Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 4
Helgarblað 26.–29. september 20144 Fréttir „Hef ekki sett mér nein mörk“ Skúli Mogensen ætlar að halda áfram að fjármagna WOW air þrátt fyrir 1.100 milljóna tap É g hef ekki sett mér nein mörk. Ég er bara mjög ánægður með hvernig tekist hefur til. Á með- an svo er þá held ég áfram,“ segir Skúli Mogensen, fram- kvæmdastjóri og eigandi flugfélags- ins WOW air, aðspurður um árs- reikning félagsins fyrir árið í fyrra og hversu lengi hann hyggist fjár- magna félagið á meðan það skilar ekki hagnaði. Rekstrarniðurstaðan var neikvæð um rúmlega 332 milljónir króna í fyrra en var tæplega 800 milljónir árið 2012. Skúli segir að heildartap WOW air sé því um 1.100 milljónir á síðustu tveimur árum. Hann segir að þess vegna sé hann ánægður vegna þess að tapið hafi minnkað svo mik- ið á milli ára. „Ef þetta væri að þróast í hina áttina þá væri ég augljóslega með talsverðar áhyggjur.“ Býst við 17 milljarða veltu Skúli segir að það verði að setja mál- efni félagsins í samhengi því um sé að ræða fyrsta flugfélagið sem stofnað er á Íslandi í yfir 30 ár og að þetta kalli á fjárfestingu. Hann segir tekjurnar hafi aukist mikið og býst við enn meiri tekjuhækkun á næsta ári. „Við erum að velta ein- hverjum 11 milljörðum á ári, áætl- um að stækka um 60 prósent á næsta ári og fara í einhverja 17 milljarða veltu, við erum skuldlaust félag, við erum fyrsta flugfélagið sem sett er á laggirnar á Íslandi í yfir 30 ár – það er segja flugfélag með raunverulegt flugrekstrarleyfi – og þetta kallar að sjálfsögðu á fjárfestingu. Það að fjár- festa milljarð í að setja svona á kopp- inn er í rauninni ekki mikið þó að vissulega séu þetta háar upphæðir.“ WOW er eina íslenska flugfélag- ið sem á í samkeppni við Icelanda- ir um flug til og frá Íslandi. Á sín- um tíma var Iceland Express eini samkeppnis aðili Icelandair en WOW keypti það félag eftir að það hafði átt erfitt uppdráttar. Fjármagnar félagið einn WOW air er sérstakt flugfélag að því leyti að Skúli Mogensen, eða fjár- festingarfélag í hans eigu, er eini hlut- hafi félagsins og hann fjármagnar fé- lagið með fjármunum frá sjálfum sér. Hann segist ekkert skulda í rekstri WOW air. „Ég skulda ekki krónu.“ Fé- lagið skuldar 2,6 milljarða króna en þar af eru rúmlega 1.500 milljónir sem eru fyrirfram innheimtar tekj- ur, sem kalla má skuld við viðskipta- vini vegna vörusölu, og rúmlega 300 milljóna króna skuld við Skúla sjálfan. Skuldir WOW eru því ekki við bankastofnanir heldur kemur rekstrar féð frá Skúla og svo auðvitað viðskiptavinum flugfélagsins. Þegar sagt er við Skúla að það hljóti að vera stór biti fyrir hann að fjármagna félagið einn svarar hann því til að það sé afstætt: „Það er allt afstætt […] Þriðji ársfjórðung- ur var mjög góður hjá okkur – sum- arið var metsumar – og ég býst við að skila mjög ásættanlegri afkomu á seinni hluta ársins. Þannig að ég er mjög sáttur við þessa fjárfestingu og á meðan svo er þá held ég að sjálf- sögðu áfram að fjármagna félagið eftir þörfum.“ Skúli segist aðspurður ekki getað áttað sig á því hver rekstrarniður- staða ársins í ár verði nákvæmlega. Ætla sér að vaxa hratt Þráspurður um hvort hann telji sig geta haldið áfram að fjármagna fé- lagið einn næstu tvö árin eða þrjú árin segir Skúli að það velti á því hversu hratt flugfélagið vaxi. Á næsta ári mun WOW hefja flug til Bandaríkjanna sem er áhættusöm ákvörðun sem bæði getur skilað afar góðum árangri eða afar slæmum. Hugsanlega mun framtíð WOW air velta á því hvernig Bandaríkjaflugið gengur. „Þetta fer allt eftir því hversu hratt við vöxum. Þetta eru auðvitað stórar upphæðir og við ætlum okkur að vaxa hratt. Það gæti kallað á frek- ari fjármögnun. Ég hef gefið það út að mér gæti fundist áhugavert að fá fleiri með mér í liðið en það er ekkert sem liggur fyrir í þeim efnum.