Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Side 36
Vikublað 11.–13. mars 201436 Fólk Stacy og Pobre gengin í það heilaga B andaríska leikkonan, fyrir sætan og fyrrverandi glímukappinn Stacy Keibler gekk að eiga kærasta sinn til nokkurra mánaða, Jared Pobre, á laugar- daginn. Keibler og Pobre hófu ástar samband í fyrrahaust, en þá var Keibler nýhætt með leikar- anum George Clooney. Þau voru saman um nokkurt skeið en upp úr sambandi þeirra slitnaði, eins og stundum vill verða í Hollywood- samböndum. Keibler og Pobre giftu sig í á strönd í Mexíkó og að sögn að- standenda parsins var athöfnin öll hin hátíðlegasta. Parið hefur verið að skipuleggja brúðkaupið um nokkurt skeið og kom fjölskyldu sinni á óvart með uppátækinu. „Hamingja mín er ólýsanleg,“ sagði Keibler í viðtali við banda- ríska tímaritið People á dögunum. „Hjónaband eru æðstu tengsl ástar og vináttu. Það þýðir að þú leggur alla þína trú og traust á manneskju sem þú getur ekki hjálpað en trúir að sé sálufélagi þinn. Einhver sem hefur þína bestu hagsmuni fyrir brjósti; ein- hver handvalinn fyrir þig, til að hjálpa þér að vaxa og verða besta útgáfan af sjálfum þér. Jared er allt þetta fyrir mig.“ n Stacy Keibler er búin að jafna sig á George Clooney Ástfangin Parið hefur verið saman í nokkra mánuði. Bieber og Gomez saman á ný? Kanadíski popparinn Justin Bieber og fyrrverandi kærasta hans, söngkonan Selena Gomez, sáust saman á föstudaginn, en þau hafi ekki sést saman í rúma tvo mánuði. Bieber og Gomez sáust úti að borða á ónefndum veitinga- stað í McAllen í Texas auk þess sem þau versluðu saman í versl- unarmiðstöð ásamt lífvörðum sínum og nokkrum vinum. Fyrr um daginn sást hópurinn einnig saman að borða morgunmat á veitingastaðnum Don Pepe‘s en að sögn sjónarvotta reyndu Bieber og Gomez að láta lítið fyrir sér fara og neituðu fólki um myndatökur. Miklar vangaveltur eru nú vest- anhafs um hvort þau hafi tekið saman á ný, en þau hættu saman í janúar eftir að hafa verið saman og í sundur í tæp fjögur ár. Cyrus ósátt við Perry Svo virðist sem bandaríska söng- konan Miley Cyrus sé ekki ánægð með ummæli söngkonunnar Katy Perry um koss þeirra tveggja á dögunum. Líkt og greint hefur verið frá kysstust Cyrus og Perry á tónleikum Cyrus fyrir skemmstu en í viðtali í vikunni sagði Perry um atvikið: „Ég labbaði bara upp að henni til að gefa henni vina- legan stelpukoss, þú veist, eins og stelpur gera, og þá reyndi hún að hreyfa höfuðið og fara dýpra og ég losaði mig frá. Guð veit hvar þessi tunga hefur verið … við vitum það ekki! Þessi tunga er svo illræmd!“ Skömmu síðar skrifaði Cyrus á Twitter-síðu sína: „Stelpa, ef þú hefur áhyggjur af því hvar tungur hafa verið þá er gott að þinn fyrrverandi sé þinn FYRRVERANDI því við vitum öll hvar tungan hans hefur verið. Ekki láta eins og þú elskaðir þetta ekki.“ Kesha breytt eftir meðferð Bandaríska söngkonan og rappar- inn Kesha ætlar að byrja upp á nýtt og breyta áherslum sínum í lífinu. Þetta sagði fjölmiðlafulltrúi söng- konunnar á dögunum, en Kesha lauk í vikunni tveggja mánaða meðferð við átröskun í Illinois og sneri aftur til Los Angeles. Eitt af því sem Kesha hefur ákveðið að gera er að hætta að skreyta nafnið sitt með dollaramerkinu, en hing- að til hefur hún verið þekkt sem Ke$ha auk þess sem hún hyggst breyta áherslum sínum í tónlist og framkomu. Söngkonan skrifaði á Twitter-síðu sína eftir að hafa út- skrifast úr meðferðinni: „Líður vel og er að vinna í fullt af nýrri tónlist. Ég get ekki þakkað aðdáendum mínum nógu mikið fyrir alla ástina og stuðninginn sem þið hafið gefið mér.