Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Blaðsíða 17
Fréttir 17Helgarblað 23.–26. maí 2014 Stefnan að halda landinu lokuðu n Óttinn við hryðjuverk grundvöllur núgildandi útlendingalaga n Forstjóri Útlendingastofnunar kannast ekki við neina stefnu n Stjórnmálafræðingur segir Ísland loka á útlendinga Taugaveiklunarviðbragð Haukur Már Helgason, heimspek­ ingur og fyrrverandi ritstjóri Dag­ blaðsins Nei, vakti máls á hinni óorðuðu stefnu íslenskra stjórn­ valda í útlendingamálum í grein um uppruna Útlendingastofnunar sem birtist á vefsíðunni þann 29. mars árið 2009. Þar benti hann á að stefna í málefnum útlendinga á Ís­ landi hefði aldrei verið rædd á lýð­ ræðislegum vettvangi eða mótuð opinberlega. Þá spurði hann jafn­ framt hverjar hinar óorðuðu hug­ myndir að baki stefnunni væru? Í samtali við DV bendir hann á að þó að lögum um útlendinga frá 2002 hafi ekki fylgt opinber stefnu­ yfirlýsing þýði það ekki að enginn ásetningur búi að baki þeim. Ljóst sé að þáverandi dómsmálaráð­ herra hafi gefið sterkt til kynna, er hann lagði frumvarpið fyrst fram á þingi, „að það væri hluti af víðtæku taugaveiklunarviðbragði Vestur­ landa eftir hryðjuverkaárásina í New York árið 2001.“ Hann segir þó ákveðinn vanda fylgja því að líta á rökstuðning með frumvarpi eða þingræður sem stefnu að baki lögum. Þannig hafi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, talað á allt öðrum nótum um frum­ varpið en dómsmálaráðherra. „Á máli hennar má helst skilja að ásetningurinn að baki frumvarp­ inu sé helst sá að bæta réttarstöðu útlendinga.“ Óverjandi stefna Þó nokkrar deilur spruttu upp vegna frumvarpsins á Alþingi. Þór­ unn Sveinbjarnardóttir, fyrrver­ andi þingmaður Samfylkingar­ innar, andmælti þeim viðmiðum sem fram komu í máli dómsmála­ ráðherra. Sólveig svaraði því til að frumvarpið fjallaði ekki bara um réttindi útlendinga, heldur líka um rétt íslenskra stjórnvalda, til að hafa „ákveðna stjórn á þessum málum“. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, spurði um grundvallaratriði réttarríkisins og dómsmálaráðherra svaraði: „Ég spyr á móti: Hvar er réttur íslenskra borgara til verndar gagnvart þessu fólki? Þurfum við ekki líka að hafa hann í huga?“ Þá spurði hún hvort hann teldi „að mikið hefði farið fyrir mannréttindum í Sovétríkjun­ um sálugu?“ „Það sem mér hefur þótt mark­ verðast er hvað orðaleysið gefur framkvæmdavaldinu, undirstofn­ unum, embættisfólki mikið svig­ rúm. Ef málin væru tekin saman, hvert og eitt, og orðuð út frá málsmeðferðinni einhver almenn regla, lögmál sem virðist gilda að baki, væri það hugsanlega stefna sem enginn gæti fallist á,“ segir Haukur Már. Á meðan hún sé hins vegar ekki orðuð, og látið eins og hver ákvörðun sé aðeins einstakt tilfelli, sé fjarveru orðanna gert auðveldara fyrir við framkvæmd­ ina: „Þá hefur dvalarleyfi þessa manns runnið út eða hinn er á ábyrgð sænskra stjórnvalda eða grískra og svo framvegis. Hvert einstakt mál virðist greinilega oft rökstyðjanlegt á skrifstofum en stefnan sem úr verður eða birtist reynist óverjandi.“ Utan frá séð virðist því sem meginviðhorf Útlendingastofn­ unar og reglurammans sem hún styðst við, sé að halda skuli fólki frá landinu, „færa sönnunarbyrðina á þá sem vilja vera, og oft, í til­ felli hælisleitenda, óuppfyllanlega sönnunarbyrði, samanber að fá opinber gögn frá löndum þar sem maður er ofsóttur. Ég held hins vegar að lífsviðhorf flestra – orðan­ leg lífsviðhorf – séu að fólk eigi að jafnaði að fá að vera þar sem það vill vera, og sönnunarbyrðin ætti að vera á því yfirvaldi sem ætlar að standa í vegi þess.