Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 19
Fréttir | 19Helgarblað 21.–23. janúar 2010
Af hverju átt þú að nýta
þér úthringiþjónustu?
* Til að gera eftirfylgni markpósts markvissari
* Kynna núverandi og verðandi viðskiptavinum vörur
og þjónustu fyrirtækisins
* Afla nýrra viðskiptavina - bóka sölufundi fyrir söludeildir
* Bjóða viðskiptavinum að greiða með greiðslukortum
eða með beingreiðslum
* Staðfesta pantanir, skráningar á fundi eða ráðstefnu
* Koma í veg fyrir vandamál. Hringja áður en
vandamálið verður til
* Annast innheimtu og ítrekanir á ógreiddum kröfum
* Hringja út þjónustukannanir
Ávinningurinn á að
velja úthringiþjónustu
* Markaðsaðgerðum er fylgt eftir á markvissan hátt
* Veitir fyrirtækinu meiri sveigjanleika
* Minni starfsmannakostnaður
* Þjónustustig við viðskiptavini hækkar
* Meiri tími til þess að sinna öðrum verkefnum
* Allar upplýsingar eru skráðar í gagnagrunn
* Gefur fyrirfram hugmyndir um þátttöku á viðburði
Kol.is - Sími 415 3600
Allar frekari upplýsingar
veitir Erna í síma 821-2755
erna@kol.is eða kol@kol.is
Dularfullt hvarf
Matthíasar
Matthías við Rússajeppann
Móðir Mattíasar segir hann vera
sjálfstæðan strák sem hafi öðruvísi
sýn á lífið en margur annar.
Thomas Hinz
og Matthias Grundt
Tveir þýskir
ferðamenn, Matthias
Hinz og Thomas
Grundt, hurfu eftir
hafa ætlað sér að
klífa Svínafells-
jökul í ágúst 2007.
Matthias var 28
ára lögreglumaður
og þrautreyndur
fjallgöngumaður, rétt
eins og vinur hans Thomas sem var 24 ára þegar þeir hurfu. Tjöld
mannanna fundust á jöklinum ásamt persónulegum eigum þeirra
en þrátt fyrir mikla kom aldrei í ljós hver afdrif þeirra voru. Það er
talið að þeir hafi fallið ofan í sprungu og eru þeir taldir af.
Geirfinnur Einarsson
Eitt frægasta óupplýsta mannshvarf á Íslandi er án efa hvarf Geirfinns Einarssonar. Hann hvarf þriðjudaginn 19.
nóvember 1974, þá 32 ára, kvæntur, tveggja barna faðir. Geirfinnur hélt fótgangandi af stað til móts við óþekktan
mann en hafði fengið fyrirmæli símleiðis frá dularfullum manni um að koma einn síns liðs. Þegar Geirfinnur mætti
á staðinn var enginn þar sem átti erindi við hann, svo hann snéri aftur fótgangandi heim. Síðar um kvöldið fékk
hann annað símtal og hélt aftur af stað. Hann hefur ekki sést síðan. Víðtæk leit var gerð afð Geirfinni og margar
kenningar komið fram um hvað gerðist þetta kvöld.
Guðmundur Finnur
Björnsson
Guðmundur hvarf sporlaust aðfaranótt
sunnudagsins 22. nóvember 1987. Hann
hafði farið út að skemmta sér í tilefni
tvítugsafmælis síns ásamt bróður sínum
og vini. Eftir að hafa byrjað kvöldið heima
fyrir var stefnan tekin á skemmtistaðinn
Hollywood og tóku þeir þangað leigubíl.
Þegar þangað var komið fóru bróðir
Guðmundar og vinurinn stax í röðina en
Guðmundur varð eftir og borgaði leigubílinn. Þegar hann ætlaði
að fara í röðina með strákunum tveimur, andmælti kona aftar í
röðinni því og fyrir kurteisissakir fór hann aftast í röðina. Bróðir
hans og vinurinn fóru inn en aldrei hefur sést til Guðmundar aftur.
Slóð hans var rakin frá Hollywood, í gegnum Hlíðarnar og að
Reykjavíkurflugvelli. Þaðan lá leið hans upp að bílastæðinu þar
sem slóðin hvarf. Hvað gerðist eftir það veit enginn.
Valgeir Víðisson
Valgeir Víðisson var að kvöldi 18. júni 1994
heima hjá sér að mála málverk þegar
hann fékk símhringingu og fór í kjölfarið
skyndilega út úr húsi. Tveir menn hafa verið
grunaðir um að bera ábyrgð á hvarfi hans
en aldrei hefur verið hægt að sanna að þeir
hafi átt hlut að máli. Ýmsar sögusagnir
gengu um hvarf Valgeirs á sínum tíma,
meðal annars sú að lík hans væri steypt
í brúarstólpa í brú sem var í byggingu á
þessum tíma. Engin sögusögn átti við rök
að styðjast og enn er lögregla engu nær um örlög Valgeirs.
Hvarf tveggja
unglingspilta
Árið 1994 hurfu tveir unglingspiltar,
Júlíus Karlsson og Óskar Halldórs-
son, sporlaust frá Keflavík. Piltarnir
voru einungis 13 og 14 ára þegar
þeir skruppu út og sáust aldrei aftur. Málið hafði gríðarleg áhrif á
þjóðina og spruttu upp margar kjaftasögur í kjölfarið. Lögreglan
rannsakaði málið af miklum krafti en það var eins og þeir hefðu
hreinlega gufað upp af yfirborði jarðar. Eftir situr lítið samfélag
sem enn syrgir drengina tvo.
Dularfull mannshvörf