Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Qupperneq 21
Umræða 21Vikublað 13.–15. maí 2014
Lýsir bæði hroka og skringilegri
forræðishyggju
Það er algjört
neyðarúrræði
Stöndum ekki að
skæruhernaði
Íslensk erfðagreining svarar gagnrýni vegna söfnunar lífsýna. – DV Hanna Birna um inngrip í verkfallsaðgerðir flugmanna. – RÚVFormaður Félags atvinnuflugmanna svarar gagnrýni Icelandair. – DV
1 Handtóku eiginkonu Gísla og ætla að senda
úr landi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók á mánudag Izekor Osazee frá
Nígeríu. „Þeir tóku hana,“ sagði Gísli
Jóhann Grétarsson. Hún hafði farið niður
á lögreglustöð til að sinna tilkynn-
ingarskyldu hælisleitanda en var þá
handtekin. Izekor hefur verið hér á landi í
um tvö ár og beðið eftir dvalarleyfi. Vísa
á henni úr landi og verður hún send til
Finnlands.
25.082 hafa lesið
2 „Snípurinn er stórbrotið líffæri“
Dagarnir 4. til 11. maí voru dagar sníps-
ins. Var vikunni ætlað að vekja athygli á
þessum líkamshluta kvenna. „Snípurinn
er stórbrotið líffæri, þó það láti lítið
fyrir sér fara. Það hefur verið hundsað,
gert að bannorði og látið að því liggja
að hann sé ekki af hinu góða …“ sagði
Nadine Gary, talskona samtaka um
snípsvikuna.
13.912 hafa lesið
3 Svona á ekki að leggjaLögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur sent frá sér orðsendingu þar
sem hún vekur athygli á stöðubrotum
ökumanna við íþróttavelli.
10.185 hafa lesið
4 Lögreglan kallar eftir upplýsingum um tvo
unga karlmenn
Lögreglan á Selfossi kallar eftir upp-
lýsingum um tvo unga karlmenn sem
eru grunaðir um innbrot í tvö heimahús
á Selfossi aðfaranótt síðastliðins
sunnudags.
8.696 hafa lesið
5 „Ég tók ekki of stóran skammt“
Söngkonan Miley
Cyrus var í viðtali
við tímaritið
People nýlega
þar sem hún
þvertók fyrir að
hafa tekið of
stóran skammt
af fíkniefnum,
en hún var lögð
inn á spítala á dögunum og þurfti hún að
fresta tónleikaferðalagi sínu sökum þess.
8.483 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is
Birta Rós Gunnarsdóttir
Nú er ég að fara að kjósa í
fyrsta skipti, af hverju ætti
ég að kjósa Framsókn frekar en
einhvern annan flokk?
Sveinbjörg Sæl Birta, þú ættir
að skoða málefnin vel áður en þú
kýst og ég trúi því að þau mál-
efni sem við í Framsóknarflokkn-
um og flugvallarvinum stöndum
fyrir höfði til þín, sérstaklega
þar sem okkur er umhugað um
húsnæðisöryggi borgarbúa,
því staðan er sú að það er mjög
erfitt fyrir ungt fólk að kaupa
sér sína fyrstu íbúð í Reykjavík
og leigumarkaðurinn er erfiður.
Þetta er eitt af aðalmarkmiðum
okkar, að gera ungum Reykvík-
ingum kost á því að búa áfram í
Reykjavík í húsnæði sem hentar
þeim, hvort sem það er séreign,
leiguhúsnæði eða búseturéttar-
kerfi og eftir atvikum félagslegt
húsnæði. Við ætlum að fjölga
íbúðum við allra hæfi í borginni.
Annars hvet ég þig til að fylgjast
með okkur á Facebook og skoða
stefnumálin okkar betur.
Konráð Guðjónsson Þú
sagðir í viðtali að umræða
um gjaldeyrishöft snúist í
raun um flugvöllinn vegna
verðmætis flugvallarlandsins, sem
erlendir kröfuhafar ásælast, ef ég
skil rétt. Geturðu útskýrt þetta
frekar? Hefur þú einhver gögn eða
heimildir sem styðja þetta?
Sveinbjörg Sæll Konráð. Þetta
er rétt eftir mér haft, en í við-
talinu velti ég þessu upp. Hvers
vegna er flýtirinn svona mikill
núna í að fara að þétta byggð
og að flugvöllurinn þurfi að fara.
