Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 52
Er líf eftir
dauðann? Sig
tryggur segist ekki
viss um að það sé
líf eftir dauðann
en ætlar að senda
inn fréttaskot
þegar þar að kem
ur ef svo reynist.
Hvað er að
gerast?
5.–7. apríl
Föstudagur5
apr
Laugardagur6
apr
Sunnudagur7
apr
Uppistand frá þremur
köldum löndum
Uppistand hefur sótt í sig veðrið á norð
urslóðum hin síðari ár og nú ætla uppi
standarar frá þremur köldum löndum að
stíga á svið á Íslandi; Craig Campbell frá
Kanada, Jonas Kinge Bergland frá Noregi
og heimamaðurinn Ari Eldjárn.
Leikhúskjallarinn Kl. 19.30
On the Road
Myndin er byggð
á víðfrægri og
margrómaðri,
samnefndri
bók eftir Jack
Kerouac. Margir
hafa í gegnum
tíðina talið
ómögulegt að koma
þessu mikla meistaraverki bókmennt
anna á hvíta tjaldið svo vel sé, en Salles
tekst það hér með mikilli prýði. Í öllum
aðalhlutverkum eru eintómir stórleik
arar og má þar nefna Viggo Mortensen,
Kristin Stewart, Amy Adams, Kirsten
Dunst og Steve Buscemi.
Bíó Paradís Kl. 20.00
Sjóræningjaprinsessan
- frumsýning
Leikrit sem fjallar á
ærslafengin hátt um
ævintýri barnanna
Soffíu og Matta
sem alist hafa upp
á gistihúsinu Sporð
lausu hafmeyjunni á
friðsælli eyju í Suður
höfum allt frá því að Soffía
kom þangað með dularfullum hætti sem
ungbarn. Ólíkt Matta, uppeldisbróður
sínum, þráir Soffía að lenda í ævintýrum
og heldur því statt og stöðugt fram að
hún sé sjóræningjaprinsessa, fóstur
foreldrum sínum til mikillar armæðu.
Gaflaraleikhúsið Kl. 14.00
Gói og baunagrasið
Gói er sendur af móður sinni á markaðinn
til að selja Skjöldu gömlu sem er eina
mjólkurkýrin þeirra. Gói á langan veg
fyrir höndum og áður en á leiðarenda er
komið tekur ferðalagið óvænta stefnu
þar sem þrjár töfrabaunir koma við sögu.
Upp spinnst spennandi ævintýri með
skemmtilegri tónlist, söng, dansi og
leikhúsbrellum. Risinn, hænan sem verpir
gulleggjum, sjálfspilandi harpan og allir
þorpsbúar mæta til leiks á sviðinu.
Hof Kl. 13.00
Frá konu til konu
Í tilefni af 20 ára
afmæli Kvennakórs
Reykjavíkur verða
haldnir hátíðartónleik
ar „Frá konu til konu“ en
þar koma saman allir kórar
sem starfað hafa undir merkjum Kvenna
kórs Reykjavíkur. Kórarnir munu syngja
saman og hver fyrir sig tónlist af ýmsum
toga. Þar verður tónlist eftir gömlu
meistarana og ung íslensk tónskáld svo
eitthvað sé nefnt.
Eldborg, Hörpu Kl. 15.00
Byggir verkið á
lífi langafa síns
n Langafi Sigtryggs Magnasonar skrifaði með ósjálfráðri skrift
Þ
etta hefur tekið sinn tíma en
það eru tíu eða fimmtán ár
síðan hugmyndin kom upp.
Fæðingin hefur verið erfið
enda stendur sagan mér nærri
og ég vildi að hún öðlaðist sjálfstætt
líf. Þetta eru ekki langafi og langamma
sem eru á sviðinu heldur persónur
sem eru innblásnar af þeirra sögu,
segir leikskáldið Sigtryggur Magnason
sem frumsýnir Nú er himneska sum
arið komið þann 13. apríl á Árbæjar
safninu.
Langafi og langamma Sigtryggs
eru bæði látin en þau fæddust í kring
um aldamótin 1900 í SuðurÞingeyjar
sýslu. „Langamma dó úr berklum 28
ára árið 1933. Fljótlega eftir andlát
hennar fór langafi að skrifa með ósjálf
ráðri skrift. Hönd hans hreyfðist án
þess að hann gerði nokkuð sjálfur og
undirskriftin var ömmu. Sum af bréf
um hans eru mjög óskýr en hann skrif
aði bréfin í nokkurs konar leiðslu og
hélt þannig sambandi við ástina sína
alla ævi.“
Verkið Nú er himneska sumar
ið komið fjallar um Lilju, unga konu
sem flýr erfiðleika í ástarlífi sínu og í
faðm afa síns sem hún hefur ekki hitt
í 22 ár. Hann býr enn með minning
um um konu sína, ömmu Lilju, sem
hann hefur haldið sambandi við í 45
ár með ósjálfráðri skrift. „Þau hjálpa
hvort öðru að sætta sig við líf og dauða.
