Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Side 2
2 Fréttir Vikublað 13.–15. maí 2014
Fundu brugg
og loftbyssu
Maður á fimmtugsaldri var hand
tekinn á Selfossi síðastliðinn
föstudag vegna gruns um fíkni
efnasölu. Við húsleit á heimili
hans fundust tæplega 60 grömm
af hvítu dufti sem reyndist vera
amfetamín. Auk þess fannst
brugg og loftbyssa. Maðurinn var
yfirheyrður og viðurkenndi að
eiga efnin. Efnin verða send til
efnarannsóknar og að því loknu
tekur ákærandi við málinu.
Fordæma
„aðför lög-
reglunnar“
„Blaðamannafélag Íslands for
dæmir aðför lögregluyfirvalda að
trúnaðarsambandi blaðamanna
og heimildarmanna þeirra,“ segir
í ályktun sem formaður félags
ins, Hjálmar Jónsson, sendi frá
sér á mánudag. Félagið lýsir yfir
furðu sinni „á að slíkar aðgerð
ir skuli teljast gjaldgengar í upp
hafi 21. aldarinnar.“ Sem kunn
ugt er hefur Hæstiréttur hafnað
kröfu lögregluyfirvalda um að
fréttastjóri mbl.is gefi það upp
hver afhenti honum minnisblað
innanríkisráðuneytisins um tvo
hælisleitendur, þau Tony Omos
og Evelyn Glory. Blaðamannafé
lagið segir að þetta sýni vanþekk
ingu lögreglumanna á trúnaðar
sambandi heimildarmanna og
blaðamanna, en það samband sé
forsenda þess að fjölmiðlar geti
sinnt störfum sínum og aðhaldi.
Þau eru í
framboði
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjör
dæmis tók á móti átta framboðs
listum og meðfylgjandi listum
yfir meðmælendur laugardaginn
10. maí. Á sunnudag fundaði yfir
kjörstjórn með umboðsmönnum
þeirra framboða sem lagt höfðu
fram lista og fór svo að öll fram
boð voru úrskurðuð gild. Þau
hafa nú öll fengið úthlutað lista
bókstöfum sem eru eftirfarandi:
n R-listi Alþýðufylkingarinnar
n Æ-listi Bjartrar framtíðar
n T-listi Dögunar í Reykjavík
n B-listi Framsóknar og flugvallarvina
n Þ-listi Pírata
n S-listi Samfylkingar
n D-listi Sjálfstæðisflokks
n V-listi Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs
„Ég hÉlt að þetta væri búið“
n Gísli og Osazee slökuðu á heima hjá sér eftir erfiðan dag n Fleiri hjónum tvístrað
Þ
að var rosalegur léttir að fá
hana út úr fangaklefanum
og í fangið,“ sagði Gísli Jó
hann Grétarsson í samtali
við DV stuttu eftir að eig
inkonu hans Izekor Osazee, hafði
verið sleppt úr haldi lögreglunnar í
gær, mánudag. Hún var handtekin
á lögreglustöðinni á Hverfisgötu á
mánudagsmorgun en þangað hafði
hún farið daglega frá því á fimmtu
dag til þess að sinna tilkynningar
skyldu sinni gagnvart íslenskum yfir
völdum sem hugðust senda hana
til Finnlands á grundvelli Dyfl
innarreglugerðarinnar. Í kjölfar fjöl
miðlaumfjöllunar og mótmæla við
lögreglustöðina á Hverfisgötu og í
Útlendingastofnun var henni sleppt
úr haldi.
„Ég er í raun og veru bara ennþá í
algjörri tilfinningaflækju með þetta,“
sagði Gísli en þau Osazee fengu
þau skilaboð eftir að henni hafði
verið sleppt að hún yrði ekki send
úr landi á meðan yfirvöld settu sér
stefnumótun í sambærilegum mál
um. DV ræddi einnig við Osazee sem
sagðist ánægð með það hvernig erf
iður dagur hefði endað. Helga Vala
Helgadóttir, lögmaður hennar, segir
nú ljóst að Osazee verði ekki vís
að úr landi á næstunni. „Þetta verð
ur skoðað í stærra samhengi og mér
skilst að það sé núna að fara í gang
einhver stefnumótunarvinna þegar
kemur að mökum íslenskra ríkis
borgara,“ segir hún.
