Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Blaðsíða 23
Umræða 23Helgarblað 23.–26. maí 2014
Spurningin
Hefur þú ákveðið
hvað þú munt
kjósa?
Korter í kosningar Umsjón: Henry Þór Baldursson
Ég er
sjálflærður
Ragnar Freyr Ingvarsson er læknirinn í eldhúsinu. – DV
Ég á ekki
til orð
Jóhanna S. B. Ólafsdóttir gerðist ábyrgðarmaður og situr í súpunni. – DV
Þetta er enginn
heimsendir
Ólafur Arnarson varð gjaldþrota. – DVJuan Carlos var sagt upp. – DV
Ö
rfáir sólargeislar höfðu ratað
inn í morgunsárið á torginu
í Helsinki þar sem flugrútan
stoppar. Og ég var þarna í
skímunni tilbúinn að kveðja finnska
grund eftir einnar viku umræður um
hið sjáanlega, einsog það kallast í
fílósófíunni.
Mávar rótuðu í ruslatunnum og
glaseyg ungmenni fóru reikul í spori
um stéttina, mávunum til ómældrar
armæðu. En stærsti mávurinn virt-
ist ekki láta nærveru mannfólksins
raska sinni stóísku ró. Hann rótaði
áfram í ruslinu. Nokkrir spörfuglar
sóttu það sem var of smátt í goggi
fyrir mávana og skjór vappaði um í
þvögunni. Mávaforinginn rótaði og
hafði upp úr krafsinu eitthvað sem
líktist leifum af kjúklingi, þá krunk-
aði skjórinn með hvellum hætti,
þannig að mávarnir stukku upp og
misstu sjónar af bitanum, en skjór-
inn nýtti sér sekúndubrotið, greip
lufsuna og yfirgaf torgið með hröð-
um vængjaslætti. Og þegar mávafor-
inginn ætlaði, svona líka grútspæld-
ur, að elta skjóinn, vildi svo meinilla
til að leigubíll kom æðandi að og
breytti foringjanum í kássu sem síð-
an varð að morgunverði fyrir nokkra
ættingja hans.
Þessi mynd fylgdi mér þegar ég
settist inn í rútuna, við hliðina á
lufsulegum Finna. Hann lyktaði illa
og hann átti við mig óskiljanlegt ein-
tal áður en ég játaði skilningsleysi
mitt. Gegnt okkur sat kona sem ég
þóttist viss um að hlyti að vera ind-
verskrar ættar. Hún var búttuð og
bjúgmyndun á kálfum hennar gerði
skóna nær ósýnilega. En til hliðar við
frúna sat lágvaxinn, hörundssvartur
maður og hraut.
Finninn táraðist þegar hann
sagði landa sína hafa reist merka
kirkju í stríðinu. Og svo leyfði hann
mér að njóta vel kryddaðra gusa af
svartagallsrausi.
Ég hlustaði með öðru eyranu en
hugur minn var á meðal fuglanna
sem rótuðu í ruslinu á torginu. Og
þegar hugur minn hvarflaði að orð-
um Finnans, hugsaði ég um þessa
þjóð, hvernig allt er svo hart og
kalt. Það er einsog blóðið í Finnum
sé nokkrum gráðum kaldara en í
öðru fólki.
Hann talaði um sjálfsvíg og fá-
tækt, hann talaði um innflytjenda-
vanda og svo öskraði hann: -Helvít-
ið hann Pútín er aldrei langt undan!
Hann stóð upp og tautaði eitthvað
sem hljómaði einsog: -Kolla og Kári
telja marga uxahala.
Hann yfirgaf rútuna og öskraði:
-Merkilega uxabarka! eða eitthvað í
þeim dúr.
Já, blóðið í þeim er einsog seig-
fljótandi málning.
Sá hörundssvarti virtist ekki vita
hvort hann væri að vakna eða sofna
þegar hann skimaði í allar áttir og
öskraði: What the fucking are we
doing in this shithole, anyway? n
Hjá fólki í fágætum heimi,
fuglarnir eru á sveimi,
þar fæ ég að sjá
fuglana þá
og fólkið sem aldrei ég gleymi.
Stéttaskipting í heimi fugla
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
V
alkostirnir í komandi kosn-
ingum hafa sjaldan verið
jafn skýrir að mati okkar í
Kvennahreyfingu Samfylk-
ingarinnar, ekki síst þegar
horft er til hagsmuna kvenna og
launafólks. Annars vegar höfum
við jafnaðarmenn og félagshyggju-
fólk sem á liðnum árum hefur auk-
ið hér jöfnuð og bætt stöðu kvenna
en hins vegar Sjálfstæðisflokk og
Framsóknarflokk sem frá fyrsta degi
ríkisstjórnarinnar hafa unnið gegn
hagsmunum kvenna og almenns
launafólks.
