Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Síða 50
Helgarblað 23.–26. maí 201442 Skrýtið Sakamál
S
teve Wright fæddist í apr-
íl 1958, sonur herlögreglu-
manns, Conrads, og að-
stoðarkonu dýralæknis,
Patriciu. Stöðu Conrads
vegna hafði fjölskyldan búið víða,
meðal annars á Möltu og í Singapúr.
Patricia sagði skilið við fjöl-
skylduna árið 1964, en þau hjónin
skildu þó ekki fyrr en 1977.
Steve lét gott heita hvað
skólagöngu áhrærði árið 1974 og
fékk starf á kaupskipum. Hann varð
síðar bryti á ferjum sem sigldu frá
Felixstowe í Suffolk. Hann kvænt-
ist árið 1978 Angelu O'Donovan og
eignuðust þau einn son, slitu sam-
vistir 1987 og skildu síðar.
Steve vann hin ýmsu störf; var
skipsþjónn, vörubílstjóri, barþjónn
og lyftarastjóri.
Fimm morð
Steve kvæntist á ný, Díönu Cassel,
1987 og þau skildu ári síðar. Hann og
Sarah Whiteley rugluðu saman reyt-
um og voru í sambandi 1989–1993
og eignuðust eina dóttur. Ekkert af
þessu varðar það sem eftir lifir frá-
sagnarinnar sem fjallar um morðfer-
il Steve sem stóð ekki lengi – frá 30.
október 2006 til 10. desember sama
ár – en kostaði fimm konur lífið.
Öll fórnarlömb Steve voru vænd-
iskonur, en hann hafði allar götur
frá því að hann var í kaupskipaflot-
anum vanið komur sínar á vændis-
hús – sem voru oftar en ekki dulbúin
sem nuddstofur eða sánu.
Um þetta leyti var Steve í sam-
bandi við konu að nafni Pamela og
þegar hún hóf vinnu á næturvöktum
var lítið um kynlíf og falaðist Steve
þá í enn meira mæli eftir þjónustu
vændiskvenna.
Kyrkti fórnarlömbin
Sú fyrsta sem féll fyrir hendi Steve
var 19 ára heróín- og kókaínfíkill,
Tania Nicol, en hennar var sakn-
að 30. október. Líkamsleifar hennar
fundust ekki fyrr en 8. desember í á
skammt frá Copdock Mill í Ipswich.
Sökum þess hve langt var um liðið
frá því hún var myrt var ómögu-
legt að fullyrða að henni hefði verið
nauðgað og dánarorsök á huldu.
Sex dögum áður en líkamsleif-
ar Taniu fundust hafði lík vinkonu
hennar, Gemmu Adams, fundist í
vatni við Belstead Brook, skammt
frá Hintlesham.
Lík á lík ofan
Fundust nú lík, hvert á fætur öðru;
10. desember hnaut gangandi veg-
farandi nánast um lík 25. ára konu,
Anneli Alderton, í skóglendi skammt
frá Nacton. Hún hafði verið kyrkt og
þrjá mánuði gengin.
Tveimur dögum síðar fundust
tvö lík til viðbótar. Kennsl voru bor-
in á annað þeirra og var þar um að
ræða 24 ára konu, Paulu Clennell,
sem hafði horfið sama dag og líkið af
Anneli fannst.
Hinn 15. desember gat lögregla
staðfest að hitt líkið var af Annette
Nicholls, 29 ára konu sem hafði
horfið tíu dögum áður. Líkin af þeim
tveimur fundust í Nacton, ekki langt
frá þeim stað sem Steve hafði hent
líkinu af Anneli.
Sumac-aðgerðin
Lögreglan í Suffolk sá líkindi með
morðunum og leitaði eftir aðstoð
lögreglunnar í London. Yfir 650 lög-
reglumenn komu að rannsókn og
leit að morðingjanum í aðgerð sem
fékk nafnið Sumac.
Hvað kom lögreglunni á sporið er
ekki fjölyrt um en 19. desember var
Steve Wright handtekinn og að lok-
inni yfirheyrslu var hann ákærður
fyrir fimm morð.
Réttarhöld yfir Steve hófust í
Ipswich 16. janúar, 2008, og við
þau kom fram að líkum Anneli og
Annette hafði verið stillt upp sem
krossfest væru og lífsýni úr Steve
fannst á þremur líkanna.
Allar nema eina
Verjandi Steve fór ekki í launkofa
með að Steve hefði notfært sér þjón-
ustu vændiskvenna; hann hefði haft
samfarir við allar konurnar nema
eina – Taniu Nicol.
Steve hafði vissulega tekið Taniu
upp í bifreið sína en síðan hætt
við og ekið henni í rauða hverfið í
Ipswich.
Eftir átta klukkustunda rökræð-
ur, 21. febrúar 2008, komst kvið-
dómur að einróma niðurstöðu um
sekt Steve Wright hvað varðaði öll
morðin fimm. Daginn eftir fékk
hann lífstíðardóm.
Þess má geta að rannsókn á
Steve Wright er ekki lokið enda ekki
talið loku fyrir það skotið að hann
tengist enn óleystum morðgátum og
mannshvörfum. n
Suffolk-morðinginn
n Stuttur glæpaferill Steve Wright kostaði fimm mannslíf„Líkum Anneli og
Annette hafði ver-
ið stillt upp sem krossfest
væru.
Myrti hugsanlega fleiri
en fimm Steve Wright fékk
lífstíðardóm fyrir fimm morð.