“ Áhersla á íslenskukennslu Þó að engin heildræn stefna sé til í málefnum útlendinga bendir Eirík­ ur Bergmann á að ríkisstjórn Sjálf­ stæðisflokks og Framsóknarflokks hafi samþykkt sérstaka stefnu um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi í janúar 2007. „Í fyrsta sinn hér á landi er lögð fram heild­ ræn stefna stjórnvalda um aðlögun innflytjenda að íslensku samfé­ lagi“, sagði Magnús Stefánsson, þá­ verandi félagsmálaráðherra, þegar hann kynnti stefnuna á blaða­ mannafundi í félagsmálaráðu­ neytinu þann 24. janúar. „Horn­ steinn hins íslenska réttarríkis er lýðræði, mannréttindi, samábyrgð og einstaklingsfrelsi. Þessi gildi eru leiðarljós í aðlögun innflytjenda að samfélaginu og samfélagsins að þeim öru breytingum sem fylgja al­ þjóðavæðingunni.“ Stefna ríkisstjórnarinnar náði þó ekki til allra útlendinga, svo sem flóttafólks og hælisleitenda, enda beindist hún að innflytjendum sem hefðu „sest að hér á landi til langframa.“ Þar var meðal annars lögð sérstök áhersla á að standa dyggilega vörð um íslenska tungu. „Hún er sameign þjóðarinnar og geymir sögu hennar, menningu og sjálfsvitund. Hún er einnig tæki til félagslegra samskipta. Kunnátta í íslenskri tungu er lykillinn að ís­ lensku samfélagi og getur ráðið úr­ slitum um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi,“ sagði í frétta­ tilkynningu félagsmálaráðuneytis­ ins í tilefni af stefnu ríkisstjórnar­ innar. „Ég las þess stefnu á sínum tíma og þótti hún frekar rýr. En svo má líka benda á það að stefna „Vafasamir pappírar“ njóti ekki mannréttinda Fordómar gagnvart útlendingum aukast og birtast meðal annars í orðum valdafólks Í nýrri skýrslu Rauða krossins sem ber heitið Hvar þrengir að? er fjallað um niðurstöður í nýrri könnun Félagsvís­ indastofnunar sem benda til þess að 44 prósent landsmanna telji fólk af erlendum uppruna sæta fordómum. Einn svarenda í könnun Rauða krossins sagði fólk frá Taílandi, Filippseyjum, svarta Afríku­ menn, Araba og múslima mæta mestum fordómum. Aðrir tóku undir þessi viðhorf. Ljóst er að hælisleitendur og flóttafólk tilheyrir oftar en ekki þessum hópum. Fólk í valdastöðum hefur látið ýmis ummæli falla um þennan hóp á síðustu árum. Ummæli Kristínar Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar, um að hælis leitendur væru að sækja til Íslands „til að fá frítt uppihald“ vöktu mikla reiði og voru fordæmd af félagasamtökum og einstaklingum. Fyrirrennari Kristínar í starfi, Haukur Guðmundsson, viðraði svipaðar skoðanir árið 2008 þegar hann sagði að hælisleitendur „gætu bara farið á hótel.“ Þá varði hann umdeilda fjöldahandtöku á gistiheimilinu þann 11. september sama ár á þeirri forsendu að hælisleitendur hefðu verið með fölsuð skilríki og furðulegar sögur. „Reynslan hefur kennt okkur hvað þarf að gera,“ sagði Haukur um aðgerðina sem var með­ al annars gagnrýnd harkalega í leiðara Morgunblaðsins. Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætis­ ráðherra og núverandi ritstjóri Morgun­ blaðsins, hefur varið innanríkisráðuneyti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í leiðurum í blaðinu upp á síðkastið. Ráðuneytið er til lögreglurannsóknar vegna leka á persónuupplýsingum um hælisleitendur úr ráðuneytinu og í fjölmiðla. Svo virðist sem Davíð telji fullkomlega eðlilegt að leka slíkum upplýsingum. „Ef umsækjendur eru vafasamir pappírar, á ekki almenningur í landinu rétt að upplýst sé um það?