Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Side 23
H éðan út um gluggann á skrifstofunni sem mér hef- ur verið úthlutað í stuttri rannsóknardvöl við Queen Mary-háskóla í London er ekki að sjá að mikið bjáti á í bresku háskólalífi. Fölir stúdentar á þönum og hoknir illa til hafðir prófessorar ráfandi um gangana. Allt eins og það á að vera gæti maður haldið ef ekki væri fyr- ir örvæntinguna sem sjá má glitta í úr rauðþrútnum en annars daufum augum fjármálastjórans. Kannski er þetta ekki svo ýkja frábrugðið og á við um íslensku efnahagskreppuna: Vandræðin sjást ekki á yfirborðinu. En undir niðri geisar stríð um breska háskólakerfið. Þrátt fyrir að frjáls- lyndir demókratar hafi fyrir kosn- ingar svarið og sárt við lagt að snerta ekki við fjárframlögum til háskól- anna hefur íhaldsflokkurinn samt sem áður náð því í gegn í samsteypu- stjórn flokkanna að skera háskólana niður við trog og svo gott sem ger- bylta kerfinu. Aðgerðirnar eru í ýms- um útfærsluliðum en útreikningar sýna að skorið sé niður um fast að fjórðungi. Þreföldun skólagjalda Aðgerðirnar koma harðast niður á nemendum. Þó svo að útlendingar hafi þurft að punga út fúlgum fjár til að nema við helstu kennileiti í æðra menntakerfi breska konungdæmis- ins hefur verið um það bil 650 þús- und króna þak á ársgjöldum sem háskólum er heimilt að draga af framtíðarreikningum breskra stúd- enta og nemenda úr ríkjum Evr- ópusambandsins. En nú hefur þak- inu í einu vetfangi verið svipt af húsi breskra fræða og háskólum er heim- ilt að rukka nemendur sína um rúma milljón til viðbótar. Gjöldin ríflega þrefaldast og hér eftir verður hvergi innan marka Englands hægt að finna almennilega menntun fyrir minni fjárútlát. Því er kannski ekki nema von að nemendur hafi svo ákaft mótmælt fyrir utan þinghúsið um daginn. En einhverra hluta vegna höfðu fjöl- miðlar einkum áhuga á tilfinningalífi Camillu, eiginkonu Karls Bretaprins, meðan á mótmælunum stóð. Nem- endur fá vissulega lánað fyrir skóla- gjöldunum en það tekur svo sannar- lega í að greiða af nálega tíu milljóna króna láni sem fimm ára háskóla- nám kostar. Sér í lagi þegar annað eins og jafnvel meira til bætist ofan á í framfærslulánum sem ótt hlaðast upp. Þá verður þetta svolítill stabbi. Breytist eða deyið Ástandið á Íslandi er að vísu ekki ósvipað þó svo að ríkisháskólakerf- ið sé enn afar sterkt. Maður segir eiginlega sem betur fer því þróun- in hér í Bretlandi ætti að hræða líf- tóruna úr öllum þeim sem er annt um almenna háskólamenntun. Ein- staka ríki í breska konungsveldinu hafa að vísu reynt margvíslegar og misburðugar tilraunir til að sleppa undan spennutreyjunni. Ríkisstjórn- in í Wales segist til að mynda ætla að greiða skólagjaldahækkunina fyrir sína nemendur. Sem verða þá komnir í sérstaka foréttindastöðu gagnvart enskum nemendum. Ekki svo að skilja að Walesbúar hafi farið varhluta af niðurskurðinum. Ríkis- stjórnin í Cardiff hefur sagt að fækka þurfi háskólastofnunum um ríflega helming. Með þvingaðri sameiningu ef ekki vill betur til. Breytist eða deyið voru skilaboð menntamálaráðherr- ans. Eins og gefur að skilja er brún- in þung á bresku háskólafólki en það góða við stöðuna er þó allavega það að stefnan er skýr. Stjórnleysi á Íslandi Sem leiðir hugann að ástandi há- skólamála á Íslandi. Öfugt við Bret- land er íslenska háskólakerfið stjórnlaust. Í Bretlandi er notast við markvisst hvatakerfi til að stýra nem- endum í námsgreinar eftir niður- njörfaðri forgangsröðun sem verður til í víðtækri opinberri stefnumótun. Miðað er við að hámarka hag samfé- lagsins. Á Íslandi er látið reka á reið- anum og tískustraumar ráða fjölda nemenda í einstaka námsgreinum. Stefnuleysið hefur leitt til þess að sextíu prósent af öllum háskólanem- um á Íslandi eru í greinum sem setja má undir hatt félagsvísinda, sem sé í hefðbundnum félagsvísindagrein- um, kennaranámi, viðskiptum og lögfræði. Aðeins sex prósent eru hins vegar í tæknigreinum, sem sé í tölv- unarfræði, véla- og verkfræði. Þótt margt sé vissulega mjög vel gert í íslenskum háskólum er orðið afar brýnt að hefja heildstæða end- urskoðun á kerfinu og útfæra mark- vissa stefnu um samsetningu stofn- ana og námsframboð. Umræða | 23Helgarblað 21.