Fyrst er gert samkomulag sem
á að vera til 2022, en síðan strax
hliðarsamkomulag um lokun
neyðarbrautarinnar og að Flug-
garðar (sem er svæðið austan
megin við Erfðagreiningu) eigi að
fara strax á næsta ári. Verið er
að þrengja að starfseminni til að
hægt sé að fara í uppbyggingu
á húsnæði, sem alveg óvíst er
hversu dýrt verður. Skv. aðal-
skipulagi er þetta eitt af helstu
uppbyggingarsvæðum í borginni
og ég spyr mig og hef velt
þessari spurningu upp, af hverju
er þessi þrýstingur NÚNA? Nei
ég hef engin gögn eða heimildir,
annað en gagnrýna hugsun til að
styðjast við og ég tel að þetta sé
ein af þeim spurningum sem þarf
að velta upp.
Ólöf Björnsdóttir Hvernig
sérðu fyrir þér að leysa
húsnæðisvandann í
borginni? Kemur til greina að hækka
húsaleigubætur?
Sveinbjörg Ég tel að hækkun
á húsaleigubótum leysi ekki
húsnæðisvandann í Reykjavík.
Þetta snýst um að það hefur
ekki verið byggt nægilega mikið
í Reykjavík af íbúðarhúsnæði á
þessu kjörtímabili. Það þarf að
auka fjölda íbúða á markaðn-
um. t.d. hafa Félagsbústaðir
einungis byggt um 70 íbúðir á
þessu kjörtímabili, á meðan að
markmið þeirra er að kaupa 100
á ári, sem hefði þá átt að vera
400 á kjörtímabilinu. Þessu
þarf m.a. að bregðast við og
koma Félagsbústöðum í það
horf, sem Reykvíkingar vilja og
krefjast. Skv. okkar upplýsingum
þá vantar 2.700 íbúðir í borginni
frá árinu 2007–2012, þannig að
ekkert hefur verið byggt. Byrjað
var að byggja 617 íbúðir á síðasta
ári, en það voru allt verktakar,
en ekki borgin. Ef við ætlum að
leysa húsnæðisvandann þá þarf
að auka lóðaframboð.
Aðalsteinn Kjartansson
Ertu kjörgeng í Reykjavík?
Sveinbjörg Já, það hefur verið
úrskurðað um það.
Kári Emil Helgason Hefur
þú alltaf verið framsóknar-
kona eða hefur þú tekið
þátt í starfi annarra flokka?
Sveinbjörg Sæll Kári, ég gekk
til liðs við Framsóknarflokkinn
haustið 2012, en áður hafði ég
verið skráð í Sjálfstæðisflokkinn
og tók þátt í starfi þeirra árið
2001–2002, en ekkert eftir það.
Lára Hanna Einarsdóttir
Í aðalskipulaginu sem þú
vitnar í hvað flugvöllinn
varðar er áformað að veggfóðra
Miðbakkann við höfnina og Slippa-
svæðið með háum blokkum og loka
þar með af hafið og Esjuna frá Hörpu
vestur í Ánanaust. Hvað finnst þér
um þá áætlun? Og hvað finnst þér
um stórhýsin sem áætluð eru milli
Geirsgötu og Tryggvagötu og sýnd
var mynd af í Morgunblaðinu á
laugardag?
Sveinbjörg Sæl Lára Hanna.
Það er mín skoðun að þetta
sé algerlega út í hött. Tala ég
þar líklega fyrir munn margra
að minnsta kosti allra þeirra
sem eru í framboði á lista
Framsóknar og flugvallarvina.
Það á eftir borgarstjórnarkosn-
ingar að meta það hvort að taka
eigi upp aðalskipulag og við
teljum að það verði að taka upp
aðalskipulagið og óttumst að
fólk hafi ekki nægilega kynnt
sér hvernig aðalskipulagið er,
því mikið af hugmyndunum sem
þar koma fram, t.d. varðandi
þéttingu byggðar á svæðinu
Miðborg-gamla höfnin, sé alger-
lega úr takti við óskir borgarbúa
um hvernig borg þeir vilja eiga
heima í. Með aðalskipulagi virð-
ist vera sem reynt sé að breyta
viðhorfum og hegðun fólks.
Viðhorfi og hegðun fólks verður
ekki breytt með skipulagi.
