Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 18
18 | Fréttir 21.–23. janúar 2010 Helgarblað „Hann skokkar tvo klukkutíma á dag, er allur í lífrænu fæði og les meira en nokkur manneskja sem ég þekki. Hann er alæta á heimspeki, vísindi og mannkynssögu, mál- ar myndir og semur tónlist. Hann er ekki í neyslu og snertir hvorki áfengi eða tóbak,“ segir Þórgunnur Jónsdóttir, móðir Matthíasar Þórar- inssonar, 21 árs manns sem hefur verið leitað síðan 11. janúar. Ekkert hefur spurst til Matthíasar í nokkr- ar vikur og hefur leit enn engan ár- angur borið. Engu nær Lögreglan segist engu nær um hvar hann gæti haldið sig og engar nýjar upplýsingar hafa komið fram aðrar en ábending um að sést hafi til hans í lífrænu deildinni í Fjarðarkaup- um, Hafnarfirði 10. desember og síðar í Bónus á Selfossi. Þá fannst bíll Matthíasar, gamall rússajeppi, brunninn til kaldra kola skammt frá malarnámum á Kjalarnesi í síðustu viku. Matthías var ekki í bílnum og þar var engar um vísbendingar að finna um ferðir hans. Leitarflokkur fór um stórt svæði í kringum nám- urnar, niður í Kollafjörð og upp í Esjuhlíðar, en ekkert bólaði á hon- um þar. Lögreglan telur ekki úti- lokað að hann hafi orðið sér út um annan bíl og erfitt sé að vita hvert þeir eigi að beina leit sinni. Því er fólk beðið að hafa augun opin og tilkynna til lögreglunnar ef þeir telja sig verða ferða hans varir. Sjálfstæður og sérvitur Matthías er mjög fær í að gera upp og lagfæra gamla bíla og hafði út- búið rússajeppann sem húsbíl. Hann ferðaðist mikið á bílnum og bjó í honum á milli þess sem hann bjó heima hjá mömmu sinni á Kjal- arnesinu. „Ég gerði ráð fyrir að hann hefði farið á rússajeppanum, því enginn annar bíll kom til greina. En vegna þess hvernig skrifað var um þegar bíllinn fannst brunninn þá er þetta allt í einu orðið eins og spennutryllir,“ segir Þórgunnur og vill ekki gera mikið úr bílbrunan- um. „Þetta var náttúrulega gamall bíll sem hann áleit að væri ekki þess virði að koma í gegnum skoðun. En honum láðist að láta mig vita hvað stæði til,“ segir Þórgunnur, sem seg- ir það ekki nýtt að Matthías fari ein- samall í ferðir en hann láti þá alltaf vita reglulega af sér. Hún segir hann vera þjóðfélagsgagnrýninn og svo- lítið sérvitran og sem dæmi um það má nefna hann noti hvorki farsíma né greiðslukort og saumi sjálfur á sig fötin. „Hann hugsar öðruvísi og er ekki alveg í norminu. Hann er mjög sjálfstæður, gerir allt á eigin forsendum og hefur mikið sjálfs- traust. Hann hefur reyndar ekki verið í vinnu undanfarið en hann er að nota tímann mjög vel og er allt- af í einhverjum verkefnum. Hann skilur til dæmis ekki afhverju fólk á atvinnuleysisbótum fær þunglyndi af því að hafa allan þennan tíma og vera ekki í vinnu. Hann notar tím- ann í að virkilega rífa í sig þekkingu af þvílíkum fróðleiksþorsta að ég hef aldrei kynnst öðru eins,“ segir móðir hans. Ekki farið sér að voða Þrátt fyrir að hafa ekki heyrt í syni sínum í talslverðan tíma hefur Þórgunnur ekki áhyggjur af því að Matthías hafi farið sér að voða og segir að nú hljóti að fara að koma einhver svör. „Við skulum bara bíða þangað til svörin koma. Við vitum bara þetta sem hefur komið fram í leitinni sem er ekki mikið og því erum við svolítið spurningarmerki, en ég held að það sé best að allir séu bara mjög rólegir. En ég er viss um að hann hefur ekki farið sér að voða.