Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 27
Nærmynd | 27Helgarblað 21.–23. janúar 2010 NL-0412-61-03_2.jpg Sjómaðurinn Björn Jörundur eldar ofan í áhöfnina á rækjutogara sem gerir út frá Siglufirði. DV1101189916 Sódóma Björn Jörundur sló í gegn í hlutverki sínu í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík. E12904.jpg Idol Stjörnuleit Björn Jörundur var dómari í raunveruleikaþáttunum Idol Stjörnuleit, ásamt þeim Jóni Ólafssyni og Selmu Björnsdóttur. Björn Jörundur Friðbjörnsson í nærmynd: Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Poppstjarnan sem fór á sjóinn Björn Jörundur hefur frá upphafi ver-ið einn liðsmanna hljómsveitarinn-ar Nýdanskrar, en hann hefur spilað á bassa og sungið. Hann stofnaði hljóm- sveit ásamt félaga sínum úr Menntaskólan- um við Hamrahlíð, sem seinna átti eftir að verða að Nýdanskri. Á vefsíðu hljómsveit- arinnar segir að vinátta sé eins og rauður þráður í gegnum sögu hljómsveitarinn- ar, en nýverið virðist það hafa breyst, en Björn Jörundur sagði í lok síðasta árs sambandið vera gott því þeir eyddu orðið svo litlum tíma saman og væru aldrei saman nema þeir þyrftu. Þetta væri ekki eins og áður fyrr þeg- ar hljómsveitin var saman allan daginn, alla vikuna. Þá fengu þeir nóg af hver öðrum. Af bassa í söng Fyrst lék hann einung- is á bassa en hlutverk hans sem söngvara óx jafnt og þétt og tók hann endanlega yfir það hlut- verk þegar Daníel Ágúst Haraldsson tók sér tíu ára hlé frá hljómsveit- inni, árið 1997. Hann hef- ur einnig sent frá sér sóló- plötu, en hún hét einfaldlega BJF, sem er fanga- mark Björns. Tónlist- arferill Björns hefur að mestu leyti ver- ið jákvæð- ur, en rokk- ari síðustu aldar, Bubbi Morth ens, var fyrirmynd Björns í æsku. Hefur hann meira að segja látið hafa eftir sér að hugsanlega hafi Bubbi haft svo sterk áhrif á hann, að hann hafi leiðst út í fíkniefni, eins og Bubbi. „Ég hefði kannski betur hugsað málið. Þegar ég var ungur var Bubbi Morth ens mín fyrirmynd. Þetta er kannski afleiðing þess,“ sagði hann í sam- tali við Fréttablaðið árið 2009, eftir að upp komst um fíkniefnaviðskipti hans. Skapandi Samstarfsmaður hans í hljómsveit- inni Nýdanskri, Jón Ólafsson, segist að- spurður um hvernig mann Björn Jörundur hafi að geyma að hann sé mikill hugsuð- ur og magnaður listamaður. „Sennilega sá klárasti sem ég hef unnið með, af mörgum klárum. Bara ótrúlega gáfaður og frjór ná- ungi,“ segir Jón og heldur áfram: „Hann er mikill hugsuður og helvíti klár í höfðinu. Mér finnst hann vera einn besti laga- og textahöfundurinn síðan hann kom fram. Ég er mikill aðdáandi Björns Jörundar, þó að ég sé með honum í hljómsveit. Hann er mjög skapandi og gefur mikið af sér.“ Jóni finnst það sýna hversu skapandi og klár Björn Jörundur sé að hann hafi samið mörg af sínum bestu lögum fyrir tvítugt. „Svo gengur hann bara algjörlega blautur á bak við eyrun og fer að leika í Sódómu Reykja- vík og rúllar því upp. Leikur svo í Englum alheimsins og fær Grímuverðlaunin. Það segir nú bara ansi margt um hversu öflugur listamaður hann er,“ segir Jón. Á hvíta tjaldinu Kvikmyndin Sódóma Reykjavík kom út árið 1992 og var það fyrsta kvikmynd Óskars Jón- assonar. Björn Jörundur fór með aðalhlutverk í þeirri mynd. Hann vakti mikla athygli og hef- ur myndin verið