Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 34
Helgarblað 26.–29. september 201434 Neytendur
Svona blekkja bíla-
framleiðendur þig
n Lítið að marka uppgefna eyðslu þegar þú ert kominn á götuna n Brellum beitt í prófum
B
ilið á milli raunverulegrar
eldsneytiseyðslu og út-
blásturs bifreiða og uppgef-
inna upplýsinga frá fram-
leiðendum fer vaxandi með
hverju ári. Þar sem kröfur um spar-
neytna bíla sem losa sem minnstu af
koldíoxíði eru sífellt að aukast meðal
neytenda þá er mikið undir hjá fram-
leiðendum að ná góðum niðurstöð-
um úr þar til gerðum prófum. Þrátt
fyrir að bílar séu alltaf að verða betri
og sparneytnari þá virðist samt sem
áður sem lítið sé að marka opinber-
ar tölur um eldsneytiseyðslu og út-
blástur bíla. Framleiðendur komast
upp með að beita allskyns brellum
til að fegra niðurstöðurnar fyrir bíl-
ana sína. Eftirliti með þessum prófum
er ábótavant en þau fara flest fram á
verksmiðjugólfinu hjá bílaframleið-
endum.
Til að mynda hefur munurinn á
uppgefnum útblæstri koldíoxíðs í nýj-
um bílum innan Evrópusambandsins
og því sem mælist þegar á götuna er
komið hækkað úr 8 prósentum árið
2001 í um og yfir 21 prósent árið 2011.
Staðlaðar mælingar sem bílafram-
leiðendur þurfa að gera á bílunum
eru að margra mati úreltar og enn
gæti verið nokkurra ára bið eftir nýj-
um mælingum. Bílaframleiðendur
hafa þar að auki lagst gegn því að hert
verði á þessum prófum og þau endur-
skoðuð.
Nýta sér gloppur
Áður en framleiðandi fær að selja
nýjan bíl innan Evrópusambands-
ins þarf hann að standast og fá svo-
kallaða EBE-gerðarviðurkenningu
(e.Type-Approval), sem veitt er vöru
sem stenst lágmarkskröfur eftir-
litsaðila um tækni og öryggi. Þessi
viðurkenning fer vanalega fram á
verksmiðjugólfinu hjá bílaframleið-
endum áður en þeir fara í almenna
sölu. Bent hefur verið á að gloppur
séu í þessu kerfi þar sem reglur gera
framleiðendum kleift að fá fleiri en
eina bifreið samþykkta í einu, ef um
er að ræða svipaða eða sambæri-
lega týpu. Þær bifreiðar þurfa þá ekki
einu sinni að gangast undir próf. Þessi
gloppa gerir framleiðendum kleift að
setja fram opinberar tölur, til dæmis
yfir það hversu marga kílómetra bif-
reiðin kemst á hverjum eldsneytis-
lítra, sem eru allt að 4 prósentum
hærri en á þeim bifreiðum sem voru
prófaðar.
Allir bílar sem seldir eru innan
Evrópusambandsins gangast
undir stöðluð próf sem mæla elds-
neytiseyðslu og útblástur skaðlegra
efna á borð við koldíoxíð. Þessi gögn
eru síðan notuð af eftirlitsaðilum,
stjórnvöldum, við að ákvarða það
skattþrep sem bifreiðin lendir í – bif-
reiðaskatta, vegagjöld og þessháttar –
og svo neytandanum sem vill fá upp-
lýsingar um hversu bensínþyrstur
eða umhverfisvænn bíllinn sem hann
hyggst kaupa er í raun og veru.
Neytendur blekktir
Um þessar blekkingar hefur reglulega
verið fjallað um í erlendum fjölmiðl-
um.
„Bilið á milli raunveruleikans og
uppgefinna upplýsinga fer vaxandi
með hverju ári,“ segir Greg Archer,
einn forsvarsmanna breska þrýsti-
hópsins Transport and Environment,
í samtali við BBC. Ástæðan er sú að
framleiðendur eru sífellt að finna
upp nýjar og útsmognari leiðir til að
blekkja í stöðluðum prófunum. „Um
er að ræða margs konar hagræðingu
sem gerð er og þegar allt er upp talið
þá munar svo sannarlega um það.“
Dæmi um þessar brellur má sjá
í aukaboxinu hér á síðunni. Í svartri
skýrslu sem Transport and En-
vironment vann í fyrra er fullyrt að
bílaframleiðendur séu að beita þess-
um brellum og þannig spila á kerfið.
