Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 6
Helgarblað 26.–29. september 20146 Fréttir Sparkaði í bringuna á lögregluþjóni Lögregla segir ofbeldi gegn sínum mönnum vera að aukast R íkissaksóknari hefur ákært 23 ára karlmann fyrir brot gegn valdstjórninni, fyrir að hafa veist með ofbeldi að lögreglu- manni við skyldustörf. Að undan- förnu hefur ríkissaksóknari ákært í fjölmörgum slíkum málum og hefur Snorri Magnússon, formaður Lands- sambands lögreglumanna, greint frá því að svo virðist sem ofbeldi og hót- anir í garð lögreglumanna sé að fær- ast í aukanna. Það hefur þó ekki ver- ið rannsakað eða kannað sérstaklega. Þó verða margir lögreglumenn fyrir slíku við skyldustörf og jafnvel utan vinnutíma og málin enda ekki alltaf með ákæru. Þetta veldur lögreglu- mönnum og fjölskyldum þeirra mikl- um áhyggjum. Ungi maðurinn er ákærður fyrir að hafa í sumarhúsi við Svignaskarð veist með ofbeldi að héraðslögreglumanni sem var við skyldustörf. Maðurinn sparkaði í bringu lögreglumannsins samkvæmt ákærunni. Stuttu síð- ar, þegar lögreglumaðurinn og ungi maðurinn voru í lögreglubifreið á leið frá Svignaskarði í Borgarnes, hófst of- beldið aftur. Í ákærunni segir að mað- urinn hafi veist að lögreglumannin- um, með ofbeldi, með því að hrækja í andlit hans. Er þess krafist að mað- urinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Oft snúa ákærur sem þessar að líkamlegu ofbeldi eða hrákum. Á þriðjudag fór fram aðalmeðferð, fyr- ir Héraðsdómi Norðurlands eystra, gegn rétt rúmlega tvítugum karl- manni sem hafði hótað lögreglu- manni líkamsmeiðingum er hann var við skyldustörf. Maðurinn var færður í fangaklefa á Akureyri, en þar hafði hann svo í hótunum við annan lögreglumann og hótaði honum líf- láti. Saksóknari krafðist greiðslu alls sakarkostnaðar og refsingar. Refsing fyrir brot á 106. gr. almennra hegn- ingarlaga varðar allt að átta ára fang- elsi en einnig sektum ef brotið er vægt. n astasigrun@dv.is Ekki mælt, en mikið um ákærur Engar tölulegar upplýsingar ligga fyrir um ofbeldi gegn lögreglumönnum, en þeir telja það vera að aukast og verða grófara. Mynd Sigtryggur Ari Máli lyfsala frestað Máli lyfsala og bæjarfulltrúa á Ísafirði sem sakaður er um skjalafals hefur verið frestað til 8. október næstkomandi. Líkt og DV greindi frá á dögunum hefur lögreglustjórinn á Vestfjörðum ákært Jónas Þór Birgisson, lyfsala á Ísafirði og bæjarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, fyrir brot gegn lyfjalögum og skjalafals. Jónasi er gefið að sök að hafa tvisvar af- hent lyfseðilsskyld lyf á grund- velli tveggja símalyfseðla frá Lyfju á Ísafirði. Þá er hann sagður hafa falsað nafn dýralæknis á lyfseðla án heimildar og afhent fulltrúa Lyfjastofnunar við eftirlit í versl- un Lyfju á Ísafirði. Jónasi Þór er gefið að sök að hafa afhent Bjarna Bæringi Bjarnasyni, kúabónda á Brúarreykjum, lyfseðilsskyld sýklalyf sem dýralæknum er ætl- að að ávísa að undangenginni sjúkdómsgreiningu. n Kristján Markús Sívarsson yfirheyrður n Safnað fyrir syni konunnar A ndlát íslensku konunnar sem lést í borginni Algeciras á Spáni 16. september síð- astliðinn er nú rannsakað af lögreglunni á Spáni sem eitr- un samkvæmt ræðismanni Íslands á Malaga, Per Dover Petersen. Í sam- tali við DV segir hann að nú sé beðið eftir niðurstöðum eiturefnaskimunar en kærasti konunnar, Kristján Markús Sívarsson, hefur verið yfirheyrður af lögreglu á Spáni. Per Dover segist ekki vita hvort Kristján Markús hafi stöðu grunaðs aðila. Konan, sem var rétt rúmlega tvítug, hefur