Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Qupperneq 44
44 Sport 5.–7. apríl 2013 Helgarblað
Fátt getur stöðvað United
n Sigur í Manchester-slag mánudagsins tryggir liðinu nánast titilinn
M
istakist Manchester City
að leggja granna sína í
United í ensku úrvals
deildinni á mánudaginn,
má bóka að United verði enskur
meistari í vor. Ef United hefur betur
í borgarslagnum á mánudaginn
munar 18 stigum á liðunum þegar
aðeins 21 er í pottinum. Fátt, nema
ef til vill óslitin sigurganga City og
samfelld taphrina United, getur
þá komið í veg fyrir að Manchester
United verði enskur meistari í 20.
skiptið.
Ef City vinnur borgarslaginn
munar 12 stigum á liðunum þegar
21 stig er í pottinum. United þyrfti
þó aðeins sjö stig í síðustu sjö leikj
unum til hampa titlinum. City þarf
því ekki aðeins að vinna United í
leiknum á mánudag, heldur treysta
á að United misstígi sig hrapallega
á lokasprettinum. Það yrðu söguleg
tíðindi. Raunar gætu Tottenham,
Chelsea og Arsenal öll orðið enskur
meistari í vor, ef United tapar því
sem eftir er, en líkurnar á því eru
ámóta og að Kýpur verði næsta
efnahagsstórveldi heimsins.
Everton og Liverpool munu berj
ast við Tottenham, City, Chelsea og
Arsenal um sætin í Meistaradeild
Evrópu. Úrslitin munu að líkindum
ráðast í lokaumferðinni.
Spennan er mikil á botni deildar
innar. QPR og Reading hafa þar
dregist aftur úr, eru með 23 stig, og
eru líkleg til að falla en Aston Villa,
Sunderland, Wigan, Newcastle,
Norwich, Stoke og Southampton
eru öll í nokkurri fallhættu. Villa og
Wigan standa þar verst að vígi með
30 stig. Um helgina mætast QPR og
Wigan, Stoke og Aston Villa og svo
Reading og Southampton. Ef til vill
verða línur skýrari í fallbaráttunni
eftir helgina. n
baldur@dv.is
Þriðjungur
meiddur á hné
Öll liðin í ensku úrvalsdeildinni
eru með meidda leikmenn á
launaskrá. Newcastle og Aston
Villa eru þau lið sem eiga flesta
leikmenn á meiðslalista. Níu leik
menn voru, þegar þetta var skrif
að, meiddir í röðum Newcastle og
átta hjá Aston Villa. Forvitnilegt er
að skoða hvers konar meiðsli eru
algengust. Á síðunni physioroom.
com má sjá lista yfir meidda leik
menn, hvað hrjáir þá og hvenær
gert er ráð fyrir að þeir snúi aftur.
Alls 23 leikmenn af 79 eru fjarri
góðu gamni vegna hvers kyns
hnjámeiðsla en það eru algeng
ustu meiðsli leikmanna í ensku
úrvalsdeildinni. Þar af eru tíu með
teygt eða slitið krossband. Tólf
leikmenn eru meiddir á ökkla,
ellefu eru tognaðir aftan í læri.
Átta úrvalsdeildarleikmenn eru
meiddir í nára.
Þess má geta að Everton og
Stoke eru þau lið sem fæsta leik
menn hafa á sjúkraskrám. Everton
er með tvo en Stoke City einn.
Þjónar sam-
félaginu
Argentínumaðurinn Carlos Tevez,
leikmaður enska liðsins Man
chester City, hefur verið dæmdur
til að sinna samfélagsþjónustu í
250 klukkustundir, eða sem sam
svarar rúmlega 31 vinnudegi.
Þetta er afleiðing þess að Tevez var
stöðvaður á ótryggðum bíl sínum
í Manchesterborg á dögunum.
Til að bíta höfuðið af skömminni
er Tevez án ökuréttinda en þau
missti hann í janúar eftir að
hafa látið hjá líða að svara fyrir
hraðakstur. Í kjölfarið var hann
sviptur ökuréttindum í hálft ár –
sem nú er orðið að heilu.
Hann þarf líka að greiða 1.000
pund í sekt, eða liðlega 190 þús
und krónur. Það ætti hann að ráða
við, enda fær hann ekki undir 135
milljónum króna á mánuði, eða
4,5 milljónir á dag.
Stjórarnir City einfaldlega verður að vinna
á mánudag.
Andrea Ólafsdóttir
1. sæti Suðurdæmi
Saman getum við
unnið að réttlæti,
sanngirni og
lýðræði fyrir
heimilin í landinu
Línan er veik
V
ið gætum hæglega tapað
leiknum á sunnudaginn en
þá þurfum við að spila illa,
segir Guðjón Guðmunds
son, íþróttafréttamaður
og fyrrverandi landsliðsmaður í
handknattleik, um síðari landsleik
Íslands og Slóveníu sem fram fer
í Laugardalshöll á sunnudaginn.
Leikirnir eru hluti riðlakeppna fyrir
EM í Danmörku.
