Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Side 13
Vikublað 11.–13. mars 2014 Fréttir 13 Hafðu samband! Hjörtur Sveinsson hjortur@dv.is Berglind Guðrún Bergmann berglind@dv.is Þórdís Leifsdóttir thordis@dv.is Tryggðu þér auglýsingapláss! Fermingarblað DV kemur út með helgarblaðinu 14.mars og verður aðgengilegt frítt inn á dv.is. viðskipti sem virðast við fyrstu sýn gjörólík en tengjast bæði vélfræði- menntun Steingríms. Annars vegar er það vegna fyrirtækis sem set- ur upp vindmyllur til framleiðslu á raforku, en hins vegar vegna kaupa á dýrasta skipi Íslandssögunn- ar. Fyrir tækið Biokraft ehf. er í eigu hans og Snorra Sturlusonar en starfsemi þess hófst árið 2012. Þeir félagar höfðu lengi haft hug- myndina í kollinum og ákváðu á endanum að slá til þegar tækifæri gafst. Fyrst vildu þeir félagar setja upp vindmyllur í landi Vorsabæjar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Ná- grannar voru hins vegar óánægðir með þau áform, enda sjónmengun af svo stórum mannvirkjum en hæð þeirra er svipuð Hallgrímskirkju. Því næst sneru þeir sér til Þykkvabæjar, þar sem viðbrögð- in voru heldur betri. Til stendur að reisa tvær vindmyllur á iðnað- arsvæði, norðan við Kartöfluverk- smiðjuna en nákvæm tímasetning hefur verið á reiki. Fyrst var áætl- að að setja þær upp síðasta sumar, því næst í nóvember en nú er út- lit fyrir að þær verði ræstar í byrj- un sumarsins. Mannvirkin komu til landsins í lok febrúar og verða nú sett upp, en þegar hefur ver- ið samið við Orkuveitu Reykjavíkur sem kaupir rafmagnið, auk þess að fá upplýsingar um uppbyggingu og rekstur myllnanna. „Hann er fram- sýnn, ævintýragjarn og klár náungi, en einnig mjög kappsamur. Þegar hann á í hlut er búið að hugsa dæm- ið til enda áður en lagt er af stað, jafnvel þótt hugmyndirnar séu oft mjög stórar. Hann vill frekar fram- kvæma en tala um hlutina“ segir Snorri í samtali við DV. n Keypti dýrasta skip Íslandssögunnar n Setur upp vindmyllur á Suðurlandi n Duglegur markaðsmaður Dýrasta skip Íslandssögunnar Á svipuðum tíma og Biokraft komst í fréttirnar tilkynnti Össur Skarp- héðinsson, þáverandi utanríkis- ráðherra, að búið væri að semja um kaup á dýrasta skipi sem Íslending- ur hefur fjárfest í. Íslendingurinn sá reyndist vera Steingrímur, en hann festi kaup á þjónustuskipi fyrir olíu- iðnað í nafni Fáfnis Offshore. Skipið kostar í kringum sjö milljarða króna og mun reynast vel í olíuleit og olíu- vinnslu. Það er ákaflega vel búið, sérstaklega styrkt fyrir siglingar í norðurhafi og fært um að halda stöðugleika í erfiðum aðstæðum. Össur sagði sjálfur að þarna væri um tímamót að ræða, og að með þessu yrði Ísland tilbúið til þess að mæta tækifærum sem gætu skap- ast á norðurslóðum. „Ég fagna því frumkvæði sem Fáfnir Offshore sýnir og tel að smíði fyrsta íslenska skipsins til að þjónusta olíuleit marki tímamót í iðnaðarsögu okk- ar Íslendinga. Fyrstu leyfin til olíu- leitar hafa verið gefin út og ég er sannfærður um að þetta skip mun vera upphafið að happasælli nýrri atvinnugrein; þjónustu við olíuleit- og vinnslu.