Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 32
Helgarblað 26.–29. september 201432 Fólk Viðtal Grínið er kannski skörpustu gleraugun M örgum Íslendingum líður eflaust eins og þeir þekki Sigga Sigurjóns persónu- lega. Hann hefur ver- ið einn allra vinsælasti grínleikari þjóðarinnar í um þrjá og hálfan áratug og verið fastagestur á sjónvarpsskjáum landsmanna í Spaugstofunni. Hann er eins og fyndni frændinn eða gamall fjöl- skylduvinur. Þess vegna vissi ég eigin lega ekki hvort ég ætti að taka utan um hann eða taka í höndina á honum þegar ég heimsótti hann til að ræða um nýju kvikmyndina hans, Afinn, sem var frumsýnd 25. septem- ber. Þegar hann gengur á móti mér alskeggjaður (þessa dagana leikur hann bónda í Hrútum, nýrri kvik- mynd eftir Grím Hákonarson) geri ég mér grein fyrir að ég veit ósköp lítið um þennan kunnuglega mann. Í mínum huga er hann Kristján „heiti ég“ Ólafsson, Ragnar Reykás, gamal- mennið Sigfinnur, Dolli, Grani, Einar í Landi og sonum, Úlfar fulli kominn í Bíódögum og svo framvegis og svo framvegis. Reyndar er ég ekki einu sinni viss hvert formlegt skírnar- nafn hans er – fyrir mér heitir hann bara Siggi. Hann tekur hlýlega en varfærnislega á móti mér á vinnu- stofunni þar sem hann undirbýr nú ýmis verkefni með félögum sínum úr Spaugstofunni, Erni Árnasyni og Karli Ágústi Úlfssyni. Þegar hann skreppur frá til að ljúka einu símtali áður en við hefjum spjallið, renni ég augunum að handriti að ógerðri bíómynd þeirri félaga sem liggur á borðinu. Án þess að vilja upplýsa um hernaðarleyndarmál sýnist mér aug- ljóst að það verði fyndið dót. Missti föður sinn fimm ára Sigurður – það er það sem hann heitir – Sigurjónsson fæddist árið 1955 í Hafnarfirði og hefur búið þar alla ævi. „Ég er úr Hafnarfirði, er alveg innvígður Gaflari. Ég státa mig af því meira að segja að vera fæddur í heimahúsi. Það þykir að- alsmerki í Hafnarfirði. Það er ekki lengur viðhaft, nema í undantekn- ingartilvikum, reyndar fæddist eitt afabarnið mitt, stúlka, í heimahúsi hjá syni mínum.“ Siggi er mikill fjölskyldumaður og á hann þrjú uppkomin börn og fjögur barnabörn. Sjálfur ólst hann hins vegar ekki upp í stórri fjöl- skyldu, heldur hjá einstæðri móð- ur og einum bróður. „Ég missti pabba minn mjög ung- ur, ég var bara fimm ára gamall þegar ég missti hann. Hann var sjómaður sem drukkn- aði,“ útskýrir Siggi. Þá voru ekki heldur afar og ömmur til að sækja í. „Ég þekkti ekki afa mína. Ég kynntist föðurafa mínum, en var bara fimm ára gam- all þegar ég missti hann. Þannig að ég þekki það ekki að hafa alist upp með afa í kringum mig. Ég þekkti eina ömmu eilítið, en annars hef ég ekki þessa reynslu. Ég hefði sannarlega viljað ná að kynnast þeim, en þeir dóu það ungir að ég náði ekki í skottið á þeim. Ég kynntist þeim bara í gegnum móður mína og mitt fólk og kann ýmsar sögur af þeim.“ Siggi dvelur ekki við þetta atriði og segist þrátt fyrir allt hafa feng- ið gott uppeldi hjá móður sinni: „Ég á afskaplega ljúfar bernskuminn- ingar, bæði frá mínu heimili og mín- um vinum og mínu umhverfi, sem var og er Hafnarfjörður. Ég þekki ekkert annað umhverfi og kem ekki til með að kynnast því. Það var bara minn heimur. Það var leikvöll- ur í öllum hornum, fjaran og höfn- in og slippurinn og hamarinn. Það var gósentíð og allt í boði.