Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 17
Fréttir | 17Helgarblað 21.–23. janúar 2010 25% afsláttur af hvítum háglans innréttingum Sérhæfum okkur í innréttingum fyrir heimili á lágmarksverði Vafningsfléttan losaði Milestone úr snörunni Eignarhaldsfélagið Milestone var í ábyrgðum fyrir 14,4 milljarða króna láni eignarhaldsfélagsins Þáttar Inter- national hjá bandaríska fjárfesting- arbankanum Morgan Stanley. Þetta kemur fram í stefnu þrotabús Mile- stone gegn þrotabúi fjárfestingarfé- lagsins Máttar sem DV hefur undir höndum. Stefnan var þingfest í síð- ustu viku. Þáttur International var eignar- haldsfélag í eigu Milestone og bræðranna Einars og Benedikts Sveinssona sem stofnað var utan um 7 prósenta hlutabréfaeign þeirra í Glitni árið 2007. Þáttur var fjármagnaður af Morgan Stanley. Gagnkvæmir hagsmunir Þegar Morgan Stanley gjaldfelldi lán Þáttar í lok janúar 2008, vegna tiltek- inna skilyrða um að hlutabréfaverð í Glitni mætti ekki fara niður fyrir ákveðna upphæð, stóð Glitnir frammi fyrir því að bandaríski bankinn gæti sótt að Milestone, einum stærsta hlut- hafa bankans. Slíkt hefði án efa fellt Milestone sem hafði verið lausafjár- þurfi um nokkurt skeið þegar þetta var og var reyndar orðið ógjaldfært um þetta leyti – átti ekki eignir til að mæta skuldum sínum. Milestone hefði því getað fallið í ársbyrjun 2008 þar sem félagið átti ekki rúma fjórtán milljarða. Ef lán Þáttar hefði ekki verið greitt hefði Morgan Stanley því setið uppi með hlutabréf í Glitni sem nánast ógerlegt hefði verið að selja. Morgan Stanley hefði því þurft að selja bréfin á brunaútsölu og aldrei fengið fé upp í skuldina. Jafnframt hefði slíkt get- að orsakað lækkandi hlutabréfaverð í Glitni sem aftur hefði komið sér illa fyrir aðra hluthafa bankans. Þess vegna var Vafningsfléttan búin til með þátttöku Glitnis, Svart- háfs og Sjóvár og Glitnir lánaði Þætti óbeint fyrir endurfjármögnun bréf- anna hjá Morgan Stanley. Þannig gat Þáttur International haldið bréfum sínum í Glitni og eigendur félagsins, og í reynd Milestone sem slíkt, voru losaðir úr snörunni. Þetta létti svo aftur á kerfisáhættunni sem steðjaði að íslenska fjármálakerfinu vegna þessa máls. Það var þessi gerningur sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók þátt í í febrú- arbyrjun 2008 þegar hann veðsetti hlutabréf tveggja félaga í eigu skyld- menna sinna fyrir láninu frá Glitni til Vafnings. Heildarfjármagnsþörf Milestone 18,2 milljarðar Þessi ábyrgð vegna Þáttar bættist við milljarða króna fjármagnsþörf Milestone, samkvæmt stefnunni. „Heildarfjármagnsþörf félagsins á árinu 2008 voru rúmir 18,2 milljarð- ar króna en auk þess var Mile stone ehf. í ábyrgð fyrir 14,4 milljarða króna láni Þáttar International hjá Morgan Stanley. Lánið var gjaldfellt hinn 28. janúar 2008.“ Milestone var því, þegar þarna var komið sögu, ógjaldfært eða tæknilega gjaldþrota. Félagið gat ekki fjármagnað sig með lánum frá öðrum fjármálafyrirtækjum en Glitni þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að leita eftir fjármögnun. Ástæða þess að Glitnir lánaði félaginu og tengdum aðilum var hlutabréfaeign félagsins í bankanum og sú stað- reynd að vegna útistandandi lána til félaganna hafði bankinn einfald- lega ekki efni á því að láta Milestone fara á hliðina. Þess vegna tók Glitn- ir þátt í því að búa til Vafningsflétt- una og einnig í því að endurfjár- magna félagið með víxlaútgáfu sem einkabankaþjónusta Glitnis tók þátt í að selja til viðskiptavina bankans. Áhættunni vegna lána félagsins var því velt alfarið yfir á Glitni. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is n Vafningsfléttan var tilkomin vegna ábyrgðar Milestone á láninu n Stefna þrotabús Milestone varpar ljósi á Vafningsmál- ið n Milestone hefði getað farið á hliðina strax í ársbyrjun 2008 n Vafningsfléttan bjargaði Milestone og Glitni tímabundið„Lánið var gjaldfellt hinn 28. janúar 2008. Í ábyrgðum Ef Glitnir hefði ekki hlaupið undir bagga með Þætti International, sem gert var með Vafningsfléttunni, hefði Morgan Stanley getað sótt að Milestone. Karl Wernersson var aðaleigandi Milestone.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.