Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Síða 30
Vikublað 13.–15. maí 201430 Sport
„Ég er kominn í guðatölu“
n Viðar Örn slær í gegn í Noregi n 15 Íslendingar spila í efstu deild n 24 íslensk mörk eftir 8 umferðir
É
g er alveg kominn í guðatölu
hjá flestum hérna,“ segir Sel-
fyssingurinn Viðar Örn Kjart-
ansson, markahæsti leikmað-
ur maður Tippeligaen í Noregi,
í samtali við DV. Viðar Örn hefur farið
frábærlega af stað í norsku deildinni
og skorað átta deildarmörk í jafn
mörgum leikjum. Hann er marka-
hæstur.
Íslenskir knattspyrnumenn í Nor-
egi hafa sjaldnast verið fleiri. Alls
leika fimmtán leikmenn íslensk-
ir leikmenn í efstu deild í landinu,
Tippeligaen, og þrír til viðbótar spila í
1. deild. Þegar hafa 24 „íslensk mörk“
verið skoruð í deildinni, eftir átta um-
ferðir en að auki hafa nokkur mörk
verið skoruð af Íslendingum í bikar-
keppninni.
Óhætt er að segja að Viðar Örn
hafi slegið í gegn í upphafi leiktíð-
ar, en hann gekk til liðs við félagið í
desember, eftir að hafa orðið marka-
kóngur í Pepsi-deildinni í fyrrasumar.
Hann viðurkennir að hann hafi ekki
gert ráð fyrir því, þegar hann flaug út
til Noregs fyrir áramót, með samning
við Vålerenga í farteskinu, að hann
myndi skora jafn grimmt í upphafi
mótsins og raun ber vitni. „Maður
stefnir alltaf að því að skora og það er
rosalega mikilvægt að byrja vel, en ég
bjóst ekki við að skora svona mikið.“
Kom skemmtilega á óvart
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálf-
ari Íslands, segir í samtali við DV
að frábær byrjun Viðars hafi kom-
ið skemmtilega á óvart. Hann hafi
reyndar spilað vel á undirbúnings-
tímabilinu, svo það hafi kannski get-
að gefið fyrirheit um það sem kom-
ið hefur á daginn. „Ég bjóst ekki við
svona rosalega sterkri byrjun. Våler-
enga er fyrirfram ekki eitt af sterkustu
liðunum – þetta er þeim mun meira
afrek. Hann átti í raun sitt fyrsta heila
góða tímabil í fyrra, í deildinni heima.
Það er því nokkuð afrek að gera jafn-
vel enn betur í sterkari deild í Noregi.“
Hersveitin hjá Viking
Annars Selfyssingur og nýliði í norsku
deildinni er Jón Daði Böðvarsson,
einn fimm íslenskra leikmanna Vik-
ing. Fimmmenningarnir hjá Viking
hafa allir spilað alla átta leikina fyrir
félagið. Jón Daði hefur byrjað mótið
afar vel og skorað þrjú mörk, þrátt
fyrir að hafa setið á bekknum í mörg-
um leikjanna.
Þá hefur Sverrir Ingi Ingason,
varnarmaðurinn efnilegi úr Breiða-
bliki, skorað tvö í deildinni og sömu
sögu má segja af Stjörnumanninum
Steinþóri Frey Þorsteinssyni. Hann
hefur skorað tvö og FH-ingurinn
Björn Daníel Sverrisson tvö. Indriði
Sigurðsson hefur skorað eitt en Ís-
lendingarnir hafa skorað níu af ellefu
mörkum Viking í deildinni til þessa.
Flestir í lykilhlutverkum
Raunar má segja um flesta, ef ekki alla
Íslendinga í Noregi, að þeir eru í lykil-
hlutverkum í sínum liðum. Af þessum
fimmtán Íslendingum hafa tólf komið
við sögu í öllum leikjunum.
Heimir segir að þeir Lars Lag-
erbäck, landsliðsþjálfarar Íslands,
fylgist vel með norsku deildinni og
hafi séð allnokkra leiki á tímabilinu.
Hann segir norsku deildina góðan
stökkpall fyrir frekari skref upp á við,
fyrir unga íslenska leikmenn enda fái
þeir félagarnir margar fyrirspurnir
um efnilega íslenska leikmenn, sem
séu ódýrir á þeirra mælikvarða. Góð
reynsla sé af íslenskum leikmönnum
sem taki það stóra skref upp á við að
starfa einungis við að spila fótbolta.
