og einum fulltrúa alríkis-
lögreglunnar sem sögðu Gerard vera
raðmorðingja.
Gerard hafði hvergi erindi sem erf-
iði en hélt reyndar málsókn sinni á
hendur Kendrick áfram innan fangels-
isveggjanna allt þar til hann var myrtur.
Gerard fannst, 3. desember 1995,
stunginn til bana í fangelsisklefa sín-
um. Morðingi hans, Vincent Rivera,
var dæmdur fyrir morðið árið 1999 og
bættust 53 ár og tíu mánuðir við 20
ára til lífstíðardóminn sem hann hafði
á baki fyrir – honum fannst sennilega
litlu muna, líkt og músin sagði þegar
hún meig í hafið.
Á þeim tíma þegar Gerard sagði
skilið við jarðlífið var lögreglan í Fort
Lauderdale að íhuga að leggja fram
ákærur á hendur honum vegna þriggja
óleystra morðmála og tryggja þannig
að hann losnaði aldrei úr grjótinu.
Vincent Rivera tók af þeim ómakið. n
n Gerard Schaefer varð lögreglumaður og morðingi
„Gerard
talaði í frá-
sögnum sínum um
konur sem „hórur“
og „dræsur“
Brosmildur á
bak við lás og slá
Gerard Schaefer var
sennilega ekki með
öllum mjalla.