Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 6
6 | Fréttir 21.–23. janúar 2010 Helgarblað
VILT ÞÚ
VITA HVERS
VIRÐI EIGNIN
ÞÍN ER Í DAG?
PANTAÐU FRÍTT
SÖLUVERÐMAT ÁN
SKULDBINDINGA!
HRINGDU NÚNA
Bær820 8081
Sylvia Walthers // best@remax.is
Rúnar S. Gíslason
Lögg. fasteignasali.
Þorsteinn M. Jónsson:
Skuldauppgjör
við Arion banka
Heildarskuldir félaga í eigu Þor-
steins M. Jónssonar, sem oftast er
kenndur við Kók, við Arion banka
námu 10,9 milljörðum króna.
Bankinn hefur tilkynnt að sam-
komulag hafi verið gert við Þor-
stein og félög sem tengjast honum
um uppgjör skulda.
Eins og greint hefur verið frá fer
Vífilfell undir
nýtt eignarhald
en grundvöllur
samkomulags-
ins við Arion
banka er sala
eignarhalds-
félaga í eigu
Þorsteins, Sól-
stafa og Neanu,
á öllu hlutafé
í Vífilfelli. Nýr
eigandi Vífilfells
er spænski drykkjarvöruframleið-
andinn Cobega.
Kaupverðið er trúnaðarmál en
fram kemur í tilkynningu bankans
að greiðslan komi að öllu leyti til
lækkunar á skuldum eignarhalds-
félaga Þorsteins við Arion. Búið er
að skrifa undir kaupsamning en
eftir stendur að ganga frá ákveðn-
um fyrirvörum sem tilgreindir eru
í kaupsamningi. Reiknað er með
að því verði lokið í febrúar.
Arion banki mun einnig fá í
sinn hlut væntanlegt söluandvirði
og aðrar greiðslur vegna hlutar
Vífilfells í hollenska drykkjarvöru-
framleiðandanum Refresco. Þar til
Refresco hefur verið selt mun Þor-
steinn sitja í stjórn félagsins.
Fyrir fjárhagslega endurskipu-
lagningu voru heildarskuldir Sól-
stafa og Neanu við Arion banka
um 6,4 milljarðar króna og heild-
arskuldir Vífilfells við bankann
voru um 4,5 milljarðar. Samtals
10,9 milljarðar. Samkomulagið
nú felur í sér fullnaðaruppgjör á
skuldum Sólstafa og Neanu við
Arion banka og að heildarskuld-
ir Vífilfells verði um 2 milljarðar
og þar af 1,4 milljarðar við Arion
banka.
Þorsteinn á einnig hlut í fjár-
festingarfélaginu Materi Invest og
er í persónulegri ábyrgð fyrir 240
milljónum af skuldum félagsins
við Arion banka. Hluti af sam-
komulaginu nú er uppgjör þessara
persónulegu ábyrgða.
Þorsteinn
M. Jónsson
Íslandsbanki tjáir sig um hlutabréfasölu Birkis Kristinssonar:
Birkir fékk leyfi til að selja
Í svari upplýsingafulltrúa Íslands-
banka, Guðnýjar Helgu Herberts-
dóttur, við fyrirspurn DV um mál
Birkis Kristinssonar kemur fram að
starfsmenn bankans, og fyrrrennara
hans Glitnis, þurfi að fá heimild frá
regluverði bankans áður en þeir selja
hlutabréf í bankanum.
DV greindi frá því á miðvikudag-
inn að Birkir Kristinsson, yfirmaður
í einkabankaþjónustu Glitnis og nú
Íslandsbanka, hefði selt nánast öll
hlutabréf sín í Glitni í júlí 2008, rétt
fyrir íslenska efnahagshrunið. Þetta
var einungis rúmum tveimur mán-
uðum fyrir upphaf íslenska efnahags-
hrunsins sem hófst með falli Glitnis í
lok september árið 2008. Um var að
ræða rúmlega 0,4 prósent hlut sem
metinn var á rúmar 1.800 milljónir
króna.
Svar Guðnýjar Helgu er eftirfar-
andi: „Hjá Íslandsbanka gilda strang-
ar reglur um verðbréfaviðskipti
starfsmanna. Regluvarsla hefur eftir-
lit með að reglunum sé framfylgt og
ber starfsmönnum að afla heimildar
regluvörslu áður en þeir eiga verð-
bréfaviðskipti. Sambærilegar
reglur giltu í Glitni banka hf. Í
reglunum kemur meðal ann-
ars fram að áður en starfsmað-
ur á viðskipti sem falla undir
reglurnar skuli hann tilkynna
regluvörslu bankans um fyr-
irhuguð viðskipti og
afla samþykkis fyrir
þeim. Starfsmanni
er óheimilt að eiga
viðskiptin fyrr en
eftir að reglu-
vörður hefur
heimilað þau.
Í reglunum
er einnig kveðið á um að regluvarsla
hafi heimild til að banna viðskipti
starfsmanna með ákveðna fjármála-
gerninga án skýringa eða tímamarka.
Sá starfsmaður sem um er spurt er
hvorki yfirmaður né innherji í Ís-
landsbanka.“
Af þessu svari verður ekki
annað séð en Birkir hafi fengið
leyfi til að selja hlutabréfin frá
regluverði Glitnis á sínum tíma
og að það hafi verið gert með vit-
und forsvarsmanna bank-
ans. Jafnframt bendir
svarið til þess að Ís-
landsbanki telji hluta-
bréfaviðskipti Glitnis
í sjálfu sér ekki vera
óeðlileg eða þarfn-
ast frekari skoð-
unar.
ingi@dv.is
Seldi Birkir Kristinsson,
seldi rúmlega 1.800
milljóna króna hlut í Glitni.
Tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink
varð bráðkvaddur að kvöldi mánu-
dagsins 17. janúar. Bráðabirgðanið-
urstaða krufningar hefur leitt í ljós að
dánarorsökin var heilablóðfall. Sigur-
jón var einn heima með tveimur son-
um sínum þegar hann lést. Fimm ára
gamall sonur hans kom að honum
og hringdi í Neyðarlínuna. Lögregla
og sjúkralið bruguðst skjótt við en líf-
gunartilraunir báru ekki árangur. Ólaf-
ur Arnarson hefur verið tengiliður DV
við fjölskyldu Sigurjóns, hann segir að
fjölskyldan sé skiljanlega í miklu áfalli.
„Þetta er eins og martröð sem fólk bíð-
ur eftir því að vakna upp af.“
Fólk var mjög slegið
Sigurjón var kvaddur í Vídalínskirkju
í Garðabæ á þriðjudagskvöldið. Ólaf-
ur var þar ásamt um þrjúhundruð vin-
um og vandamönnum Sigurjóns. „Ég
held að þessi stund hafi hjálpað þeim
sem þar voru. Þarna voru vinir hans,
hann átti svo mikið af vinum. Þeim
sem hringdu til að votta samúð sína
var sagt frá þessari stund og síðan var
orðið látið berast. Það var mikill sam-
hugur í kirkjunni. Fólk var mjög sleg-
ið og þetta var kyrrlát stund. Falleg en
sár. Það má segja að vinir hans hafi sótt
styrk hver til annars.“
Óformlegur kórsöngur
Ólafur segir einnig að kór á vegum
kirkjunnar sem átti að vera á æfingu
hafi komið og sungið. „Kórinn vildi
gera þetta, koma og syngja. Þannig
að hann flutti tvö lög og svo var þarna
stúlka sem söng einsöng. Þetta voru
ekki hefðbundnir sálmar en alveg
óskaplega fallegt. Ég held að eng-
inn í kórnum hafi tengst Sjonna neitt
sérstaklega en allir sem eru í tónlist
þekkja hann. Þetta voru kollegar hans
í tónlist. Á bænastundina komu líka
margir sem eru þekktir í tónlistarlíf-
inu.“
Minnst með hlýhug
Eins og fram kom í DV á miðvikudag
var Sigurjón afskaplega vinmargur,
hvers manns hugljúfi og elskaður. Þar
minntust vinir hans hans með hlýhug.
Jóhannes Ásbjörnsson, oftast kenndur
við Idolið, sagði að það væri afskap-
lega erfitt að horfa á eftir honum svona
skyndilega. Sigurjón hefði verið mikill
húmoristi, hlýr og góður vinur. Jói var
í Vídalínskirkju auk fjölmargra þekktra
tónlistarmanna, leikara og lista-
manna. „Þeir voru þarna Eyvi, Magni
Ásgeirsson, Jógvan og fleiri,“ segir Ól-
afur og bætir því við að ekki hefðu allir
getað komið sem vildu. „Hansa systir
mín og Jói mágur minn voru til dæm-
is bæði að leika og gátu ekki mætt þótt
þau hefðu helst viljað vera þarna. Það
getur verið þannig þegar fólk er í svona
starfi að það hefur skyldur sem það
losnar ekki undan. Sérstaklega þegar
þetta ber svona brátt að.“
Óvíst hvað verður
um Eurovisionlagið
Sigurjón ætlaði að taka þátt í Eurov-
ision í ár og syngja sjálfur lagið Aftur
heim sem hann samdi við texta eigin-
konu sinnar, Þórunnar Clausen. Enn
hefur ekki verið tekin ákvörðun um
það hvernig eigi að standa að því en
það eru engar reglur sem koma í veg
fyrir að annar höfundur taki að sér að
flytja lagið. „Það er ekki búið að ákveða
hvað á að gera. Þórunn er að skoða
þetta og ráðfæra sig við vini og þá sem
hafa unnið að þessu lagi með þeim,“
segir Ólafur sem reiknar þó með því að
ákvörðun verði tekin fljótlega.
FALLEG EN SÁR
KVEÐJUSTUND
n Sigurjón Brink var kvaddur af vinum og vandamönnum n Dánarorsökin var heila-
blóðfall n „Þetta er eins og martröð sem fólk bíður eftir því að vakna upp af“ n Vinir
hans sóttu styrk hver til annars n Þórunn ráðfærir sig við vini varðandi Eurovisionlagið
„Fólk var mjög slegið
og þetta var kyrrlát
stund. Falleg en sár. Það
má segja að vinir hans hafi
sótt styrk hver til annars.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Bænastund í Vídalínskirkju Um þrjúhundruð vinir Sigurjóns komu saman í Vídalíns-
kirkju til þess að kveðja hann á þriðjudagskvöldið. Kórinn sem átti að vera á æfingu ákvað að
syngja fyrir gestina og var þetta óformlegt en óskaplega fallegt.
Sigurjón Brink Var bráðkvaddur á
mánudagskvöldið. Hans er sárt saknað
en niðurstaða krufningar bendir til þess
að hann hafi fengið heilablóðfall.