Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 38
38 | Fókus 21.–23. janúar 2011 Helgarblað Sýningalok Hin vinsæla sýning Hænuungarnir, í leikstjórn Stefáns Jónssonar, verður færð upp í síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 23. janúar. Sýningin fékk stjörnudóma frá gagnrýnanda DV, Jóni Viðari Jónssyni, sem sagði að enginn yrði svikinn af leiksýningunni. Þennan sama dag skemmtir Fíasól einnig í síðasta skipti en 9.000 krakkar hafa séð sýninguna. Ærsl og ráðgátufílingur Súldarsker er nýtt leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói í janúar – ærslafull, tragí- kómísk ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál. Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólíkum erindagjörðum. Koma þeirra setur samfélagið úr skorðum og hrindir af stað æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma gamlir vitaverðir, bæjarhátíðin Hryssingsdagar, árásargjarnir mávar, krullumót í félagsheimilinu og síðast en ekki síst leyndardómar hinnar ógangsettu kassettuverksmiðju sem gnæfir yfir samfélaginu. FAUST á sviði Vegna fjölda áskorana er Faust aftur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sýningin nýtur enn mikilla vinsælda enda hefur hún farið í hverja frægðarförina á eftir annarri og víða fengið góða dóma. „Sýning sú sem þeir bjóða upp á, er í þeim anda Vesturports sem er okkur orðinn næsta kunnuglegur: loftfimleikar og skemmtilegar tæknibrellur í bland við ljóðrænni kafla.“ Jón Viðar Jónsson – DV [Fjórar og hálf stjarna] Áfram stelpur á Akureyri Þann 24. október 1975 kom út hljómplatan Áfram stelpur þar sem íslenskar leik- og söngkonur sungu baráttusöngva kvenna í tilefni kvennafrídagsins. Á þrjátíu og fimm ára afmæli kvennafrísins í haust fluttu fimm reglulega kvenlegar leik- og söngstelpur plötuna Áfram stelpur í heild sinni á tónleikum í Slippsalnum og vöktu af værum blundi hjúkkuflugfreyjuna, Þyrnirós, Gunnu og Sigga, ánægðu ömmuna á Grund og síðasta sumarblómið. Lífið í leikhúsinu 21. janúar – 23. janúar „Ég er í nýjum sokkum, ég er á nýjum skóm, í öllum heimi er enginn sem ég hræðist.“ S vo syngur Kári/Eyvindur í Fjalla-Eyvindi Jóhanns Sigur- jónssonar fyrir Höllu sína á góðri stund uppi á háfjöllum. Sú var tíð að Fjalla-Eyvindur var þjóðar- drama Íslendinga – eða þjóðartragedía ætti maður víst heldur að segja. Því að Íslendingar áttu sína þjóðarkómedíu: Skugga-Svein Matthíasar. Hún er full af skrýtnum og skemmtilegum týpum úr gamla bændasamfélaginu og þar fer allt vel: elskendurnir ná saman, vondu útilegumennirnir fá makleg mála- gjöld, þeir góðu laun verka sinna. Í Fjalla-Eyvindi fer hins vegar allt illa, ástin deyr og elskendurnir hverfa að lokum út í hríðina þar sem fátt ann- að en dauðinn bíður þeirra. Hinn nýi fótabúnaður útlagans kemur fyrir lít- ið um það er lýkur. Einu sinni hitti ég aldraðan leikhúsmann sem hafði verið burðarás leikfélagsins í sínum heimabæ í áratugi. Hann sagði mér að sig hefði alltaf langað til að setja upp Fjalla-Eyvind, en aldrei orðið af. Hvernig stóð á því? spurði ég. Jú, mér fannst þetta svo sorglegt, sagði gamli maðurinn. Og fólkið var nú að koma til að skemmta sér. Nú er langt um liðið frá því þau Eyvindur og Halla gistu svið höfuð- borgarinnar síðast. Þau hafa ekki gert það í ein tuttugu ár. En nú eru þau komin hingað aftur. Að vísu í talsvert breyttri mynd frá því sem áður var, enda lifum við á póst-módernískum tímum, gott ef ekki póst-póst-mód- erne. Útlagarnir hafa greinilega tek- ið mið af því þegar þeir ákváðu að skreppa hingað aftur. Í Norðurpólnum, hinu nýja og vel heppnaða leikhúsi á Seltjarnarnesinu, eru áhorfendur leiddir inn í aflangt hliðarherbergi. Bert gólf og svartir veggir, rafmagns- og vatnsleiðslur utan á þeim og miðstöðvarofnar; það gerist varla hrárra. Þegar okkur hefur verið vísað til sætis af einum leikendanna á tveimur bekkjaröðum meðfram öðr- um