Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 21.–23. janúar 2010 Helgarblað Fjárfestirinn Guðmundur Birgis- son, sem yfirleitt er kenndur við bæinn Núpa í Ölfusi, var úrskurð- aður gjaldþrota fyrir Héraðsdómi Suðurlands þann 29. desember síð- astliðinn. Guðmundur hefur verið umsvifamikill fjárfestir á Íslandi á liðnum árum. Hann er meðal annars einn af hluthöfum jarðafélagsins Lífsvals, stærsta jarðaeiganda landsins, sem á um 50 bújarðir víða um land. Auk þess átti hann um tíma hlut í MP Banka, verðbréfafyrirtækinu Virð- ingu, FL Group og fleiri félögum. Guðmundur er samt líklega þekkt- astur fyrir að vera í forsvari fyrir minningarsjóð frænku sinnar Sonju Zorrilla. Þurfti að greiða skuld við Landsbankann Tveimur vikum áður en Guðmund- ur var úrskurðaður gjaldþrota, þann 16. desember 2008, var honum gert að greiða Landsbanka Íslands 76 milljónir króna. Dómur þess efnis féll í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ástæðan var sú að innistæðulaus- ar færslur upp á rúmar 76 milljón- ir höfðu verið færðar inn á reikning Guðmundar. Reikningi hans í bank- anum var lokað í lok janúar í fyrra vegna þessa. Guðmundur hafði ver- ið í verðbréfaviðskiptum við bank- ann. Ætla má því að Landsbankinn hafi verið sá aðili sem knúði Guð- mund í þrot þegar ljóst var að hann gæti ekki greitt umrædda upphæð. Þessi málaferli gegn Guðmundi bættust við stefnu Landsbankans á hendur honum vegna hlutabréfa- kaupa fyrir hundruð milljóna króna sem tekin var fyrir í dómi í fyrra. Það mál snérist um 34 afleiðusamninga sem Guðmundur gerði við Lands- bankann. Landsbankinn fór fram á að leysa til sín hlutabréf í eigu fjár- festisins, til að mynda í Íslenskri erfðagreiningu og Bank Uni ted Fin- ancial Corporation. Auk þessara deilna við fjármála- fyrirtæki hefur verið greint frá því í fjölmiðlum eftir hrun að Guðmund- ur hafi fært fasteignir af eigin nafni og yfir á konu sína. Meðal þessara eigna eru rúmlega 500 fermetra einbýlis- hús á Hofsvallagötu 1. Guðmundur hefur því staðið í ströngu frá banka- hruninu haustið 2008. Ekki náðist í Guðmund við vinnslu fréttarinnar. Lífsval skuldar 3,3 milljarða Hugsanlegt er að Landsbankinn, og jafnvel aðrir kröfuhafar Guðmundar ef einhverjir eru, muni eignast tæp- lega 10,5 prósenta hlut fjárfestisins í jarðafélaginu Lífsvali eftir að skipta- stjóri búsins hefur gengið frá því. Samkvæmt ársreikningi Lífsvals fyrir árið 2009 á Guðmundur tæpar 100 hundrað milljónir af nærri 1.000 milljóna hlutafé jarðafélagsins. Heild- arskuldir félagsins nema nærri 3,3 milljörðum króna og eru að langmestu leyti við Landsbankann. Eigið fé fé- lagsins nemur nærri tveimur milljörð- um króna. Fastafjármunir félagsins nema rúmum fimm milljörðum króna en þar af eru fasteignir og jarðir félags- ins metnar á rúma 4,5 milljarða króna. Staða félagsins er ásættanleg sam- kvæmt ársreikningnum en spurning- in er sú hvort eignir félagsins séu rétt metnar, hvort þær séu í reynd fimm milljarða króna virði. Landsbankinn er í dag stærsti hluthafi Lífsvals með 19 prósenta eignarhluta og gæti bætt við sig um- ræddum tíu prósentum. Fjárfesting- arfélagið Horn heldur utan um hlut Landsbankans í félaginu. Aðrir eig- endur félagsins eru Ólafur Ívar Wern- ersson, Ingvar Jónadab Karlsson auk 10 annarra hluthafa sem ekki eru nafngreindir í opinberum upplýsing- um um félagið. Guðmundur á núpum er Gjaldþrota Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is BRIDS SKÓLINN - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Byrjendur ... 24. janúar ... átta mánudagar frá 20-23 Framhald ... 26. janúar ... átta miðvikudagar frá 20-23 - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - • Fyrir hvern? Flestir kunna á spilin, en meiri þekkingu þarf ekki til að vera gjaldgengur á byrjendanámskeiði. Framhaldið hentar breiðum hópi, bæði þeim sem hafa nýlokið byrjenda- námskeiði og eins reyndari spilurum sem vilja læra Standard- kerfið vel. • Þú getur mætt stök/stakur og æskilegur aldur er 18-90 ára. • Námskeið skólans fara fram í Síðumúla 37 í Reykjavík. • Nánari upplýsingar á Netinu undir bridge.is/fræðsla. - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ n Guðmundur Birgisson á Núpum var úrskurðaður gjaldþrota í lok síðasta árs n Var um tíma umsvifamikill