valin í könnunum besta ís- lenska kvikmyndin. Björn lék einnig í annarri íslenskri kvikmynd, Englum alheimsins, sem oft hefur verið nefnd sem besta íslenska kvik- myndin. Þar þótti hann sýna stórleik, en hann fór með hlutverk Viktors, vistmanns á Kleppi. Leikferill Björns sýnir svo ekki um verður villst að hann er hæfileikaríkur, en hann hefur hlot- ið lof fyrir mörg hlutverk í íslenskum kvik- myndum, og meðal annars fengið Edduverð- laun. Hann er líka einn af fáum Íslendingum sem stjórnað hafa skemmtispjallþætti í sjón- varpi, en það gerði hann í þættinum Birni og félögum, sem sýndur var á upphafsárum Skjás Eins. Hljómsveitin Buff var mynduð í kring- um spjallþáttinn, en hún varð síðar þekkt dansleikjahljómsveit sem margir Íslending- ar þekkja. Þá hefur hann starfað sem dóm- ari í raunveruleikasjónvarpsþáttunum Idol Stjörnuleit og Bandinu hans Bubba, þar sem hann starfaði við hlið átrúnaðargoðs síns. Verslaði kókaín Björn Jörundur flæktist inn í fíkniefnamál sem tekið var fyrir í dómskerfinu árið 2009. Þá var símtal hans við fíkniefnasalann Þorvarð Dav- íð Ólafsson, þar sem Björn ræddi við hann um fíkniefnakaup, notað sem sönnunargagn í málinu. Fyrst um sinn neitaði Björn að hann hefði verið að kaupa fíkniefni af Þorvarði Dav- íð, en síðar viðurkenndi hann að hafa keypt bæði kókaín og amfetamín. „Það er augljóst um hvað verið er að ræða þarna, það skilja allir hvað þarna er sagt,“ sagði Björn í samtali við fréttastofu Stöðvar 2. Um tíma ríkti óvissa um framtíð hans sem dómara í raunveruleika- sjónvarpsþáttunum Idol Stjörnuleit, en mál- ið komst upp þegar aðeins einn þáttur hafði verið sýndur. Þór Freysson, framleiðandi Idol Stjörnuleitar, sagði í samtali við DV þegar at- vikið komst upp, að framtíð Björns í þáttunum yrði tekin til skoðunar, og að forsvarsmenn þáttanna þyrftu að ræða þetta sín á milli. Að lokum fór það þó svo að hann hélt dómara- sætinu út þáttaröðina. Á sama tíma og Björn Jörundur átti í þess- um fíkniefnaviðskiptum við Þorvarð Davíð var hann dómari í raunveruleikasjónvarpsþátt- unum Bandinu hans Bubba. Klámritstjórinn Um miðjan síðasta áratug tók Björn Jörund- ur við starfi ritstjóra á íslenska klámblaðinu Bleiku & bláu. Nafninu var breytt úr Bleiku & bláu yfir í B&B á sama tíma og Björn hóf þar störf og boðaði hann grundvallarbreyt- ingar á ritstjórnarstefnu blaðsins. Hann gerði tilraun til að breyta tímaritinu úr klámblaði yfir í karlatímarit. Að vissu leyti tókst það hjá honum, efnistök blaðsins breyttust og hurfu grófir myndaþættir úr blaðinu. Blað- ið var engu að síður erótískt tímarit þar sem fáklæddir kvenmenn voru í fyrirrúmi. Björn mætti illa í vinnuna á meðan hann ritstýrði blaðinu og í byrjun árs 2005 hrökklaðist hann loks úr starfi. Drakk bara borðvín Mikil læti urðu í kjölfar ásakana nemenda og skólastjórnenda í Menntaskólanum á Ak- ureyri um að Björn hefði mætt drukkinn, og jafnvel undir áhrifum fíkniefna á mennta- skólaball í skólanum, þar sem hann skemmti með hljómsveit sinni. Jón Ólafsson, liðsmað- ur Nýdanskrar, tók upp hanskann fyrir vin sinn og neitaði staðfastlega að hann hefði neytt nokkurs annars en borðvíns áður en hann kom fram á ballinu. Jón viðurkenndi að hljómsveitin hafi ekki staðið sig sem skyldi, en sagði að ekki væri við Björn að sakast. Hann sagði