Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Qupperneq 4
Vikublað 11.–13. mars 20144 Fréttir
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Sjúklingar
rotaðir með
kylfum
Í nýrri skýrslu Barnaheilla –
Save the Children kemur fram
að heilbrigðisstarfsfólk í Sýr-
landi hefur þurft að taka þátt
í hrottalegum lækningarað-
ferðum vegna þess hve laskað
heilbrigðiskerfið í landinu er
orðið. Börn eru aflimuð vegna
tækjaskorts, nýburar deyja í
hitakössum þegar rafmagn
dettur út og sjúklingar eru rotað-
ir með málmkylfum þegar svæf-
ingalyf vantar. Þá fá sjúklingar
blóðgjöf manna á milli.
Skýrslan heitir A devastating
Toll: the Impact of Three Years
of War on the Health of Syria's
Children. Í henni kemur fram að
farsóttir herji á milljónir barna
sem óvarin eru gegn margs kon-
ar lífshættulegum sjúkdómum.
Börn deyja vegna sjúkdóma sem
áður hefði verið hægt að með-
höndla eða koma í veg fyrir.
Matvöruverð
hækkar
Samkvæmt verðkönnun verð-
lagseftirlits ASÍ hefur mat-
vöruverð hækkað umtalsvert
síðastliðið eitt og hálft ár. Til
að mæla verðlag eru fimmtíu
og tvær vörur bornar saman í
níu verslunum um land allt. Í
verðlagskönnun sem gerð var í
lok febrúar kom í ljós að mest
hækkun var á grænmeti, ávöxt-
um, mjólkurvöru og pylsum.
Könnunin var gerð í Bónus,
Krónunni, Nettó, Fjarðarkaup-
um, Iceland, Samkaupum - Úr-
vali, Hagkaupum, 10-11 og Nóa-
túni. Mesta hækkunin á verði
matvöru var í Iceland.
É
g er margbúin að segja það
að ákvörðunin var ekki borin
upp í bankaráði Seðlabank-
ans ekki frekar en ýmislegt
annað sem að verið er að taka
ákvarðanir um frá fundi til fundar,“
segir Lára V. Júlíusdóttir, fyrrver-
andi formaður bankaráðs Seðla-
banka Íslands, í samtali við DV.
Meðan hún var formaður banka-
ráðs tók hún þá ákvörðun að bank-
inn myndi greiða málskostnað Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra
í málaferlum hans gegn bank-
anum. Hann segir að hann hefði
ekki áfrýjað dómi héraðsdóms ef
honum hefði ekki verið lofað að
málskostnaður hans yrði greiddur
af bankanum. Lára tók þá ákvörðun
án samráðs við bankaráð. Kostn-
aður vegna málsins nemur í það
minnsta fjórum milljónum króna.
„Bankaráð hefur ekki komið
saman síðan þetta mál kom upp en
fyrsta skrefið hlýtur að vera að ráð-
ið fari í gegnum staðreyndir í málinu
og þegar það liggur fyrir taka menn
ákvörðun um hvort það fari fram
rannsókn,“ segir Jón Helgi Egilsson
sem situr nú í bankaráði spurður um
hvort málið verði sett í rannsókn.
„Tók ég á mig mikil óþægindi“
Már Guðmundsson segir í skriflegu
svari við fyrirspurn DV að hann
hefði ekki tekið við greiðslu Seðla-
bankans vegna málsins ef honum
hefði ekki þótt það eðlilegt. „Það
var metið mikilvægt fyrir bankann
sem stofnun að fá úr þessu skor-
ið. Því til viðbótar varðar það jafn
mikið hagsmuni seðlabankastjóra
framtíðarinnar og mína, og kannski
meira. Persónulega tók ég á mig
mikil óþægindi vegna þessa mála-
reksturs. Svarið er því já, enda hefði
ég ekki tekið það í mál ef mér þætti
það óeðlilegt,“ skrifar Már. Hann
segir auk þess að hann hefði ekki
áfrýjað til Hæstaréttar hefði hann
ekki haft vilyrði fyrir því að hann
bæri ekki fjárhagslega áhættu. „Í
síðasta lagi þá taldi ég mig hafa
vissu fyrir þessu,“ skrifar Már.
Ekki borið upp í bankaráði
Már höfðaði mál gegn Seðlabank-
anum árið 2009 þar sem hann taldi
kjararáð ekki hafa heimild til að
skerða laun hans eftir að hann var
skipaður í embættið. Hann tap-
aði því máli bæði fyrir héraðsdómi
sem og Hæstarétti. Í kjölfar þess tók
Lára þá ákvörðun að Seðlabank-
inn myndi borga málskostnað Más
þrátt fyrir að hann hefði tapað mál-
inu fyrir dómstólum.
„Ef þú lest yfirlýsinguna þá kem-
ur þar fram að ég hafði gert banka-
ráðinu grein fyrir rekstri málsins
allan tímann. Það er enginn sem
dregur það í efa,“ segir Lára. Hún
staðfestir að hún hafi ekki borið
þessa ákvörðun undir bankaráð.
