Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 22
22 Skrýtið Sakamál Helgarblað 26.–29. september 2014 færð upp í sveit n Glænýjar borgir risu í Nígeríu og Brasilíu n Eyrarbakki eða Illviðrahnjúkar ný höfuðborg Íslands? A lþingi kemur saman í Nýja Alþingishúsinu í miðbæ Eyrarbakka, gríðarstórri byggingu sem færustu arki- tektar landsins hönnuðu. Ný stórhýsi eru allt í kring þar sem ráðu- neyti og aðrar ríkisstofnanir eru með skrifstofur. Í úthverfum, sem teygja sig í kringum Litla-Hraun og nærliggjandi sveitir, búa ríkisstarfsmenn og fjöl- skyldur þeirra. Íbúarnir gróðursetja tré og vona að þessi nýja borg verði einn daginn grónari og glæsilegri en gamla höfuðborgin Reykjavík. Þekkt fyrirbæri Reykjavík varð höfuðborg Íslands vegna fléttu sögunnar eins og flestar höfuðborgir heimsins. Og það er kannski ekki meitlað í steininn að hún verði höfuðborg um aldur og ævi. Hvað ef önnur byggð á landinu yrði gerð að höfuðborg í staðinn? Ráða- menn myndu gera það til „að draga úr of miklu vægi borgarinnar“ og „styrkja landsbyggðina“. Þetta hljómar auðvitað út í hött í íslensku samhengi enda hefur þetta aldrei verið rætt af neinni alvöru. Víða í heiminum hafa höfuðborgir þó verið fluttar eða nýjar byggðar frá grunni. Brasilíumenn, Kasakar, Nígeríumenn og Mjanmarar hafa allir farið þessa leið. Argentínumenn gætu verið næstir því Cristina Fernández de Kirchner, forseti Argentínu, hefur nýlega lýst yfir stuðningi við hugmyndir manna um að svipta Buenos Aires höfuð- borgartitlinum og gera Santiago del Estero, lítt þekkta og fámenna borg í miðju landsins, að höfuðstað. Stjórn- málaskýrendur telja þó ólíklegt að af þeim áformum verði enda er gríðar- lega kostnaðarsamt að flytja allar ríkis stofnanir yfir himin og haf og lít- ill raunverulegur pólitískur vilji fyrir slíku. Glæný borg herforingja Landið Mjanmar í Suðaustur-Asíu, sem áður hét Búrma, var undir stjórn herforingja í marga áratugi þar til boð- að var til kosninga árið 2011 og lýð- ræðisleg stjórn tók við. Herforingjastjórnin greip til óvæntra aðgerða árið 2005 þegar ákveðið var að stofna nýja höfuðborg í innsveitum landsins. Allar ríkis- stofnanir voru fluttar frá gömlu höfuð- borginni Rangoon í glænýja borg sem byggð var frá grunni. Hún heit- ir Naypyidaw. Talið er að herforingj- arnir, sem hafa verið sakaðir um fjöl- mörg mannréttindabrot, hafi viljað færa höfuðborgina af ótta við innrás- ir í Rangoon, sem liggur við hafið, og byggja upp nýja borg sem auðveldara væri að verja í miðju landsins. Bandarísk fyrirtæki reistu borg Nígería er fjölmennasta ríki Afríku, telur um 175 milljónir manna, sem tilheyra ólíkum þjóðarbrotum. Þess vegna var ákveðið að færa höfuðstað- inn frá stórborginni Lagos upp úr 1980 til miðju landsins, en með því þótti ekki halla á neina einstaka þjóð. Bandarísk fyrirtæki voru fengin til að hanna hina nýju borg, Abuja, sem varð opinber höfuðborg Nígeríu í des- ember 1991. Pýramídinn í Kasakstan Árið 1997 var Astana gerð að höfuð- borg Mið-Asíu-ríkisins Kasakstan. Höfuðstaðurinn var fluttur frá Almaty, borg í suðurhluta landsins, inn í miðju landsins, eins og gildir um svo margar borgir sem hér eru nefndar. Astana liggur á steppu þar sem fimbulkuldi ríkir á veturna og miklir hitar verða á