Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 34
H erbert Mullin fæddist í apríl 1947 í Salinas í Kali- forníu í Bandaríkjunum, en ólst upp í Santa Cruz. Faðir hans, uppgjafahermaður úr síðari heimsstyrjöldinni, var strangur en ku ekki hafa verið of- stopamaður. Faðir Herberts sagði síðar að uppeldið hefði litast mjög af sterkri trú. Hvað sem því líður var Herbert nokkuð eðlilegt barn og naut þess að hlýða á hetjusagnir föður síns úr stríðinu og lærði ung- ur að árum að meðhöndla skot- vopn. Herbert var ágætlega vinsæll í skóla, átti fjölda góðra vina og var talinn, af skólafélögum sínum, lík- legastur til að gera það gott í lífinu. Geðsjúkrahús og guðfræði En Herbert varð fyrir reiðarslagi rétt eftir að hafa lokið framhalds- skólanámi þegar einn besti vinur hans lést í bílslysi. Herbert var nið- urbrotinn og kom sér upp helgi- dómi í svefnherbergi sínu hinum látna vini til heiðurs. Til að bæta gráu ofan á svart vaknaði hjá hon- um sá ótti að hann væri samkyn- hneigður, jafnvel þótt hann hefði verið í langtímasambandi við stúlku á þeim tíma. Árið 1969, þá 21 árs, samþykkti hann að vera lagður inn á geð- sjúkrahús og næstu árin var hann vistmaður á hinum ýmsu stofn- unum sem hann yfirgaf eftir mis- stuttan tíma. Á þessum tíma reyndi Herbert við guðfræðina en án ár- angurs. Lítil áhöld voru um að hann gekk ekki heill til skógar andlega þegar hann missti íbúð sem hann bjó í eftir að hann hafði valdið því- líkum skarkala að fólki stóð ekki á sama og öskrað á manneskjur sem hvergi var að sjá. Víetnamstríðið var jarðskjálftavörn Árið 1972 flutti Herbert Mullin heim til foreldra sinna í Santa Cruz og var þegar þar var komið sögu farinn að heyra raddir sem sögðu honum að jarðskjálfti væri yfirvof- andi og einungis morð dygðu til að bjarga Kaliforníu frá eyðileggingu. Afmælisdagur hans var 18. apríl og jarðskjálftinn mikli í San Fran cisco reið yfir þann dag 1906 og taldi Mullin það afar þýðingarmikið. Einnig trúði Herbert því að stríðið í Víetnam hefði haft í för með dauða nægilega margra bandarískra hermanna til að koma í veg fyrir jarðskjálfta, sem eins konar blóðfórn til náttúrunnar. En sá hængur var á að þegar leið að árslokum 1972 var stríðið kom- ið á það stig að Herbert ályktaði að hann sjálfur yrði að hefja dráp heima fyrir til að halda jarðskjálft- anum í skefjum. Morðæðið hefst Herbert Mullin lét ekki sitja við orð- in tóm og þann 13. október 1972 barði hann heimilislausan mann til bana með hafnaboltakylfu. Fórn- arlambið, 55 ára karlmaður, hafði verið að húkka sér far og sló Her- bert hann eftir að hafa narrað hann til að líta aðeins á vél bílsins. Síðar fullyrti Herbert að fórnar- lambið hefði verið enginn annar en Jónas í hvalnum og hann hefði sent Herbert hugskeyti: „Gefðu mér far og fleygðu mér fyrir borð. Dreptu mig öðrum til björgunar.“ Lík mannsins fannst daginn eftir morðið. Nú var Herbert Mullin kominn á bragðið og næsta fórnarlamb hans var 24 ára kona, Mary Guilfoyle, sem einnig hafði reynt að húkka sér far. Þann 24. október stakk Herbert Mary til bana í bílnum og fleygði líki hennar í skóglendi við veginn og spretti upp á henni kviðnum. Hann hengdi síðan innyfli hennar á trjágreinar svo hann gæti kann- að hvort einhverja „mengun“ væri að finna í þeim. Lík hennar var svo illa farið þegar það fannst nokkrum mánuðum síðar að talið var að hún væri fórnarlamb annars raðmorð- ingja sem lét að sér kveða á þessum tíma, Edmunds Kemper. Herbert reynir við herinn Um viku síðar, 2. nóvember, sam- einaði Herbert Mullin morð og skriftir þegar hann ákvað að játa syndir sínar fyrir presti að nafni Henri Tomei. Við skriftirnar fékk Herbert þá flugu í höfuðið að Tom- ei vildi sjálfviljugur fórna sér til að forða Kaliforníu frá jarðskjálfta. Herbert viðhafði