Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Page 46
46 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 21.–23. janúar 2011 Helgarblað Selfyssingurinn Þórir Ólafsson hefur farið á kostum með íslenska landsliðinu í handbolta á sínu fyrsta heimsmeist- aramóti. Þessi 31 árs gamli hornamaður hefur spilað landsleiki fyrir nánast alla landsliðsþjálfara undanfarin tíu ár en aldrei fest sig í sessi þar til nú. Honum er lýst sem gríðarlega teknískum hornamanni, þeim besta sem Ísland á. Þórir hefur lengi verið of grannur og oft reynt að fita sig án nokkurs árangurs. Væri meðalmaðurinn beðinn um að nefna einn landsliðsmann í hand- boltalandsliðinu væri ólíklegt að hann myndi nefna Selfyssinginn Þóri Ólafsson. Þórir hefur þó farið á kost- um með íslenska landsliðinu á HM í Svíþjóð en það er aðeins hans annað stórmót og fyrsta heimsmeistaramót. Þórir hefur verið fastamaður í lands- liðshópi Guðmundar undanfarin tvö ár en var óheppinn af missa af brons- inu í Austurríki í fyrra vegna meiðsla. Þórir leikur með TUS-N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni og var gerður að fyrirliða liðsins árið 2009. Orðið sláni á ágætlega við Þóri sem hefur þó oft reynt að fita sig en án árangurs. Seinþroska á Selfossi Þórir Ólafsson er fæddur á Selfossi 28. nóvember 1979. Í dag býr hann í Lübbecke í Þýskalandi ásamt konu sinni, Margréti Elínu Ólafsdóttur, og fimm ára syni þeirra hjóna, Jasoni Degi. Þórir hóf handknattleiksferil sinn með Selfossi og þurfti snemma að fara að hugsa um að bæta tækni sína og útsjónarsemi því ekki gat hann stólað á líkamsburðina. „Hann var alltaf svo lítill og aumur í æsku að það var honum bara erfitt,“ seg- ir Einar Guðmundsson, fyrrverandi leikstjórnandi gullaldarliðs Selfoss, en hann þjálfaði Þóri upp alla yngri flokkana og svo aftur í meistara- flokki. „Þórir tók út sinn þroska mjög seint. Það var ekki fyrr en um tvítugs- aldurinn sem hann fór að taka gríð- arlegum framförum,“ segir Einar. Þórir lék ekki sinn fyrsta aðal- liðsleik fyrr en hann var orðinn tví- tugur sem þykir frekar seint. „Þór- ir hætti þarna um sautján eða átján ára aldurinn. Hann var búinn að gef- ast upp á þessu. Ég man eftir því að þegar aðrir leikmenn voru að taka níutíu kíló í bekkpressu var hann að taka fjörutíu. Drengurinn gat varla lyft hendinni,“ segir Einar sem viður- kennir að hann hefði ekki óraði fyrir hversu langt Þórir gæti náð. „Ég vissi alltaf að hann væri góð- ur en ég átti ekki von á þessu. Hann á enga unglingalandsliðsleiki. Ég meina, hann kom aldrei til greina. Hvert hann er kominn segir manni bara hvað er hægt að gera séu menn tilbúnir að leggja eitthvað á sig.“ Langir handleggir leyndarmálið Þórir hefur yfir að ráða afburðaskot- tækni en sleppi hann inn úr horn- inu eða sé hann fremstur í hraða- upphlaupi má nánast bóka íslenskt mark. Einar segir langa handleggi Þóris vera leyndarmálið auk auðvit- að mikilla æfinga. „Þórir er ekki nema 187 sentí- metrar held ég en hann er með svo gríðarlega langa handleggi. Þeir segja það markverðirnir að þegar þeir mæti honum haldi þeir oft að þeir séu að fara að verja en þá nær hann alltaf að þræða boltann fram- hjá þeim einhvern veginn. Það er þessi langi faðmur sem er leyndar- málið,“ segir Einar sem býst við að Þórir komi aftur heim á Selfoss þegar atvinnumannaferlinum lýkur. „Þórir er Selfyssingur. Konan hans er frá Selfossi og hér búa foreldrar hans og tengdaforeldrar. Þegar hann kemur heim mun hann koma aftur á Selfoss. Við erum líka búnir að ræða það saman,“ segir Einar og hlær. Fall var fararheill Þórir var fenginn til liðs við þáver- andi bikarmeistara Hauka úr Hafn- arfirði sumarið 2002. Hann varð fyrir því óláni að slíta krossband í ágústlok sama ár og missti af sínu fyrsta tímabili vegna meiðsla. Það ár urðu Haukar Íslandsmeistarar undir stjórn Viggós Sigurðssonar en það var aðeins byrjunin að frá- bæru gengi Haukaliðsins næstu tvö árin. Þórir kom sterkur inn í liðið 2003 og var hluti af Haukaliði sem gerði stórkostlega hluti í Meistara- deildinni, náði meðal annars jafn- tefli gegn Barcelona á útivelli. Þetta Haukalið innihélt leikmenn á borð við Ásgeir Örn Hallgrímsson, Vigni Svavarsson, Halldór Ingólfsson, Andra Stefan Guðrúnarson, Birki Ívar Guðmundsson og Robertas Pauzuolis. Var Þórir orðinn lykil- maður í hægra horninu og fall hans á fyrsta tímabili svo sannarlega far- arheill. Haukar urðu Íslandsmeistarar annað árið í röð 2004 og svo aftur 2005. Eftir það yfirgáfu