Kristín Völundardóttir, forstjóri
Útlendingastofnunar, sagði á fundi
með mótmælendum í Útlendinga
stofnun á mánudag að ekki hefði
áður komið inn á borð Útlendinga
stofnunar mál þar sem hælisleitandi
hafi gifst íslenskum ríkisborgara eft
ir að hafa fengið synjun um dval
arleyfi hér á landi. Eins og DV rek
ur í eftirfarandi umfjöllun, er saga
þeirra Gísla og Osazee alls ekkert
einsdæmi, þvert á það sem forstjóri
Útlendingastofnunar heldur fram.
„Hélt að þetta væri búið“
DV náði tali af Gísla og Osazee þegar
þau voru komin heim til sín í gær,
mánudag. Osazee sagði að síðustu
dagar hafi verið henni mjög erfið
ir. Hún hafi lítið sofið og haft miklar
áhyggjur af framhaldinu. Þegar hún
hafi svo verið handtekin af fimm lög
reglumönnum hafi henni verið allri
lokið: „Ég hélt að þetta væri búið.“ Í
ljósi þess að allt hafi þó farið á besta
veg sagðist hún nú vonast til þess að
hún fái að vera áfram á Íslandi. Hún
ítrekaði þó að hún muni enn um sinn
lifa við ákveðna óvissu: „En ég veit í
rauninni ekkert hvað gerist næst.“
Gísli sagði það hafa verið mjög
mikinn létti að geta sameinast konu
sinni á ný. „Við erum komin heim
eftir mjög erfiðan dag. Það er allt
annað hljóð í Osazee en undanfarna
daga.“ Hann var skiljanlega örmagna
eftir átök dagsins en Gísli var meðal
annars farinn að undirbúa að kaupa
flugmiða til Finnlands þegar hann
fékk þær fregnir að henni yrði sleppt
úr haldi. „Þegar ég fékk hana svo í
hendurnar þá varð mér það létt að
hugurinn tæmdist og ég róaðist allur.
Núna held ég að það sé tími til kom
inn að leggja sig,“ sagði Gísli og bætti
því við að hann vonaðist til þess að
Osazee myndi loksins ná að sofa eitt
hvað. „Ef við hjónin gætum fengið
heilan svefn þá væri það æðislegt.“
Handtekin snögglega
Osazee kom hingað til lands í ágúst
2012 og sótti um hæli. Ári síðar
kynntust þau Gísli, urðu ástfangin
og fóru fljótlega að búa saman. Þegar
þau ákváðu svo að gifta sig varð þeim
ljóst að það væri hægara sagt en gert.
„Við byrjuðum að spyrja hvað við
þyrftum að hafa í höndunum,“ segir
Gísli í samtali við DV. Hann segir þau
hafa safnað öllum pappírum saman
og skilað þeim inn til sýslumanns.
Þá hafi þau fengið þau skilaboð að
Osazee þyrfti að skila inn vegabréfi
frá Nígeríu. Það hafi tekið sinn tíma
enda ekkert nígerískt sendiráð á Ís
landi. Ferlið tók um átta mánuði.
Þau giftu sig loks þann 12. apríl
síðastliðinn. Osazee hafði dreg
ið hælisumsókn sína til baka enda
bjóst hún við því að fá dvalarleyfi hér
á landi þar sem maki hennar væri
íslenskur ríkisborgari. Henni hafði
hins vegar verið synjað um hæli á
grundvelli Dyflinnarreglugerðar
innar þann 31. mars, en samkvæmt
úrskurðinum átti að senda hana til
Finnlands þar sem hún sótti um hæli
árið 2008.
Hjónin töldu þó að ekkert yrði
úr þessu þar sem þau væru gift og
að Osazee hefði dregið hælisum
sókn sína til baka. Þau fengu þær
fregnir í síðustu viku að ákvörðun
Útlendingastofnunar um að vísa
henni úr landi stæði. Þá var Osazee
gert að tilkynna sig sérstaklega hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
frá því á fimmtudag. Það gerði hún
samviskusamlega eða þangað til
hún var svo handtekin snögglega á
mánudagsmorgun.