„Norska deildin er klárlega nokkuð
betri en sú íslenska. Liðin eru jafnari
og það er spilað lengur. Þetta er nokk-
uð stórt skref að taka,“ segir Heimir.
Tvö til þrjú viðtöl á dag
Viðar Örn varð markahæstur í Pepsi-
deildinni í fyrra, þegar hann lék með
Fylki. Hann segir að athyglin sem
hann hafi fengið á undanförnum vik-
um sé mikið meiri en hann fékk á Ís-
landi. Hér heima séu fjölmiðlarn-
ir sem fjalli um knattspyrnu kannski
fimm eða sjö, samanborið við fimm-
tíu eða sextíu í Noregi. Hann seg-
ist fara í tvö til þrjú viðtöl á hverj-
um degi, eftir æfingar en fullyrðir að
athygli hvetji hann áfram. „Þetta er
draumur,“ segir hann.
Viðar Örn býr einn í Noregi, það
er án fjölskyldu, en segir að vel sé
um leikmennina hugsað. Umgjörðin
um liðið sé afar góð og þar sé allt til
alls. Hann skorti því ekkert. Aðspurð-
ur viðurkennir hann þó að hann
eigi stundum bágt með að tjá sig á
norsku, svo aðrir skilji. „Það er ekk-
ert grín að tala þetta. Hreimurinn hér
er svolítið skrítinn. Ég þarf að æfa mig
betur,“ segir hann glaður í bragði.
Hann segist hafa skrifað und-
ir góðan samning við Vålerenga og
segir að honum ætti að geta safnast
svolítill aur eftir vistina þarna. Það
sé mikilvægt enda sé um nokkra fórn
að ræða. Knattspyrnumönnum gef-
ist ekki mikill tími til annarra hluta og
ferillinn sé tiltölulega stuttur. „Ég er á
fínum samningi, sem batnar bara ef
ég stend mig vel.“ Það má því gera ráð
fyrir að það muni gerast.
En hvernig fer maður að því að
taka stökkið úr íslensku deildinni í þá
norsku með jafn miklum glæsibrag
og Viðar Örn hefur gert? Viðar hikar
svolítið en segir svo: „Ég legg mikið
á mig. Ég er mikið í ræktinni og held
skrokknum í lagi. Ég æfi mikið auka-
lega.“ Hann segist æfa markskot af
kappi og heldur áfram: „Þegar mað-
ur maður æfir fótbolta tíu mánuði á
ári, á grasi, þá bætir maður sig mik-
ið sem leikmaður. Tímabilið í fyrra
gefur mér mikið sjálfstraust og það
er komið upp í vana að skora.“ Hann
segist þrífast á pressu og hafa fund-
ið fyrir henni um leið og hann kom.
„Fólk vill að ég skori og býst við mörk-
um frá mér.“ Hann bætir við að hvort
tveggja þurfi auðvitað að vera til stað-
ar; líkamlegur styrkur og tækni.
Viðar Örn telur aðspurður að tvö
bestu liðin á Íslandi gætu haft burði
til að leika í efstu deild í Noregi. Í Nor-
egi séu hins vegar leikmannahópar
allra liðanna skipaðir sterkum leik-
mönnum. Engir „kjúklingar“ kom-
ist að, eins og stundum gerist heima.
Breiddin sé mun meiri og margir búi
jafnvel að langri reynslu úr landslið-
um. Þá séu leikmenn almennt í betra
formi – enda hafi þeir meiri tíma til að
vinna að því. „Það geta allir hlaupið í
200 mínútur án þess að blása úr nös.“
Viðar Örn viðurkennir að það
geti verið erfitt að halda einbeitingu
þegar athygli er jafn mikil og raun
ber vitni. Strax sé farið að tala um að
hann muni seljast á háar upphæðir til
stærri liða. „Menn fara svolítið fram
úr sér.“ Hann segist þó reyna að halda
ró sinni og vera hann sjálfur, bæði í
viðtölum og annars staðar.
Horfir lengra
En hvert stefnir þessi 24 ára leikmað-
ur – ef hann horfir til framtíðar? „Ég
vil spila á eins háu „leveli“ og ég get.
En ég held það sé best að taka alla-
vega eitt til tvö tímabil hérna, og festa
mig í sessi. Það væri draumur að
komast í stærri deild, og sem fram-
herji, þá er líklegast að það gerist ef
ég skora mikið af mörkum. Það eru
þau sem telja.“ Spurður hvort hann
dreymi um að spila með landsliðinu
viðurkennir Viðar Örn að það kitli.