Samkvæmt opinberum tölum,
sem fengnar eru úr þessum prófum,
þá lækkaði koldíoxíðútblástur bíla
innan Evrópusambandsins úr um
180g/km niður í tæplega 150g/km
á árunum 2001–2011. En þær tölur
ríma illa við það sem kalla mætti
raunverulegar mælingar í Þýska-
landi þar sem útblásturstölurnar
fóru úr 190g/km í 180g/km.
„Bílaframleiðendur eru að
blekkja neytendur með því að flagga
eldsneytissparnaðartölum sem þeir
vita að fólk mun aldrei ná með hefð-
bundinni notkun,“ segir Archer.
Verja núverandi kerfi
Undir þetta tekur Monique Goyens,
framkvæmdastjóri evrópsku neyt-
endasamtakanna BEUC. „Bíleigend-
ur eru að fá villandi upplýsingar um
hagkvæmni þess að kaupa nýja bíla
í dag. Sá eldsneytissparnaður sem
næst við prófanir í rannsóknarstof-
um skilar sér ekki í vasa neytenda.“
Þrátt fyrir harða gagnrýni á nú-
verandi prófanir þá hafa bílafram-
leiðendur og stjórnvöld komið nú-
verandi kerfi til varnar og segja það
veita neytendum yfirsýn yfir mis-
munandi hagkvæmni bifreiða sem
geri þeim aftur kleift að taka upp-
lýstar ákvarðanir.
Óásættanleg skekkja
„Þetta eru auðvitað bara svik og
svindl, ekkert annað,“ segir Stefán Ás-
grímsson, ritstjóri hjá Félagi íslenskra
bifreiðaeigenda (FÍB) sem fjallað hef-
ur um þessi mál að undanförnu.
Á vef FÍB hefur komið fram að
Evrópuráðið hafi komist að þeirri
niðurstöðu að opinberar tölur um
eldsneytiseyðslu bíla séu óásættan-
lega fjarri raunverulegri eyðslu bíl-
anna í daglegri notkun. Bílarnir séu
keyrðir á keflum á gólfi rannsóknar-
stofa þar sem líkt er eftir akstri í
þéttbýli og úti á vegum. Dæmi um
uppgefna eyðslu samkvæmt hinni
stöðluðu Evrópumælingu er að bíll
komist 24 kílómetra á hverjum elds-
neytislítra. En í raunveruleikanum
kemst sami bíll aðeins 17 kílómetra
á lítranum. Þá hafi rannsókn ESB frá
2013 leitt í ljós að losun natríumoxíð-
sambanda frá dísilfólksbílum geti
verið fjórum til fimm sinnum meiri í
daglegri notkun en staðlaða eyðslu-
og mengunarmælingin sýnir.
FÍB segir Evrópuráðið boða
breytingar á mælingunum og að til-
lagna þar að lútandi sé hugsanlega að
vænta um áramót.
Ekki treystandi
Eins og sjá má í yfirliti yfir algengar
brellur bílaframleiðenda er eitt lykil-
atriði sem gæti snert Íslendinga beint.
Það varðar hitastig í rannsóknarstof-
unum þar sem prófin fara fram. Þeir
eru prófaðir við óeðlilega hátt hita-
stig, til dæmis við 30 gráður, og er því
líklegt að bæði þessar brellur fram-
leiðenda við mælingar og ytri aðstæð-
ur hér á landi – á borð við kulda og
ástand vega – verði til þess að þessar
tölur séu enn ómarktækari á Íslandi.
„Það er afskaplega líklegt. Hér í
þéttbýlinu notum við bílana þannig
að þeir keyrðir kaldir – alltaf –, settir
í gang á morgnana þegar kannski er
frost og smurolían eins og síróp. Bíll-
inn er þungur fyrst svona kaldur og
eyðir þar af leiðandi alveg margfalt
meiru. Mig minnir að það sé talað um
að kaldur bíll eyði 50 prósentum meira
en heitur,“ segir Stefán í samtali við DV.
„Þetta segir mönnum að þeim
[bílaframleiðendum] sé ekki treystandi
til að gera þetta. Þeir eru bara að búa til
sitt auglýsingaefni. Það er meira en lík-
legt að þetta standist ekki og allra síst
hjá okkur hér á Íslandi.“
Úrelt próf og ónákvæm
Núverandi eyðslu- og mengunar-
mæling kallast New European Driv-
ing Cycle (NEDC) en gagnrýnendur
segja að sú mæling sé úrelt og með
öllu óviðunandi. Hún miðist meðal
annars við tíma þegar bílar voru létt-
ari og kraftlausari en þeir eru í dag.
