Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Page 16
16 Fréttir Erlent Vikublað 11.–13. mars 2014
n 220 Afganar hafa dvalið í Guantanamo Bay n Fá ekki vinnu og upplifa ótta
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
U
m 220 Afganar hafa afplán-
að fangelsisvist í Guantana-
mo Bay-fangelsinu á Kúbu.
Afganar eru stærsti hópur
erlendra fanga sem dvalið
hafa í fangelsinu en alls hafa menn
frá 50 löndum setið þar inni. Lang-
flestir þeirra hafa sem betur fer snúið
til síns heima að vistinni lokinni og
sögur þeirra af dvölinni í fangels-
inu, og stundum sögur af illri með-
ferð af hálfu Bandaríkjamanna, hafa
haft áhrif á samfélagið. Fjallað er um
þessa menn á BBC.
„Í mannkynssögunni hafa aðeins
tvö fangelsi verið af þessari gráðu.
Annað þeirra var fangelsi Hitlers
en hitt er þetta fangelsi Bandaríkja-
manna,“ segir Haji Ghalib, fyrrver-
andi umdæmisstjóri lögreglunnar
í austurhluta Afganistan. Hann
var handtekinn á skrifstofu sinni í
febrúar 2003. Þessi ummæli hans
endurspegla að sögn blaðamanns-
ins viðhorf Afgana til Guantanamo-
fangelsisins. Á götum Kabúl þekkja
menn ekki tvíburaturnana og ekki
Manhattan. Allir þekkja hins vegar
Guantanamo.
Þrír Afganar hafa látist í fangels-
inu. Nítján voru ákærðir en allir hin-
ir, 198 afganskir fangar, voru aldrei
ákærðir þrátt fyrir að hafa setið inni.
Þeim var sleppt og yfirleitt fagnað
sem þjóðhetjum þegar þeir sneru
aftur. „Þúsundir manna, fólk úr mín-
um heimabæ, tóku á móti mér þegar
ég kom heim. Ég var umkringdur
fólki og tók í hönd 2.000 þeirra, hið
minnsta.“ Þetta segir Haji Shahazada
Khan, eldri maður frá bænum
Kandahar í suðurhluta Afganistan.
Aðrir fyrrverandi fangar sem blaða-
maður ræddi við höfðu svipaða sögu
að segja.
Engar skýringar á handtökunni
En hvernig lýsa þeir reynslu sinni
úr fangelsinu? Mullah Zaeef er einn
þeirra sem skrifað hefur bók um veru
sína í fangelsinu. Hún varð metsölu-
bók í Afganistan og Pakistan árið
2009. Allir Afganar þekkja sögurnar
og þær eru ekki fallegar. „Þeir frömdu
á okkur margvísleg mannréttinda-
brot og gerðu hluti sem ganga í ber-
högg við islam,“ segir Haji Nasrat
Khan, faðir Shahazada Kahn. Hann
treystir sér ekki til að ræða hvers eðl-
is brotin voru.“ Hann var við slæma
heilsu, langt genginn í áttrætt, þegar
bandarískir hermenn tóku hann
höndum á heimili sínu árið 2003,
skammt frá höfuðborginni Kabúl.
Hann fékk aldrei skýringar á því
hvers vegna hann var tekinn fastur
og settur í fangelsi. Margir hafa svip-
aða sögu að segja.
Haji Shahazada segir að fyrrver-
andi fangar forðist að tala af hrein-
skilni um Guantanamo. „Við segjum
yfirleitt að Guantanamo sé eins og
að koma til tengdó – að það sé nota-
legur staður. Ef við segjum sannleik-
ann gerum við ekkert nema valda
þeim sem eiga ástvini í fangelsinu
hugarangri.“ Þó er allur gangur á
þessu. Haji Ruhullah, eldri maður
frá austurhluta landsins, dregur upp
öllu verri mynd af verunni í fangels-
inu. „Guantanamo svipti okkur ekki
aðeins frelsinu heldur einnig öðr-
um réttindum. Okkur var meira að
segja bannað að tala,“ segir hann.
„Við máttum ekki hreyfa varirnar
þegar við lásum Kóraninn, hvað þá
hafa versin eftir. Okkur var refsað af
fangavörðum ef við töluðum við aðra
fanga.“ Fangarnir sem BBC ræðir við
tala flestir um að þeir hafi ekki gert
ráð fyrir því að sleppa lifandi.
Eins og að rísa upp frá dauðum
Mawlawi Abdul Razaq, fyrrverandi
viðskiptaráðherra í stjórn talíbana,
var í fimm ár í fangelsinu. Hann seg-
ir að það hafi verið eins og að rísa
upp frá dauðum, að losna þaðan út.
„Við sem vorum í Guantanamo vor-
um ekki í neinum samskiptum við
umheiminn. Bréfin sem við fengum
að heiman – frá fjölskyldum okkar
– voru að mestu eyðilögð eða rit-
skoðuð. Það að losna var eins og að
stíga upp úr sinni eigin gröf.“ Hann
segir að dvölin hafi, merkilegt nokk,
að hluta til gert honum gott. Hann
hafi lært að endurmeta lífið og að
vera þakklátur guði, Allah, fyrir það
sem hann hefur. Ég hef lært að frels-
ið er dýrmætt.“ Heimkoman var ekki
dans á rósum. Vínekrurnar hans
voru uppþornaðar og trén, um fimm
þúsund talsins ónýt. Það var mér
þungbært að upplifa.“
Haji Ghalib, fyrrverandi lögreglu-
þjónn, segir að flestir þeir sem snúi
heim eigi í erfiðleikum með að finna
vinnu. Enginn þori að ráða þá. Sjálf-
ur hafi hann verið atvinnulaus síð-
an hann sneri heim. Þeir þurfi líka
að takast á við að með þeim sé skipu-
lega fylgst. Bandarískar hersveitir
áreiti þá fyrirvaralaust endrum og
eins, sem og afganskar öryggissveitir,
sem gruni þá um að hafa vingast við
óvininn. „Nokkrir fyrrverandi fangar
hafa verið drepnir af Bandaríkja-
mönnum, fyrir að vera meintir upp-
reisnarmenn.“ Fangarnir fyrrverandi
hafa stofnað með sér samtök þar sem
áherslan er lögð á að sýna fram að
þeir séu meinlausir. Í brjóstum þeirra
býr hins vegar stöðugt hræðslan við
að verða handteknir á nýjan leik – af
talibönum sem óttist þá.