“ Hann hefur ítrekað talað um flóttamenn innan gæsalappa án nokkurra skýringa. Þá varaði hann nýlega við því að útlendingar sæktu í auknum mæli í velferðarkerfi Íslendinga. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófess­ or í stjórnmálafræði og skoðanabróðir Davíðs til áratuga, tók nýlega í sama streng. Sagði hann lekamálið snúast um það að girða fyrir það, „að alls konar lýður komi hingað í trausti þess, að hann geti farið sínu fram. Til hvers höfum við útlendingaeftirlit? Af hverju læsum við dyrunum, áður en við förum eitthvað? Það er, af því að við getum ekki treyst ókunnugum.“ Brynjar Níelsson og Vigdís Hauksdóttir eru á meðal þeirra stjórnar­ liða sem hafa viðrað svipuð viðhorf en frægt er orðið þegar Vigdís kallaði eftir því að sett yrðu sérstök ökklabönd á flótta­ fólk til þess að fylgjast með ferðum þess. Lokað á útlendinga til að halda í þjóðmenningu Auður Jónsdóttir orðar stefnu íslenskra yfirvalda í útlendingamálum Auður Jónsdóttir rithöfundur hefur síð­ ustu mánuði skrifað nokkra pistla í Kjarn­ ann þar sem hún gerir stöðu hælis leitenda og flóttafólks að umfjöllunarefni. Þar sem engin skrifleg stefna er til í málaflokknum bað DV hana að orða stefnuna eins og hún hefur birst í ákvörðunum Útlendinga­ stofnunar og innanríkisráðuneytisins síðustu misseri. Auður segir að þótt það ekki sé til nein skrifuð stefna þýði það ekki að hér sé engin opinber stefna. Aðgerðir embættismanna taki augsýnilega mið af ákveðnu verkferli. Stefna íslenskra yfirvalda í málefnum útlendinga hljóðar á þessa leið: „Það ber að að vísa öllum úr landi sem er mögu­ lega hægt að senda burt á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þó að það sé ekkert sem segi að okkur beri að gera svo þá veljum við að gera það. Það er stefnan í hnotskurn. Þá sjaldan sem það virðist ekki mögulegt er samt sem áður nauðsynlegt að leita allra ýtrustu leiða til að losna við fólk og þá má ekki láta deigan síga þó að einn og einn sleppi í gegn.“ Auður bendir aftur á móti á að það verði að taka mið af því að íslenska þjóðin sé skuldbundin til að taka á móti kvótaflóttafólki. „Það ber helst að gera með þeim hætti að íslenskir embættismenn leggi land undir fót til að handvelja fólk sem er líklegt til að aðlagast svonefndri íslenskri þjóðmenningu, þar með talið að borða hrútspunga á þorrablótum og kynna sér öll þau lög sem íslenska þjóðin hefur fram til þessa sent í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Margir sem sækja síðar um ríkisborgararétt eru slíkt kvótaflótta­ fólk en það býður heim hættunni á að ættingjar þeirra vilji einnig koma til landsins, nokkuð sem verður að fyrir­ byggja hvort sem upphaflegi kvótaflótta­ maðurinn hefur tileinkað sér að borða þorramat og syngja mannbætandi vorlög í séríslenskum gleðskap eða ekki. Undir öllum kringumstæðum ber að forðast að sýna mannúð og mannvirðingu því slíkt gæti skapað slæmt fordæmi. Aðeins með þessu móti tekst íslensku þjóðinni að halda í áðurnefnda þjóðmenningu.“ Framhald á næstu síðu  „Ég skil ekki á hvaða villigötum umræður um innflytj- endamál eru, ef það er talið ámælisvert, að hér séu ekki fleiri hælisleit- endur. Taugaveiklun Haukur Már Helgason heimspekingur bendir á að núverandi útlendingalög hafi verið hluti af víðtækum taugaveiklunarviðbrögðum Vesturlanda eft­ ir hryðjuverkaárásina í New York árið 2001. Forstjóri í mótsögn Alþjóðalög­ fræðingurinn Jórunn Edda Helgadóttir segir forstjóra Útlendingastofnunar í innri mótsögn þegar hann afneitar því að stefna sé til í málaflokknum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.