fjárfestir n Guðmundur á rúmlega 10 prósenta hlut í stærsta jarðafélagi landsins n Landsbankinn gæti leyst til sín hlut Guðmundar í Lífsvali Keyrður í þrot Guðmundur á Núpum var keyrður í þrot í lok desember. Ætla má að Landsbankinn sé stærsti kröfuhafi hans. Hofsvallagata 1 Guðmundur A. Birgisson á Núpum færði þetta hús yfir á sambýliskonu sína nokkrum dögum eftir banka- hrunið. Það var um tíma í eigu Björgólfs Guðmundssonar og ólst Björgólfur Thor þar upp. Guðmundur Birgisson á Núpum hef- ur verið afar stórtækur í fastaeigna- og jarðaviðskiptum hér á landi. Með- al þeirra eigna sem Guðmundur á hlut í er Hótel Borg í Pósthússtræti. Hótelið er ein sögufrægasta bygging- in í Reykjavík. Guðmundur á hlut í húsinu í gegnum eignarhaldsfélag- ið Hótel Borg ehf. Eigendur félagsins leigja húsið svo til rekstraraðila sem sér um rekstur hótelsins. Í ársreikningi Hótels Borgar ehf. fyrir árið 2008 – reikningur ársins 2009 liggur ekki fyrir – kemur fram að nærri 1.800 milljóna króna skuldir hvíli á félaginu. Fasteignamat húss- ins er 530 milljónir króna en bókfært verð þess í ársreikningnum er tæpar 1.300 milljónir króna. Umtalsverður munur er því á fasteignamati hússins og bókfærðu verði. Í ársreikningnum kemur fram að tæplega 850 milljóna króna veð hvíli á hótelinu auk þess sem tryggingabréf upp á nærri 800 milljónir hvíla á því. Húsið er því ansi veðsett. Í veðbandayfirliti hússins kemur fram að Landsbanki Íslands eigi veð í húsinu og að 205 milljóna króna skuldir hafi bæst við veðbandayfir- litið á árinu 2009. Ekki er vitað hvort Guðmundur á Núpum er í persónu- legum ábyrgðum fyrir umrædd- um lánum sem hvíla á félaginu og húsinu. Ef svo er þá bætast þessar ábyrgðir við skuldbindingar Guð- mundar við Landsbankann. Ljóst er jafnframt að Hótel Borg mun ekki seljast fyrir þær um 1.300 milljónir króna sem húsið er verð- metið á samkvæmt ársreikningi. Í vikunni barst ekki hærra tilboð en 300 milljónir króna í húsið við Aust- urstræti 16, þar sem Reykjavíkur- apótek var áður til húsa, þrátt fyrir að fasteignamat hússins sé um milljarð- ur króna. ingi@dv.is Guðmundur á Núpum skuldar víða: Milljarðar hvíla á Hótel Borg Skuldsett hótel Um tveggja milljarða króna skuldir hvíla á Hótel Borg í Pósthúss- træti 11. Guðmundur á Núpum á hlut í húsinu. Hætta við álver á Bakka Alcoa á Íslandi býr sig nú undir að draga sig út úr uppbyggingu álvers á Bakka. Frá þessu greinir Viðskipta- blaðið en þar segir að kornið sem fyllti mælinn hafi verið nýleg umræða um rannsóknarboranir Landsvirkjunar í Gjástykki. Orkustofnun heimilaði Landsvirkj- un að hefja tilraunaboranir á svæðinu en leyfið verður ekki nýtt þar sem ein- hugur er um það innan ríkisstjórnar- innar að friða svæðið. Er það stefna Landsvirkjunar að vinna í sátt við stjórnvöld. Viðskiptablaðið segir frá því að um tveimur milljörðum króna hafi verið varið í undirbúningsvinnu að álverinu. Vopnað rán í Garðabæ Vopnað rán var framið í Bónusvídeói í Garðabæ rétt fyrir miðnætti aðfara- nótt fimmtudags. Tveir ungir menn fóru inn í myndbandaleiguna og ógnaðu þeir starfsstúlku með hníf. Mennirnir höfðu eitthvað af pen- ingum á brott með sér en vegfar- endur, sem staddir voru fyrir utan leiguna, náðu að hafa hendur í hári annars þeirra. Hinn maðurinn var handtekinn af lögreglu skömmu síðar. Tveir aðrir menn voru einn- ig handteknir í tengslum við ránið en þeir biðu í bíl eftir mönnunum. Mennirnir voru allir vistaðir í fanga- geymslum lögreglu um nóttina. Skólar sameinaðir Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að sameina starfsemi Safamýrarskóla og Öskjuhlíðarskóla. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að gert sé ráð fyrir að nýr samein- aður sérskóli verði til húsa í Öskjuhlíð- arskóla og taki til starfa næsta haust. Unnið verði að undirbúningi sem tekur til breytinga á húsnæði, starfs- mannahaldi og upplýsingamiðlun í samstarfi við helstu hagsmunaaðila. Nýr sameinaður sérskóli mun sinna ráðgjafarhlutverki gagnvart al- mennum grunnskólum um kennslu nemenda með þroskahömlun. Þá mun hann hafa umsjón með stofnun svokallaðra þátttökubekkja í stað hefð- bundinna sérdeilda í fjórum almenn- um grunnskólum í borginni fyrir nem- endur með þroskahömlun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.