“ Steingrímur sagði sjálf- ur að hann vonaðist til að þetta yrði fyrsta skrefið í uppbyggingu á slíkri þjónustu hér á landi. Stuttu seinna var tilkynnt um samning á milli Fáfnis og Fjarðabyggðar um að skip- ið myndi hafa heimahöfn þar. Noregsverkefni greiðir skipið upp Nú ári síðar hafa þessar áætlanir breyst mikið. Fljótlega eftir að til- kynnt var um kaupin, greindi Stein- grímur frá því að hann hefði tryggt skipinu verkefni á Svalbarða, sem mun færa Fáfni Offshore sjö millj- arða króna í tekjur og stendur því undir kostnaði skipsins að mestu leyti. Fáfnir er með samning við sýslumanninn á Svalbarða um leigu á skipi til eftirlits- og björg- unarstarfa, sem og almennra lög- gæslu- og þjónustustarfa. Samn- ingurinn er til sex ára en þangað til að hið nýja skip verður tilbúið leigir Fáfnir varðskipið Þór af Land- helgisgæslunni, og áframleigir til sýslumannsins. Hið nýja skip mun þó aðeins sigla í samtals þrjú ár fyrir sýslumanninn, á þessum sex árum, eða í sex mánuði á hverju ári. Ísland ekki samkeppnishæft Steingrímur sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 nýlega að lagaumhverfið á Íslandi væri óhagstætt fyrir fyrirtæki eins og Fáfni Offshore. Heimahöfn skips- ins er ekki í Fjarðabyggð, eins og áætlað var, heldur í Noregi. „Með skipið skráð á Íslandi erum við ekki samkeppnishæf við nágranna okkar, eins og Færeyinga. Þeir bjóða upp á þægilegra umhverfi fyrir fyrir- tæki eins og okkar,“ sagði Steingrím- ur við Stöð 2. Hann vill að Ísland bjóði upp á alþjóðlegar skipaskrán- ingar, líkt og Færeyingar sem hafa dregið til sín hundruð skipa. Með því verði jafnframt til hálaunastörf hér á landi. „Það er ekkert annað eðlilegt en að við gerum þetta með íslensku hugviti og íslenskum sjó- mönnum,“ sagði Steingrímur jafn- framt og hnykkti út með því að tæki- færi á norðurslóðum myndu sigla framhjá ef engu yrði breytt. Kapp er best með forsjá Steingrímur hefur mikil tengsl er- lendis vegna vinnu sinnar við skipamiðlun og hjá Bjarnar og jafn- vel er enn haft samband við hann erlendis frá þegar vöntun er á skip- um. Einhverjir hefðu eflaust látið sér það nægja að fá hundruð millj- óna út úr seldum hlut í fyrirtæki, enda er það upphæð sem gæti enst flestum til æviloka. Ævintýramað- urinn Steingrímur hefur hins vegar ekki sagt sitt síðasta. „Hann hefur „Hann er framsýnn, ævintýragjarn og klár náungi Steingrímur Bjarni Útgerðarmaðurinn Stein- grímur hefur sagt skilið við fiskveiðar og einbeitir sér nú að þjónustu við olíuleit og -vinnslu. Hann seldi hlut í Bjarnar ehf. og fékk hundruð milljóna króna fyrir. MyND FáFNir OFFShOre alltaf verið mjög duglegur og góð- ur í viðskiptum, góður markaðs- maður. Ég held samt að annaðhvort muni Steingrímur verða gríðarlega ríkur eða tapa öllu,“ segir fyrrver- andi samstarfsmaður hans. Á tíma sínum í Vélskólanum var hann kos- inn formaður nemendafé- lagsins á sínu fyrsta hausti, bauð sig fram gegn nemend- um sem höfðu verið lengur í skólanum en vann samt. Og hann heldur áfram að reyna að sigra á nýjum vígstöðvum. Hann sér tækifæri í raf- orkuiðnaði og olíuvinnslu á norður slóðum, og fer inn á þá markaði að vel athuguðu máli. Andstæðurnar í persónuleika hans togast á, því hann er varkár en um leið ævin týragjarn. Kapp er best með forsjá, segir máltækið, og það virðist lífsmottó útgerðarmannsins Steingríms Bjarnar Erlingssonar. n Með stjórnarformanninum Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður í OR, er einnig stjórnarformaður Fáfnis Off- shore. MyND FáFNir OFFShOre Útskriftarnemendur Vélskólans Steingrímur útskrifaðist úr Vélskólanum árið 1996. Hann varð formaður nemendafélagsins á sinni fyrstu önn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.