Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 54
54 | Fólk 21.–23. janúar 2011 Helgarblað H eimildir DV herma að fyrirsætan og leiklist- arneminn Ornella Thelmudóttir og tónlist- armaðurinn Barði Jóhannsson hafi eytt tölu- verðum tíma saman yfir hátíðarnar. Ornella býr um þessar mundir í Kaupmannahöfn þar sem hún leggur stund á trúðafræði, sem er eins konar leik- listarnám, við British Theatre Comedy School. Barði, sem er yfirleitt kallaður Barði í Bang Gang, er einn af þekktustu tónlistarmönnum Íslands. Ekki er hægt að segja að Ornella og Barði séu mjög líkar manngerðir, en oft er nú sagt að andstæður drag- ist hvor að annarri. Það er nokkuð augljóst í tilfelli þeirra tveggja. Ornella kom til Íslands yfir hátíðarnar en hún er nú farinn aftur til Kaupmannahafnar til að halda áfram að nema trúðafræði. Ornella er hvað þekktust fyrir að hafa setið fyrir í erótíska tímaritinu Playboy. Hún hefur þó sagt skil- ið við fyrirsætustörfin í bili og er á fullu í skólanum í Kaupmannahöfn. „Ég læri loftfimleika og leiklist með líkamstjáningu og einn skemmtilegasti hluti námsins eru trúðafræðin, eða Commedia dell‘arte,“ sagði Orn- ella í nýlegu viðtali við DV. Barði hefur sent frá sér fjöldann allan af plötum og hefur slegið í gegn á Íslandi jafnt sem erlendis. Hann hefur einnig samið fjölda laga fyrir aðra listamenn, auglýsingar, leikrit, sjónvarpsþætti og svo mætti lengi telja. Óhætt er að segja að flestir Íslendingar heyri eitt- hvað eftir Barða nokkrum sinnum í viku. Barði er talsvert eldri en Ornella, en hún er fædd árið 1989 en Barði árið 1975. Það er því fjórtán ára aldursmunur á skötuhjú- unum. Saman yfir hátíðarnar Ornella Thelmudóttir og Barði í Bang Gang: Ástfangin? Ornella eyddi miklum tíma með Barða yfir jólin og áramótin. Lærir frönsku í frístundum „Fór í fyrsta frönskutímann á þessu misseri í dag,“ skrifaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, á Facebook- síðuna sína á þriðjudag. Ingibjörg Sólrún hefur lengi verið stór þátttakandi í íslensku stjórnmálalífi en hún dró sig í hlé stuttu eftir hrun eftir að hafa veikst alvarlega. „Tók sem sagt upp þráðinn aftur þar sem ég sleppti honum í haust þegar hugur minn og orka var skyndilega bundin í öðru.“ Ingibjörg virðist skemmta sér vel, en hún segir að það sé „gaman að dusta rykið af frönskunni í góðra kvenna hópi“. Sáttur með engin stig Tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst segist ekki sjá eftir þátttöku sinni í Eurovision, en hann segist þó vera feginn að hafa ekki unnið. „Sumir hafa tekið því mjög illa að hafa farið illa út úr Eurovision. Fyrir mig skipti það engu máli. Ég var rosalega feginn að vinna ekki. Mig langaði alls ekki til þess því mig langaði til að sinna mínum ferli,“ segir hann í viðtali í nýjasta tímariti Monitors. Hann segist viss um að ef hann hefði náð árangri í keppninni þá hefði hann farið allt aðrar leiðir með tónlistarferilinn sinn. „Þá hefði ég farið að syngja meira lög eftir aðra og í einhverju samhengi sem ég réði takmarkað við.“ Ó mar Ragnarsson fjöl- miðla- og kvikmynda- gerðarmaður er mikill áhugamaður í bíla. Hann á marga bíla en flestir þeirra þykja frekar óvenjulegir. Bíllinn sem hann notaði þegar hann ferðaðist ásamt Andra Frey Viðarssyni út- varpsmanni um landið í sumar er þó ekki bara lítill og óvenjulegur – heldur er hann einnig stútfullur af alls konar dóti. Í bílnum er að finna ótrúlegustu hluti, en á með- fylgjandi myndum má sjá að það er borin von að koma nokkrum manni í aftursæti bílsins vegna dóts. Föt, bensín og kjúklingabit- ar voru meðal þess sem var í bíln- um þegar ljósmyndari DV hitti þá félaga. Kósí bíll „Það fór eftir því hvort kallinn hafði gleymt epli undir sætinu eða ekki. Annars var það mjög ljúft. Allar lífsins nauðsynjar eru í þessum bíl, eins og kannski fólk sér. Þessi bíll reyndist okkur rosalega vel,“ segir Andri Freyr aðspurður um hvernig hafi ver- ið að ferðast í bílnum. Andri seg- ir að í bílnum megi finna hluta af bókhaldinu hans Ómars, um það bil tíu ljósmynda– og kvik- myndatökuvélar, að það megi alltaf stóla á að það sé til kókó- mjólk í bílnum, og að þar sé líka alltaf Cheerios. „Þetta var mjög kósí, yndislegur bíll,“ segir Andri. „Það er ótrúlegt hvað kemst mik- ið af dóti fyrir í honum.“ Á flandri um landið „Bruna úr beinum, beina leið,“ sungu þeir félagar fyrir hverja útsendingu á útvarpspistlun- um sem þeir tóku saman þeg- ar þeir ferðuðust um á bílnum. Pistlarnir voru sendir út und- ir nafninu „Á flandri, - Ómar og Andri“. Þættirnir voru send- ir út alla föstudaga í sumar, en um klukkutímaþátt var að ræða þar sem þeir félagar tóku púls- inn á landanum. Ómar Ragnars- son skrifaði um þáttinn á vefsíðu sína áður en útsendingar hófust og sagði þá: „Á milli okkar Andra eru tvær kynslóðir svo að það er líkt og afinn og strákurinn hafi náð saman í stuðinu.“ Skemmst er frá því að segja að pistlarn- ir slógu í gegn. Draslið í bílnum hafði engin áhrif á það. n Andri og Ómar ferðuðust um landið á bíl sem var fullur af drasli n Bensínbrús- ar, púðar og kjúkl- ingabitar í farangrin- um n Skemmtu sér konunglega í ferðinni „Mjög kósí og yndislegur bíll“ Andri og Ómar: Kósí Andri Freyr rétt komst inn í bílinn. Félagar Þröngt mega sáttir sitja. Fullt! Fullur bens- ínbrúsi og fatnaður í farteskinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.