helstu stjörn- ur Haukanna liðið fyrir atvinnu- mennskuna, þar á meðal Þórir sem samdi við þýska liðið TUS-N-Lübb- ecke. Pikkar upp alls kyns trikk Þórir hefur náð að festa sig í sessi hjá Lübbecke og er orðinn einn reynslu- mesti leikmaður liðsins. Fyrir þar- síðasta tímbil var hann gerður að fyrirliða. Lübbecke er sem stendur í tólfta sæti þýsku úrvalsdeildarinn- ar en Þórir hefur þó þurft að upplifa fall með liðinu. Fyrrverandi lands- liðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guð- mundsson spilaði bæði með Þóri hjá Haukum og Lübbecke en hann seg- ir helsta kost hornamannsins knáa vera tæknina. „Þórir er ofboðslega tæknileg- ur leikmaður og það er mikill bolti í honum, alveg sama hvaða íþrótt um er að ræða. Hann pikkar upp alla Messi og Ronaldinho-taktana í fót- boltanum og hin og þessi körfubolta- trikk. Þetta nýtist honum í handbolt- anum enda skorar hann oft mörg falleg mörk. Að mínu mati er hann besti hreinræktaði hornamaðurinn sem Ísland á í dag,“ segir Birkir en til sönnunnar því að Þórir skori falleg mörk var ótrúlegur snúningur hans á síðustu leiktíð framhjá Daniel Beutl- er, markverði Flensburg, valið mark ársins í þýska boltanum. „Þórir er bara að spila fyrir mjög gott lið í dag. En já, hann gæti allt eins verið að spila fyrir sterkara lið. Ég veit samt að hann er mjög sáttur þar sem hann er en í Lübbecke hefur hann skotið föstum rótum.“ Fyrsti landsleikur fyrir tíu árum Undanfarin tvö ár hefur Þórir átt fast sæti í íslenska landsliðinu. Þrátt fyr- ir að vera orðinn 31 eins árs er þetta í fyrsta skiptið sem hann er virki- lega að stimpla sig inn í landslið- ið. Hann var þó fyrst valinn í hóp- inn árið 2001 af Þorbirni Jenssyni og á hann nokkra leiki að baki fyrir alla landsliðsþjálfara undanfarinna tíu ára. Leikurinn gegn Noregi í gær var hans 58. á tíu árum. Þórir hefur farið á eitt stórmót áður, EM í Sviss árið 2006 þar sem Viggó Sigurðsson stýrði liðinu. Í fyrra átti Þórir að vera í lokahópi íslenska liðsins á EM í Austurríki en varð fyrir því óláni að meiðast rétt fyrir mótið. Missti hann því af bronsinu sem liðið vann eft- ir frækilegan sigur á Póllandi. Þórir átti þó gríðarlega stóran þátt í að lið- ið komst á mótið en hann lék hreint frábærlega í undankeppninni. Með- al annars skoraði hann jöfnunar- mark, fimm sekúndum fyrir leikslok, gegn Noregi ytra í undankeppninni en það stig var mjög mikilvægt. Getur ekki fitnað Þórir hefur alla tíð verið mjög grann- ur. Þegar hann spilaði fyrir Hauka var honum gert að fita sig og snæddi hann þá ruslfæði nánast í hvert mál og drakk rjóma. Fyrrverandi sam- starfsfélagi Þóris hjá Símanum lýsti matseðli dagsins svona: „Hann borð- aði hamborga, franskar og kók um tíu um morguninn. Í hádegismatn- um borðaði hann skammt sem ríf- lega hundrað kílóa karlmaður hefði ekki getað klárað. Seinnipartinn kom hann svo við í bakaríinu og auk þess drakk hann rjóma. Hann fitnaði samt ekkert á meðan við í kringum hann fitnuðum við það að heyra hann tala um mat.“ Birkir Ívar Guðmundsson, sem spilaði einnig með Þóri hjá Lübb- ecke, hafði sömu sögu að segja. „Þór- ir hefur alltaf átt í smávandræðum með að fitna. Hann hefur reynt að þyngjast síðan 2002 en það gengur ekki neitt. Í Þýskalandi lenti hann í því að rifbeinsbrotna. Fékk hann þá það verkefni hjá félaginu að þyngja sig. Hann át því steikur og drakk rjóma í öll mál í tvo mánuði. Það gekk nú ekki betur en svo að hann þyngdist um tvö kíló sem hann var sjálfur alveg gríðarlega ánægður með. Gallinn var þó sá að þessi tvö kíló voru fokin eftir tíu daga æfingar.“ Heldur sig til hlés Þórir verður seint sakaður um að berja sér mikið á brjóst en það fer afskap- lega lítið fyrir honum í íslenska hópn- um. Lætur hann frekar verkin tala inni á vellinum. Honum er af öllum lýst sem hlédrægum manni en góðum fé- laga. „Hann er yfirleitt bara mjög ró- legur og hefur aldrei verið að hafa sig neitt mikið í frammi. Fyrst og fremst er hann bara fagmaður inni á vellinum,“ segir Birkir Ívar. Þórir verður áfram í baráttunni með íslenska liðinu á HM en það hefur leik í milliriðli á laugar- daginn. Hefst nú alvara lífsins því nú taka við leikir gegn stórliðum Spánar, Þýskalands og Frakklands. Getur ekki fitnað NærmyNd Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Fyrirliðinn Þórir var gerður að fyrirliða Lübbecke 2009. Hlédrægur og seinþroska Þórir var lítill og aumur í æsku en hefur náð langt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.