Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Síða 72
Helgarblað 23.–26. maí 2014
39. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Reimar
dauðans alvara
n Vigdís Hauksdóttir hneyksl-
ast á Facebook-síðu sinni á inn-
köllun Neytendastofu á flíkum
frá 66°Norður. Að sögn Vigdísar
er innköllunin til komin vegna
þess að „flíkurnar uppfylltu ekki
Evrópustaðla um „lengd reima og
banda“ í fatnaði.“ Fór Vigdís hörð-
um orðum um þessa ákvörðun
Neytendastofu. „Þetta er bilun!!!
Sparperurnar roðna í samanburði
við þetta.“ Vilhjálmur Þorsteins-
son, gjaldkeri Samfylkingarinn-
ar, svarar Vigdísi og
bendir á að börn
gætu hengt sig á
of löngum reim-
um sem „festast
t.d. í leiktækj-
um (rólum,
klifurgrind-
um …), herð-
ast að hálsi
eða þrengja
að.“
Spenntur fyrir
„kúgun karla“
n Á dögunum tilkynnti pró-
fessorinn Hannes Hólmsteinn
Gissurarson að hann myndi
flytja fyrirlestur sem ber nafnið
Kúgun karla? á alþjóðlegri ráð-
stefnu í Háskóla Íslands um
karlmennskuhugsjónina. Segir
Hannes að á okkar dögum sé
talsvert erfiðara að vera karl-
maður en kona. „Karlmennsku-
hugsjónin íþyngir körlum miklu
frekar en kvenleikahugsjónin
konum,“ skrifaði Hannes. Fóru
þessi skrif fyrir brjóstið á sum-
um, en Gísli Marteinn Baldurs-
son var ekki á meðal þeirra.
Kom hann Hannesi til varnar á
Facebook og sagð-
ist búast við
skemmtilegum
og áhugaverð-
um fyrirlestri
frá einum um-
deildasta fyrir-
lesara Háskóla
Íslands.
Er þetta ekki
að verða
fullreimt,
Vigdís?
Kosningabarátta
í kommentum
n Rithöfundurinn Auður Jóns-
dóttir bað vini sína á Facebook
um upplýsingar um stefnumál
flokka í komandi sveitarstjórnar-
kosningum svo hún gæti gert
upp hug sinn um hvern þeirra
hún ætti að kjósa. Forysta Vinstri
grænna, jafnt í landsmálum sem
borgarmálum, sá sér leik á borði
og gerði Facebook-síðu Auðar að
vettvangi sinnar kosningabaráttu.
Lagði oddviti flokksins, Sóley
Tómasdóttir, áherslu á mennta-
mál meðan Katrín Jakobsdóttir
sagði flokkinn standa fyrir gjald-
frelsi í leikskólamálum. „Hér er
kosningabaráttan loksins kom-
in!“ skrifaði rithöfundurinn Hall-
grímur Helgason um þetta fram-
tak þeirra.
Fær ekki greitt fyrir Betri Akureyri
„Við gerum þetta til hjálpa til en ekki til að gera díl,“ segir oddviti L-listans
E
itt kosningaloforða L-listans á
Akureyri í sveitarstjórnarkosn-
ingum er að vefurinn betriakur-
eyri.is verður þróaður og kynntur.
Því hefur verið velt upp að um sé að
ræða kosningaloforð gert til fylla vasa
oddvita flokksins, Matthíasar Rögn-
valdssonar, en fyrirtæki hans, Stefna,
hefur komið að uppsetningu síðunnar.
Í samtali við DV segir hann það af og
frá að hann verði ríkur á eflingu Betri
Akureyrar. „Við vorum beðnir um að
setja þetta upp og bærinn hýsir þetta.
Við gerum þetta til hjálpa til en ekki
til að gera díl við sjálfa okkur,“ segir
Matthías.
Segir oddviti listans að um sé að
ræða svokallaða „open source“ lausn.
„Við setjum í rauninni bara upp hug-
búnað sem er klár fyrir og er ókeyp-
is fyrir alla. Þetta er það sama og í
betrireykjavik.is og er öllum heim-
ilt að nota þetta. Við erum ekki að
smíða neinn kóða. Stefna fékk ekk-
ert greitt fyrir þetta. Stefna hefur stutt
Atvinnu- og nýsköpunarhelgi hér á
Akureyri og við styðjum dyggilega
allt frumkvöðuls starf. Þetta er okk-
ar stuðningur við íbúalýðræði,“ segir
oddvitinn. Að hans sögn er þetta verk
ekki tímafrekt og hafa starfsmenn
Stefnu gert það í hjáverkum.
Matthías er bjartsýnn á gengi
Betri Akureyrar og segir eiga von á
því að vefsíðan fari í loftið á næstu
dögum. „Við vonumst til þess að
eftir kosningar muni bærinn taka
þennan vef í notkun og fólk geti
komið hugmyndum á framfæri og
hægt sé að taka þær fyrir á einhverj-
um vettvangi innan bæjarins. Þetta
hefur verið hugmynd sem við höf-
um stefnt að í nokkurn tíma. Eigin-
leg vinna við að koma þessu í gírinn
hefur átt sér stað á undanförnum
vikum, en hugmyndafræðin á bak
við þetta er eldri.“ n
hjalmar@dv.is
Oddviti L-listans Matthías Rögnvaldsson,
fyrir miðju, segir aðkomu fyrirtækis síns að
vefnum Betri Akureyri ekki vera í gróðaskyni.
FRITZ HANSEN, ROSENDAHL, STELTON,
ERIK JORGENSEN, MARIMEKKO,
JOSEPH JOSEPH, CARL HANSEN,
ARTIFORT OG ALLIR HINIR
Í DAG FÖSTUDAG,
Á MORGUN LAUGARDAG
OG Á SUNNUDAG,
22. - 25. MAÍ
Harpa / Skeifan 6 / Keflavíkurflugvöllur / 5687733 / epal@epal.is / www.epal.is