Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 18
Helgarblað 26.–29. september 201418 Fréttir Viðtal É g hef verið stoppaður og fældur frá og ritskoðaður af þeim sem eru í þjónustu hinna mjög svo valdamiklu,“ segir John Pilger, 75 ára rannsóknarblaðamaður, í ítarlegu viðtali við DV. Pilger er ein- hver þekktasti rannsóknarblaðamað- ur heims, hefur starfað sem stríðs- fréttaritari í Víetnam, Kambódíu, Egyptalandi, Indlandi, Bangladesh og Bíafra sem var, og gert meira en fimm- tíu heimildamyndir á ferli sínum. Hann hefur áratugum saman haldið uppi harðri gagnrýni á heimsvalda- stefnu Bandaríkjanna og Bretlands. Þá hafa vinnubrögð hinna hefðbundnu fjölmiðla einnig verið leiðarstef í verk- um hans. Hann er mikill stuðnings- maður WikiLeaks-samtakanna, hefur lýst þeim sem „sjaldséðum boðbera sannleikans“, og sagt árásirnar á Julian Assange skammarlegar. Heimildamyndin Year Zero: The Silent Death of Cambodia (1979) er með hans þekktari verkum. Myndin fjallar um eftirleik og af- leiðingar hinna leynilegu loftárása Bandaríkjanna á Kambódíu en Pil- ger var á dauðalista hinna alræmdu Rauðu kmera á meðan hann dvaldi í landinu. Year Zero hefur verið lýst sem einni af tíu áhrifamestu heim- ildamyndum 20. aldarinnar. Pilger er væntanlegur til landsins í næstu viku í tilefni af sýningu heimildamyndar hans, Dulið stríð [e. The War You Don't See] (2010), á Alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Reykjavík, RIFF. Það er Miðstöð rannsóknarblaða- mennsku á Íslandi sem stendur að komu hans til landsins í samvinnu við RIFF, en þemað á hátíðinni í ár er stríð og friður. Blaðamaður DV fékk tæki- færi til þess að ræða við Pilger. Minnir á þvættinginn fyrir Íraksstríðið Ef við byrjum á heimildamyndinni þinni, Dulið stríð, sem er á dagskrá RIFF. Í fyrsta lagi: Hvaða stríð er þetta sem við sjáum ekki? Og það sem er kannski mikilvægara: Hvers vegna sjáum við það ekki? „Hið dulda stríð sem almenning- ur sér ekki er sannleikurinn. Ég er ný- búinn að lesa umfjöllun bresku blað- anna um loftárásir Obama forseta á Írak og Sýrland. Næstum án undan- tekninga er ekki um blaðamennsku að ræða; þetta er fréttatilkynning Hvíta hússins í ýmsu formi. Og þetta minnir á þvættinginn sem var dreift fyrir inn- rásina í Írak árið 2003. Þetta er eins og gömul teiknimyndasaga. Hér eru útvegaðar sömu Pentagon-myndirn- ar af „stjórnstöðvum“ ISIL [Íslamska ríkið Írak og Levant]. Hérna stendur byggingin; og hér er hún eyðilögð með sprengjum. Je minn!“ Fantasía Bandaríkjanna Pilger segist sífellt verða vitni að því hvernig sagan endurtekur sig. „Á mínum ferli hefur ekkert breyst; lygin er í grundvallaratriðum sú sama. Norður-Víetnamar áttu að hafa ver- ið með „stjórnstöð“ inni í Kambódíu seint á sjöunda áratugnum. Heim- inum var gert að ímynda sér lítið Pentagon í frumskóginum – þetta var réttlætingin fyrir loftárásum Banda- ríkjanna á Kambódíu þar sem 600 þúsund varnarlausir smábænd- ur voru drepnir, samkvæmt finnsku rannsóknarnefndinni. Það var engin „stjórnstöð“ í frumskóginum. Þetta var hugarburður. Ást Bandaríkjanna á loftárásum er að mestu byggð á fantasíu. Eina leiðin til þess að eiga við ISIL er að virka ekki eins og ráðningarskrif- stofa þeirra – en það gera loftárásir, sem og upplogin móðursýkisköst vest- rænna blaðamanna. ISIL er afurð, nánast sköpunarverk, fyrri íhlutun- ar Vesturlanda í Mið-Austurlöndum. Lausnin? Til að byrja með væri skyn- samlegt að styðja við Sýrland. Menn þurfa ekki að elska stjórnvöld. Núna er staðan sú að þeir einu sem mæta ISIL eru „opinberir óvinir“ Vesturlanda. Það er sannleikurinn sem þú sérð ekki.“ „Þá er ekkert val“ Heimildamyndin skorar stóru fjöl- miðlana á hólm fyrir hlutverk þeirra í átökunum í Írak, Afganistan og Ísrael/ Palestínu. Við sjáum mynstur þar sem „upplýsingavél“ hersins tekst sí- endurtekið að fæða virta fjölmiðla á borð við BBC og The New York Times á áróðri sem miðar að því einu að smyrja stríðshjólin. Á meðan stóru miðlarnir bergmáluðu lygar Colins Powell um gjöreyðingarvopn Sadd- ams Hussein, fékk sjálfstæð rann- sóknarblaðamennska þar sem bent var á staðreyndirnar (að það væru engin gjöreyðingarvopn) sama og enga birtingu í þessum sömu miðl- um. Í myndinni sjáum við hvern- ig slík vinnubrögð eru regla frekar undantekning. Hver heldur þú að sé ástæðan fyrir því? „Vestrænir fjölmiðlar eru fram- lenging vestrænna ríkja, Vesturveld- anna. Þannig hefur það alltaf verið. Bestu blaðamennirnir eru heiðvirð undantekning á þessari reglu, sumir þeirra að störfum innan kerfisins. Þegar þú ert orðinn hluti af BBC, sem dæmi, þá er ekkert val: þú notar tungumál ríkisáróðursins og þú rit- skoðar með aðgerðaleysi; enginn seg- ir þér til; þú værir ekki í starfinu ef þú vissir ekki hvað ætti að gera.“ Upplýsingastríðið Í myndinni er til að mynda greint frá því hvernig rúmlega 700 blaðamenn „Hið dulda stríð er sannleikurinn“ n John Pilger segir ráðandi fjölmiðla dreifa fréttatilkynningum Hvíta hússins gagnrýnislaust „Eitt er að þetta opnaði augun mín og gerði það að verkum að ég vildi segja frá „hinni hliðinni“ – sannleikanum Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is „Þegar þú ert orðinn hluti af BBC, sem dæmi, þá er ekkert val: þú notar tungumál ríkisáróðursins og þú ritskoðar með að- gerðaleysi; enginn seg- ir þér til; þú værir ekki í starfinu ef þú vissir ekki hvað ætti að gera. Púkar Pilger segir „púka“ á borð við þá sem skipa Íslamska ríkið geta þakkað Vest- urlöndum fyrir völd sín. Þau muni aukast meðan loftárásum verði haldið áfram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.