Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Page 28
Helgarblað 23.–26. maí 201428 Umræða
Framhald á næstu síðu
1. Hvað gerðir þú síðasta laugardagskvöld?
Fór í brúðkaupsveislu hjá vinum mínum.
2. Hver var þín fyrsta hugsun í morgun?
Það er sól úti, jess.
3. Hvað lýsir þér best? Ég er úrræðagóður.
4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
Þegar ég skeit á mig í rólunni heima, um
tveggja ára gamall.
5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti
kossinn? Man það ekki alveg. Man hins
vegar eftir fyrsta kossi frá konunni minni,
það var ógleymanlegt.
6. Hefur þú einhvern tímann fengið
sæluhroll? Ef já, hvenær og af hverju?
Já, oft. Ég fæ reglulega sæluhroll þegar mér
tekst að leysa eitthvað sem virtist ómögu-
legt, þegar ég fæ fréttir af einhverju sem
gleður mig mikið og líka oft þegar ég sé eða
hugsa um konuna mína, hana Sigurbjörgu.
7. Hvað er það villtasta sem þú hefur
gert? Það þolir ekki dagsljósið.
8. Hefur þú verið nakinn í óbyggðum? Já.
9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en
áfengi? Til dæmis kannabis? Annað?
Ég lifði nokkuð villtu lífi á tímabili og prófaði þá
fíknilyf. Í dag bragða ég ekkert sterkara en te.
10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Já, for-
láta bassa sem ég átti var stolið. Það sveið.
11. Hefur þú verið tekinn af lögreglunni? Já.
12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi, hvar
væri það? Heimi Star Wars.
13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja
prófa? Fjallaskíði.
14. Hver er besta stundin sem þú hefur
upplifað? Ég veit það ekki. Það var stór-
kostlegt þegar strákarnir okkar fæddust.
Ég hef upplifað alveg ofboðslega margar
bestu stundir.
15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast? Í
morgun kyssti ég konuna mína.
16. Hefur þú gleymt afmælisdegi ein-
hvers sem skiptir þig máli? Já, en náð að
krafla mig út úr því.
17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu
síðast? Hvaða barni? Ég man nú ekki eftir
því að hafa gleymt mínum börnum.
18. Hver er einmanalegasta stundin sem
þú hefur upplifað? Ég get ekki sagt það,
hef ekki upplifað einmanaleika mjög lengi.
19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur
fengið? Jólarjúpurnar á hverju ári.
20. Hefur þú svikið einhvern? Ekki vísvitandi.
21. Biðst þú afsökunar á mistökum
þínum? Ef já, hvernig? Já, og alltaf eins
fallega og ég get.
22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur
séð eða heyrt? Ísland Today.
23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á
kvöldin áður en þú ferð að sofa? Kyssi
konuna mína góða nótt.
24. Hvað er það versta sem þér hefur
tekist að fyrirgefa? Ég á almennt auðvelt
með að fyrirgefa.
25. Hvert er eftirminnilegasta ferðalag-
ið sem þú hefur farið í? Nokkrir túrar með
HAM voru eftirminnilegir, fór einu sinni til
Ekvador, það var frábært. Allar mínar ferðir
hafa verið eftirminnilegar.
26. Hver er stærsta stundin í lífi þínu?
Stórt er spurt. Líklega þegar ég fæddist.
27. Hver er þín mesta eftirsjá? Ég sé ekki
eftir neinu og ef ég geri það þá bara í mjög
stuttan tíma.
28. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni
þegar þið vaknið á morgnana? Góðan
daginn elskan eða góðan daginn vinur.
29. Hvert yrði þitt fyrsta verk í hlutverki
hins kynsins ef það myndi breytast? Veit
ekki hvert fyrsta verkið yrði en það væri
spennandi að prófa að eignast barn.
30. Hversu mörg kosningaloforð telur þú
að þú getir staðið við? Öll.
31. Hvert yrði þitt fyrsta verk í hlutverki borg-
arstjóra ef til þess kæmi? Öskra „Ég ræð hér.“
32. Í þremur orðum: Fyrir hvað stendur þú?
Harður, sanngjarn, jákvæður.
1. Hvað gerðir þú síðasta laugardags-
kvöld? Hélt upp á fertugsafmælið mitt.
Það geri ég nú ekki á hverju laugardags-
kvöldi. Var sjúklega skemmtilegt.
2. Hver var þín fyrsta hugsun í
morgun? Fokk, ég á eftir að svara spurn-
ingunum frá DV.
3. Hvað lýsir þér best? Er hugrökk og
fylgin mér. Stundum dálítið þver.
4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
Á Kanaríeyjum með ömmu minni og
afa þegar ég var þriggja ára. Afi bar sjó í
lekum plastpoka svo við gætum búið til
hallir úr sandinum á ströndinni. Veit ekki
hvort ég man þetta í alvörunni eða hvort
síendurteknar sögur ömmu og afa gera
þetta svona ljóslifandi fyrir mér.
