Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Page 23
Vikublað 13.–15. maí 2014 Fréttir Stjórnmál 23
Háskólanám erlendis
ENGLAND • SKOTLAND • ÍTALÍA • SPÁNN
á sviði skapandi greina
E
S
S
E
M
M
2
01
3
/
05
Arnar Ingi Viðarsson er “Talent Alumni” frá
Istituto Europeo di Design (IED) í Barcelona.
Hann útskrifaðist úr listrænni stjórnun 2012 og
borgaryfirvöld keyptu lokaverkefni hópsins
sem hann var í, en það fólst í alhliða kynningu
fyrir menningarhús í Gracia hverfinu í Barcelona.
„Útskriftarverkefnin ganga út á að hanna vöru-
merki, einkenni og ímynd, prent-, sjónvarps-
og útiauglýsingar, vefsíður, innanhússhönnun,
merkingar, fjárhags- og samskiptaáætlun.“
„Allt þetta er gert eftir mikla rannsóknarvinnu
og skapandi hönnunarstarf.“
„Í skólanum eru nemar víða að úr heiminum,
allir eru opnir og hafa mikið fram að færa, svo
það verður til mikil og skapandi orka í þessum
kringumstæðum.“
„Þetta er ekki eitthvað sem þú lærir, þú þarft
að upplifa það, til að þroskast og þróast.“
Arnar Ingi starfar í dag hjá auglýsingastofunni
Saatchi & Saatchi í Barcelona.
Nemum í alþjóðlegum fagháskólum gefst
einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti
hugmynda, með stefnum og straumum
víða að úr heiminum.
Í boði er hagnýtt nám, sem sameinar
frumkvæði, hugmyndir og tækni og er í
góðum tengslum við alþjóðleg fyrirtæki.
Nemendur hafa aðgang að vel búnum
rannsóknar- og vinnustofum og kennarar
eru reyndir sérfræðingar á sínu sviði.
Háskólanám erlendis í hönnun, listum,
miðlun, stjórnun, eða tísku opnar einnig
möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og
komast áfram á alþjóðlegum markaði.
Í
dag verður opnaður Kosninga-
vefur DV fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar sem fram fara
31. maí næstkomandi. Á vefn-
um eru upplýsingar um fram-
boð í 32 stærstu sveitarfélögum
landsins en það eru öll sveitarfé-
lög með fleiri en 1.000 íbúa sam-
kvæmt mannfjöldatölum Hagstofu
Íslands. Þetta er í fjórða sinn sem
DV setur upp kosningavef en vefur-
inn í ár er sá stærsti sem opnaður
hefur verið.
Finndu þinn frambjóðanda
Meðal þess sem boðið verður upp á á
kosningavefnum er kosningaprófið.
Kosningapróf DV parar saman svör
notenda við svör frambjóðenda. Til
þess að fá sem nákvæmustu niður-
stöðurnar er best að svara öllum
spurningum á prófinu.
Fjöldi spurninga á prófinu er mis-
jafn eftir sveitarfélögum þar sem
spurningalistinn tekur mið af þeim
málefnum sem til umræðu eru í
hverju sveitarfélagi fyrir sig auk al-
mennra spurninga. Kosningaprófið
reiknar út hvaða afstöðu flokkarnir
eru líklegir að hafa út frá því hvernig
frambjóðendur hans svara. Öllum
framboðum í sveitarfélögum með
yfir 1.000 íbúa var boðin þátttaka.
Upplýsingar um hundruð
frambjóðenda
Þegar eru upplýsingar um um það
bil 300 frambjóðendur á vefnum.
Það er svo í höndum frambjóðend-
anna sjálfra hversu miklar og ítar-
legar upplýsingar þeir gefa um sig og
afstöðu sína. Frambjóðendur í sæt-
um sem nema hreinum meirihluta
fulltrúa í hverju sveitarfélagi var boð-
ið að svara spurningum á kosninga-
prófinu. Fyrir síðustu kosningar tóku
rúmlega 70 þúsund kjósendur prófið
á netinu og um 270 frambjóðendur
gáfu upp afstöðu sína.
Enn er ekki búið að birta alla lista
sem bjóða fram í kosningunum í
lok mánaðarins en framboðsfrestur
rann út síðastliðinn laugardag. Upp-
lýsingum um þá frambjóðendur
verður bætt við á vefnum um leið og
þær liggja fyrir.
Vefurinn verður betri og betri
Nýmiðladeild DV hefur síðastliðn-
ar vikur unnið að vefnum í samstarfi
við ritstjórn blaðsins. Á vefnum eru
kostir nútíma tækni notaðir til að
safna upplýsingum um frambjóð-
endur, afstöðu þeirra í hinum ýmsu
málum og gefa svo kjósendum færi á
að mæla sjálfa sig til að finna út með
hvaða frambjóðanda þeir eiga mesta
málefnalega samleið. Það er gert í
gegnum kosningaprófið.
Vefurinn verður áfram í þróun
fram að kosningum. Það þýðir að
fleiri möguleikar munu bætast við
kosningavefinn á næstu dögum og
vikum sem eru til þess ætlaðir að
auðvelda kjósendum enn frekar að
taka upplýsta ákvörðun um hvað
kjósa skuli í sveitarstjórnarkosn-
ingunum. n
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Kosningavefur DV opnaður
n Upplýsingar um 32 stærstu sveitarfélög landsins n Endurbættur vefur DV
Kosið í maí
Íslendingar ganga
að kjörborðinu 31.
maí og velja sér
fulltrúa í sveitar-
stjórnir landsins.
Mynd SigtryggUr Ari
Þ
rjátíu prósent kjósenda
í Reykjavík myndu kjósa
Samfylkinguna ef geng-
ið yrði til kosninga nú.
Þetta kemur fram í nýju-
stu skoðanakönnun Gallup fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í lok
maí. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 23
prósenta fylgi og Björt framtíð 21
prósent.
Þessir þrír flokkar eru afgerandi
stærri en hinir. Píratar mælast með
11 prósenta fylgi, Vinstrihreyfingin
- grænt framboð fengi níu prósent
og Framsóknarflokkurinn tæp-
lega fimm prósent. Dögun fengi
tæplega tvö prósent, ef marka má
niðurstöðuna.
Um 13 prósent tóku ekki af-
stöðu en könnunin var gerð dag-
anna 15. apríl til 7. maí. Sjö pró-
sent myndu skila auðu eða ekki
kjósa. 1.591 Reykvíkingur var
valinn af handahófi úr Viðhorfa-
hópi Capacent. Þátttökuhlutfallið
var rúmlega 60 prósent.
Samfylkingin fengi fimm
borgar fulltrúa ef þessi yrði niður-
staðan, Sjálfstæðisflokkurinn
fjóra, Björt framtíð þrjá, Píratar tvo
og VG einn. Aðrir næðu ekki inn
manni, þar á meðal Framsóknar-
flokkurinn. n
baldur@dv.is
Leiðir lista Sam-
fylkingarinnar
Flestir vilja Dag sem
borgarstjóra, sam-
kvæmt nýlegri könnun.
Mynd SigtryggUr Ari
Flestir myndu
kjósa Samfylkinguna
Fengju 5 borgarfulltrúa samkvæmt nýrri könnun Capacent