“ Stjörnurnar og systkini þeirra Standa við bakið á frægum systkinum sínum S tjörnurnar í Hollywood eiga allflestar fjölskyldur sem styðja við bakið á þeim og hjálpa þeim að halda ferli og frægð gangandi. Oft og tíð- um eru það einmitt systkini fræga fólksins sem mæta með þeim á rauða dregilinn og sýna þeim stuðning þegar mæta á í viðtöl, spjallþætti og á verðlaunahátíðir. Blaðamaður DV tók saman nokkrar stjörnur og syst- kini þeirra sem fæstir kannast við. n Rupert og James Grint James Grint er yngri bróðir Harry Potter- stjörnunnar Ruperts Grint. Ólíkt öðrum meðlimum Grint-fjölskyldunnar er James ekki með rautt hár en kappinn, sem er 21 árs, er rallbílstjóri og stefnir á að verða heimsmeistari í íþróttinni einn daginn. Rita og Elena Ora Breska söngkonan Rita Ora og eldri systir hennar, Elena, eru góðar vinkonur og sjást ósjaldan saman úti á lífinu. Elena vinnur meira að segja fyrir systur sína, en hún er í hópi þeirra sem sjá um umboðsmál og fjölmiðlatengsl söngkonunnar. Jennifer, Ben og Blaine Lawrence Jennifer Lawrence á tvo eldri bræður; þá Ben og Blaine. Jennifer hefur oft talað um bræður sína í viðtölum, en þeir mæta gjarnan til að veita henni stuðning þegar hún birtist í sjónvarpi og á verðlaunahátíðum. Lítið er vitað um hvað þeir bræðurnir gera, annað en að stríða yngri systur sinni, en Jennifer sagði í viðtali hjá Letterman í fyrra að hún vissi ekki alveg við hvað Ben ynni, en að það tengdist þó tölvum á einhvern hátt. Rihanna og Rorrey Fenty Rihanna og bróðir hennar, Rorrey Fenty, eru góðir vinir. Raunar svo góðir vinir að Rihanna hefur dælt peningum í bróður sinn um nokkurra ára skeið. Hún keypti handa honum lúxusvillu á Barbados fyrir nokkrum árum auk þess sem Rorrey fékk ónefnda upphæð frá systur sinni til að hefja feril sem rappari. Liam, Chris og Luke Hemsworth Þeir Liam og Chris Hemsworth eru báðir þekktir leikarar og vita flestir af skyldleika þeirra, en færri vita að það er enn einn Hemsworth-bróðir. Sá heitir Luke og er 32 ára. Hann byrjaði reyndar að leika á undan báðum bræðrum sínum þegar hann birtist í sápuóperunni Neighbours en hætti fljótlega að leika og stofnaði sitt eigið parketlagn- ingarfyrirtæki. Hann sneri svo nýlega aftur í leiklist og birtist bráðum í hvíta tjaldinu í spennumyndinni The Reckoning. Harry og Gemma Styles One Direction-stjarnan Harry Styles og systir hans, Gemma, eru afar náin. Gemma útskrifaðist nýlega með góðum árangri frá Sheffield Hallam University en hún er dug- leg að heimsækja bróður sinn þegar hann er á tónleikaferðalagi ásamt drengjasveitinni. Harry er með tvö húðflúr tileinkuð systur sinni. Á hægri handleggnum er hann með stafinn „G“ auk þess sem hann er með húð- flúr af ísilögðum gimsteini sem er tilvísun í gælunafn Gemmu á yngri árum, sem var einmitt Gem, eða „gimsteinn“. Justin og Christian Long Bandaríski leikarinn Justin Long á tvo bræð- ur. Hann og yngri bróðir hans, Christian, eru afar nánir og mætir sá síðarnefndi ósjaldan með bróður sínum á rauða dregilinn. Ekki er vitað hvað Christian starfar við, en hann kom fyrir í mynd bróður síns, Accepted, árið 2006 er hann fór með hlutverk lukkudýrs skólans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.