Afturábak …
Ríkisstjórnin hefur dregið úr vægi
kvenna við æðstu stjórn landsins,
bæði við ríkisstjórnarborðið og í
mikilvægum ráðum og nefndum rík-
isins og gamla klisjan um að hæfni
ráði, en ekki kyn heyrist nú æ oftar
sem réttlæting á óréttlætinu.
Ríkisstjórnarflokkarnir vinna
einnig gegn hagsmunum almenn-
ings og kvenna með því að færa auð-
mönnum Íslands – flestum körl-
um, skattafslætti fyrir tugi þúsunda
milljóna á meðan skorið er niður í
velferðarkerfinu. Lenging fæðingar-
orlofs var slegin af, dregið úr vaxta-
bótum, barnabótum og stuðningi við
tekjulágar fjölskyldur og námsmenn,
jafnlaunaátak fyrri ríkisstjórnar er í
uppnámi, óvissa ríkir um endurnýj-
un húsnæðis Landspítalans og aftur
er hafinn niðurskurður í mennta- og
heilbrigðiskerfinu.
Ekki leikur nokkur vafi á því að
þessar áherslur ríkisstjórnarflokk-
anna munu auka ójöfnuð í samfé-
laginu, en það er einnig ljóst að þess-
ar aðgerðir bera í sér gríðarlegan
kynjahalla. Stefna stjórnvalda mun
færa gríðarlegt fjármagn og völd, frá
konum til karla sem þegar hafa tögl
og hagldir í samfélaginu.
Og karlarnir á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík leita á sömu
slóðir ójöfnuðar og ójafnréttis. Þeir
vilja að markaðurinn sjái um hús-
næðismálin, einkavæðingin moli
niður skólakerfið og enn á ný boða
þeir heimgreiðslur til að halda kon-
unum heima.
… eða áfram?
Samfylkingin hefur á hinn bóginn
lagt áherslu á að standa vörð um
þjónustu við börn með t.d. barna-
bótum, barnatannlækningum, gjald-
frjálsri heilsugæslu fyrir börn, hækk-
un fjárhagsaðstoðar og úrbótum til
að brúa bilið milli fæðingarorlofs og
leikskóla.
Aðstæður á leigumarkaði bitna
verst á einstæðum mæðrum, tekju-
lágum og börnum þeirra. Samfylk-
ingin hefur unnið mikið starf á sviði
húsnæðismála á síðustu árum og
nú er hafin bygging leiguíbúða sem
munu breyta aðstæðum fjölda fjöl-
skyldna.
Kvennahreyfingin fagnar því
skýrum áherslum Samfylkingarinn-
ar á málefni kvenna, barna og hús-
næðismál.
Valið er skýrt
Nú eru fáir dagar til kosninga og eft-
ir þær verður Samfylkingin að koma
sterk að sveitarstjórnum landsins
til að tryggja hér jöfnuð og réttlæti.
Kvennahreyfing Samfylkingarinn-
ar hvetur jafnaðarmenn og félags-
hyggjufólk til að mynda meirihluta í
sem flestum sveitarfélögum að lokn-
um kosningum. Þannig vinnum við
best að samfélagi jöfnuðar, jafnrétt-
is og samábyrgðar, og samfélag þar
sem konur og karlar eru metin til
jafns og jöfnuður ríkir er einfaldlega
betra fyrir okkur öll. n
Kjósum jöfnuð, jafnrétti og réttlæti
Heiða Björg Hilmisdóttir
formaður kvennahreyfingar
Samfylkingarinnar
Aðsent
„Ég er ekki búin að ákveða það. Ég
ætla bara að hlusta á hvað þeir hafa
fram að færa núna, frambjóðendur.
Svo tek ég afstöðu eftir það.“
Helga Björg Helgadóttir
58 ára kennari
„Nei. Ég er ekki búin að pæla í þessu.
Ég er að fara að kjósa á Flúðum, ég
er ekki með lögheimili í bænum, ég
er ekki alveg búin að ná einu sinni að
kynna mér þetta. En ég veit allavega
hvert það fer ekki. Ég kýs ekki Fram-
sóknarflokkinn eða Sjálfstæðisflokk-
inn og ekki Samfylkinguna heldur.“
Sigurbjörg Bjarnadóttir
23 ára nemi
„Nei, því miður. Ætli ég skoði ekki bara
hvað flokkarnir eru búnir að gera mið-
að við loforð frá síðustu kosningum og
skoði það út frá því.“
Björg Helen Andrésdóttir
51 árs aðalbókari
„Já, ég er búinn að því. Það sem ræður
ákvörðuninni eru stefnuskrárnar. Ég
ætla ekki að gefa það upp, en ég er
búinn að ákveða það.“
Haukur Hergeirsson
42 ára verslunarstjóri
„Nei en kýs út frá fyrri verkum.“
Agnar Kárason
56 ára verslunarstjóri