„Það er draumur hvers leikmanns
að spila með landsliðinu. En við Ís-
lendingar eigum fjölda leikmanna
sem eru að gera fína hluti,“ seg-
ir hann. Hann segist þó vonast til að
geta gert tilkall til þess – ef hann haldi
áfram á sömu braut. „Ég hugsa eig-
inlega minna um það núna. Ef það
kemur þá kemur það bara.“ n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Noregur - Ísland
Hvort liðið myndi hafa betur?
Leikmennirnir fimmtán sem spila í Tippeligaen í Noregi dreifast nokkuð jafnt um völlinn
þegar horft er til þess hvar þeir spila. DV hefur stillt upp sterku íslensku byrjunarliði úr
norska boltanum. Á móti má sjá nokkra af bestu leikmönnunum sem spila hér á Íslandi.
Gaman væri að sjá þessi tvö sterku íslensku lið eigast við. Þess má geta að liðunum er
hér aðeins stillt upp til gamans og auðvitað er álitamál hverjir eiga að komast í liðið.
1
1
11
11
23
3
10
21
8
23
7
9
Bjarni
Ólafur
Guðjón
Pétur
Guðjón
Árni
Árni Vilhjáms
Gunnleifur
Daníel
Laxdal
20
Indriði
Sig.
Atli Guðna
Haukur
Páll
5
Hjörtur
Logi
7
Björn
Daníel
5
Þórarinn
Ingi
17
Jón Daði
18
Matthías
Vilhj.
Hannes
Þór
10
Viðar Örn
14
Pálmi
Rafn
5
Sverrir
Ingi
Óskar Örn
Baldur Sig.
2
Birkir
Már
Eiður
Aron
Varamenn
n Björn Bergmann S.
n Steindór Freyr Þ.
n Guðmundur P
n Haraldur Björnsson
n Kristján Örn Sig.
n Jóhann Laxdal
n Guðmundur Kristjáns.
Flestir spila á
Norðurlöndum
Níu Íslendingar spila í Alls-
venskan og fimm í Danmörku
Íslendingar eru ekki bara á mála hjá
norskum knattspyrnuliðum. Samkvæmt
vefsíðunni transfermarkt.co.uk eiga
Íslendingar 65 leikmenn í erlendum
atvinnumannadeildum. Norðurlöndin
eru þar áberandi, eins og gefur að skilja.
Fyrir utan þessa 15 sem leika í Tipp-
eligaen, spila níu í efstu deild í Svíþjóð,
og í Danmörku fimm í efstu deild.
Svíþjóð - Allsvenskan
n Hjálmar Jónsson - IFK Göteborg
n Arnór Ingvi Traustason - IFK Norrköping
n Skúli Jón Friðgeirsson - Gelfe IF
n Kristinn Jónsson - IF Brommapojkarna
n Guðmann Þórisson - Mjaalby AIF
n Halldór Orri Björnsson - Falkenbergs FF
n Kristinn Steindórsson - Halmstads BK
n Guðjón Baldvinsson - Halmstads BK
Danmörk - Superligaen
n Eyjólfur Héðinsson - FC Midtjylland
n Rúrik Gíslason - FC Copenhagen
n Ari Freyr Skúlason - Odense Boldklub
n Elmar Bjarnason - Randers FC
n Hallgrímur Jónasson - SönderjyskE
Landsliðsþjálfari Heimir Hallgrímsson
segir að skrefið fyrir knattspyrnumenn á
milli Íslands og Noregs sé nokkuð stórt.
Mynd SiGTryGGur Ari
Markahrókur Viðar Örn Kjartansson hefur skorað átta mörk í jafn mörgum leikjum í norsku deildinni. Hér er einu slíku fagnað. Mynd VåLerenGA
Íslensk mörk
í Tippeligaen í Noregi
n Viðar Örn Kjartansson 8
n Jón Daði Böðvarsson 3
n Björn Bergmann Sigurðarson 2
n Pálmi Rafn Pálmason 2
n Steinþór Freyr Þorsteinsson 2
n Sverrir Ingi Ingason 2
n Björn Daníel Sverrisson 1
n Guðmundur Kristjánsson 1
n Guðmundur Þórarinsson 1
n Hjörtur Logi Valgarðsson 1
n Indriði Sigurðsson 1