sumrin. Eitt helsta kennileiti borgarinn- ar er 30 þúsunda fermetra pýramídi sem breski arkitektinn Sir Norman Fo- ster hannaði og nefnist Höll friðar og sáttar. Lagt hefur verið til að nafni borg- arinnar (nafn Astana þýðir ein- faldlega „höfuðborg“) verði breytt í „ Nursultan“ til heiður Nursultan Nazarbayev forseta Kasakstan. Ættum við kannski að breyta nafni Reykjavíkur í „Ólafur Ragnar“? Móderníska borgin á sléttunni Höfuðborg Brasilíu, sem heitir ein- faldlega Brasília á portúgölsku, er ólík flestum höfuðborgum heimsins því hún var byggð frá grunni á tuttugustu öld. Juscelino Kubitschek forseti fyrir- skipaði byggingu hennar á sjötta ára- tugnum. Forsetinn vísaði í ákvæði í stjórnarskrá landsins sem lagði þá kröfu á stjórnvöld að þau færðu höfuð- borgina frá Rio de Janeiro inn í miðju landsins til að gæta jafnræðis á meðal fylkja hins víðáttumikla ríkis Brasilíu. Borgarstæðið sem valið var fyrir nýju höfuðborgina liggur á hárri sléttu, sem nefnist Planalto Central (Miðhá- sléttan), í miðvesturhluta landsins. Þar var nánast ekkert þegar bygging borgarinnar hófst. Byggð á örfáum árum Skipulagsfræðingurinn Lúcio Costa vann samkeppni um hönnun borg- arinnar, sem 5.550 manns tóku þátt í, og hann réð vin sinn Oscar Niemeyer sem aðalarkitekt. Þeir skráðu nöfn sín á spjöld sögunnar í sögu borgar- skipulags og arkitektúrs enda var þetta eitt stærsta verkefni tuttugustu aldar- innar á þeim sviðum. Brasília var byggð á 41 mánuði, frá 1956 til 1960. Íbúar borgarinnar eru í dag um þrjár milljónir talsins. Það er auðvit- að ekki mikið í samanburði við stærstu borgir landsins, São Paulo (20 milljón- ir) og Rio de Janeiro (11 milljónir). Eyrarbakki eða Illviðruhnjúkar? Eyrarbakki varð fyrir valinu í hinni ímynduðu sviðsmynd í inngangs- orðunum vegna þess að á síðari hluta nítjándu aldar var þar eitt blómleg- asta þorp landsins og mikilvægur verslunar staður. Á þeim árum þótti mörgum að Eyrarbakki væri því mjög álitlegur sem framtíðarhöfuðborg Ís- lands. Ísafjörður, Akureyri, Seyðisfjörður eru kannski líka góðir kostir? Kannski væri best að reisa nýja höfuðborg á hálendinu í landfræðilegri miðju Ís- lands en hún er rétt norðan Hofsjök- uls. Reyndar eru veðurskilyrði ekki al- veg nógu ákjósanleg þar. Miðja Íslands er við svokallaða Illviðrahnjúka í um 800 metra hæð yfir sjó. Skiltið „Welcome to Bad Weather Peaks, Iceland's new capital“ myndi blasa við ferðamönnum. n Höfuðborgin Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is Glæný borg Forsetahöllin og stjórnsýslubyggingar í Astana, höfuðborg Kasakstan, sem reist var á áratugnum. MYND: MarIusz KluzNIaK Höfuðborg Brasilíu í byggingu Praça dos Três Poderes (Torg þrískiptingar valdsins). Nafnið vísar til þess að máttarstólparnir þrír í brasilíska ríkinu mætast við torgið; skrifstofur forsetans (framkvæmdavaldið), þinghúsið (löggjafarvaldið) og hæstiréttur (dómsvaldið). loftMYND EftIr MarcEl GautHErot frá 1960. Klikkuð byggðastefna Sveitalegt er um að litast í Naypyidaw, nýrri höfuðborg Mjanmar, en hún var byggð frá grunni í frumskóginum þar sem moskítóflugur herja á ríkisstarfsmenn sem búa í þessum íbúðablokkum. Illviðrahnjúkar Miðja Íslands í um 800 metra hæð yfir sjávarmáli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.