Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Side 15
Helgarblað 23.–26. maí 2014 Fréttir 15 www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Sumarferðir
Ferðafélags ÍslandsMaí
24.05. Sveinstindur
24.05. Vorganga Hornstrandafara
25.05. Söguferð um Fljótshlíð og Eyjafjöll
31.05. Sveinstindur
Júní
07.06. Hvannadalshnúkur
12.06. Pöddulíf - Ferðafélag barnanna
14.06. Hornstrandir
14.06. Toppahopp í Vestmannaeyjum
14.06. Hringur um Botnssúlur
17.06. Leggjabrjótur
20.06. Sumarsólstöðuganga
21.06. Náttúra og mannlíf á Brunasandi
21.06. Níu tindar Tindfjalla
22.06. Háhitasvæði á Reykjanesskaga
24.06. Álfar og tröll á Jónsmessu - Ferðafélag barnanna
25.06. Laugavegurinn
25.06. Björg í bú: Látrabjarg
26.06. Hornbjargsviti og Hornbjarg
27.06. Vatnaleiðin
27.06. Toppahopp á Snæfellsnesi
28.06. Fimmvörðuháls
Júlí
02.07. Bláfjöll um hásumar - Ferðafélag barnanna
02.07. Í fjallasölum Árneshrepps
03.07. Náttúruperlur í Vestur-Skaftafellssýslu
04.07. Fjölbragðaferð að Fjallabaki
04.07. Vígaslóðir og galdragötur
06.07. Í tröllahöndum á Tröllaskaga
06.07. Þar sem jökulinn ber við loft
07.07. Árbókarferð um Skagafjörð
07.07. Grasaferð og galdralækningar - Ferðafélag barnanna
09.07. Laugavegurinn með Ingimari og Pétri
10.07. Hornbjargsviti og Hornbjarg
10.07. Fuglabjörgin miklu á Hornströndum
11.07. Ævintýri í Eldsveitum Helgarferð - Ferðafélag barnanna
11.07. Hvítárnes-Karlsdráttur
11.07. Sæludagar í Hlöðuvík
11.07. Undraheimar Eldhrauns
12.07. Fimmvörðuháls
15.07. Saga, byggð og búseta
15.07. Öxarfjörður út og suður
Sjá nánar um allar ferðir á www.fi.is
Ferðafélag Íslands
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533
eða í netpóst fi@fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
„Myrkur og sorti sótti að“
n Gunnar í Krossinum segir ásakanir sprottnar frá eigendum Pressunnar n Konurnar lýstu brotum Gunnars fyrir dómi
Faglega unninn
fréttaflutningur
Steingrímur Sævarr Ólafsson, þá-
verandi ritstjóri Pressunnar og einn
eigenda hennar, gaf skýrslu fyrir
dómi og Þór Jónsson blaðamaður
gaf vitnaskýrslu. Þór skrifaði lang-
flestar fréttir Pressunnar um málið.
Steingrímur sagði það hafa algjör-
lega farið framhjá sér, hafi eigendur
Pressunnar tekið sig saman um að
ráðast að Gunnari með umfjöllun.
Hann var, og er, einn eigandi mið-
ilsins. Jafnframt sagði hann að ekki
hefði þurft stóran ritstjórnarfund til
að ákveða að birta nafn Gunnars í
fréttunum, þar sem hann væri þjóð-
þekktur einstaklingur.
Þór sagði að hann hefði fyrst haft
veður af málinu þegar hann heyrði af
konu sem var að segja frá því að hún
hefði orðið fyrir kynferðisbrotum af
hálfu Gunnars. „Ég reyndi að finna
út hvað væri tækt í því, það bar svo
í rauninni ekki árangur. Svo er það,
síðar, að okkur bárust fréttir af því
að þær kunni að vera fleiri en þessi
eina. Ég sá um fréttaflutning af bisk-
upsmálinu á Stöð 2 og þarna voru
líkindi, svo ég reyndi að rekja þessi
þræði. Reyndi að komast í samband
við þessar konur sem höfðu hug á því
að skila skömminni til baka, eins og
það er kallað,“ sagði Þór.
Töluðu við Gunnar
„Það var í tengslum við bók Jón-
ínu sem var að koma út. Nú fékk ég
beint samband við heimildarmann,
sem varð til þess að ég gat heyrt í
fleirum og komist að raun um að það
var hópur kvenna sem með einum
eða öðrum hætti var að tengjast og
ræða um svipaða reynslu sem þær
höfðu af Gunnari. Með því ætluðu
þær að skila skömminni til baka og
fá Gunnar til að viðurkenna það sem
hann hafði gert. Við gerðum strax þá
kröfu að við myndum ekki birta neitt
um þetta öðruvísi en að haft væri eftir
nafngreindum heimildarmönnum,
við vildum ekki greina frá einhverju
nema við værum vissir um að þetta
væri ekki hugarburður eins manns.