Friðgeir Sveinsson Sæl
Sveinbjörg. Hvað er það sem
að gerir þig frambærilegri
en Guðrúnu Bryndísi Karlsdóttur
sem skipaði annað sæti í Rvk? – Mér
þykir það nokkuð nauðsynlegt að
þessari spurningu sé svarað þar sem
Framsóknarflokkurinn lagði sig
mikið fram um að fá alla aðra en
hana í fyrsta sætið þrátt fyrir
menntun hennar og reynslu sem
mundi sannarlega verða
Reykvíkingum sem og öðrum
landsmönnum til góða. Hvað gerir
þig hæfari en Guðrúnu Bryndísi
Karlsdóttur??
Sveinbjörg Sæll Friðgeir, Það er
ekkert sem gerir mig hæfari en
Guðrúnu Bryndísi Karlsdóttur.
Þar fer kona gædd miklum
gáfum og eldmóði. Við erum
örugglega ólíkar á margan hátt
en líkar líka.
Salka Margrét Sigurðar-
dóttir Finnst þér að
kynjafræði ætti að vera
skyldufag í grunnskólum?
Sveinbjörg Sæl Salka. Mér
finnst það alveg koma til greina,
en fyrst og fremst vil ég að börn-
in séu vel læs, skrifandi og kunni
vel að reikna, en ég gæti vel séð
fyrir mér að þetta væri valfag á
efri stigum grunnskólans.
Jóhanna G Frá Ströndum
Nú hefur þú og framboðið
sagt að borgin þurfi að
byggja fleiri íbúðir. Hvar í Reykjavík
sérð þú fyrir þér slíkar framkvæmd-
ir? Og aukaspurning, ert þú sammála
því að það þurfi að þétta byggð?
Sveinbjörg Það er hægt að
þétta byggð á mörgum stöðum í
borginni, en aðalskipulagið gerir
ráð fyrir að 90% þéttingarinnar
fari fram í Miðborg-gamla höfn-
in, Vatnsmýri og Elliðaárvogi.
Ekki er gert ráð fyrir nýjum út-
hverfum. Við teljum að það þurfi
að styrkja úthverfin og byggja
ný og síðast en ekki síst klára
bygginguna í Úlfarsárdal svo
að þar rísi blómleg byggð. Hvað
varðar aukaspurninguna, þá tel
ég að raunhæf þéttingaráætlun
sem unnin er í samráði við íbúa
falli að hugmyndafræði minni og
framboðsins, en það er ljóst að
rómantískar áætlanir um aukið
nýtingarhlutfall lóða t.d. í 104
gengur ekki eftir, þar sem þar er
nú þegar fólk sem býr í húsunum
og við vitum ekkert hvenær eða
hvort það ætlar að selja, né
þá heldur hverjir kaupendurnir
verða.
Stefán Steindórsson Ert
þú reiðubúin að halda áfram
að gera Reykjavík að meiri
hjólreiðaborg og fá fólk í meira mæli
til að nýta sér almennings-
samgöngur?
Sveinbjörg Það er stefna okkar í
Framsókn – og flugvallarvinum
að við eigum öll að geta valið
hvernig við ferðumst. Bílar eiga
ekki að vera böl heldur valkostur.
Það þarf að bæta samgöngur
bíla, gangandi og hjólandi og
auka fjölbreytileika. Ég hef
a.m.k. áhuga á því að skoða enn
frekari takmarkanir á notkun
nagladekkja í borginni og síðan
þarf að skoða frístundaakstur,
því mikið af umferðarþunga í
borginni, má rekja til endalauss
„skutl og sækja“-verkefna
foreldra og nýta þar almenn-
ingssamgöngur frekar.
Stefán Gunnlaugsson Sæl
Sveinbjörg. Hafið þið í
Framsóknarflokknum
hugsað ykkur að koma til móts við
fjölskyldur með börn á einhvern
hátt? T.d. eitthvað sambærilegt
áætlun Samfylkingarinnar um að
hækka frístundarkort ÍTR?
Sveinbjörg Sæll Stefán.
Framsóknarflokkurinn kom á
frístundakortinu á sínum tíma.
Við útilokum ekki hækkun, en
viljum heimila samnýtingu
styrksins innan fjölskyldunnar,
þannig að fjölskyldur með fleiri
en eitt barn, geti nýtt styrkinn
milli barnanna, ef eitt eða fleiri
börn eru ekki að nýta sér hann.
Rétt er að geta þess að við viljum
útvíkka notkunina líka, þannig
að eldri borgarar geti fengið
20.000 króna frístundakort.
Jóna Gísladóttir Hvað
finnst þér um sameiningar
sem voru gerðar á grunn- og
leikskólum árið 2012, finnst þér þær
hafa skilað e-u og hvað myndir þú
vilja gera fyrir þá foreldra sem hafa
hafa bent á vond dæmi eftir
sameiningu eininga?
