Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 44
Nintendo 3DS
Nintendo-fyrirtækið ætlar að setja á markað
áhugaverða leikjatölvu nú á vormánuðum en
tölvan, sem ber nafnið 3DS, er búin þrívídd-
arskjá. Þrívíddarskjár
tölvunnar byggir
á sömu tækni og
nýju sjónvörpin
frá Toshiba. Auk
þess að geta spilað
vinsælustu Nintend-
o-leikina í þrívídd
getur tölvan tekið
ljósmyndir og spilað
kvikmyndir og sjónvarpsþætti í þrívídd. Ekki
er vitað hvenær tölvan kemur í verslanir á
Íslandi en vitað er að hún kemur til Bretlands
í lok mars og mun kosta þar rúmlega fjörutíu
þúsund krónur.
44 | Tækni 21.–23. janúar 2011 Helgarblað
ALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR
TAKMARKAÐ MAGN
Fyrstur kemur – fyrstur fær! Opið laugardaga kl. 10 – 16
Sjá allt úrvalið á ht.is
SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500
BÍLTÆKIMP3 SPILARAR ÚTVÖRP
HLJÓMBORÐ
BÍLHÁTALARAR HEYRNARTÓL
DVD SPILARAR
REIKNIVÉLAR
HÁTALARAR
MYNDAVÉLAR
SJÓNVÖRP
ELDAVÉLAR
UPPÞVOTTAVÉLAR
SAMLOKUGRILL
ÍSSKÁPAR
FRYSTIKISTUR
HELLUBORÐ
HÁFAR
HRÆRIVÉLAR ÖRBYLGJUOFNAR ÞVOTTAVÉLAR RAKVÉLAR
OFNAR
FERÐATÆKI MAGNARAR
BÍLMAGNARAR ÞRÁÐLAUSIR SÍMAR
MEIRA EN 1000 VÖRUTEGUNDIR MEÐ ÓTRÚLEGUM AFSLÆTTI
SÍÐUSTU DAGAR - VALDAR VÖRUR MEÐ ENN MEIRI AFSLÆTTI
H
in 39 ára gamla Rieko Fu-
kushima hefur síðustu níu
árin stýrt rannsóknarteymi
fyrir japanska tæknirisann
Tosh iba en fyrirtækið er einn af
stærstu sjónvarpsframleiðendum
heims.
Það er enn frekar fátítt að kon-
ur gegni stöðu yfirmanns í hinu
mikla karlaveldi sem japansk-
ur viðskipta- og fyrirtækjaheimur
er. Í nýlegri könnun sem japönsk
stjórnvöld stóðu fyrir kom í ljós
að aðeins um 8 prósent þarlendra
kvenna gegna stjórnunarstöðum.
Í augum margra ungra japanskra
kvenna er Fukushima hálfgerð
kvenhetja sem tekist hefur að koll-
varpa viðteknum venjum, ekki síst
þegar hún tók við stöðu yfirmanns
hjá Toshiba árið 2002, stuttu eft-
ir að hún eignaðist sitt fyrsta
barn. Meirihluti (tvær af hverjum
þremur) japanskra kvenna yfir-
gefur vinnumarkaðinn fyrir fullt
og allt eftir barnsburð en Japanir
standa nú frammi fyrir þeirri blá-
köldu staðreynd að sá mannauður
sem tapast við brotthvarf kvenna
af vinnumarkaði gengur ekki öllu
lengur, ekki síst þar sem meðalald-
ur vinnufærra manna hækkar ört.
Efasemdir um þrívídd
Miklar efasemdir ríktu meðal stjórn-
enda Toshiba árið 2002 um hvort
hægt væri að markaðssetja þrívídd-
ina með ásættanlegum árangri. Fuk-
ushima gerði sér grein fyrir því í byrj-
un að notkun sérstakra gleraugna
myndi verða dragbítur á áhuga fólks
til að kaupa þrívíddarsjónvörp. Ef
rannsóknarteyminu tækist að smíða
frumgerð eða „prótótýpu“ þrívíddar-
sjónvarps fyrir gleraugnalaust áhorf
myndi Toshiba verða í fararbroddi
þessarar tækni. Það eru ekki nema
um sex til sjö mánuðir síðan því var
spáð að þrívíddarsjónvörp sem ekki
krefjast sérstakra gleraugna myndu
fyrst koma á markað eftir fjögur til
fimm ár. Toshiba hefur kollvarpað
þeirri spá, fyrirtækið kynnti hin nýju
sjónvörp fyrir stuttu, fyrst í októ ber
á CEATEC-tæknisýningunni í Jap-
an og síðan á CES-tæknisýningunni
í Bandaríkjunum nú í janúar. Mark-
aðssetning fyrirtækisins miðast við
að sjónvörpin verði komin í verslanir
fyrir næstu jól.