Þá taki þær ekki með í reikninginn að
kveikt sé á ýmiss konar raf- og tækja-
búnaði sem nú er nánast orðinn
staðlaður í flestum bílum.
Ný eyðslu- og mengunarmæling
er sem fyrr segir í þróun og er búist
við að hún verði kynnt á næsta ári
eða þar næsta ári. Hún ber yfirskrift-
ina The World Light Duty Test Cycle
(WLTC) og er ætlað að bæta trúverð-
ugleika og áreiðanleika NEDC-kerf-
isins. Gagnsæi verður aukið og próf-
anir eiga að líkja betur eftir eðlilegum
akstursaðstæðum innan Evrópusam-
bandsins. Eru sérfræðingar innan
ESB, Japan og Indlands að vinna að
þessu kerfi sem ætlað er að verði al-
þjóðlegt og samræmt. Bílaiðnaður-
inn hefur hins vegar verið að þrýsta
á um að upptöku þessa nýja kerfis
verði frestað til ársins 2021. „Þetta
er vegna þess að erfiðara verður að
hagræða niðurstöðum þessa prófs í
sama mæli,“ fullyrðir Transport and
Environment í áðurnefndri skýrslu
sinni. n
„Þetta
eru
auðvitað bara
svik og svindl,
ekkert annað.
Brellur sem framleiðendur beita
Hér eru nokkur dæmi um algeng brögð
n Aftengja riðstraumsrafalinn (alternator)
þannig að engin orka fer í að endurhlaða
rafgeyminn.
n Nota sérstök smurefni til að draga úr núnings-
mótstöðu. Þessi sleipiefni eru síðan ekki notuð
í bílana þegar þeir fara í almenna sölu.
n Slökkva á öllum rafbúnaði eins og loftkælingu
og hljómtækjum.
n Bíllinn er strípaður niður og léttur eins og mögulegt er.
n Nota slétt dekk sem eru stútfyllt af lofti til að draga úr mótstöðu.
n Hagræða eða taka jafnvel bremsur úr sambandi til að draga úr núningi.
n Setja límbönd á allar rifur sem kunna að finnast á bílnum. Milli bíls og bílrúða, hurða,
vélarhlífar, bretta, skottloks, bretta og loftræstingarinntök og fleira til að draga úr
vindmótstöðu.
n Fjarlægja hliðarspegla.
n Gera prófanir við óeðlilega hlý og fullkomin skilyrði. Kaldur bíll eyðir meiru.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is Eyðslan allt
að 50% meiri
Sláandi niðurstöður í óháðri
rannsókn
Ítölsku neytendasamtökin Al-
troconsumo fengu á dögunum óháðan
aðila til að framkvæma mælingu á
eldsneytiseyðslu bíla samkvæmt NEDC
en um var að ræða fyrstu athugun sinn-
ar tegundar. Niðurstaðan var afleit fyrir
framleiðendur og afhjúpaði brellurnar
sem þeir beita við prófanir. FÍB segir frá
málinu á heimasíðu sinni.
Prófaðir voru Fiat Panda 1.2 og
Volkswagen Golf 1.6 TDI. Ef ekkert hafði
verið átt við bílana áður en mælingin fór
fram reyndist eyðslan vera 18–50 pró-
sentum umfram uppgefnar eyðslutölur
framleiðenda. Altroconsumo hyggst
nú aðstoða eigendur þessara bíla í
málaferlum gegn bílaframleiðendunum
þar sem þeir verða krafðir um endur-
greiðslu á ofgreiddum eldsneytiskostn-
aði vegna villandi upplýsingagjafar.
Í rannsókninni var einnig beitt þeim
brellum sem þekktar eru og tókst þá að
ná fram umtalsverðri lækkun á öllum
helstu gildum.
Svik og svindl Stefán Ásgrímsson hjá
FÍB segir að mjög líklegt sé að jafnvel enn
minna sé að marka uppgefnar eyðslutölur
bíla þegar þeir eru komnir til Íslands og þeim
ekið við íslenskar aðstæður.
Ómarktækt Bílaframleiðendur fram-
kvæma sjálfir stöðluð próf sem mæla
eldsneytiseyðslu og útblástur í eigin
verksmiðjum. Þeir beita ýmiss konar
brellum til að fegra útkomuna. Þessi
mynd tengist efni umfjöllunarinnar ekki
með beinum hætti. MyNd REutERS