Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 17
Helgarblað 26.–29. september 2014 Fréttir 17 G ísli Freyr Valdórsson, fyrr- verandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur innanríkisráðherra, telur lögregluna ekki hafa rannsakað málsatvik í lekamálinu til hlítar og litið fram hjá mikilvægum atriðum. Eins og áður hefur komið fram var lögreglan undir stöðugum þrýstingi og tímapressu frá ráðherra lögreglumála meðan rannsókn- in stóð yfir. Hefur Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóri, lýst því fyrir umboðsmanni Alþingis hvern- ig það setti lögregluna í „svolítið erf- iða stöðu að vera að reyna að hraða henni [rannsókninni] sérstaklega“ vegna óska og afskipta innanrík- isráðherra. Skoða verður gagnrýni Gísla Freys á rannsóknina í þessu ljósi. Sé gagnrýnin á rökum reist vaknar sú spurning hvort annmarka rannsóknarinnar megi rekja til ítrekaðra afskipta ráðherra af henni. „Óhjákvæmilegt annað“ Samkvæmt heimildum DV gætti Stefán Eiríksson þess eins og kostur var að afskipti Hönnu Birnu spilltu ekki rannsókninni og þrýstingur ráðherrans næði ekki niður til undir- manna hans. Þegar yfirheyrslum yfir Gísla Frey var flýtt að kröfu innan- ríkisráðherra varð þó ekki hjá því komist að fleiri fréttu af afskiptum ráðherrans. „Það var óhjákvæmilegt annað heldur en að fleiri fengju þá vitneskju um að það væri verið að gera athugasemdir við einhver at- riði í málinu,“ sagði Stefán í viðtalinu við umboðsmann sem birtist í þriðja bréfi embættisins til ráðherra. Gísli Freyr telur lögreglu og ákæruvaldið hafa markvisst rann- sakað og dregið fram það sem telja megi honum í óhag á sama tíma og litið hafi verið fram hjá atriðum sem hagfelldari voru honum. Þannig hafi lögregla til að mynda ekki rann- sakað ferðir ræstingafólks, öryggis- varða og annarra inn og út úr inn- anríkisráðuneytinu dagana 19. og 20. nóvember í fyrra né hafi lögregla rannsakað sérstaklega hver skoðaði samantektina um hælisleitendurna klukkan 05.39 aðfaranótt 20. nóv- ember. Taka ber fram að þá þegar hafði Fréttablaðið farið í prentun með upplýsingum úr samantektinni á forsíðu. Á skjön við ummæli ráðherra Gagnrýni Gísla Freys á rannsókn málsins gengur í berhögg við orð Hönnu Birnu sjálfrar sem hefur oft- ar en einu sinni sagt að rannsókn málsins hafa verið ítarleg og fullnægj- andi. „Ástæða er til að nefna að þegar þessari umfangsmiklu rannsókn lauk kom fram að allt það sem hægt var að gera til að rannsaka umræddan at- burð hafði verið gert,“ sagði hún til að mynda í þriðja svarbréfi sínu við fyrir- spurn umboðsmanns Alþingis. „Sú afstaða er síðar staðfest með afgerandi hætti þegar R [ríkissak- sóknari] ákveður að gefa út ákæru á hendur aðstoðarmanni mínum á grundvelli rannsóknarinnar í stað þess að óska eftir frekari rannsókn áður en sú ákvörðun yrði tekin, eins og R hefði getað gert ef embættið hefði talið að einhver óeðlileg áhrif hefðu verið höfð á framgang rann- sóknarinnar.“ Í samtali við Kastljós í lok ágúst sagði hún enn fremur: „Rannsóknin tók átta mánuði og það var farið inn í alla þætti er tengjast starfsemi ráðuneytisins.“ Gísli Freyr er ósammála þessu. Hann telur lög- regluna hafa „lítið skeytt um veiga- mikil atriði sem renna stoðum undir sakleysi ákærða“ og látið undir höfuð leggjast að rannsaka ýmis atriði. Í klemmu Hanna Birna hefur ítrekað sagt að hún hafi lagt allt kapp á að flýta fyr- ir framgangi rannsóknarinnar enda hafi málið reynst henni og ráðu- neytinu erfitt. „Ég var vel meðvituð um skyldur mínar og annarra starfs- manna ráðuneytisins til að greiða fyrir framgangi rannsóknarinn- ar, bæði í þágu hagsmuna af því að upplýsa málið en einnig í því skyni að ljúka mætti þessu inngripi í starf- semi ráðuneytisins á sem skemmst- um tíma. Liggur fyrir að ég gerði allt sem í mínu valdi stóð til að stuðla að þessu,“ sagði hún í bréfinu til um- boðsmanns. Gísli Freyr er í erfiðri stöðu gagn- vart Hönnu Birnu. Það gagnast hon- um, og getur rennt stoðum undir frávísun eða sýknu, að sýna fram á annmarka í rannsókninni. Slíkt getur hins vegar bitnað á ráðherranum og vakið upp grunsemdir um að ítrekuð og margstaðfest afskipti hennar hafi beinlínis spillt framgangi málsins. n Vekur upp spurningar um afskipti ráðherra n Gísli Freyr segir rannsókn ábótavant n Erfið staða vegna tímapressu „Sé gagnrýnin á rökum reist vakn- ar sú spurning hvort ann- marka rannsóknarinnar megi rekja til ítrekaðra af- skipta ráðherra af henni. Jóhann Páll Jóhannsson johannp@dv.is Sakborningur ósáttur Telur rannsókn leka- málsins háða annmörkum. Mynd Sigtryggur Ari rannsókn fullnægjandi Hanna Birna seg- ir rannsóknina hafa farið eðlilega fram þrátt