Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 42
Gamaldags skraut úr smiðju Zöru
Skartgripir Zöru Wood eru vel þess virði að safna
fyrir þær sem finnst rómantískir skartgripir
fallegir. Hún teiknar örsmáar teikningar með
bleki, oftast á brúnan pappa sem hún festir í
gullhringa, hálskeðjur og men. Um tíma seldi
Top Shop eitthvað af hönnun hennar en
áhugasamir geta skoðað hana á zarawood.com.
Góð stígvél í grámygluna
Falleg stígvél í vatnsveðrið eru nauðsynleg næstu
mánuði og óþarfi að að böðlast á fínum leðurskóm í
gráleitu vetrarslabbinu. Hunter-stígvél fást í versluninni
Geysi á Skólavörðustíg og duga líklegast vel í íslensku
votviðri. Ashley Olsen og Angelina Jolie hafa báðar sést
í Hunter-stígvélum, Angelina í rauðum en Ashley í
forláta svörtum stígvélum með grófri áferð sem
voru hönnuð í samstarfi Hunter og Jimmy Choo.
Marokkóblús
Förðun fyrirsæta á Armani-sýningu fyrir vor- og
sumartískuna 2011 vakti óskipta athygli en þar
var leitað til Marokkó hvað innblástur varðaði.
Linda Cantello sá um förðunina og notaði
djúpbláa liti, svarta augnlínupenna og
dökkbláa augnskugga yfir. Ljósa litnum
í innri augnkrók ákvað Armani sjálfur að
bæta við þegar hann sá útkomuna.
42 | Útlit 21.–23. janúar 2011 Helgarblað
Brúnás–innréttingar eru íslensk hönnun og íslensk
framleiðsla, framleiddar af trésmíðaverkstæði Miðás hf.
á Egilsstöðum. Þær eru hannaðar af Guðrúnu Margréti
Ólafsdóttur og Oddgeiri Þórðarsyni innanhússhönnuðum
sem reka saman Go Form design studio í Reykjavík.
Í sýningarsal og verslun Brúnás-innréttinga, Ármúla 17a í
Reykjavík, býðst viðskiptavinum fagleg þjónusta og ráðgjöf
innanhússhönnuða við val á Brúnás–innréttingum. Sýn-
ingarsalur er svo einnig á Egilsstöðum að Miðási 9, í sömu
byggingu og framleiðslan fer fram í. Þar er einnig að finna
aðalskrifstofu fyrirtækisins.
Miðás 9, 700 Egilsstaðir, sími: 470 1600, fax: 471 1074
Ármúli 17a, 108 Reykjavík, sími: 588 9933, fax: 588 9940
Sama verð um allt land
A
thygli vakti í vikunni þegar
lögmaðurinn Sigurður G.
Guðjónsson mætti reffilegur
í héraðsdóm, með skjólstæð-
ingi sínum Sigurjóni Árnasyni, með
glæsilegan trefil frá Guðmundi Hall-
grímssyni, sem er betur þekktur sem
hönnuðurinn Mundi vondi.
Treflar þeir eins og Sigurður bar
eru nú uppseldir en Mundi segir nýja
línu væntanlega með öðrum litum og
mynstrum. „Ég leik mér mikið með
grafísk mynstur í flíkunum og leiðist
endurtekin mynstur.“
Vor -og sumartískan.
Mundi sýndi vor- og sumarlínu sína
í París við góðar undirtektir og mun
sýna línu sína aftur á Reykjavik Fash-
ion Festival í mars. Síðasta ár voru
fyrirsætur á sýningu Munda með
Downs-heilkenni og vakti hann bæði
hneykslan og aðdáun fyrir uppátæk-
ið. Hann ætlar að koma aftur á óvart í
ár. „Ég er náttúrulega einstakur,“ segir
hann og hlær.
Munda er þó margt annað til lista
lagt en að hanna föt, en hann opnar
listsýningu á morgun, laugardag.
Opnar listsýningu
Listsýningunni hefur hann unnið að
stanslaust síðustu tvær vikurnar í sam-
starfi við strákana í Moms. „Við erum
listahópur sem hefur unnið saman
í nokkur ár. Við erum búnir að vera
þarna, inni í þessu galleríi í tvær vik-
ur, alveg brjálaðir,“ segir Mundi. „Þetta
er mikið af málverkum og svo verður
mikið af skúlptúrum. Hún verður al-
veg pökkuð sýningin. Alvöru listasýn-
ing.“ Gjörningapartí, eins og Mundi
orðar það, er fyrirhugað á laugar-
dagskvöldið, en hann vonar að partíið
standi eitthvað fram eftir kvöldi.
Kvikmyndagerðarmaður
Mundi hefur verið með fleiri járn í
eldinum því jólunum eyddi hann í að
gera stuttmynd með listamanninum
Snorra Ásmundssyni. „Það er verið
að klippa myndina núna, hún verð-
ur vonandi sýnd í lok febrúar hérna
heima,“ segir hann um myndina.
„Þetta er svona jóla-slasher.“ „Slash-
er“-myndir þykja mjög grófar mynd-
ir en þær falla undir hryllingsmyndir.
Þeim svipar til svokallaðra „splatter“-
mynda en hafa þó sín séreinkenni.
„Þetta eru eins og mismunandi lauf-
blöð af sömu greininni,“ segir Mundi
um skilgreininguna.
Engin pása
Ég er að fara til Rotterdam í lok mán-
aðarins að sýna stuttmyndina sem
ég gerði í fyrrasumar. Hún var valin á
Rotterdam International Movie Festi-
val, sem bara svona „official select-
ion“,“ segir Mundi um hvað sé næst á
dagskrá hjá honum. „Þetta er það sem
er næst á dagskrá, en svo er ég með
ýmsar hugmyndir sem ég er að melta.“
Hann segir ekkert vera á dagskránni
að taka sér frí til að slaka á. „Jesús
minn, það er ekkert leiðinlegra en ein-
hverjar pásur.“ adalsteinn@dv.is
Leikur sér að mynstrum
n Mundi vondi opnar listsýningu um helgina n Vinsælir treflar uppseldir
n Vakti athygli fyrir vor- og sumarlínuna í París n Undirbýr sig fyrir Reykja-
vik Fashion Festival og ætlar aftur að koma verulega á óvart
Blúndur af
öllu tagi
Vortískan 2011:
Blúndur í vor? Á pöllunum mátti sjá
fjölbreyttar áherslur hönnuða þegar
kom að blúndum. Christopher Kane
notaði neonliti, Balenciaga kynnti
skyrtur með blúndum í pönkstíl og
Chanel áttunda áratugar klassík.
Blúndur eru inn í vor, en síst þær af
dæmigerða rómantíska taginu.
Ljósir litir í
smókí-förðun
Fyrirsætur á vorsýningu
Whitney Eve voru farð-
aðar með ljósri augn-
málningu meðan not-
aðar voru sömu aðferðir
og áherslur og á svokall-
aða smókí-kvöldförðun. Í
stað þess að hlaða dökk-
um eyeline og dökklitum
skuggum kringum augun
voru notaðir lillafjólublá-
ir og grænir augnskuggar
og ljósbrúnir augnblý-
antar. Ekki láta of mikið
af augnskugga á augn-
lokið sjálft til að ofgera
þessu ekki.
Uppseldir treflar Treflar Munda eru
uppseldir í bili en von er á nýrri hönnun
frá honum með nýjum litum og mynstri.
Hæfileikaríkur Munda er
margt til lista lagt en hann
hannar föt, býr til kvikmyndir
og setur upp listsýningar.
Vor- og sumarlína Munda