155 enn í haldi
Enn eru 155 mönnum haldið í
Guantanamo, án þess að fyrir liggi
nokkrar sannanir. Þegar þeir voru
flestir voru 800 fangar í fangelsinu.
„Fangarnir sem hér eru hafa verið
teknir af vígvellinum. Við höldum
þeim hér til að koma í veg fyrir að
þeir gangi lausir á átakasvæðum.“
Þetta segir Richard Butler, aðmíráll
og liðsforingi Joint Task Force, sem
rekur herfangelsið í Guantanamo.
„Þeir eru látnir dúsa hér þar til við
fáum fyrirskipanir um að þess ger-
ist ekki þörf lengur. Þangað til tek ég
enga afstöðu til sektar eða sakleysis
þeirra.“
Haji Ghalib er vissulega laus úr
haldi Bandaríkjamanna. Hann er
atvinnulaus og býr með fjölskyldu
sinni í kaldri og rakri íbúð í Kab-
úl. Líf hans er ekki svipur hjá sjón
frá því sem áður var. „Mér var sagt
af Bandaríkjamönnum að Banda-
ríkjastjórn hafi beðist afsökunar á
því að ég hafi saklaus þurft að dvelja
í Guantanamo í fimm ár, án dóms
og laga. Ég get aldrei fyrirgefið þeim
vistina.“ n
„Ég get aldrei
fyrirgefið vistina“
„Við sem vorum
í Guantanamo
vorum ekki í neinum sam-
skiptum við umheiminn.
„Okkur var refsað
af fangavörðum
ef við töluðum við aðra
fanga
Bréfin eyðilögð Fangarnir
lýsa því að þeir hafi ekki
fengið að vera í neinu sam-
bandi við umheiminn. Þeir
máttu ekki einu sinni hreyfa
varirnar þegar þeir lásu
Kóraninn. Mynd REutERs
Glímir við afleiðingar Líf Haji Shahazada Khan er ekki svipur hjá sjón. Hann fær enga
vinnu og býr í lélegri íbúð í Kabúl.
Dagvistun
lokað vegna
vanrækslu
Yfirvöld í Stokkhólmi í Svíþjóð
hafa ákveðið að loka dagvistun
fyrir börn vegna vanrækslu sem
börnin þar sættu. Eftirlitsað-
ilar heimsóttu dagheimilið í
febrúar síðastliðnum. Í umfjöll-
un sænskra fjölmiðla kemur
fram að ekki hafi verið skipt á
bleyjum barnanna svo tímun-
um skipti og þau ekki hugguð
ef eitthvað bjátaði að hjá þeim.
Steininn tók úr þegar eitt barn-
anna varð næstum fyrir bíl fyrir
utan dagheimilið. Var það fyrir
snör viðbrögð eins þeirra sem
var í eftirliti á heimilinu að ekki
fór verr. „Þetta var litið mjög
alvarlegum augum og þess
vegna gripum við til þessara
ráðstafana,“ segir Stefan Lars-
son Lindmark, sviðsstjóri hjá
skóla- og frístundasviði Stokk-
hólms, í samtali við sænska
ríkis útvarpið.
Margt á huldu
um hvarfið
Kínversk yfirvöld lögðu það til
við yfirvöld í Malasíu á mánu-
dag að aukinn kraftur yrði
settur í leitina að Boeing-far-
þegaþotu Malaysia Airlines
sem hvarf sporlaust á leið frá
Malasíu til Kína á laugardag.
Margt er á huldu um hvarf
þotunnar og er ekki vitað hvort
slys hafi átt sér stað eða hvort
um hryðjuverk hafi verið að
ræða. Þó er staðfest að tveir
farþegar vélarinnar notuðu
stolin vegabréf til að komast
um borð og beinist rann-
sóknin meðal annars að því
hverjir þeir eru og hvort þeir
hafi átt einhvern þátt í hvarfi
vélarinnar. Á blaðamanna-
fundi á mánudag sagði Abdul
Rahman, sem fer fyrir rann-
sókninni, að annar þeirra hafi
verið þeldökkur og útlit hans
minnt á ítalska knattspyrnu-
manninn Mario Balotelli sem
leikur með AC Milan á Ítalíu.
Þá var ráðherra ferðamála
í Malasíu, Hishammuddin
Hussein, spurður um bréf sem
blaðamaður fékk, en þar lýs-
ir kínverskur uppreisnarhópur
ábyrgð á því að hafa grandað
vélinni. Hussein staðfesti til-
vist bréfsins en vildi ekki ekkert
segja til um það hvort það sem
fram kom í bréfinu sé rétt.
Leit að braki úr vélinni hef-
ur engan árangur borið, en á
mánudag var staðfest að það
sem talið var vera björgunar-
bátur á floti hafi ekki verið úr
vélinni. Leitarsvæðið hefur nú
verið stækkað og taka fjölmörg
skip og flugvélar þátt í leitinni.