fyrir afskiptin sem Stefán Eiríksson hefur lýst. Óvænt lækkun neysluverðs Verðbólga ekki minni síðan 2011 Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,12 prósent í september. Þessi lækkun kemur nokkuð á óvart, að mati Greiningar Ís- landsbanka sem fjallaði um málið á vef sínum á fimmtu- dag. Helstu ástæður þess að vísitalan lækkaði er metlækk- un á flugfargjöldum til útlanda ásamt óvenju vægum áhrifum útsöluloka. Spár bentu til þess að vísitalan myndi hækka um 0,2 til 0,3 prósent. Þessar tölur gera það að verkum að tólf mánaða taktur verðbólgu lækkar úr 2,2 pró- sentum í ágúst í 1,8 prósent í september. Hefur verðbólga ekki verið minni síðan í janúar 2011. Verðbólga án húsnæðis mælist nú 0,4 prósent og hefur ekki verið minni síðan í ágúst 2005. Verðbólga nú er því fyrst og fremst drifin áfram af um- talsverðri hækkun húsnæðis- verðs, að sögn Greiningar Ís- landsbanka. Sem fyrr segir lækkaði flug- liður vísitölunnar verulega í september, eða um fjórðung, og það þrátt fyrir 13 prósenta hækkun á flugfargjöldum inn- anlands. Ástæðan fyrir þessari lækkun er metlækkun flugfar- gjalda til útlanda en þau lækk- uðu um tæp 29 prósent í sept- ember. „Grundvallarbreyting varð á útreikningi þessa liðar á fyrri hluta þessa árs, og því eru nýjustu tölur ekki saman- burðarhæfar við þróunina á undanförnum árum. Þó er ljóst að hér er um árstíðasveiflu að ræða að stórum hluta, þar sem háannatími ferðaþjónustu er að baki. Einnig hefur eldsneytis- verð á heimsmarkaði lækkað nokkuð. Við teljum því ólíklegt að þessi lækkun gangi að fullu til baka í októbermælingu VNV, þótt við sjáum líklega talsverða hækkun í liðnum þá,“ segir í umfjöllun Greiningar. Loks er fjallað um verðbólgu- horfur og eru þær svipaðar og fyrr. Þó hefur eldsneytisverð lækkað um tæpt prósent frá septembermælingu Hagstof- unnar, sem hefur að óbreyttu áhrif til um það bil 0,03 pró- senta lækkun vísitölunnar næst. „Einnig hafa nokkrar raftækja- verslanir tilkynnt að forskot verði tekið á verðlækkun vegna afnáms almennra vörugjalda um áramót, sem gæti haft lækk- unaráhrif á VNV í október. Á móti má búast við töluverðri hækkun á flugi í mælingu næsta mánaðar eftir mikla lækkun nú. Bráðabirgðaspá okkar ger- ir ráð fyrir að vísitala neyslu- verðs hækki um 0,2 prósent í október, 0,2 prósent í nóvember og 0,3 prósent í desember. Verð- bólga verður samkvæmt spánni 1,6 prósent í árslok og hefur þá ekki verið minni síðan í júlí 2003,“ segir að lokum í umfjöll- un bankans. „Grundvallar- breyting varð á útreikningi þessa liðar á fyrri hluta þessa árs. Rómantíkin úti á landi Vill veita fólki á landsbyggð afslátt af námslánum S igurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðar-, sjávarútvegs- og byggðamálaráðherra, vill skoða möguleikana á því að veita fólki afslætti á námslánum um tíma kjósi það að búa úti á landi. Þetta kom fram í máli ráðherr- ans á ráðstefnu um byggðamál á Patreksfirði um liðna helgi en henni eru gerð skil í Akureyri Vikublaði. Fyrirspyrjandi á ráðstefnunni spurði Sigurð Inga hvort ráðherra teldi koma til greina að hjálpa fólki sem kýs búsetu úti á landi með skattaafslætti eða námslánaí- vilnun. Sigurður Ingi sagði fulla ástæðu til að skoða reynslu Norð- manna af því að veita fólki afslætti á námslánum um tíma. „Við munum skoða þetta. Það er skynsamlegt að leita leiða til að fá ungt fólk út á land svo það uppgötvi hvað það er rómantískt að búa þar,“ hefur Akur- eyri Vikublað eftir Sigurði Inga á ráðstefnunni. Þá sagði Sigurður Ingi að þeir sem búi á landsbyggðinni séu barð- ir niður og nefndi í því samhengi að fjölmiðlamenn búi langflestir á höfuð borgarsvæðinu og sýni því ekki áhuga að birta fréttir um vís- indarannsóknir sem sýni fram á mikilvægi landsbyggðarinnar og framlag hennar til landsframleiðslu og almannasjóða. Þá sagði Sigurður Ingi að þeir sem verji landsbyggðina fái „einn á lúðurinn“. Fluttar hafa verið fréttir af til- boði Sigurðar Inga til starfsmanna Fiskistofu vegna flutninga hennar til Akureyrar. Starfsmönnum henn- ar stendur til boða þriggja millj- óna króna styrkur fyrir að flytja með Fiskistofu til Akureyrar. Þiggi starfsmennirnir styrkinn þurfa þeir að skuldbinda sig til að vinna á Akureyri í tvö ár. Hætti þeir fyrr þurfa þeir að endurgreiða styrk- inn í hlutfalli við þann tíma sem þeir gegndu starfinu á Akureyri. Þá stendur þeim starfsmönnum sem ákveða að flytja til boða að fljúga norður með fjölskyldu sinni til að skoða húsnæði og kynna sér að- stæður á kostnað Fiskistofu. n birgir@dv.is Skoðar málið Sigurður Ingi er opinn fyrir nýstárlegum hugmyndum í byggðamálum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.