engar vífi- lengjur og barði, sparkaði í og stakk prestinn sem blæddi út í skrifta- klefanum. Framburður vitnis sem sá þegar Herbert lagði á flótta varð lögreglunni ekki til hjálpar. Nú ákvað Herbert Mullin að ganga í herinn og komst, merki- legt nokk, í gegnum öll próf þar að lútandi, en var hafnað þegar synd- ir fortíðar – minni háttar afbrot og hegðunarvandamál – komu í dags- ljósið. Herbert velktist ekki í vafa um orsök höfnunarinnar – um alls- herjarsamsæri var að ræða af hálfu valdamikilla hippasamtaka. Skellti skuldinni á fíkniefni Í janúar 1973 hafði Herbert látið af fíkniefnanotkun og dregið þá álykt- un að hún væri orsök alls sem mið- ur hefði farið í lífi hans. Til að létta sér þá vinnu sem hann stóð frammi fyrir keypti hann sér nokkrar byss- ur og sýndist tími til kominn að binda enda á jarðvist Jims Gian- era, skólabróður sem hafði útveg- að honum maríjúana í fyrsta sinn þegar þeir sátu á skólabekk saman. Þegar Herbert kom á heimili Jims 25. janúar 1973 komst hann að því sér til mikillar hrellingar að Jim var fluttur, en nýr íbúi, Kathy Francis, gaf honum upp nýtt heim- ilisfang Jims. Herbert beið ekki boðanna og fór þangað, skaut bæði Jim og eiginkonu hans til bana og stakk þau ítrekað. Síðan lá leið hans heim til Kathy Francis þar sem hann skaut hana til bana og tvo syni hennar einnig, 9 og 4 ára. Eiginmaður Kathy var ekki heima þegar ósköpin dundu yfir, en þar sem hann var þekktur fíkniefnasali dró lögreglan þá ályktun að morð- in á Kathy og drengjunum tengdust fíkniefnaviðskiptum. Unglingar í útilegu Um mánuði síðar, snemma í febrú- ar, var Herbert Mullin að þvælast um í Henry Cowell-útivistargarð- inum í Santa Cruz og sá þá til fjög- urra unglingspilta sem voru í úti- legu. Herbert gekk að þeim, kynnti sig sem skógarvörð og fyrirskipaði þeim að hafa sig á brott hið snar- asta því þeir „menguðu“ skóginn. Þegar þeir neituðu að verða við fyr- irmælunum sagðist hann koma aft- ur daginn eftir sem hann og gerði. Hann skaut þá alla til bana og lét líkin liggja þar sem þau voru. Þau fundust ekki fyrr en um viku síðar. Herbert framdi sitt síðasta morð 13. febrúar, þremur dögum eft- ir morðin á drengjunum. Þar sem Herbert ók stefnulaust um rak hann augun í aldraðan karlmann af spænskum uppruna sem var í mestu makindum að snyrta garð- inn sinn. Herbert tók U-beygju, stöðvaði bílinn, lagði riffilhlaupið á vélarhlífina til stuðnings og miðaði vandlega. Eftir að hafa skotið manninn til bana settist hann aftur undir stýri og ók fumlaust á brott. Fjöldi vitna var á staðnum og skömmu síðar var Herbert Mullin í vörslu lögregl- unnar. Úrskurðaður sakhæfur Herbert Mullin reyndi að sannfæra kviðdómara um að hann hefði far- ið að fyrirmælum radda sem hann heyrði og að í raun væri það hon- um að þakka að engir jarðskjálftar hefðu riðið yfir nýlega. Hann hafði ekki erindi sem erfiði og var ákærð- ur fyrir tíu morð og í ágúst 1973 var kveðinn upp dómur. Hann var sakfelldur fyrir morð að yfirlögðu ráði í tilfellum Jims Gianera og Kat- hy Francis, og fyrir annarrar gráðu morð í átta tilfellum. Hann getur ekki sótt um reynslulausn fyrr en árið 2025, en þá verður hann orðinn sjötíu og átta ára. n Myrti þrettán manns til að afstýra jarðskjálfta n Sagðist hafa farið að fyrirmælum radda sem hann heyrði FÓRNAÐI FÓLKI Í FORVARNARSKYNI 34 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 21.–23. janúar 2011 Helgarblað „Herbert velktist ekki í vafa um or- sök höfnunarinnar – um allsherjarsamsæri var að ræða af hálfu valdamik- illa hippasamtaka. Herbert Mullin eftir handtök- una Mullin gerði lítið til að forðast handtöku eftir síðasta morðið. Í höndum lögreglunnar Herbert Mullin sagðist hafa forðað Kaliforníu frá jarðskjálfta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.