Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 26.–29. september 20142 Fréttir Gefa bágstöddum mat á Facebook Íslendingar á samfélagsmiðlum koma bágstöddum samborgurum til aðstoðar U ng stúlka, undir 18 ára aldri, skráði sig inn í hóp­ inn Matargjafir á Face­ book í vikunni til þess eins að hjálpa samborgurum í neyð. Hún vann sér inn 10.000 krónur með aukavinnu og gaf helm­ inginn af upphæðinni inni í hópn­ um auk bleyja, brauðs, áleggs og mjólkur. Sagan er ekki einsdæmi því neyðin er svo sannarlega til staðar og hvunndagshetjurnar líka. Nú er búið að búa til matargjafa­ hópa fyrir alla landshluta á Face­ book en hóparnir sem um ræðir eru annars vegar fyrir þá sem eru í neyð og vantar aðstoð með til dæmis mat og bleyjur og hins vegar þá sem eru aflögufærir og til í að hjálpa. „Ég var meðlimur í hóp þar sem allt fékkst gefins. Eitt kvöldið sá ég auglýsingu frá konu sem sagðist hafa verið að taka til í eldhússkápnum sínum og var ekki að nota ýmislegt matarkyns og hún vildi gefa. Mér fannst þetta svo frábær hugmynd að ég fór að hugsa um allt kjötið sem ég átti í frystikistunni,“ segir Jóhanna Bjarndís Arapinowicz, einn af stofn­ endum og stjórnendum uppruna­ lega hópsins á Facebook. Síminn stoppaði ekki „Þetta var fyrir verslunar mannahelgi og ég var að bjóða fólki sem átti ekki mikið, og gat ekki farið í ferða­ lag þessa miklu helgi, að gleðja fjölskylduna með góðum mat. Ég var alls ekki viss um að einhver vildi kjötið og var satt best að segja hálfstressuð yfir því að hafa sett inn auglýs­ inguna,“ segir Jóhanna Bjarndís en ekki stóð á svörum. „Það varð allt vit­ laust. Ég passaði mig á því að skipta þessu á milli fólks sem var að spyrja um kjötið en það rauk út strax og næstu tvo sólarhringa fékk ég fyrir spurnir um kjötið, hvort eitt­ hvað væri eftir,“ segir Jóhanna Bjarndís sem veit að svona hvílir þungt á þeim sem leita sér aðstoðar. „Fólkið sem sótti kjötið var gráti næst. Margir sögðu mér frá ástandi sínu og það var grátlegt.“ Þann 31. júlí síðastliðinn settist Jóhanna Bjarndís fyrir framan tölv­ una og bjó til hópinn Matargjafir en hlutverk síðunnar var fyrst og fremst að leiða saman þá sem gefa mat og þá sem þiggja mat. Margir vilja hjálpa náunganum „Fólk getur auglýst aðstoð, tekið til í skápum og frystikistum og boðið, þiggjendur hafa síðan beint samband við þá. Marga langar að gefa til baka í samfélagið, hjálpa náunganum en vita ekki hvar eða hvert á leita,“ segir Jóhanna Bjarndís sem fékk fljótt eftir stofnun hópsins fyrirspurnir frá fólki sem vildi aðstoða hana. „Dásamlegar dömur höfðu sam­ band við mig og buðu mér aðstoð við síðuna, að hjálpa mér að fara yfir stöðuna og að allt sé á kurteisisnót­ um, eyða út gömlum auglýsingum og passa að aðgát sé höfð í nærveru sálar. Í dag erum við sex stjórnend­ ur síðunnar; ég, Lilja Guðmunds­ dóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Árdís Pétursdóttir, Álfheiður Þórsdóttir og ein sem vill vera nafnlaus.