Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Qupperneq 18
Vikublað 11.–13. mars 201418 Fréttir Erlent
Ekki sýnd í Egyptalandi
Al Midan er fyrsta myndin frá Egyptalandi sem fengið hefur Óskarsverðlaunatilnefningu
Þ
ó svo að egypska heimildar
myndin Al Midan, eða Torg
ið, sé fyrsta myndin þar í
landi sem tilnefnd er til Ósk
arsverðlauna hefur hún aldrei ver
ið sýnd í landinu. Gagnrýnendur
segja að ástæðan sé pólitísk, sú
mynd sem dregin sé upp af landinu
sé líklega of neikvæð, á meðan
stjórnvöld segja að ástæðan sé
stjórnsýslulegs eðlis, ekki hafi verið
staðið rétt að umsóknum um leyfi
til að sýna myndina í Egyptalandi.
Torgið fjallar um byltinguna í
Egyptalandi og segir frá þremur að
gerðasinnum frá þeim tíma þegar
forsetanum, Hosni Mubarak, var
steypt af stóli árið 2011 og þar til
Mohammed Morsi hlaut sömu
örlög í fyrra.
Myndin var tilnefnd í flokknum
besta heimildamyndin ásamt fjór
um öðrum myndum. Verðlaunin
voru afhent þarsíðasta sunnu
dagskvöld og var það myndin 20
Feet from Stardom sem varð hlut
skörpust.
Torgið hefur verið sýnd í fjöl
mörgum löndum og hlotið einróma
lof gagnrýnenda. Þó að myndin hafi
ekki verið tekin til sýninga opin
berlega í Egyptalandi geta íbúar þar
nálgast hana á vef Youtube þar sem
hún er enn aðgengileg fyrir fólk.
Karim Amer, framleiðandi myndar
innar, segir að um hreina og klára
ritskoðun sé að ræða. „Þetta er
ekkert nema pólitík í gervi skrif
finnsku,“ hefur breska ríkisútvarpið,
BBC, eftir honum.
Í myndinni er dregin upp dökk
mynd af því ofbeldi sem egypski
herinn beitti þegar mótmælin
stóðu sem hæst. Í dag er staðan sú
að egypski herinn er í raun við völd
í landinu og meðan svo er þykir
ólíklegt að myndin verði sýnd í
landinu. n einar@dv.is
Dökk mynd Í myndinni Torgið er dökk mynd dregin upp af aðgerðum hersins í byltingunni
í Egyptalandi.
Íbúar Vestur-Kingston
sakna eiturlyfjabaróns
Valdatóm eftir handtöku skæðasta eiturlyfjabaróns Jamaíku hefur gert íbúum lífið leitt
F
jórum árum eftir handtöku
eins skæðasta eiturlyfjabaróns
Jamaíku, Christophers
„Dudus“ Coke, hefur ástandið
versnað umtalsvert í Tivoli
Garden, fátækrahverfi í vesturhluta
höfuðborgarinnar Kingston, þar
sem hann réð lögum og lofum. Alls
létust sjötíu og sex manns í lögreglu
aðgerðinni sem endaði með hand
töku Coke. Rassía lögreglunnar leiddi
til uppþota meðal stuðningsmanna
hans með þeim afleiðingum að
nauðsynlegt var að lýsa yfir neyðar
ástandi. Íbúar í Tivoli Garden minnast
hans með söknuði og segja aðstæð
ur hafa versnað frá handtöku hans.
Hann situr nú af sér rúmlega tuttugu
ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum.
Fjármagnaði menntun
Coke erfði glæpaveldi sitt aðeins
tuttugu og eins árs af föður sínum
sem stofnaði klíkuna „Shower
Posse“. Starfsemi þess var fyrst og
fremst fólgin í því að flytja kannabis
og kókaín til Bandaríkjanna. Með
tíð og tíma færði hann út kvíarn
ar og varði hluta gróðans af fíkni
efnaviðskiptum sínum í nokkurs
konar velferðarkerfi fyrir íbúa Tivoli
Garden. Að sögn íbúa hverfisins
var ástandið betra áður en hann
var handtekinn. „Meðan hann var
hérna var allt mikið betra, fólk var
ekki að deyja í hrönnum,“ segir
einn íbúi Tivoli Garden í samtali við
BBC. Coke, sem iðulega var kall
aður doninn af íbúum hverfisins,
sá til þess að á yfirráðasvæði sínu
væru engir glæpir framdir án leyfis
hans og vitneskju. Eiturlyfjabarón
inn fjármagnaði menntun margra
barna í hverfinu og tryggði með því
ákveðna hollustu. Í stuttu máli sagt
þá réð Coke því sem hann vildi ráða
og var áhrifasvæði hans sem ríki
innan ríkis.
Klíkustríðið eins og Matador
Valdatómið sem fylgdi handtöku
Coke leiddi til þess að andstæðingar
hans annars vegar og ættingjar
hans hins vegar hófu blóðugt stríð
um það sem eftir var af glæpaveldi
hans. Í samtali við BBC líktu íbúar
Tivoli Garden ástandinu við borð
spilið Matador; glæpaklíkur skipta
sér niður eftir götum og berjast um
yfirráð. Klíkustríðið hefur nú geisað
í næstum fjögur ár og á seinasta
ári létust rúmlega hundrað og tutt
ugu manns vegna þess. „Hlutirnir
hafa breyst, það er engin ráðandi og
undirmennirnir hafa enga skipun.