“ Samtals hefur Skúli lagt 1,5 millj- arða króna inn í flugfélagið á síðustu tveimur. Hann segir að þetta sé sú heildarupphæð sem hann hafi lagt inn í WOW air frá stofnun félagsins en við bætast svo rekstrarlán upp á rúmlega 300 milljónir sem Skúli seg- ir að séu til að bjarga skammtíma- fjármögnun félagsins. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Á meðan svo er þá held ég áfram Ánægður með breytinguna Skúli Mogensen er ánægður með þá breytingu sem varð á rekstrarniður- stöðu WOW air á milli áranna 2012 og 2013 en tapið minnkaði um 500 milljónir króna. Grafarþögn um afdrif sendiherrans Engin svör frá kínverska sendiráðinu þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir E ngin svör fást frá kínverska sendiráðinu á Íslandi um afdrif fyrrverandi sendiherra Kína á Íslandi, Ma Jisheng. DV hefur sent ítrekaðar fyrirspurnir á sendi- ráðið og staðgengil sendiherrans á Íslandi, Chen Laiping, án árangurs. Kínverska utanríkisráðuneytið hefur ekkert viljað tjá sig um málið. Skyndilegt hvarf sendiherrans vakti athygli alþjóðlegra fjölmiðla í síðustu viku. Fullyrt var að hann og eiginkona hans, Zhong Yue, hefðu verið kölluð til Kína í byrjun ársins og handtekin af kínverskum ör- yggissveitum í febrúar síðastliðnum vegna gruns um njósnir fyrir japönsk stjórnvöld. Kínverska utanríkisráðu- neytið hefur ekki viljað staðfesta fregnirnar. DV greindi frá því þann 5. sept- ember síðastliðinn að ekkert hefði spurst til Ma síðan hann yfirgaf landið þann 23. janúar. Hjá kín- verska sendiráðinu fengust þær upp- lýsingar að spurningum DV varðandi málið yrði ekki svarað eða eins og rit- ari sendiráðsins sagði: „Ég er búinn að tala við fólkið sem stýrir svona löguðu og svarið er að þessu verður ekki svarað á þessum tímapunkti.“ Ma Jisheng fæddist árið 1957 í Kína og er með meistaragráðu í sagn- fræði. Hann hóf störf í kínversku ut- anríkisþjónustunni árið 1988, meðal annars sem sendifulltrúi í sendiráð- um Kína í Indónesíu og Japan. Hann tók við sem sendiherra Kína á Íslandi haustið 2012 og fór af landi brott í upphafi þessa árs. Íslenska utanrík- isráðuneytinu var tilkynnt um það í maí að hann myndi ekki snúa aftur. DV greindi frá því á þriðjudag að Zhang Weidong væri nýr sendiherra Kína á Íslandi. Boðað hef ur verið til sér stakr ar mót töku vegna skipunar hans í embætti í kínverska sendiráð- inu þann 1. október. Zhang starfaði áður sem sendiherra Kína í sam- bandsríkinu Míkrónesíu, en það er eyríki í Suður-Kyrrahafi, norðaustan við Papúu Nýju-Gíneu. n jonbjarki@dv.is Týndi sendiherrann Staðgengill kínverska sendiherrans á Íslandi hefur ekki svarað ítrek- uðum fyrirspurnum DV vegna málsins. Snarpar vindhviður Búast má við snörpum vind- hviðum á norðaustan- og aust- anverðu landinu í dag, föstudag, og fram eftir degi. Þær koma í kjölfar snarpra vindhviða við fjöll syðst á landinu á fimmtu- dagskvöld og fram á nótt. Veður stofan greinir frá. Þar er varað við því að gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni berist helst til austurs og suðausturs á föstudag. Ítarlegri veðurspá er að finna á síðu 51 í blaðinu. Vita ekkert um Christian Þýski ferðamaðurinn, Christian Mat hi as Markus, er enn ófund- inn. Engar vísbendingar hafa borist til lögreglu um afdrif hans, en leit hefur staðið yfir undan- farna daga við Látrabjarg. Á fimmtudag lá formleg leit niðri vegna aftakaveðurs á svæðinu og ekki var hægt að tryggja ör- yggi leitarmanna. Maðurinn er fæddur 11. október 1980. Hann var á ferðalagi hér á landi, en fjölskylda hans fór að óttast um hann á laugardaginn fyrir tæpri viku og hafði samband við lög- regluna. Bifreið hans fannst við Látrabjarg á miðvikudag, en Christian sást fara frá hóteli í Breiðavík í Vestur byggð þann 18. september. Til hans hefur ekki spurst síðan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.