hliðarveggnum, er þung rennihurð dregin að stöfum; ekki laust við maður fái létta innilokunarkennd sem líður þó frá. Á bekkjunum komast einungis fyrir þrjátíu manns, svo þetta er intímt. Leikfólkið er eitthvað að bjástra þarna, sumir skrifa með töflukrít á veggi; þegar að er gáð má þekkja tilvitnun í Fjalla-Eyvind Jóhanns og svo er þarna líka einhver fróðleikur um aðalpers- ónurnar sem áttu sér þekktar sögu- legar fyrirmyndir. Á veggnum gegnt áhorfendum eru fjórir gamaldags gormalampar sem leikendur stilla sér stundum upp undir, það er hægt að kveikja á þeim og slökkva. Leikendur eru líka fjórir talsins, klæddir frjálslega á nútímavísu, aðallega í grátt og svart. Við erum komin langt frá gömlu, notalegu baðstofusenunni í leikriti Jó- hanns, fögrum fjallamálverkum með jökla í baksýn, vaðmáli og gæruskinn- um. Eða er ekki svo? Allt í einu er byrj- að að leika Fjalla-Eyvind. Úr hátölur- um hljómar upptaka Ríkisútvarpsins á leiknum frá 1967, brot úr henni, réttara sagt: Þorsteinn Ö. les sjálfur sviðsleið- beiningar, Helga Bachmann og Helgi Skúlason leika Höllu og Kára. Leik- húselítan fyrir fjörutíu árum. Leikur þeirra hjóna er þrunginn heitri dram- atískri tilfinningu, pathosi, svo notað sé gamalt og gott orð, stórir leikarar að leika stórar persónur, með mikilli virðingu fyrir skáldlegum textanum. Fallega gert, mikil ósköp, en óneitan- lega fullupphafið fyrir nútíðarsmekk, hljómar stundum ekki alveg ekta. Það sem fer fram fyrir augum okkar er með öðrum brag. Halla fær sér fóta- bað í járnbala á meðan Björn hrepp- stjóri biður hennar, Kári fer í vaskinn, þegar hann þarf að strjúka framan úr sér. Á meðan Helga og Helgi flytja eina frægustu ástarsenuna í hátölur- unum engjast þau Guðmundur Ingi Þorvaldsson (Kári) og Edda Björg Eyj- ólfsdóttir (Halla) í þöglum lostafullum ballett með mikilli líkamlegri nánd, snertingum og strokum. Mjög erótískt, það verður að segjast. Þetta eru leik- arar sem kunna að vera sensú al, án þess að bera hold sitt, sem svo mjög hefur verið tíðkanlegt síðustu áratugi. Svo ríða þau upp til fjallanna í ein- hvers konar steppdansi undir dynj- andi raftónlist. Það er eitt besta atriði sýningarinnar, glæsilega útfært – og fullkomlega í anda skáldsins! Orti Jó- hann ekki einmitt í ljóðinu um farand- sveininn: „Endnu hörer jeg de hovslag i mit hjerte“? Hófatökin kallast á við þungan púlsinn í hamförum ástríðn- anna. Síðast sitja þau ein í fjallakofan- um, í hnipri undir veggnum. Ástin er dauð – en samviskan nagar. Á að gefast upp og deyja eða reyna að komast af? Í storminum hljóða dáin börn. Helgi og Helga eru þögnuð. Maður hlustar á Guðmund Inga og Eddu Björgu fara með þennan texta og dáist enn og aft- ur að því hversu vel hann er skrifaður – eins þótt Halla sé furðanlega lesin í Nietzsche, af íslenskri sveitakonu á átj- ándu öld að vera; það verður víst að viðurkennast. Þó að hér sé djarft að farið, er ekki verið að afhelga hið gamla þjóðar- drama okkar – sem varð vitaskuld þjóð- ardrama af því að það endurspeglaði svo vel ömurleg örlög forfeðranna í þjóðfélagi sem hjarði á hungurmörk- unum undir einveldi hins prótestant- íska Danakonungs. Eða þannig horf- ir það ekki við mér. Mér fannst þetta mjög áhugaverð tilraun og ágætlega útfærð af Mörtu Nordal sem er lík- ast til betri leikstjóri en ég hafði áttað mig á. Að minnsta kosti í því sem lýt- ur að því að teikna upp línur, fylgja eft- ir hugmynd, stilla saman strengi. Að láta hefðbundinn, gamaldags flutning, ofur vandaðan, eins og best varð á kosið á þeim tíma, kallast á við mímíska tján- ingu þeirra grimmu og sáru tilfinninga sem skáldverkið fjallar um; það er mjög vel til fundið – eiginlega bara snjallt. Á meðan Kári og Halla gefa sig ástríð- unni á vald standa Björn hreppstjóri og Arnes flakkari til hliðar, fullir afbrýði, heiftar og haturs, fórnarlömb tilfinning- anna engu síður en elskendurnir. Því