Við reyndum að bera málið undir
Gunnar, en hann hafði lítið um mál-
ið að segja,“ sagði Þór fyrir dómn-
um. Hann sagði jafnframt að enginn
eigenda Pressunnar hafi haft áhrif á
sig til að skrifa um málið. Hann sagði
að þeir hefðu frekar haft áhyggjur af
því að það hallaði á hlut Gunnars í
málinu og að fjölmiðillinn hafi pass-
að sig að ganga ekki of nærri honum.
HIV, geðsýki og vændi
Björn Ingi Stefánsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Krossins, bar
einnig vitni fyrir dómnum. Hann
sagðist hafa komið til starfa í
Krossinum eftir skilnað Gunnars
og hafði ekki verið lengi þegar mál-
ið kom upp. „Forstöðumaður Catch
the Fire hringdi í mig og bað mig um
að hitta sig. Þar sagði hann mér frá
því að einhverjar konur hafi leitað til
hans og hans kvenna um meint áreiti
Gunnars. Mér fannst þetta mjög
alvarlegur áburður. Ég reyndi að ná
í Sigurbjörgu, dóttur Gunnars, svo
við gætum borið saman bækur okkar
og búið okkur undir það sem koma
skyldi. Á þriðjudegi fékk ég sms-boð
um að það sé herkvaðning í gangi
og allir eigi að mæta í Krossinn um
kvöldið. Þar gekk ég inn í herbergi,
þar sem Gunnar, Jónína og Sigur-
björg eru að funda um málið. Um
konurnar sagði Gunnar að ein konan
væri geðsjúk, ein væri vændiskona
og ein hefði framið sjálfsmorð með
því að smitast af HIV,“ sagði Björn,
sem sagði við Gunnar að hann hefði
áður heyrt svipaða sögu.
„Ég sagði Gunnari að ég hefði
þrettán ára gamlan vitnisburð. Þar
hefði kona sagt svipaðar sögur en
það endaði með því að ég varð að
víkja frá því ég fékk yfir mig gusur.
Ég vildi setja málið í farveg, en það
mátti ekki,“ sagði Björn, sem sneri
sér svo að Gunnari í dómsalnum.
„Gunnar talaði um að allir væri geð-
sjúkir, svikarar. Ég, vinur hans, var
borinn þeim sökum að vera að svíkja
hann. Hvaða bull er þetta, ég á erfitt
með að trúa að félagi til margra ára
skuli geta látið svona út úr sér,“ sagði
Björn Ingi og horfði á Gunnar á með-
an hann sagði þessi orð. Gunnar sat
niðurlútur og horfði ekki á Björn.
Sögðu frá kynferðisbrotum
Því næst komu sex af konunum
sjö og báru vitni, koll af kolli. Allar
sögðu þær svipaðar sögur af brotum
Gunnars gegn þeim. Sólveig Guðna-
dóttir, systir fyrrverandi eigin konu
Gunnars, sagðist persónulega vita
um alls sextán konur sem hefðu
sömu sögu að segja af honum. Í eitt
skiptið, þegar hún var þrettán ára,
kom hún á heimili Gunnars og var
fremur kalt. Þar lá hann í sófa og
sagði henni að kúra hjá sér. „Það var
kalt úti, ég kom inn og hann lá þarna.
Hann bað mig um að koma og sagði
mér að kúra hjá sér. Ég hafði litið á
hann sem föðurímynd og sá ekkert
athugavert. Eftir smá stund fer hann
með höndina á hægra brjóstið á
mér. Ég var hrædd um að Inga kæmi
heim. Mér leið hræðilega. Hann dró
mig á gólfið og fór með hendina að
ofanverðu og niður,“ sagði Sólveig.
Svipaðar sögur sögðu fleiri konur og
lýstu því hvernig Gunnar hefði kom-
ið við þær. Ein lýsti því hvernig hann
setti fingur upp í leggöng hennar.
„Í alvöru?“
Lögmaður Vefpressunnar, Bjarki
H. Diego, sagði í málflutningi sín-
um að málið hefði átt erindi við al-
menning. „Er það virkilega svo, að
það er bannað að fjalla um svona
mál? Eru blaðamenn múlbundnir?
Ég segi bara eins og oft er sagt, „í
alvöru!?!“ Öll umfjöllun var fagleg,
með smekklegum hætti. Það var
mikið, mikið dregið úr því sem kon-
urnar sögðu. Það sem kom fram í
fréttum af málinu hér í gær [þriðju-
dag, innsk. blm.] var miklu verra. Á
að refsa blaðamönnum hér fyrir þær
fréttir?“ spurði Bjarki og sagði einnig
að lokum í ræðu sinni: „Hvað með
konurnar? Mega þær ekki ræða um
sína upplifun í æsku, sem í mínum
huga er ljóst að var einhver. Mega
þær ekki ræða um þetta, mega þær
ekki tala við blaðamenn um þetta,
mega þær ekki birta opin bréf um
þetta?“ n
„ Þær töldu
sig kviðdóm,
dómara og böðul í
þessum málum.