5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti
kossinn? Í Færeyjum, ég var 13 ára,
ljómandi fínn.
6. Hefur þú einhvern tímann fengið
sæluhroll? Ef já, hvenær og af hverju?
Já oft. Ég er mjög hrifnæm kona og það
þarf mjög lítið til.
7. Hvað er það villtasta sem þú hefur
gert? Það er ekki prenthæft, en margar
skemmtilegar aðgerðir með hinum ýmsu
grasrótarsamtökum koma upp í hugann.
8. Hefur þú verið nakin í óbyggðum?
Já, oft.
9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en
áfengi? Til dæmis kannabis? Annað?
Já, hef prófað hass. Mæli ekki með því.
10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Nei.
11. Hefur þú verið tekinn af lög-
reglunni? Hef einu sinni verið stoppuð og
beðin um ökuskírteini. Sýndi það og allir
voru sáttir.
12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi,
hvar væri það? Ég hef meiri áhuga á að
búa í betri heimi en öðrum. Myndi vilja
búa í friðsælum heimi þar sem við um-
göngumst umhverfi og náttúru af ábyrgð
og höfum öll jöfn tækifæri.
13. Hvað er það sem þú myndir helst
vilja prófa? Bubblebolta. Er einhver
memm?
14. Hver er besta stundin sem þú hefur
upplifað? Fæðing barnanna minna.
Stórkostlegar stundir.
15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast?
Líf Magneudóttur í morgun. Var að þakka
henni fyrir afmælisgjöfina mína.
16. Hefur þú gleymt afmælisdegi
einhvers sem skiptir þig máli? Já, oft.
Síðast sextugsafmælinu hennar mömmu.
17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu
síðast? Hvaða barni? Ætli fólk komist
ekki næst því að gleyma börnunum sínum
í kosningabaráttu. Það vill til að börnin
mín eru sjálfstæð og dugleg og eiga stóra
og góða fjölskyldu sem passar þau vel á
lokasprettinum.
18. Hver er einmanalegasta stundin
sem þú hefur upplifað? Þegar ég var
ein á ráðstefnu í New York fyrir nokkrum
árum. Að vera alein í þessari risastóru
borg sem iðar af mannlífi magnar upp
einmanakennd. Það vera mjög sérstakt.
19. Hver er albesta máltíð sem þú hef-
ur fengið? Ég er mikill ástríðukokkur og
geri reglulega góðan mat. Besta máltíðin
er nú samt sennilega jólarjúpurnar sem
eldaðar eru samkvæmt uppskrift langa-
langömmu minnar.
20. Hefur þú svikið einhvern? Já. Því
miður.
21. Biðst þú afsökunar á mistökum
þínum? Ef já, hvernig? Já, ég geri það
reglulega.
22. Hvað er það fyndnasta sem þú
hefur séð eða heyrt? Ugla og Saga.
23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á
kvöldin áður en þú ferð að sofa? Býð Líf
góða nótt á Snapchat.
24. Hvað er það versta sem þér hefur
tekist að fyrirgefa? Allt sem ég hef
raunverulega fyrirgefið er gleymt og
grafið.
25. Hvert er eftirminnilegasta
ferðalagið sem þú hefur farið í? Ætli
afdrifaríkasta ferðalag mitt hafi ekki
verið til Umeå í Svíþjóð þar sem ég dvaldi
sem skiptinemi í hálft ár. Þar kynntist ég
manninum mínum sem ég hef verið með
síðan.
26. Hver er stærsta stundin í lífi þínu?
Dagurinn í dag. Þakka fyrir að vera á lífi og
heil heilsu á hverjum degi.
27. Hver er þín mesta eftirsjá? Þau
skipti sem ég hef ekki tekið til varna fyrir
sjálfa mig heldur setið undir ómaklegum
árásum á persónu mína.
28. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni
þegar þið vaknið á morgnana? Með
kossi ef ég get, en undanfarna morgna
hef ég verið rokin út áður en þau vakna.
Við höfum verið mætt fyrir utan leikskóla
borgarinnar kl. 7.30 til að tala við
foreldra sem hefur verið mjög gefandi og
skemmtilegt.
29. Hvert yrði þitt fyrsta verk í
hlutverki hins kynsins ef það myndi
breytast? Hitt kynið? Hvert þeirra?
30.Hversu mörg kosningaloforð telur
þú að þú getir staðið við? Reynslan
sýnir að stefnumál Vinstri grænna verða
að veruleika fyrr eða síðar og oftast taka
aðrir flokkar undir með okkur þó það taki
oft langan tíma.
31. Hvert yrði þitt fyrsta verk í hlut-
verki borgarstjóra ef til þess kæmi?