að í þessum leik sigrar enginn. Það liggja allir í valnum að lokum. Frammistaða leikenda var misjöfn. Guðmundur Ingi var bestur sem Kári; í raun og veru bar hann þetta uppi. Guðmundur hefur ekki sést hér á svið- inu um hríð, en er kominn aftur tví- efldur, að því er best verður séð. Hann hefur viðkunnanlega rödd og fer yfir- leitt vel með textann, eftir þeirri aðferð sem hér er við höfð; er flottur í dans- inum, og það sem mestu varðar: nær að gæða persónuna þeim glæsileik og kynþokka sem þarf til að láta þetta furðulega ástarævintýri ganga upp, gera skiljanlegt að Halla ekkja skuli falla svona gersamlega fyrir stráknum. Hann er munúðarfullur án þess að verða grófur eða subbulegur, allt að því barnslega saklaus í bríma leiksins. Og þannig held ég að Jóhann hafi hugsað sér Kára. Aftur á móti skorti talsvert á að Guðmundur fengi nógu góðan mót- leik frá Eddu Björgu. Hún hefur oft gert vel, einkum þar sem hún hefur náð að beita sinni ágætu kómík, en hér var hún ekki nógu sannfærandi. Hún var undarlega daufleg, að ekki sé sagt frosin í hlutverkinu, miðlaði alltof litlu af þeirri baráttu sem fram fer í hjarta konunnar sem ákveður að segja ham- ingjuleysinu stríð á hendur, rísa gegn valdinu, gefast ástinni svo gersamlega að í lokin er allt brunnið í eldi henn- ar. Það var helst að Edda Björg fyndi sig í hlutverkinu undir lokin, í fjalla- kofanum. Kannski truflaði frumsýn- ingarspennan hana eitthvað; það er vissulega ekki auðvelt að leika svona nokkuð uppi í vitunum á áhorfendum. Ég er ekki alveg með á nótunum hvað varðar Bjart Guðmundsson: að setja svona ungan og geðugan pilt, bjartan á svip og bjartan yfirlitum, í hlutverk hins beisklundaða og þung- lynda Arnesar. Skálds sem er markað af útlegð og sorg. Frekar var það nú skrýtið leikaraval hjá leikstjóranum. Og Valdimar Örn Flygenring naut sín ekki heldur í hlutverki Björns hrepp- stjóra, túlkun hans varð einhæf og flöt. Kannski var leikstjórn um að kenna, kannski fulllangri fjarveru Valdimars af sviði, ég er ekki viss. Ég er ekki held- ur viss um að það þurfi alltaf að gera Björn svona svakalega mikinn durg. Væri nokkuð að því að prófa að leika hann á móti textanum, gera hann að reffilegum, jafnvel frekar aðlaðandi mektarmanni, þannig séð alls ekki fráleitu mannsefni fyrir frú Höllu? En ef til vill yrði það umhendis; þrátt fyr- ir allt er kallinn ástfangnari af jörðinni hennar en henni sjálfri, ef eitthvað er að marka það sem hann lætur út úr sér. Ástin á jörðinni, vel á minnst – hún getur svo sem líka verið nógu sár og öfgafull; það vissi stórbóndasonurinn Jóhann Sigurjónsson. Um það hafði hann fjallað í öðru leikriti, áður en hann skrifaði Fjalla-Eyvind, leik um ástir og jarðskjálfta, uppreisn og kúg- un, vanda þess að sleppa tökunum og sætta sig við orðinn hlut, leik sem hef- ur ekki sést hér á sviði í meira en hund- rað ár. Bóndinn á Hrauni hvarf strax í skuggann af Eyvindi og Lofti og hefur ekki komið út úr honum síðan. Það væri kannski reynandi að draga hann út úr honum með jafn nýstárlegum tökum og þeim sem hér eru við höfð? Því að Bóndinn er ekki svo galið verk, þó að hann hafi gleymst; það glittir á gullinn skáldskap í honum og hann á sinn stað í þróunarsögu skáldsins, eins og ég hef reynt að gera nokkur skil á öðrum stað. Að vísu mun ekki til út- varpsupptaka af honum, en teikningar af leiksviðsmyndunum, trúlega gerðar fyrir frumsýningu Leikfélags Reykja- víkur, komu í leitirnar fyrir skömmu og eru varðveittar í Leikminjasafninu. Það væri sjálfsagt hægt að „dekonstrú- era“ þær eins og hvað annað. Fjalla-Eyvindur Leikhópurinn Aldrei óstelandi í Norðurpólnum Höfundur: Jóhann Sigurjónsson Leikstjóri: Marta Nordal Lýsing: Björn Elvar Sigmarsson Tónlist: Stefán Már Magnússon Hljóðmynd: Elísabet Indra Ragnarsdóttir Leikrit Jón Viðar Jónsson Hófatökin í hjartanu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.