“ Móð- ir hans, Kristbjörg Guðmundsdótt- ir, sem starfaði sem verslunarkona alla tíð, smitaði son sinn af listræn- um áhuga. „Mamma mín, sem er nú nýlátin, var mjög listræn og hafði mikinn áhuga á öllu slíku, hvort sem það var leiklist eða handavinna. Það voru hennar ær og kýr. Ég hef alveg klárlega smit- ast af hennar áhuga beint og óbeint án þess að ég hafi gert mér grein fyrir því þá.“ En hvernig var grínist- inn sem barn? „Ég fylgi alveg klisjunni, hafandi verið sprellari í starfi, gaman leikari og svo fram- vegis. Ég hafði orð á mér, og hef kannski ennþá, fyrir að vera hæga týpan og „til baka“-týpan og allt að því feimna týpan. Þannig var ég sem krakki og unglingur – það ber öllum saman um það. Enda er ekkert samasemmerki milli þess að starfa við leiklist og sprella og hoppa og vera eitthvað athyglissjúk- ur. Það er eitthvað sem er mjög fjarri mér og hefur aldrei hentað mér. Þó að ég vinni í sviðsljósinu, þá er það mér ekki eiginlegt að vera þar þess utan. En þetta háði mér ekkert í leik og starfi hins vegar. Ég sprellaði og lék mikið heima við og með félögum mínum og síðan var ég öflugur í skátahreyfingunni, bæði í starfinu og að koma fram við varðeld.“ Galið að gerast leikari Siggi byrjaði leiklistarnám sitt strax að loknum gagnfræðaskóla í leiklistarskóla SÁL, Samtaka áhugafólks um leiklist, en kláraði námið í nýstofnuðum Listahá- skóla Íslands. Hvernig atvikaðist það að hann fór að einbeita sér að leiklistinni? „Það gerðist nú bara eins og hjá afskaplega mörgum. Það kom eflaust í ljós á unglingsár- um að ég hafði taugar og hæfileika í þessa átt, án þess að menn kæmu beint auga á það og allra síst ég. Ég var engin leikhúsrotta í þeim skiln- ingi, hafði bara gaman af leikhúsi. Síðan atvikaðist það þegar ég var 17 ára að mér stóð til boða að fara í leik- listarnám. Ég var bara gagnfræðing- ur svo ég var ekki nema 21 árs þegar ég útskrifaðist.“ Oft heyrist sú skoðun að lista- menn ættu nú frekar að fá sér al- mennilega vinnu, ég velti því fyrir mér hvernig einstæð móðir í Hafnarfirði hafi tekið því að annar sona hennar skyldi stefna út á svo ótrygga starfsbraut. Siggi viðurkenn- ir að viðhorfið til frama í menningar- bransanum hafi ekki verið mjög já- kvætt. „Henni og mörgum öðrum þótti það algjörlega galið að ég færi að læra leiklist. Það vissi enginn hvað það var í rauninni og var ekk- ert daglegt brauð þá. Svo langt því frá. Hún studdi mig hins vegar alla tíð og var minn besti bakhjarl, bæði í skólanum og í starfi. Hún var um leið mín mesta hvatning og minn harð- asti gagnrýnandi. Ég á henni allt að þakka í þeim efnum.“ Siggi fór snemma á ferlinum að einbeita sér að gamanleik þótt það Á fimmtudag var gamanmyndin Afinn frumsýnd. Þar leikur einn ástsælasti leikari þjóðarinnar Sigurður Sigurjónsson, miðaldra mann sem þarf að takast á við nýjan stað í tilverunni samhliða afahlutverkinu. Sigurður á sjálfur fjögur barnabörn og nýtur þess að veita þeim það sem hann fékk ekki – að kynnast afa sínum. Kristján Guðjónsson ræddi við Sigurð um æskuna með einstæðri móður í Hafnarfirði, farsælan leiklistarferil, hótanir í garð Spaugstofumanna, aldurinn og afahlutverkið. Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Listelsk móðir Kristbjörg Guðmundsdóttir ásamt sonum sínum tveimur. Mynd Úr einKasafni afi og amma Siggi og Lísa kun na vel við sig í nýju hlutverkunum. M ynd Úr einKasafni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.