“ Matthíasi hefur verið lýst sem miklum einfara en Þórgunnur móðir hans vill ekki meina að svo sé. Hún útilokar ekki að hann sé með einhverjum vinum sínum og segir hann oft eignast nýja vini eða kunningja á ferðalögum sínum. „Mér finnst mjög líklegt að hann sé í einhverjum félagsskap og þó ég vilji ekki gera þessa félaga hans ábyrga fyrir því að segja til hans, þá er það mér algjörlega hulin ráð- gáta afhverju hann er ekki búinn að láta heyra í sér því það er allt í mjög góðu í okkar sambandi. Mað- ur hallast helst að því að hann hafi skroppið úr landi þarna fyrir jól. En maður veit það ekki, þess vegna er betra að vera ekkert að segja of mikið fyrirfram,“ segir hún og vill koma skilaboðum til Matthíasar: „Ef ég get sent honum skilaboð þá vil ég segja honum að Mallemuck sé kominn og að hann verði að hafa samband strax.“ Þess má geta að Mallemuck er heiti ýmissa stórvaxinna sjófugla, til dæmis fýlinga. Móðir hans út- skýrir ekki nánar hvað hún á við með þessum orðum. Föðurmissir Matthías bjó fyrstu æviár sín með fjölskyldu sinni í Þingholtsstræti í miðbæ Reykjavíkur þar sem fað- ir hans, Þórarinn Sveinbjörnsson, var með prentsmiðju í gamla Gut- enberghúsinu. Faðir hans seldi verksmiðjuna og fjölskyldan flutti á jörðina Birkihlíð á Stokkseyri þar sem Þórarinn stundaði garðyrkju- störf. Matthías gekk í barnaskól- ann á Stokkseyri og var samkvæmt æskuvinkonu líflegur og skemmti- legur strákur. Hann og faðir hans ólu kanínur og dúfur í garðinum hjá sér í Birkihlíð og vörðu mikl- um tíma saman í bílskúrnum í að gera upp og lagfæra gamla bíla. Þórarinn lést árið 2003 úr krabba- meini og það mun hafa verið mikill missir fyrir fjölskylduna og þá sér- staklega Matthías. Þórgunnur seg- ir föðurmissinn vissulega hafa ver- ið erfiðan fyrir Matthías, en bendir á að það séu liðin sjö ár síðan faðir hans lést og hann hafi náð að vinna úr þeim missi. „Hann Matthías er eins og margt ungt fólk að reyna að finna sig og er að reyna að nýta tímann vel til að afla sér þekkingar áður en hann velur sér sína leið. Í okkar samfélagi er krafan svo sterk að vera venjulegur, hvað sem það nú þýðir, að vera ekki öðruvísi og fara ekki sínar eigin leiðir. Þeir sem eru svolítið sérvitrir og fara sínar eigin leiðir eru alltaf litnir dálitlu hornauga, kallaðir einfarar og eitt- hvað því um líkt.“ Hæglátur og feiminn Kunningi Matthíasar, sem hefur þekkt hann síðan hann var barn, lýsir honum sem hæglátum og feimnum strák sem vilji öllum vel. Hann segir hann hafa einangrast eftir dauða föður síns og hafa far- ið sínar eigin leiðir eftir það. „Þetta er ofboðslega góður strákur og hæfileikaríkur á mörgum sviðum. Hann málaði mynd handa mér sem hangir uppi á stofuveggnum heima og hafa margir dáðst að henni og spurt mig út í hana. Það er mjög leiðinlegt að hann sé ekki kom- inn í leitirnar en ég gæti alveg trú- að honum til að vera einn einhvers staðar í kofa uppi í sveit. Ég trúi því að hann finnist heill á húfi.“ Engin skipulögð leit að Matthí- asi er í gangi þessa stundina en eins og áður kom fram vill lögregl- an benda fólki á að vera vakandi og hafa samband ef það telur sig hafa einhverjar upplýsingar um ferðir hans. n Ekkert hefur spurst til Matthíasar Þórarinssonar í margar vikur n Sagður sér- vitur strákur sem fer sínar eigin leiðir n Föðurmissir á unglingsárum mikið áfall Dularfullt hvarf Matthíasar „ Ef ég get sent honum skilaboð þá vil ég segja honum að Mallemuck sé kominn og að hann verði að hafa samband strax. Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Bíllinn brunninn Rússajeppi Matthíasar fannst brunninn skammt frá malarnámum á Kjalarnesi en engar vísbendingar var að finna í honum. Engin skipulögð leit Lögreglan segir erfitt að hefja skipulagða leit að Matthíasi þar sem allt landið yrði leitarsvæði. Talið er að hann hafi síðast sést á Selfossi. Listrænn Mynd sem Matthías málaði og gaf kunningja sínum. Áhugamaður um bíla Matthías hefur mikinn áhuga á gömlum bílum. Hér er hann um fermingu í bíl sem hann gerði upp ásamt föður sínum heitnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.