Þetta er dálítið mögnuð saga af því hún
er sönn og dramatísk í eðli sínu,“ segir
Sigtryggur.
Aðalhlutverkið leikur Svandís Dóra
Einarsdóttir, kona Sigtryggs. „Svan
dís leikur bæði hlutverk Lilju yngri og
eldri. Ég fann strax þegar ég sá hana
fyrst og löngu áður en eitthvað varð úr
okkar sambandi að þarna væri konan
sem gæti leikið þessa persónu. Þetta
er því voðalega notalegt allt saman.
Mikill heimilisiðnaður,“ segir hann og
bætir við að hann sé spenntur að sýna
fjölskyldunni verkið. „Mér hefur tek
ist að skrifa fallegt verk en það var það
sem fjölskylda mín óttaðist mest. Þau
hafa séð hin verkin mín sem eru full
af óhugnaði. Það reyndi mikið á mig
að halda fegurðinni í aðalhlutverki en
það tókst og ég er spenntur að fá þau á
sýninguna.“
Sigtryggur var aðeins fimm ára
þegar langafi hans lést. Hann segist
ekki vita til þess að afi hans hafi að
öðru leyti verið tengdur andaheimin
um. „Ég veit að hann var mikill spírit
isti en aðallega var hann bóndi sem
skrifaði falleg bréf,“ segir hann og
bætir aðspurður við að hann sé sjálf
ur ekki viss hvort það sé líf eftir dauð
ann. „Ég held að maður geti aldrei
verið viss. Ég held að minningar geti
verið ofboðslega sterkar. Stundum
þegar ég er að skrifa er eins og það sé
eitthvað ómeðvitað sem gerist. Stund
um hugsa ég að það hafi verið eins hjá
langafa; að þetta hafi verið söknuð
ur og ást í bland við skáldlegt flæði
og innsæi. En varðandi líf eftir dauð
ann þá læt ég ykkur vita þegar að því
kemur. Þá sendi ég fréttaskot.“ n
indiana@dv.is
52 Fólk 5.–7. apríl 2013 Helgarblað
„Mér hefur tekist að
skrifa fallegt verk
en það var það sem fjöl-
skylda mín óttaðist mest.
Með kvíðahnút í maganum
n Heiðar Örn er nýr fréttaþulur
M
ér líst ágætlega á þetta en
ég get ekki neitað því að ég
var með kvíðahnút í magan
um fyrir útsendinguna,“ seg
ir fréttamaðurinn Heiðar Örn Sigur
finnsson á RÚV sem tók sína fyrstu
vakt sem fréttalesari á mánudags
kvöldið.
Heiðar Örn er enginn byrjandi
þegar kemur að beinum útsending
um en hann hefur stjórnað kosn
ingasjónvarpi og öðrum umræðu
þáttum. „Þetta er samt öðruvísi.
En sem betur fer hvarf stressið eftir
fyrstu þrjár fréttirnar. Eftir það var ég
rólegur,“ segir Heiðar Örn sem fyllir í
skarð Ingólfs Bjarna Sigfússonar sem
er hættur á fréttastofunni.
„Ég hef aldrei stefnt að því að
verða fréttalesari, það hefur aldrei
verið neitt metnaðarmál fyrir mig.
Ég sóttist ekki eftir þessu og lít bara
á þetta sem verkefni eins og öll önn
ur sem maður fær upp í hendurnar.
Þetta er spennandi tækifæri en ég
geri ráð fyrir því að ég fái að hætta
ef mér líkar þetta ekki eða ef ég verð
ómögulegur. Ætli maður þurfi ekki
nokkur kvöld til að slípa sig til.“
Heiðar Örn, sem er rétt tæplega
35 ára, efast um að hann hafi verið
valinn þar sem skortur hafi verið á
ungum karlkyns fréttalesurum á móti
ungu konunum sem lesa fréttirnar.
„Ingólfur Bjarni er ungur þótt hann
sé eitthvað eldri en ég og svo var Logi
Bergmann ekki gamall þegar hann
byrjaði,“ segir hann og bætir aðspurð
ur við að hann verði áfram í frétta
öflun. „Þessa dagana er ég að undir
búa kosningaumfjöllun og þess utan
er ég vaktstjóri líka svo það er bara
brot af starfinu að lesa fréttirnar.“
Hann segist ekki eiga neina fyrir
mynd í nýja starfinu. „Eins og ég segi
þá hef ég aldrei séð sjálfan mig fyrir
mér í þessu hlutverki. Hins vegar
hefur Bogi Ágústsson tekið mig í smá
fóstur, leiðbeint mér og verið mér
lærifaðir og fyrirmynd.“ n
Spennandi tækifæri Heiðar Örn segist aldrei hafa haft metnað fyrir því að verða
fréttalesari.