Ísland landaði frænkum útisigri
á sama liði á fimmtudaginn, á ein
um erfiðasta útivelli í Evrópu. Loka
tölur urðu 29–28 en liðið komst fyrst
yfir í leiknum þegar innan við tvær
mínútur voru eftir. Við ramman
reip var því að draga allan leik
inn en Guðjón bendir á að afar fá
landslið fari frá Slóveníu með sigur
í farteskinu. Íslenska liðið hefur oft
spilað betur og er það ef til vill um
marks um styrk þess og reynslu að
liðinu tókst engu að síður að knýja
fram sigur.
Liðið spennt í byrjun
Guðjón segir að leikurinn hafi á
heildina litið verið í góðu jafnvægi.
Íslenska liðinu hafi tekist að halda
hraðanum niðri og að það hafi ver
ið lykillinn að því að liðinu tókst að
knýja fram sigur á fimmtudaginn.
„Mér fannst liðið spennt í byrjun
og bakvörðunum voru mislagðar
hendur í fyrri hálfleik. Skotin gengu
illa og markvörðurinn þeirra var
sterkur,“ segir Guðjón sem segir að
liðið hafi varnarlega verið í vand
ræðum framan af í leiknum. Fjórum
mörkum munaði í hálfleik. „Munur
inn í hálfleik helgast af því að við
vorum að taka mikið af ótímabær
um skotum.“ Með engan línumann
heilan heilsu hafi ekki tekist að
opna vörn heimamanna en Róbert
Gunnarsson var fjarri góðu gamni
auk þess sem Kári Kristján Krist
jánsson spilaði meiddur. Forráða
menn félagsliðs Kára, Wetzlar, voru
æfir yfir því að hann hafi tekið þátt í
leiknum og riftu samningi við hann.
Spurður hvað orðið hafi til
þess í síðari hálfleik að liðið sneri
við taflinu og bætti leik sinn seg
ir Guðjón að innkoma Arons Raf
ns Eðvarðssonar markvarðar hafi
gert gæfumuninn. Björgvin Páll
Gústavsson hafi ekki fundið sig í
fyrri hálfleik en Aron hafi breytt
gangi leiksins. Þá hafi menn eins
og Ólafur Bjarki Ragnarsson átt
fína innkomu. Reynsluboltarnir
Guðjón Valur Sigurðsson og Alex
ander Petersson hafi verið frábær
ir í síðari hálfleik og Snorri Steinn
Guðjónsson hafi verið á pari. „Þetta
endurspeglar hvað liðið er leik
reynt. Reynsluboltarnir gerðu það
að verkum að þetta er mögulegt.
Línan afar mikilvæg
Guðjóni finnst liðið eiga nokkuð
inni fyrir síðari leikinn í Laugardals
höll, sem verði ekki síður erfiður.
„Við þurfum að spila betur því mér
fannst Slóvenar kasta þessu frá sér
í leiknum á fimmtudag. Þeir virk
uðu þreyttir síðasta stundarfjórð
unginn.“ Hann spáir því að tempóið
verði meira í leiknum á sunnudag
og að leikurinn verði hættulegur.
„Það hringja aðvörunarbjöllur, því
er ekki hægt að neita. Línan er veik.
Það var frábært hjá Kára að spila –
auðvitað alveg galið. Ég skil vel að
forráðamenn Wetzlar séu brjálaðir,“
segir Guðjón léttur. Hann segir að
fólk heima í stofu geri sér ekki alltaf
grein fyrir mikilvægi öflugs línu
manns. Kári sé ekki heill heilsu og
það hafi meðal annars leitt til þess
að íslensku skytturnar fengu fá góð
færi, „fáar opnanir“ í fyrri hálfleikn
um úti. Það verði að viðurkennast
að Atla Ævari Ingólfssyni hafi ekki
tekst að hjálpa liðinu í sókninni,
eftir að Kári sneri sig á ökkla. „Þetta
er staða sem verður að vera í lagi.
Sóknarleikurinn byggist á því að við
fáum opnanir,“ segir Guðjón.
Björgvin Páll náði sér ekki á strik
í leiknum úti. Guðjón á þó von á
því að hann muni byrja í markinu
á sunnudag. Björgvin hafi verið að
spila vel úti í Þýskalandi og sé enn
okkar fyrsti markvörður. Innkoma
Arons Rafns sé þó ánægjuleg. Guð
jón spáir því raunar að Björgvin
muni eiga góðan leik á sunnudag.
„Þetta verður svipaður leikur og ég
gæti trúað því að við löndum sigri.
Hann verður ekki stór, kannski tvö
eða fjögur mörk. En við gætum líka
hæglega tapað, ef við spilum illa.“
Ísland er með sex stig á toppi
riðilsins, eftir þrjá leiki. Slóvenía
hefur þrjú stig. Sigur á sunnudag fer
langleiðina með að tryggja liðið inn
á EM í Danmörku. n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
n Guðjón Guðmundsson hefur áhyggjur fyrir síðari leikinn við Slóveníu
Eiga framtíðina
fyrir sér Ólafur Bjarki
skoraði mikilvæg mörk í
Slóveníu. Aron Pálmars-
son náði sér ekki á strik
en er lykilmaður í liðinu.
„Bakvörðunum voru
mislagðar hendur í
fyrri hálfleik
Spáir erfiðum leik Guðjón Guðmundsson
íþróttafréttamaður heldur að Ísland vinni.
Rekinn Sú ákvörðun Kára Kristjáns að spila
leikinn með landsliðinu reyndist dýrkeypt.