Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Blaðsíða 12
Helgarblað 23.–26. maí 201412 Fréttir
Íslandsbanki
hagnaðist um
8,3 milljarða
Íslandsbanki hagnaðist um 8,3
milljarða króna eftir skatta á
fyrsta ársfjórðungi, samanborið
við 4,6 milljarða í fyrra. Munur
inn á milli ára liggur að stærstum
hluta í hagnaði vegna sölu eigna
í aflagðri starfsemi að sögn Ís
landsbanka.
Eiginfjárhlutfall bankans er
30,3 prósent en var 28,4 prósent á
sama tíma í fyrra.
Bankinn græddi 6,6 milljarða
á vöxtum á árinu, sem er lækkun
um 11,1 prósent á milli ára. 2,9
milljarðar voru innheimtir í
þóknanir og hækkuðu þóknanir
til bankans um 16,4 prósent á
milli ára, en hækkunina má rekja
til markaða, viðskiptabanka,
eignastýringar og dótturfélaga
bankans.
Hlutfall kostnaðar á móti tekj
um í Íslandsbanka lækkaði í 55,1
prósent á tímabilinu, en lækkun
ina má rekja til fækkunar starfs
manna og „áframhaldandi kostn
aðaraðhalds“, að því er segir í
tilkynningu frá bankanum.
Heildareignir bankans eru
metnar á 884 milljarða króna.
Ókeypis hafra-
grautur fyrir
alla nemendur
Reykjanesbær býður nemendum
sínum nú upp á ókeypis hafra
graut í grunnskólum bæjarins.
Í fréttatilkynningu frá
Reykjanesbæ segir að um tilraun
sé að ræða, þar sem ætlunin er
að meta hversu margir muni
nýta sér tilboð af þessu tagi og
finna þá útfærslu sem best hent
ar til framtíðar, en ætlunin er,
samkvæmt fréttatilkynningunni,
að festa þetta fyrirkomulag í
sessi til framtíðar takist vel til.
Nú býðst nemendum að
mæta fyrr og fá sér graut áður
en kennsla hefst. Hafragrautur
inn er einnig í boði í löngu frí
mínútunum að morgni fyrir þá
sem það vilja.
Gylfi Jón Gylfason, fræðslu
stjóri Reykjanesbæjar, segir að
mikil ánægja sé meðal foreldra
og nemenda með þessa tilraun.
Fyrir þessu segir hann marg
vísleg lýðheilsufræðileg rök,
hafragrautur sé hollur og gefi
kraftmiklum krökkum orku til að
takast á við verkefni dagsins.
Um verulega kjarabót virðst
líka að ræða fyrir heimilin.
„Ég heyrði til dæmis af
margra barna móður sem sagði
að þetta sparaði henni um það
bil 20 þúsund á mánuði, þar sem
hún þyrfti ekki lengur að smyrja
nesti á morgnana í sama mæli og
áður,“ segir Gylfi Jón.
Samkvæmt fréttatilkynn
ingunni benda fyrstu tölur til
þess að kostnaður af þessu sé
mikið minni en Reykjanesbær
gerði ráð fyrir í upphafi.
Káfið var
leyndarmál
n Fleiri lentu í Hallbirni n Leiddist út í dóp n Ætlar að áfrýja
D
ómurinn yfir tónlistar
manninum Hallbirni Hjart
arsyni, sem féll í Héraðs
dómi Norðurlands vestra
á þriðjudag, varpar ljósi á
mörg atriði sem höfðu fram að þessu
verið óljós, og má þar nefna sjálfs
morðstilraun hans, líðan fórnar
lambanna sem og fjölda þeirra.
Hallbjörn, sem er sjötíu og níu
ára, var í vikunni dæmdur í þriggja
ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
tveimur barnabörnum sínum. Hálf
bróðir annars fórnarlambsins sagði
í vitnisburði sínum við aðalmeð
ferð að Hallbjörn hafi brotið á sér
fyrir rúmlega þrjátíu árum. Sögðu
fórnar lömb Hallbjarnar frá því
hvernig þau urðu lokuð og leiddust
út í dópnotkun í kjölfar misnotkun
ar hans. Í samtali við DV segist Hall
björn ætla að áfrýja dómnum. „Ég
segi ekkert meira,“ segir Hallbjörn.
Barnabarnið ekki sérstaklega kært
Spurður um samband sitt við eldra
fórnarlambið sagði Hallbjörn að
barnabarnið væri sér ekki sérstak
lega kært og að hann hafi ekki um
gengist það á annan hátt en aðra.