Björn Jörund hafa farið á kostum á dansleiknum og hann hafi átt mikið lof skil- ið fyrir frammistöðu sína. „Björn líður þarna fyrir að vera þekktastur okkar hjá krökkum á framhaldsskólaaldri en er ekki sá einstakl- ingur sem missteig sig þetta kvöld í samskipt- um við Bakkus,“ sagði Jón í yfirlýsingu sem hann sendi DV í kjölfar málsins. Eftir að mál- ið kom upp fór Björn Jörundur á sjó og hefur verið í áhöfn rækjutogara og séð um að elda ofan í mannskapinn úti á ballarhafi. Sjómaðurinn Í desember sagði DV frá því að Björn Jörund- ur hefði flust búferlum af höfuðborgarsvæð- inu og til Siglufjarðar. Þar hefur hann stund- að sjóinn á rækjutogara en sjálfur segist hann hafa skellt sér í trilluútgerð í fyrrasumar og í framhaldi af því hafi hann farið á sjóinn hjá fé- laga sínum á Siglufirði. Þessir búferlaflutning- ar Björns voru þáttur í breytingum sem hann gerði á eigin lífi en hann yfirgaf þann soll sem þekkist í tónlistarbransanum þegar hann yfirgaf borgina. Jón Ólafsson sagði í kjölfar Ak- ureyrarmálsins að Björn hefði lagt mikið á sig til að breyta lífsstíl sínum og það hefði borið góðan árangur. Björn er mikill áhugamaður um siglingar, og segja vinir hans sem DV ræddi við að hann kunni vel við sig á sjónum. Hann hefur lagt stund á róður og á meðal annars skútu með vini sínum, Valgeiri Magnússyni. Björn hefur unnið siglingamót sem haldin hafa verið hér á landi. Á heima á sjónum „Þeir sem að fíla sjóinn, þeir fíla sjóinn alveg alla leið,“ segir Valgeir aðspurður um hvort Björn eigi heima á sjónum. „Hann hefur ver- ið í siglingum frá því að hann var unglingur. Hann er mikið í siglingum og við erum búnir að sigla saman í þrjú ár. Að keppa.“ „Hann er ótrúlega fljótur að tileinka sér nýtt svið og nýtt umhverfi. Hann er líka með orðheppnustu mönnum sem ég hef kynnst,“ segir Valgeir um vin sinn Björn. Hann segir að Björn sé síðasti maðurinn sem maður vill abb- ast upp á með orðum, og að Björn geti snú- ið árásinni við með einni setningu. „Hann er bara með orðheppnari mönnum sem ég hef kynnst,“ segir Valgeir og bætir við: „Ef hann hefði fæðst þrjátíu árum fyrr, hefði hann orðið forsætisráðherra. Stjórnmálamaður af gamla skólanum, hann er þessi týpa.“ Frá níu til fimm Björn Jörundur hefur ekki bara látið til sín taka á listasviðinu og í menningargeiranum, en hann vann um tíma sem hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofunni Pipar, und- ir stjórn Valgeirs Magnússonar, sem er betur þekktur sem Valli Sport, og Sigurðar Helga Hlöðverssonar, sem er betur þekktur sem Siggi Hlö. Valgeir segir að það sé mjög gaman að vinna með Birni, að ef hann sé í góðu skapi, séu allir í góðu skapi. „Hann smitar bara út frá sér,“ segir hann. Hann var einnig um tíma í föstu sam- bandi við Kolfinnu Baldvinsdóttur, dóttur Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra. Með henni eignaðist hann eina dóttur árið 1994. Dóttir Björns er búsett hjá móður sinni. „Svo labbar hann bara algjörlega blautur á bak við eyrun og fer að leika í Sódómu Reykjavík og rúllar því upp. „Síðar viðurkenndi hann að hafa keypt bæði kókaín og amfetamín. Idol Stjörnuleit Björn Jörundur var dómari í raunveruleikaþáttunum Idol Stjörnuleit, ásamt þeim Jóni Ólafssyni og Selmu Björnsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.