Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Side 43
Lífsstíll 43Helgarblað 5.–7. apríl 2013 Íslendingar vinna allt of langan vinnudag n Helga Jóhanna Oddsdóttir hefur helgað sig markþjálfun n NLP er aðferðafræði sem gagnast þeim vel sem vilja yfirstíga hindranir Margir frægir einstaklingar hafa nýtt sér NLP-aðferðina til þess að sigrast á feimni og ná betri tökum á hinu daglega lífi sem fylgir lífi stórstjörnu. Bill Clinton, Tony Blair, Tiger Woods, Bill Gates, Geri Halli- well og Oprah Winfrey eru meðal þeirra sem hafa nýtt sér NLP og láta vel af. markmiðum mínum og því sem ég vann að með „mastermind“-hópn- um mínum fyrir tveimur árum og ég brosti út að eyrum við að lesa punktana mína og hugleiðingar síð- an þá! Breytingarnar á öllum svið- um eru ótrúlegar, bæði hvað varð- ar faglegu og persónulegu hliðina á mér. Það að fara markvisst í gegn- um það sem maður vill breyta og skoða hvaða árangri maður vill ná með utanaðkomandi aðstoð er ein- hvern veginn til þess gert að manni opnast nýr heimur og áherslurnar fara ósjálfrátt í réttar áttir.“ Blómstraði sem aldrei fyrr „Dæmin um ávinning minna við- skiptavina eru fjölmörg en ég er að sjálfsögðu bundin algjörum trúnaði, bæði um það hverjir starfa með mér og það hvað þeir eru að fást við. Ég hef þó leyfi frá nokkrum til að nefna dæmi en hafa ber í huga að markþjálfun er ferli til lengri tíma og flestir starfa með mér í sex til tólf mánuði í senn og eru því að leysa fjölmörg mál á þeim tíma. Einn viðskiptavinur minn breytti algjörlega viðhorfi sínu til álags og streitu og hefur síðan blómstrað sem aldrei fyrr og upplifir að árangurinn næst með mun minni áreynslu og er ánægju- legri en áður. Annar fann út hvaða verkefni sem hann var að sinna var mikilvægast og náði ótrúlegum ár- angri í að einblína á þau og njóta þess að sjá árangur erfiðisins.“ Samskiptavandi á vinnustað leystur „Þriðji var að kljást við verulegan samskiptavanda á vinnustað og náði skoða sjálfan sig, viðbrögð og sýn á aðstæður sem urðu til að leysa vandann fljótt og vel. Sá fjórði náði mjög góðum árangri í að hr- inda breytingum í framkvæmd þannig að þær höfðu ekki lam- andi áhrif á fyrirtækið á neinum tíma og vel var hlúð að lykil þáttum meðan á breytingaferlinu stóð. Sá fimmti setti sér það markmið að ná meiri árangri sem stjórnandi en gera minna sjálfur, ótrúlega öflugt markmið þar sem árangurinn var framar vonum. Þannig að það eru fjölmörg dæmi og á hinum ýmsu sviðum,“ segir þessi orkumikla duglega kona að lokum. n Dæmi um nokkur þekkt andlit sem hafa sótt NLP-námskeið Íslendingar vinna 1.732 tíma að meðaltali á ári Íslendingar vinna mest allra þjóða á Norðurlöndunum, en eru þó undir með- altali innan OECD. Mexíkó er sú þjóð sem vinnur flestar klukkustundir eða 2.250 tíma á ári. Á meðan Danir vinna 1.552 klukkustundir á ári vinna Holl-endingar um 1.379 klukkustundir á ári hverju. Meðalvinnutími innan OECD er 1.776 tímar á ári. Það sem NLP og dáleiðsla eiga sameigin- legt er að í báðum tilvikum er verið að vinna með hegðunarmynstur. Sefjun (dáleiðsla) er stór partur í NLP-fræðunum og er bæði grunnverkfæri sem og tækni til þess að framkalla breytingar hjá einstaklingum byggð á þeirri hugmyndafræði að öll hegðun hafi ákveðið mynstur og að þetta mynstur sé hægt að tileinka sér, læra og breyta. N stendur fyrir „neuro“ og vísar bæði til ósýnilegra hugsanaferla og sýnilegra lík- amlegra viðbragða við hugmyndum, orðum og atvikum. Líkami og hugur eru ein heild. L stendur fyrir „linguistic“ og vísar til þess hvernig við notum tungumálið til að koma skipulagi á hugsanir okkar og til að hafa samskipti við aðra. P stendur fyrir „programming“ og vísar til þess hvernig við veljum að skipuleggja hugmyndir okkar, hugsanir og gerðir til að ná árangri. Þessari aðferð er líkt við tölvuforritun þar sem hugurinn er endurstilltur líkt og um tölvu væri að ræða, en NLP er ekki viðurkennd aðferð í klínískri sálfræði. Sambandið á milli NLP (neuro ling­ uistic programming) og dáleiðslu Valkyrja Helga hefur ástríðu fyrir starfi sínu og fjölskyldan er alltaf í fyrsta sæti hjá henni. Á skíðum Hér er Helga í einni af skíðaferðum sínum í Austurríki. „Einn viðskiptavinur minn breytti algjör- lega viðhorfi sínu til álags og streitu og hefur síðan blómstrað sem aldrei fyrr og upplifir að árangurinn næst með mun minni áreynslu og er ánægjulegri en áður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.