–23. janúar 2010 Troðfullt af börnum Leikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarson tók á móti 4.000 þúsund krökkum í Borgarleikhúsinu á miðvikudaginn en þeir mættu til að skrá sig í prufur fyrir hlutverk í Galdrakarlinum í Oz sem fært verður upp á nýju leikári. Hver er maðurinn? „Magnús Geir Þórðarson.“ Hefur þú einhvern tímann verið eitthvað annað en leikhússtjóri? „Ég er nú svo sem enn ýmislegt annað en leikhússtjóri. Ég er líka leikstjóri, sonur, bróðir, vinur og margt fleira.“ En það var sum sé mikið um dýrðir í Borgarleikhúsinu á miðvikudaginn? Hvernig var stemningin? „Já, það var mikil stemning þegar þessi stóri og glæsilegi hópur kom til að skrá sig í áheyrnarprufurnar. Okkur í Borgarleikhúsinu finnst gaman að galopna leikhúsið og það er frábært að sjá húsið troðfullt af brosandi og kátum krökkum.“ Átt þú þér einhverjar skemmtilegar minningar um verkið Galdrakarlinn í OZ? „Ég man vel eftir myndinni sem ég sá í sjónvarpinu þegar ég var lítill. Þetta er náttúrulega frábær mynd og söngleikurinn er ekki síðri.“ Hvernig fara prufurnar fram? „Prufurnar eru auðvitað mjög viðamiklar þegar fjöldinn er svona mikill. Í fyrstu um- ferð munu öll börnin mæta í tuttugu manna hópum og vinna með leikurum hússins í leikhúsleikjum. Þá munu þau öll fá tækifæri til að sýna hæfileika sína. Þetta verður skemmtileg upplifun fyrir börnin þar sem þau kynnast leikhúsinu úr nýrri átt og það er okkur kappsmál að prufurnar séu ævintýri fyrir hvert barn sem tekur þátt. Eftir það verður hluta hópsins boðið að koma aftur og þá munu þau syngja og dansa. Svona mun þetta ganga koll af kolli næstu tvo mánuðina þar til endanlegi hópurinn hefur verið valinn.“ Er hugað að tilfinningum barnanna, ef svo, hvernig þá? „Að sjálfsögðu. Eitt markmið með prufunum er auðvitað að finna börnin sem taka þátt í sýningunni á endanum en í huga okkar er ekki síður mikilvægt að búa til skemmtilega upplifun fyrir öll börnin. Þannig taka þau þátt í starfsemi Borgarleikhússins með nýj- um hætti. Þau eru ekki bara áhorfendur úti í sal, heldur vinna þau inni í leikhúsinu með listamönnum hússins. Vonandi fara allir hér úr húsi reynslunni ríkari, með hvatningu og ógleymanlega minningu um áskorun sem þau stóðust með glæsibrag. Við viljum að Borgarleikhúsið sé galopið og að börnin finni að hingað eru þau alltaf velkomin.“ „Það er alveg glatað.“ María Björk Gunnarsdóttir 28 ára, stjórnmálafræðingur „Mér finnst það ekki rétt.“ Hafdís María Jónsdóttir 25 ára, hagfræðingur „Það má alveg endurskoða það.“ Daníel Bjarnason 31 árs, tónlistarmaður „Ég hef enga skoðun á því.“ Arnar Eyþórsson 47 ára, sendibílstjóri „Ég vissi ekki einu sinni af því.“ Brynja Sveinsdóttir 23 ára, nemi Maður dagsins Finnst þér rétt að Biskupsstofa þurfi ekki að greiða áfengisgjald? Hálka og él Umferðin reyndist þyngri en vant er í höfuðborginni seinnipartinn á fimmtudag. Flughált varð um klukkan 15.00 og þegar ljósmyndari var á ferð hafði lögregla talið meira en tuttugu árekstra. Þrír þeirra voru þriggja bíla árekstrar. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON Myndin Stjórnlausir háskólar Dómstóll götunnar Kjallari Eiríkur Bergmann„Á Íslandi er látið reka á reiðanum og tískustraumar ráða fjölda nemenda í einstaka námsgreinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.