Síðasta
ljósmyndin
Ljósmyndin hér að ofan sýn-
ir síðustu andartök Reginu Kay
Walters en aðeins fáeinum mín-
útum eftir töku hennar var hún
myrt af bandaríska raðmorðingj-
anum Robert Ben Rhoades. Var
þessi mynd eitt sönnunargagna
í réttarhöldum gegn honum en
Rhoades tók myndina í yfirgef-
inni hlöðu í Illinois. Hafði hann
klippt á henni hárið og þvingað
hana í svartan kjól og hælaskó.
Regina var fjórtán ára og hafði
strokið að heiman þegar Rhoades
bauð henni far. Hann afplánar nú
lífstíðardóm.
„Hræddur
fyrir hönd
sonar míns“
Nítján ára piltur frá Texas í Banda-
ríkjunum, Jacob Lavoro, gæti
átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi
vegna framleiðslu á hasskökum.
Alls fundust 700 grömm af kökum
í fórum Lavoros. Magnið er í sjálfu
sér ekki mikið en þar sem hann
notaði hassolíu við framleiðsluna
er hann ákærður fyrir að hafa 700
grömm af hassi undir höndum.
Hefði hann notað marijúana við
kökugerðina hefði hann aðeins
verið ákærður fyrir það magn af
marijúana sem fór í kökurnar –
væntanlega örfá grömm. Verði
Lavoro fundinn sekur gæti hann
átt yfir höfði sér að lágmarki fimm
ára fangelsi en að hámarki lífs-
tíðarfangelsi sem fyrr segir. Málið
hefur vakið hörð viðbrögð með-
al hópa sem styðja lögleiðingu
kannabisefna í Bandaríkjunum.
„Þetta mál undirstrikar ruglið
sem stríðið gegn kannabisefnum
er,“ segir Erik Altieri, talsmaður
hóps sem berst fyrir endurskoðun
á fíkniefnalöggjöfinni vestan-
hafs. Faðir drengsins tekur í sama
streng. „Ég er löghlýðinn borg-
ari, ég er íhaldsmaður og elska
landið mitt. En þetta er rangt. Ef
Jacob gerði eitthvað af sér á að
refsa honum, en að því marki að
einhver skynsemi sé í því. Þetta er
órökrétt, ég er mjög hræddur fyrir
hönd sonar míns.“
Gáfu kennara
rottueitur
Kennari í barnaskóla í New
York er á batavegi eftir að tve-
ir nemendur hans settu rottu-
eitur út í vatnsflösku sem hann
notaði. Nemendurnir, 9 og 12
ára, eru í vondum málum og
verða þeir kærðir fyrir að stefna
heilsu kennarans í hættu. Að
því er Huffington Post grein-
ir frá varð annað barn vitni að
því er nemendurnir létu eitrið
í flöskuna og lét foreldra sína
vita. Þeir höfðu strax samband
við skólayfirvöld en þá hafði
kennarinn tekið sopa úr flösk-
unni. Sem betur fer varð hon-
um þó ekki alvarlega meint af.
Vampíran í Atlashverfi
Blóð sænsku portkonunnar Lilly Lindeström var drukkið
E
itt dularfyllsta morðmál
Svíþjóðar átti sér stað um
mánaðamótin maí apr-
íl árið 1932. Morðmálið er
oftast kennt við Atlas-hverf-
ið í Stokkhólmi en þar bjó fórn-
arlambið Lilly Lindeström. Fannst
hún látin í íbúð sinni í nágrenni
við torg heilags Eiríks. Við rann-
sókn á morði hennar kom í ljós að
hún hafði fengið mjög þungt höf-
uðhögg sem splundraði höfuð-
kúpu hennar. Ískyggilegra var þó að
rannsóknarlögreglumenn tóku eft-
ir því að einhver hafði drukkið blóð
hennar eftir dauða hennar. Enn
þann dag í dag er lögreglan engu
nær um hver myrti hana og er raun-
ar flest á huldu um morðið.
Lindeström var þrjátíu og tveggja
ára er hún var myrt og hafði hún
starfað sem portkona um nokkurt
skeið. Nágranni hennar á neðri
hæð og vinkona var sú seinasta sem
hafði séð hana lifandi, að morðingj-
anum frátöldum. Að hennar sögn
hafði Lindeström komið til hennar
að kvöldlagi, nokkrum dögum áður
en hún fannst látin, og beðið um
smokka að láni. Vinkonan heyrði
svo ekkert í henni eftir það. Fannst
henni það sérkennilegt og hringdi
því á lögregluna. Braust lögreglan
inn og sá þá undireins nakið lík á
sófa. Fundust föt hennar snyrtilega
brotin saman á stól.
Fljótlega varð ljóst að
Lindeström hafði verið blóð-
tæmd og blóðið drukkið en sam-
kvæmt rannsóknarlögreglumönn-
um fannst stór sleif sem þakin var
storknuðu blóði. Þrátt fyrir mikla
leit fann lögreglan engin grunsam-
leg fingraför í íbúð Lindeström.
Sænska þáttaröðin Veckans brott
skoðaði morðmálið árið 2012 og
kom þar fram að notaður smokk-
ur hafi fundist í klofi Lindeström
og voru leiddar að því líkur að í dag
hefði morðið verið leyst með því að
taka lífsýni úr smokknum. n
hjalmar@dv.is
Blóðið drukkið Í dag hefði
líklega verið auðvelt að hafa
upp á morðingjanum, sem
virðist hafa haft samræði við
fórnarlamb sitt og skilið eftir
notaðan smokk.