„Óskiljanlegt“
Í lögum um útlendinga er sérstaklega
vísað til reglugerðar um útlendinga. Í
38. grein þeirrar reglugerðar segir að
dvalarleyfi sem veitt sé í fyrsta sinn
skuli vera gefið út áður en viðkom
andi einstaklingur kemur til lands
ins. Frá þessu megi víkja ef um
sækjandi um dvalarleyfi er: „maki,
samvistarmaki eða sambúðarmaki
íslensks eða norræns ríkisborgara
eða útlendings sem dvelst eða fær að
dveljast löglega í landinu samkvæmt
búsetuleyfi eða dvalarleyfi sem ekki
er háð takmörkunum.“
Þá kemur fram að Útlendinga
stofnun geti enn fremur ákveðið að
víkja frá skilyrðinu ef ríkar sann
girnisástæður mæla með því. Helga
Vala segir að í tilviki þeirra hjóna eigi
bæði rökin við. Um sé að ræða maka
íslensks ríkisborgara og þá megi
færa rök fyrir því að ríkar sanngirnis
ástæður mæli með því að Osazee fái
hér dvalarleyfi. „Þegar þetta er svona
skýrt í reglugerð um útlendinga þá
finnst mér óskiljanlegt að þessu
undanþáguákvæði hafi ekki verið
beitt.“ Svo virðist sem þetta eigi nú
að endurskoða.
Erfitt með traust
„Ég skil ekki hvað er að gerast á Ís
landi. Ég treysti engum lengur,
hvorki Útlendingastofnun né inn
anríkisráðuneytinu,“ sagði Osazee í
samtali við DV síðastliðinn föstudag.
„Þeir gætu komið hvenær sem er
og sótt mig. Ég skil þetta ekki, þetta
er mjög skrítið, ég á erfitt með að
lýsa því.“ Þá talaði hún sérstaklega
um lekamál innanríkisráðuneytis
ins. Erfitt væri fyrir hælisleitendur
að treysta íslenskum stjórnvöldum
þegar vafi léki á hvort aðilar hjá
innanríkisráðuneytinu hefðu lek
ið gögnum til þess að koma höggi á
skjólstæðing ráðuneytisins.
Gísli tók undir þetta. „Hún les all
ar íslenskar fréttir í gegnum Google
Translate og hefur fylgst mikið með
þessu máli. Það er alveg ljóst að
þetta hefur mikil áhrif. Ef ein stofn
unin gerir eitthvað slæmt þá byrjar
hún að dæma aðra út frá því. Þetta
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Guðrún María Helgadóttir sjúkraliði
og Abdennour Khebani frá Alsír giftu
sig í gær eins og sjá má á meðfylgjandi
ljósmynd sem ljósmyndari DV tók.
Athöfnin fór vel fram þrátt fyrir
þann skugga sem hvílir yfir
þeim hjónum. Khebani
fékk nefnilega nýlega þau
skilaboð að honum verði
vísað úr landi næstkom-
andi miðvikudag. „Þeir
virðast ekkert taka neitt
tillit til þess að það er
gifting inni í myndinni,“ segir
Guðrún í samtali við DV. Hún
segist hafa rætt við starfsmann hjá inn-
anríkisráðuneytinu eftir að Khebani fékk
þau skilaboð að honum yrði vísað úr landi
en þar hafi hún fengið svör sem byggðu á
tilvísunum í Dyflinnarreglugerðina.
„Þetta er Ísland í dag. Þeim gæti ekki
verið meira sama,“ segir Guðrún sem seg-
ist vera orðin langþreytt á samskiptum
við íslensk yfirvöld þegar kemur að mál-
efnum eiginmanns hennar. „Maður veit
eiginlega ekki hvað maður á að segja.
Maður er bara sár og maður er þreyttur
og með tárin í augunum. Sonur
minn er að verða sextán ára og
hann er með tárin í augunum
yfir því að það eigi að senda
manninn minn í burtu.“
Fyrirhugað er að senda Khe-
bani til Noregs á grundvelli
Dyflinnarreglugerðarinnar
en þangað hefur hann aldrei
komið. „Við erum mjög ósatt
með alla þessa óvissu, við komum
alls staðar að lokuðum dyrum og það
virðast allir benda á einhvern annan.“
Hún hefur ekki fengið neinar upplýs-
ingar frá yfirvöldum varðandi það hvort
hætt verði við brottvísun Khebani á
meðan stefnumótunarvinna í málefnum
hælisleitenda sem giftast íslenskum
ríkisborgurum er í gangi.
Óljós framtíð nýgiftra hjóna
Guðrún og Khebani giftu sig í skugga yfirvofandi brottvísunar
„Dagurinn í dag var
svo erfiður, þetta
var hræðilegt, en núna er
ég svo þakklát.
Komin heim Gísli
og Osazee voru
ánægð en þreytt
þegar DV náði tali
af þeim eftir mjög
erfiðan dag. Mynd
Sigtryggur Ari