Sveinbjörg Hvað varðar
sameiningar sem gerðar voru á
grunn- og leikskólum árið 2012,
þá hef ég ekki skoðað nema eina
sameiningu, sem var reyndar á
milli tveggja grunnskóla, Álfta-
mýrarskóla og Hvassaleitisskóla
í Háaleitisskóla. Ég hef bent á
það í viðtali að það gæti verið
hættulegt að snúa því við, því
börnin okkar eru jú, viðkvæm,
bæði fyrir samruna og slitum.
En það hefur verið viðurkennt
af hálfu meirihlutans að þessar
sameiningar hafi litlu sem engu
skilað. Það er a.m.k. ljóst hvernig
ég myndi vilja vinna þetta og
það er í samráði við foreldra
og með undirbúningi. Ég tel
að það sé mjög mikilvægt að
gera könnun á meðal foreldra
og kennara í þeim skólum sem
þetta átti sér stað, svo hægt sé
að læra af reynslunni. Sjá hvað
betur má fara og hvernig hægt er
að vinna sem best úr þeirri stöðu
sem nú er uppi, með hagsmuni
barnanna í huga fyrst og fremst.
Friðgeir Sveinsson Sæl
aftur Sveinbjörg. Getur þú
þá frætt mig og alla hina
sem ekki hafa fengið skýringar á því
hvers vegna var þá gengið framhjá
Guðrúnu Bryndísi með þeim hætti
sem gert var. Og þú sett í fyrsta sæti
fyrst að þú sjálf gengst við því að
hafa ekkert fram yfir hana sem
réttlætir þessa aðgerð sem gerð var
til að hindra að Guðrún Bryndís tæki
fyrsta sætið. Ég tel mig eiga fullan
rétt á því að vita hvernig Fram-
sóknarflokkurinn hyggst fara með
lýðræðið að kosningum loknum með
þetta fordæmi í farvatninu.
Sveinbjörg Blessaður. Ég er því
miður ekki rétta manneskjan til
að svara því. Eina sem ég veit
er að ég bauð fram starfskrafta
mína í 1. sætið en Guðrún Bryndís
bauð sig aldrei fram í fyrsta
sætið. Flokksþingið hafði aldrei
samþykkt allan listann, heldur
aðeins 7 efstu og þar af voru
4 hættir, þannig að það þurfti
að útbúa nýjan lista frá grunni,
en ekki að færa upp, sem hefði
að öllu jöfnu verið gert ef það
hefði verið búið að samþykkja á
flokksþinginu 30 manna listann.
En þetta er lagalega útfærslan.
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Nú er Framsókn fjölmenn á
þingi í krafti misvægis
atkvæða. Fyndist þér rétt að auka
vægi atkvæða íbúa í úthverfum í
komandi borgarstjórnarkosningum?
Sveinbjörg Sæll Páll Ásgeir. Nei
það finnst mér ekki.
Gauti Kristmannsson
Sæl, Sveinbjörg. Hvar á að
byggja í Reykjavík ef
flugvöllurinn verður lengur en til
2022? Hvaða samgöngumannvirki
þarf til að þjóna þeim byggðum og
hvernig tengjast þau byggðinni sem
fyrir er?
Sveinbjörg Sæll Gauti, Það er
hægt að þétta byggð á ýmsum
þeim stöðum, þar sem byggð er
nú þegar og byggja í úthverfum.
Það þarf að endurskoða sam-
gönguáætlun Reykjavíkur. Hins
vegar er ljóst að það er búið að
samþykkja aðalskipulag núna
og það mun gilda, nema að nýr
meirihluti muni endurskoða
aðalskipulagið, eins og heimild
er til í lögum. Ef það verður ekki
gert þá er ljóst að allir borgarbúa
verða í 101 og á hjólum :)
Jóhannes Benediktsson
Var það rétt af Sjálfstæðis-
flokknum að svíkja
kosningaloforð sitt um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um áframhald
viðræðna við ESB? Og ef svarið er já,
spyr ég þig að þessu: Myndir þú
svíkja kosningarloforð þín ef við þér
myndi blasa sú staða, sem hefur
verið gefin nafnið „pólitískur
ómöguleiki“?
Sveinbjörg
Nei.
Bílar eiga ekki að vera böl
Oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík svaraði spurningum um samgöngumál og flugvöllinn
Nafn: Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir
Aldur: 41 árs
Menntun: Lögfræðipróf frá
HÍ og hdl.