glímt við fíkni- efnavanda um nokkurt skeið. Tveggja ára sonur hennar er nú í umsjón for- eldra hennar. Eitur líklega dánarorsök „Í öllum svona tilvikum þá fer í gang rannsókn hjá lögreglunni hér. Lög- reglu grunar að um eitrun hafi ver- ið að ræða, annað hvort af henn- ar eigin hendi eða af öðrum aðila,“ segir Per Dover. DV gerði ítrekað- ar tilraunir til að fá upplýsingar um stöðu rannsóknar hjá lögregluyfir- völdum á Spáni, en var ávallt bent á að ræða við ræðismann Íslands. Þau svör fengust þó að málið væri á borði rannsóknarlögreglunnar. Per Dover segir að nú sé beðið eftir niðurstöðu úr eiturefnaskimun. „Krufning ligg- ur fyrir en beðið er eftir niðurstöðu úr eiturefnaskimuninni. Dómari hér mun svo ákveða framhaldið. Ég get ekki staðfest hvaða eitur varð henni að bana en ég get staðfest að ein- hvers konar eitur dró hana til dauða,“ segir Per Dover. Aðstoða fjölskylduna Orð Pers Dover stangast á við orð Urðar Gunnarsdóttur en hún sagði á dögunum að málið væri ekki rann- sakað sem grunsamlegt dauðsfall. Spurð um þetta svarar Urður nú að orð hennar hafi miðast við þær upp- lýsingar sem lágu fyrir þá. Í sam- tali við DV segir hún að sé málið nú sakamál þýði það að aðkoma utan- ríkisráðuneytisins sé lítil sem engin, nema sérstaklega sé óskað eftir því. „Við erum að aðstoða fjölskyldu hennar,“ segir hún. Kærastinn yfirheyrður Líkt og fyrr segir var kærasti kon- unnar Kristján Markús Sívarsson, en hann á langan afbrotaferil að baki og er grunaður í sérstaklega hrottalegri frelsissviptingu og líkamsárás sem átti sér stað í heimahúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd síðastliðinn ágúst- mánuð. Per Dover segir að hann hafi verið yfirheyrður af lögreglu á Spáni vegna andláts konunnar. „Hann hef- ur verið yfirheyrður. Ég er hins vegar ekki alveg viss um hvort hann sé grunaður eður ei. Við höfum ekki verið beðin um aðstoð vegna þess svo ég veit lítið um það,“ segir Per Dover. Að hans sögn átti andlátið sér stað á litlu hóteli í Algeciras. Hann segir sömuleiðis að Kristján Markús hafi tilkynnt um andlát konunnar, en hún var úrskurðuð látin á vettvangi. Hefja söfnun Ættingjar og vinir konunnar hafa síðastliðna viku tjáð á samfélags- miðlum þann mikla harm sem býr í brjósti þeirra. Konan hafði háð langa baráttu við vímuefnasýki og hafði margoft reynt að snúa við blaðinu. Fjölskylda konunnar hefur beðist undan viðtali, en hefur þess í stað bent á samtökin Olnbogabörn. Sam- tökin voru stofnuð fyrir aðstandend- ur barna með áhættuhegðun. Ætt- ingjar konunnar hafa komið á stað söfnun fyrir dreng hennar. n Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Unga konan dó vegna eitrUnar „Ég get staðfest að einhvers konar eitur dró hana til dauða Algeciras Konan dó á hótelherbergi í hafnarborginni Algeciras á Spáni. Rannsóknarlögregla á Spáni rann- sakar málið sem eitrun. Mynd rEutErS Róbert stefnir Viðskiptablaðinu Róbert Wessman hefur stefnt Bjarna Ólafssyni, ritstjóra Við- skiptablaðsins, vegna setningar sem birtist á forsíðu blaðsins þann 28. ágúst síðastliðinn. Frá þessu var greint á vef Viðskipta- blaðsins á fimmtudag. Í um- ræddri frétt sem vísað var til á forsíðu var greint frá því að Björgólfur Thor Björgólfsson fjár- festir hefði stefnt Róberti og kært hann til sérstaks saksóknara. Á vef Viðskiptablaðsins kemur fram að blaðið standi við fréttaflutning sinn. Þá hafi Róberti verið gefinn kostur á að tjá sig og sjónarmið- um beggja aðila verið komið á framfæri í frétt blaðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.