Að setja í gang vinnu við að innleiða
gjaldfrjálsa grunnþjónustu við börn.
32. Í þremur orðum: Fyrir hvað stendur
þú? Jafnrétti, umhverfisvernd, frið.
1. Hvað gerðir þú síðasta laugardags-
kvöld? Var að undirbúa og skemmta mér á
flugkvöldi Framsóknar og flugvallarvina.
2. Hver var þín fyrsta hugsun í morgun?
Hvað klukkan væri.
3. Hvað lýsir þér best? Bjartsýni
4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
Þegar ég kom á Landakotsspítala að
heimsækja pabba minn sem var að koma úr
brjósklosaðgerð.
5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti
kossinn? Eftir bíóferð í Bíóborginni, vetur-
inn 1990, hann var æðislegur.
6. Hefur þú einhvern tímann fengið
sæluhroll? Ef já, hvenær og af hverju? Já,
oft, þegar ég hugsa um góðar stundir með
ástinni minni.
7. Hvað er það villtasta sem þú hefur
gert? Að bjóða mig fram í 1. sætið í borgar-
stjórnarkosningum.
8. Hefur þú verið nakin í óbyggðum? Já,
oft.
9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en
áfengi? Til dæmis kannabis? Annað?
Nei.
10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Já,
þegar ég húkkaði far með bíl til að komast
um borð í ferju frá Calais til Dover og já …
ekki húkka far.
11. Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?
Já, á myndavél í Hvalfjarðarsveit.
12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi, hvar
væri það? Fjórðuvíddarheimi.
13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja
prófa? Að vera borgarstjóri .
14. Hver er besta stundin sem þú hefur
upplifað? Þegar ég held á börnunum
mínum eftir fæðingu.
15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast?
Gizur, kærastann minn, núna í morgun.
16. Hefur þú gleymt afmælisdegi ein-
hvers sem skiptir þig máli? Nei.
17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu
síðast? Hvaða barni? Í fyrradag, gleymdi
tímanum – að sækja Eyjólf á Valsæfingu.
18. Hver er einmanalegasta stundin
sem þú hefur upplifað? Þegar ég var
skiptinemi í Frakklandi og kunni ekki orð í
frönsku og enginn talaði ensku.
19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur
fengið? Scott‘s í London, besta kampavín-
ið og kolkrabbacarpaccio.
20. Hefur þú svikið einhvern? Já, því
miður.
21. Biðst þú afsökunar á mistökum
þínum? Ef já, hvernig? Já, með að sýna
iðrun og tala við viðkomandi ef því er
viðkomið.
22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur
séð eða heyrt? Þegar kötturinn okkar var
sofandi á baðbrúninni og datt fram af og
ofan í baðið þar sem kærastinn minn lá.
23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á
kvöldin áður en þú ferð að sofa? Fer með
bænirnar og þakka fyrir daginn.
24. Hvað er það versta sem þér hefur
tekist að fyrirgefa? Svik í tengslum við
sambandsslit.
25. Hvert er eftirminnilegasta ferða-
lagið sem þú hefur farið í? Ferðalag
til Honfleur, því að ferðafélaginn var svo
óviðjafnanlegur.
26. Hver er stærsta stundin í lífi þínu?
Þegar ég eignaðist börnin mín þrjú, heilbrigð.
27. Hver er þín mesta eftirsjá? Símtal sem
ég átti sumarið 2012.
28. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni
þegar þið vaknið á morgnana?
Með faðmlagi og kossum.
29. Hvert yrði þitt fyrsta verk í hlutverki
hins kynsins ef það myndi breytast? Að
kíkja í spegil
30. Hversu mörg kosningaloforð telur þú
að þú getir staðið við? Við erum ekki með
kosningaloforð, heldur markmið og ég mun
vinna að þeim öllum.
31. Hvert yrði þitt fyrsta verk í hlutverki
borgarstjóra ef til þess kæmi? Að setja
upp raunhæfa áætlun til að tryggja þeim
fjölskyldum sem eru að missa húsnæði sitt
samverustað. Frestun á nauðungarsölum
rennur út í september og það þarf að
undirbúa hvernig Reykjavíkurborg ætlar að
tryggja húsnæðisöryggi.
32. Í þremur orðum: Fyrir hvað stendur
þú? Framkvæmdagleði, rökhugsun og
heiðarleika.
Húkkaði far og lenti í klóm ræningja
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir oddviti Framsóknar og flugvallarvina
S. Björn Blöndal oddviti Bjartrar framtíðar
Það villtasta þolir
ekki dagsljósið Sér eftir því að
taka ekki til varna
Sóley Tómasdóttir oddviti Vinstri grænna „Allt sem ég hef
raunverulega
fyrirgefið er gleymt og
grafið.