Það er það sem veldur þessu mikla
vandamáli,“ segir einn lögreglu
þjónn á svæðinu í samtali við BBC.
Tortryggni í garð lögreglu
„Skotárásir eru nær daglegt brauð en
fólkið er orðið vant þessu. Það er eins
og það sé ónæmt fyrir þessari daglegu
glæpamennsku. Það þarf að binda
enda á þetta ástand,“ segir Desmond
McKenzie, þingmaður fyrir Vestur
Kingston kjördæmi, í samtali við BBC.
Þrátt fyrir ofbeldið sem stafar af klíku
stríðinu er lögreglan jafnvel óvinsælli
en klíkurnar í augum almennra borg
ara fátækrahverfisins. Kröftug mót
mæli voru haldin eftir að lögreglan
skaut nýverið mann til bana. Vildu
mótmælendurnir meina að sá hafi ver
ið bæði óvopnaður og með öllu sak
laus; lögreglan segir hins vegar að hann
hafi verið meðlimur í einu af gengjum
svæðisins, „Scare Dem Gang“.
Mikil tortryggni í garð lögreglunn
ar hefur valdið því að íbúar Tivoli
Garden hafa nú tekið höndum saman
og myndað samtök til að spyrna gegn
ofbeldi gengjanna. Þar sem áður var
veggjakrot til heiðurs föllnum með
limum glæpaklíkna stendur nú ákall
um frið. Er það stórt skref fyrir íbúa
sem lifa dags daglega í hræðslu við
glæpaklíkur sem og lögregluna. n
Neyðarástand Kalla þurfti til
hersins í kjölfar uppþota í Tivoli Garden
vegna lögregluaðgerða með það
markmið að handtaka Coke. Alls létust
sjötíu og sex manns. MyND ReuTeRs
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Í fangelsi Christopher „Dudus“ Coke situr
nú af sér tuttugu og sex ára fangelsisdóm
í Bandaríkjunum. Íbúar Tivoli Garden segja
ástandið í hverfinu hafa farið á versta veg
eftir handtöku hans.
„Meðan hann
var hérna var
allt mikið betra
Hélt framhjá
með Reevu
Réttarhöld yfir suðurafríska
spretthlauparanum Oscari Pistor
ius hófust á mánudaginn í síð
ustu viku. Pistorius var formlega
ákærður í ágúst í fyrrasumar fyrir
morð á unnustu sinni, Reevu
Steenkamp, sem hann skaut til
bana á Valentínusardaginn fyrir
rúmu ári. Þá var hann einnig
ákærður fyrir að hafa ólögleg skot
vopn í fórum sínum. Pistorius var
handtekinn skömmu eftir að hann
myrti Reevu, en var látinn laus
gegn tryggingu nokkrum dögum
síðar. Hann segist saklaus og að
hann hafi haldið að Reeva væri
innbrotsþjófur.
Í réttarhöldunum kom fram að
Johan Stipp, læknir og nágranni
Pistorius, hafi gert sér ferð á heim
ili hans eftir að hafa heyrt byssu
skot og öskur þaðan. „Það fyrsta
sem hann sagði við mig var: „Ég
skaut hana. Ég hélt hún væri inn
brotsþjófur og skaut hana“,“ sagði
Stipp fyrir rétti, en dómari málsins
er Thokozile Masipa. Stipp sagði
að Pistorius hafi legið hágrátandi
yfir látinni unnustu sinni.
Estelle van der Merwe, sem býr
á móti Pistorius, sagðist hafa heyrt
rifrildi skömmu áður en Reeva lést.
Hún heyrði einnig skothvellina og
hávært karlmannsöskur í kjölfar
þeirra. Eiginmaður van der Merwe
hélt að öskrin kæmu frá Oscari.
Samantha Taylor, fyrrverandi
unnusta Oscars, hágrét í réttar
salnum á föstudaginn þegar hún
sagði að Oscar hefði haldið fram
hjá henni með Reevu. Þá sagði
hún jafnframt frá því að eitt sinn
hafi Pistorius hleypti af skoti út
um sóllúgu á bifreið sem þau óku
og að hann hafi yfirleitt verið með
skotvopn meðferðis.
Dómsmálið stendur yfir í þrjár
vikur. Verði Pistorius sakfelldur á
hann yfir höfði sér allt að 25 ára
fangelsi.
Munch-málverk
á heimili
dópsmyglara
Norska lögreglan lagði í desem
ber hald á sjálfsmynd eftir norska
listamanninn Edvard Munch,
sem líklega er best þekktur fyr
ir myndina Ópið. Myndin fannst
við húsleit á heimili Gjermund
Cappelen í desember síðast
liðnum, en Cappelen þessi hef
ur játað að hafa flutt inn 115 kíló
af kannabisefnum til Noregs á
síðasta ári. Er jafnvel talið, sam
kvæmt norskum fjölmiðlum, að
hann hafi staðið á bak við inn
flutning á allt að tuttugu tonn
um af kannabisefnum á síðustu
árum.
Cappelen keypti verkið af mál
verkasafnara í Noregi, en talið er
að verðmæti þess nemi um millj
ón norskum krónum, eða 18,7
milljónum króna.