“ Hægt er að biðja um hjálp beint á vegg hópsins á Facebook en þó eru nokkrir sem hafa samband við stjórnendur síðunnar sem þá gerast milliliðir fólksins við þá sem vilja gefa mat. Senda út neyðarkall „Við söfnum á lista, sendum út neyðarkall í okkar nafni. Gefend­ ur hafa samband við okkur og færa okkur mat, margir fara út í búð og kaupa auka matarpoka. Við deilum á milli eftir fjölskyldustærð. Frá opnun síðunnar hafa yfir 60 manns fengið matar­ aðstoð og við höfum ekki tölu yfir þá sem hafa þegið aðstoð beint af síðunni. Við erum bundnar trúnaði okk­ ar á milli, við skráum allt og fylgjumst vel með,“ segir Jó­ hanna Bjarndís sem nú ann­ ar ekki eftirspurn. „Reyndar verða breytingar á þessum neyðarköllum okk­ ar því að við önnum ekki eftir spurn, við erum ekki með matarlager hjá okkur né stuðning frá fyrirtækjum, allt er fengið frá fólkinu sem er á Facebook.“ Jóhanna Bjarndís bendir fólki sem vantar aðstoð eða vill aðstoða að hafa nú sam­ band við matargjafahópa á sínu heimasvæði en búið er að stofna matargjafahóp fyrir Akureyri og nágrenni, Selfoss og nágrenni, Akranes og nágrenni, Vesturland, Ísafjörð og nágrenni og Suðurnes og nágrenni. „Fátækt er engin skömm og ég hvet alla sem vantar aðstoð að hafa samband.“ n Atli Már Gylfason atli@dv.is „Fólkið sem sótti kjötið var gráti næst. Margir sögðu mér frá ástandi sínu og það var grátlegt. Jóhanna Bjarndís Stofnaði hópinn Matargjafir á Facebook. Gefa mat á Facebook Hvunndagshetjur okkar Íslendinga gefa bágstöddum mat á Facebook. Hjálparhönd Fjölmargir Íslendingar hafa tekið höndum saman og gefa nú mat til bágstaddra á Facebook. Mótmæla bótatímanum Fjölskylduráð Hafnarfjarðarbæjar gerir alvarlegar athugasemdir við þær fyrirætlanir ríkisstjórnarinn­ ar að stytta hámarksbótatíma at­ vinnulauss fólks úr þremur árum í tvö og hálft ár. Kvarta ráðið und­ an því að ekkert samráð hafi ver­ ið gert við sveitarfélögin í landinu og segja fyrirvarann hafa verið lít­ inn sem engan. Beinn kostnaður sveitarfélags­ ins af þessum aðgerðum er áætl­ aður 57 milljónir á næsta ári. „Fjölskylduráð leggur því áherslu á að ríkisvaldið leggi til mótvægisaðgerðir vegna þessara aðgerða og fjármagni þær, m.a. í formi virkniúrræða fyrir þenn­ an hóp en að öðrum kosti dragi þessi áform til baka,“ segir í bók­ un fjölskylduráðs. Vita ekki hvaðan blysið kom Ekki liggur fyrir hvaða nemandi tók með sér neyðarblys í Brekku­ bæjarskóla á mánudag eða hvernig blysið endaði í kennslu­ stund í skólanum. Engin neyðar­ blys eru geymd í skólanum, en nemandi í fjórða bekk kveikti á einu slíku í miðri kennslustund með þeim afleiðingum að hann stórslasaðist. Faðir drengsins fullyrðir að blysið hafi ekki komið af heimili þeirra. Drengurinn hefur verið á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík og verður á sjúkrahúsi í nokkrar vikur að öllum líkind­ um. Brunasár hans eru mikil og hefur faðir hans rætt það opin­ berlega að hann eigi fyrir hönd­ um sér langt og strangt bataferli. „Bata eins góðan og hann get­ ur fengið. En örin verða mikil og ávallt til áminningar um at­ burðinn,“ segir faðir hans, Oddur Guðmundsson. Samnemendur drengsins hafa fengið áfallahjálp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.