Ný tækni
Sú tækni sem hingað til hefur ver-
ið notuð í þrívíddarsjónvörpum
byggist á því að skjárinn sýnir eina
mynd fyrir hvort auga, hvora á eft-
ir annarri með örskömmu millibili
og sérstakar síur (filterar) í gleraug-
unum, sem eru samstilltar við sjón-
varpstækið, verða virkar eða óvirk-
ar. Þannig sér vinstra augað eina
mynd og það hægra aðra og sjón-
stöðvar heilans mynda úr því þrí-
vídd.
Sú leið sem Fukushima fór var
hins vegar að þróa sérstakan algó-
ritma fyrir myndörgjörvann sem
sjónvarpið byggir á en hver rammi
sem skjárinn birtir sýnir þannig níu
myndir (parallax images). Skjárinn
sjálfur er þannig úr garði gerður
að geta varpað fram tveimur sjón-
arhornum fyrir augu áhorfandans
þannig að hvort auga um sig nem-
ur aðeins þær myndir sem því er
ætlað.
Enn er þó eitt vandamál sem
Toshiba tekst vonandi að leysa
áður en sjónvörpin koma á mark-
að. Ef setið er töluvert til hliðar við
sjónvarpið (utan 40 gráða) verður
myndtæknin bjöguð og þrívíddin
fer úr skorðum.
Ekki hefur enn neitt verð verið
staðfest fyrir hin nýju þrívíddartæki
en búast má við að þessi fyrsta kyn-
slóð Toshiba-þrívíddarsjónvarpa
verði ansi dýr.
Toshiba
leiðir þrívíddina
Toshiba hefur kollvarpað spám
um að þrívíddarsjónvörp sem ekki
krefjast sérstakra glerauna komi
ekki á markað fyrr en eftir nokkur
ár. Fyrirtækið kynnti slík sjónvörp á
dögunum.
Þrívíddarsjónvarp Gestir tæknisýningarinnar
CEATEC í Chiba í Japan virða fyrir sér fyrstu þrí-
víddarsjónvörp heims frá Toshiba sem ekki krefjast
sérstakra gleraugna. MYND KIM KYUNG HOON/REUTERS
Rieko Fukushima Í augum margra ungra
japanskra kvenna er Fukushima hálfgerð
kvenhetja sem tekist hefur að kollvarpa
viðteknum venjum.
Opal og Topaz frá
Hewlett Packard
Von er á tveimur spjaldtölvum frá
Hewlett Packard á árinu sem byggja
á webOS-stýrikerfinu frá Palm, en
HP yfirtók Palm fyrirtækið með húð
og hári á síðasta ári. Tölvurnar ganga
undir nöfnunum Opal og Topaz, þó ekki í
höfuðið á íslenskum sælgætistegundum
heldur skrautsteinategundum. Myndum
af tölvunum hefur þegar verið lekið á
netið og má greina á þeim að þær hafa
myndavél á framhlið og tengirauf fyrir
microUSB. Búist er við því að tölvurnar
komi á markað um mitt árið eða
snemma á haustmánuðum. Samkvæmt
sölutölum síðasta árs hefur iPad-tölva
Apple um það bil 80–90 prósent mark-
aðshlutdeild í spjaldtölvugeiranum en
það hlutfall á eftir að breytast töluvert á
þessu ári þegar nýjar spjaldtölvur fara að
streyma inn á markaðinn.
Valda truflunum
Það eru ekki aðeins farsímar sem geta
valdið truflunum eða bjagað rafeindakerfi
flugvéla, farþegar eru beðnir um að hafa
slökkt á öllum rafeindatækjum á meðan
flugferðinni stendur. Þessi regla verður sífellt
mikilvægari eftir því sem fjöldi og gerðir
hinna ýmsu tækja sem fylgja farþegum inn í
vélarnar eykst; farsímar, fartölvur, GPS-tæki,
spjaldtölvur og svo framvegis. Mörg þessara
tækja senda frá sér merki og öll gefa þau
frá sér rafsegulbylgjur sem samkvæmt
fræðunum geta haft áhrif á rafeindakerfi
vélarinnar. Erfitt hefur þó reynst að sanna
að orsök einstakra slysa sé hægt að rekja
til slíkra tækja en þeirra er getið sem
hugsanlegs orsakavalds í rannsóknarskýrsl-
um nokkurra flugslysa sem hafa átt sér stað
síðasta áratuginn. Vandamálið er að þrátt
fyrir regluna um að slökkt sé á öllum tækjum
á meðal farþega eru alltaf einhverjir sem
virða ekki fyrirmælin. Nýjustu gerðir flugvéla
eru búnar öflugri skermun gegn truflunum
af þessu tagi en eldri flugvélar gætu verið
viðkvæmar fyrir þeim tækjum sem hafa
komið á markað á allra síðustu árum.