Sagðist hann ekki hafa haft mikið
samband við barnabarnið né
foreldra þess. Hvað varðar yngri
drenginn sagði Hallbjörn hann
hafa verið daglegan gest á heimili
sínu allt til þess að hann réðst á sig
á heimili sínu í febrúar árið 2013. Í
vitnisburði sínum lýsti yngri dreng
urinn því að í nærri hvert skipti sem
hann hitti afa sinn hafi hann „strokið
á honum rassinn og kynfærin utan
klæða“. Sagði hann það hafa gerst oft
á ári. Seinasta skiptið sem það gerð
ist hafi Hallbjörn sagt honum að káf
ið væri leyndarmál þeirra tveggja.
Játað til að kaup sér frið
Við aðalmeðferð kom fram að eftir
líkamsárás yngra fórnarlambsins í
febrúar árið 2013 hafi sá eldri vitjað
Hallbjarnar á heimili hans. Að sögn
fórnarlambsins fór hann til afa síns
eftir sólarhringsáfengisneyslu til að
krefjast játningar hans. Hafi Hall
björn fyrst um sinn neitað en að lok
um játað. Frásögn Hallbjarnar af því
atviki var á þá leið að hann hafi verið
hræddur um að hér væri önnur lík
amsárás í uppsiglingu. Sagðist hann
hafa játað brot sín til að kaup sér
frið. Í kjölfar þessa sendi Hallbjörn
barnabarni sínu bréf þar hann baðst
fyrirgefningar og bað hann að koma
og ræða við sig. Hallbjörn sagðist þó
ekki hafa litið á það sem svo að hann
hafi játað brot sín. Bréfsendingin
hafi verið til þess gerð að hann gæti
sýnt honum skemmdir sem hann
hafi valdið á heimili sínu sem og að
kaupa sér frið.
Neysla og sálfræðiaðstoð
Kom fram í vitnisburði beggja
fórnar lamba að líðan þeirra eftir
níð Hallbjarnar sé slæm. Móðir
eldra fórnarlambsins sagði að
hún hafi haft áhyggjur af mikilli
áfengisneyslu og reiði er hann var
unglingur. Hann sagði að honum
líði betur eftir að hafa kært Hall
björn og hafi hann leitað sér hjálpar
hjá sálfræðingi og geðlækni. Sagði
hann það sama ekki hægt að segja
um þann yngri sem sé í mikilli fíkni
efnaneyslu. Sá sagði að síðastliðin
misseri hafi hann verði mjög van
sæll og tengdi hann það sérstaklega
við brot Hallbjarnar. Hafi hann reynt
að leita sér sálfræðiaðstoðar en það
hafi gert lítið gagn þar sem honum
þyki mjög erfitt að ræða misnotkun
ina. Þrátt fyrir það lýsti hann einu
atviki sem átti sér stað fyrir rúm
lega fimm árum á heimili Hallbjarn
ar. Þá hafi Hallbjörn stungið tungu
sinni upp í munn barnabarnsins og
strokið honum um rassinn.
Vitni sagði frá misnotkun
Hálfbróðir eldra fórnarlambsins
var vitni í réttarhöldunum og kom
fram í máli hans að Hallbjörn hafi
misnotað hann í eitt skipti. Hafi
hann verið í pössun hjá afa sínum
tæplega tíu ára gamall er Hallbjörn
hafi farið með hann inn í herbergi
og þuklað á honum þar. Kvaðst mað
urinn eftir þetta hafa forðast heim
ili Hallbjarnar og síðastliðin þrjátíu
ár aðeins heimsótt hann einu sinni.
Var þessi misnotkun þögguð niður
að sögn vitnisins.
Sjálfsmorðstilraun
sama daga og átakafundur
Árið 2011 sagði Hallbjörn opin
skátt frá því að hann hefði reynt að
fremja sjálfsmorð. Í dómnum yfir
honum kom skýrt fram að það hafi
gerst í kjölfar þess að öll börn hans
hafi farið á hans fund og borið mis
notkun hans á barnabörnum sínum
undir hann. Í vitnisburði dóttur
Hallbjarnar, móður annars drengj
anna, kemur fram að stuttu fyrir jól
árið 2010 hafi börnum Hallbjarnar
orðið kunnugt um níð hans gegn
drengjunum. Ákveðið var að bíða
þar til eftir jól með að leggja þetta
undir Hallbjörn. Fóru systkinin á
fund föður síns og sögðu honum að
þau vissu af brotum hans. Það sama
kvöld tók Hallbjörn inn töflur með
það að markmiði að svipta sitt lífi.
Á fundinum hafði Hallbjörn neitað
sök en viðurkennt að hann væri
samkynhneigður. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„
Ég segi
ekkert
meira
Dæmdur Hallbjörn
Hjartarson var dæmdur
í þriggja ára fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn
barnabörnum sínum.