Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 56
Helgarblað 26.–29. september 2014 75. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Lauflétt Ís- drottning? Baráttumaður kominn í skjól n Stjórnmálamaðurinn og vörubílstjórinn Sturla Jónsson hefur marga orrustuna háð. Sú nýjasta er við Íslandsbanka. Á dögunum greindi DV frá því að nauðungarsala hafi farið fram á heimili hans en hann mótmælir því af krafti. Sturla tilkynnti vin- um sínum á Facebook síðast- liðinn miðvikudag að hann væri þó kominn í skjól nú. „Jæja gott fólk nú er fjölskyld- an komin í skjól til 1. mars 2015. Var hjá sýslumanni í dag og fékk frest. Og vil ég þakka öllum þeim sem sýnt hafa hlýhug til fjölskyldunnar,“ skrifaði Sturla. Hringlótt dót breytir lífi n Það æði hefur gripið marga landsmenn að birta lista yfir þær tíu hljómplötur sem hafa haft hvað mest áhrif á tilveru þeirra. Bragi Valdimar Skúlason tók ekki þátt og benti heldur á þá hræsni sem felst í þessu æði í ljósi hruns í plötusölu. „Gam- an væri ef allir myndu næst gera lista yfir þær 10 plötur sem þeir keyptu sér síðast. Fyrir svokall- aða peninga,“ skrifað Bragi. Spurður um hvað plata væri skrif- aði hann: „Það er þetta hringlótta dót sem get- ur breytt lífi fólks minnst 10 sinn- um.“ Ekki ólétt n Tímaritið Séð og heyrt hefur átt sterka endurkomu eftir að Eiríkur Jónsson var ráðinn ritstjóri á ný á dögunum. Með honum fylgdi hans einstaka blaðamennska en á dögunum var sagt frá því að Ís- drottningin sjálf, Ásdís Rán, væri barnshafandi. „Fréttin hefur ekki fengist staðfest en heimildirnar eru traustar úr innsta hring,“ stóð í frétt miðilsins. Sá heimildarmaður var ekki traustari en það að Ásdís hafn- aði þessu samstundis á Facebook. „Kæru vinir ég er ekki ólétt, þetta er eitthvað voða sniðugt upp- átæki hjá Séð og heyrt og ef- laust partur af útrásinni hjá Mr. Eirík,“ skrifaði hún. V er ð b ir t m eð fy ri rv ar a u m p re n tv ill u r og g ild ir á m eð an b ir gð ir e n d as t. PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 42 86 4 ÚRVAL AF SNYRTI- OG HREINLÆTISVÖRUM Adidas Deep Energy og Ice Dive svitalyktareyðir Dove handsápa 2 í pk. Bead Head batasjampó/hárnæring Bead Head silkikrem fyrir hár OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN ICELAND, ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA 298 2998kr.stk. Batiste þurrsjampó 498kr.stk. WC pappír 12 rúllur 598 kr.kr. 398 stk.kr. 2998kr.stk. BLEIUTILBOÐ Nýttu tækifærið og nældu þér í Pampers bleiur á frábæru verði! PAMPERS ORIGINAL SIMPLY DRY BLEIUR 2098 kr. pk. LÆKKAÐ VERÐ! Vill komast til Íslands áður en hún deyr n Pippa elskar Sigur Rós n Safnar á Go Fund Me F oreldrar sjö ára stúlku safna nú á fé á vefsíðunni Go Fund Me með það að markmiði að fjöl- skyldan öll geti ferðast til Ís- lands meðan hún hefur heilsu til þess. Stúlkan heitir Pippa og sam- kvæmt söfnunarsíðu foreldra henn- ar berst hún við Lennox-Gastaut- heilkenni sem ku vera afar sjaldséð gerð flogaveiki. Heilkenni þetta veld- ur því að hvert flog hefur hrörnandi áhrif á heila sjúklingsins og getur valdið skyndidauða. Pippa er bund- in við hjólastól og vegna sjúkdómsins mun hún dragast aftur úr jafnöldrum sínum í þroska með hverju flogi. Að sögn foreldra Pippu má rekja ást hennar á Íslandi til hljómsveitar- innar Sigur Rósar. Hún fór ásamt for- eldrum sínum á tónleika hljómsveit- arinnar í Kansasborg árið 2013 og í kjölfar þess krafist hún að tónlist Sigur Rósar væri spiluð við hvert tækifæri. „Í mars árið 2014 fór Pippa í mjaðma- aðgerð í von um að geta einn daginn gengið. Eftir aðgerðina leið henni skiljanlega mjög illa og var í miklum sársauka. Einn daginn ákvað móð- ir hennar að sýna henni mynd Sigur Rósar, Heima. Kraftaverki líkast þá var það í fyrsta skipti frá aðgerðinni sem hún grét ekki á einhverjum tíma- punkti í tvo tíma,“ segir á söfnunarsíðu Pippu. Í ljósi þess ástfósturs sem Pippa hafði tekið við Ísland var haft sam- band við stofnunina Make-A-Wish, sem uppfyllir lokaóskir dauðvona barna, og óskað eftir ferð til Ísland fyr- ir Pippu. Þá kom í ljós að það var ekki hægt þar sem stofnunin hefur ekki deild á Íslandi. Heildarkostnaður við ferð Pippu er 25 þúsund dollarar og hefur nú náðst að safna tæplega níu þúsund dollurum. n hjalmar@dv.is Elskar Ísland Pippa tók ástfóstri við Ísland eftir að hafa hlustað á tónlist Sigur Rósar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.