Lára tók ákvörðunina
Svo virðist sem enginn annar
stjórnarmaður bankaráðs, að Láru
frátalinni, hafi vitað að Seðlabank-
inn hafi borgað málskostnað Más.
Bæði Hildur Traustadóttir sem og
Katrín Olga Jóhannesdóttir, sem
sátu báðar í bankaráði Seðlabank-
ans, hafa sagt að Lára hafi ekki
upplýst ráðið um hvernig staðið
væri að málskostnaði Más. „Það
er rétt að Lára upplýsti bankaráð
um framganginn en það kom hins
vegar aldrei inn á borð bankaráðs
að fjalla um að Seðlabankinn ætti
að borga málskostnað Más,“ sagði
Katrín Olga í samtali við Vísi um
helgina.
Orð þeirra stangast því á við
fréttatilkynningu Láru þar sem hún
sagði bankaráð hafi verið „upplýst
um stöðu þessa dómsmáls og hafði
öll tök á að fylgjast með málinu.“
Lára virðist því hafa staðið ein að
þeirri ákvörðun að Seðlabankinn
greiddi málskostnað Más.
„Fullkomlega eðlilegt“
Spurð hvort henni þyki eðli-
legt að Seðlabankinn hafi greitt
málskostnað Más segist hún ekki
hafa gert neitt sem reglur bankans
gera ekki ráð fyrir. „Það hefur aldrei
verið dregið í efa að ég hafi ver-
ið að gera eitthvað annað en regl-
ur bankans gera ráð fyrir. Þetta var
alveg fullkomlega eðlilegt. Fólk get-
ur ekki slitið hlutina svona úr sam-
hengi, þetta er náttúrlega mál sem
nær yfir langt tímabil, mál sem þró-
ast með ákveðnum hætti. Þetta
þróast úr því að það er uppi ágrein-
ingur og það er leitað eftir lögfræði-
áliti. Þegar það liggur fyrir er ekki
hægt að taka ákvörðun á grund-
velli þess. Þess vegna var ekki um
annað að ræða en að fara með mál-
ið fyrir dómstóla. Við gátum ekki
setið uppi með þennan ágreining
óleystan,“ segir hún.
Bankaráð Seðlabankans mun
funda næstkomandi fimmtudag
um málið. n
Hefði ekki áfrýjað
án vilyrðis bankans
Lára V. Júlíusdóttir segir „fullkomlega eðlilegt“ að Seðlabankinn hafi borgað málskostnað Más
Fyrrverandi formaður
bankaráðs Lára segir ekkert
óeðlilegt við það að hún hafi ekki
látið bankaráð vita að Seðla-
bankinn myndi greiða málskostn-
að seðlabankastjóra í málaferl-
um gegn Seðlabankanum.
Mynd SigTryggur Ari
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is „Við gátum ekki setið uppi með
þennan ágreining
óleystan.
Landsþing að baki bréfinu
Guðmundur Steingrímsson segir Sigmund davíð fara frjálslega með staðreyndir
S
igmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra sagði
í Kastljósi í síðustu viku að
bréf sem hann skrifaði und-
ir og sendi til kjósenda und-
ir eigin nafni fyrir kosningarnar 2009
hefði verið „sett fram af hópi“ sem
hefði síðan yfirgefið flokkinn. Í bréf-
inu var stefna Framsóknarflokks-
ins í Evrópumálum rakin. Þar kom
fram að Framsóknarflokkurinn væri
eini flokkurinn sem hefði markað sér
skýra stefnu fyrir aðildarviðræður
við Evrópusambandið.
Guðmundur Steingrímsson, for-
maður Bjartrar framtíðar, var í Fram-
sóknarflokknum á þeim tíma sem
bréfinu var dreift til kjósenda. Hann
segir innihald bréfsins hafa byggt á
ákvörðun sem flokksmenn tóku með
kosningu á einhverju stærsta lands-
þingi Framsóknarflokksins í manna
minnum. Því sé erfitt að átta sig á því
hvað forsætisráðherra eigi við þegar
hann talar um einhvern óljósan hóp
manna. Ef ekki sé um stórbrotna
sögufölsun að ræða hjá forsætisráð-
herra, sé þetta allavega mjög frjálsleg
túlkun á staðreyndum málsins.
Hann segist ekki kannast við það
að Sigmundur Davíð hafi lagst eitt-
hvað sérstaklega gegn því að fjallað
væri um stefnu Framsóknarflokksins
í Evrópumálum fyrir kosningarnar
2009. Ef hægt sé að tala um tiltekinn
hóp í þessu samhengi, þá hafi ein-
faldlega verið um að ræða fólk sem
vann að því að Framsóknarflokk-
urinn stæði við stefnu sína og sækti
um aðild. Sá hópur hafi ekki unnið
fyrir luktum dyrum, heldur byggt af-
stöðu sína á skýrri samþykkt flokks-
þings. n jonbjarki@dv.is
Frjálsleg túlkun Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, segir forsætis-
ráðherra túlka staðreyndir heldur frjálslega. Mynd SigTryggur Ari