Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 28
Helgarblað 26.–29. september 201428 Fólk Viðtal M ér finnst ég ekki adrena- línfíkill en hef komist að því að skilgreiningin mín á áhættu er líklega önnur en margra í kringum mig. Mér líður best þegar það er hasar og hvergi jafnvel betur en í flugvél á hvolfi. Allt sem fer hratt og gerir krúsidúll- ur finnst mér frábært. Ég væri til í að skrifa gagnrýni um rússíbana. Það væri flott vinna,“ segir sjónvarpskonan Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir. Athyglisgáfa á við gullfisk Landsmenn þekkja Sigríði Elvu af skjánum. Hún var um tíma í Íslandi í dag en sér þessa dagana um kvik- myndagerðarþáttinn Fókus auk þess að vera annar umsjónarmanna bíla- þáttarins Á fullu gazi. „Ég er með netta dellu fyrir kvikmyndagerð, sá heimur er ótrúlega spennandi, en ég þarf að hafa smá aksjón líka. Þessir tveir þættir gera vinnuna hæfilega fjölbreytta, eins og þarf til að halda fólki með athyglisgáfu á við gullfisk við efnið,“ segir hún og bætir við að hún eigi erfitt með að sitja kyrr leng- ur en í klukkutíma í senn. „Ég hef aldrei haldist lengi á sama stað og áður en ég hóf störf á Stöð 2 hafði ég ekki verið í sama djobbinu lengur en í tvö ár. Mér finnst ekkert leiðinlegt að fá að prófa alls konar tæki og tól og kalla það vinnu. Og þótt ég hafi stundum verið að barma mér yfir því að þurfa kannski að vinna á sunnudögum er engin sér- stök ástæða til þess að vorkenna mér enda er ég þá kannski bara á leiðinni í listflug.“ Hætti 16 ára í skóla Sigríður Elva er fædd árið 1978 og ólst upp í 101 þar sem hún hefur síð- ar að mestu leyti búið. „Fyrir utan þegar ég bjó í útlöndum hef ég aldrei flutt út fyrir Snorrabrautina. Ef ég fer eitthvert lengra fer ég frekar út á land. Ég var öll sumur í sveit sem krakki og þegar ég var 16 ára hætti ég í Versló og réð mig í fisk á Flateyri og bjó þar í verbúð til að safna fyrir flutningi til Parísar. Mamma og pabbi voru ekki hrifin af þeirri hugmynd.“ Sigríður gekk í Vesturbæjarskóla og Hagaskóla og tók eitt ár í Verslun- arskóla Íslands. Þar með er öll skóla- gangan upptalin fyrir utan nokkrar tilraunir til fjarnáms og stöku ann- ir í öllu frá trésmíði til kerfisfræði. „Mamma og pabbi hafa lengi reynt að ýta á mig að mennta mig meira. Það hefur ekki gengið voðalega vel. Ég átti alltaf auðvelt með nám sem krakki og ég held að enginn hafi gert ráð fyrir því að ég yrði gagnfræðing- ur; enda ekki frasi sem margir nota árið 2014. En ég geri eitthvað í þessu einhvern tímann. Annars hef ég verið að taka fjar- nám í flestum framhaldsskólum og á örugglega bara fjórar einingar eftir. Ég er bara ekki góð í að klára það sem ég byrja á. Það fer mér illa. Árið 2005 sat ég einhvern stærðfræðikúrs og ákvað að hætta þessu fjarnámsbulli. Sagði bara „fuck it“. Önn í skóla fyrir mér er heil eilífð. Ég er búin að missa allan áhuga og er farin að pæla í allt öðru þegar loksins kemur að prófum. Í gegnum öll þessi ár var ég að reyna að komast í gegnum skólann á sem auðveldastan hátt og hef tek- ið stöðupróf í öllu sem ég hef komist í. Það gekk þó ekki betur en svo að ég er ekki með stúdentspróf.“ Rænd af hjálparsamtökum Eftir stutt Parísarævintýri sneri Sig- ríður Elva aftur heim. „Ég hafði ekki kynnt mér reglurnar nógu vel. Samkvæmt einhverjum nýsettum Evrópusambandslögum um vinnu barna hefði ég þurft að vera 18 ára til að fá vinnu og í framhaldinu dval- arleyfi. Ég fékk því ekkert að gera, nema eitthvað svart á egypskum veitingastað fyrir lúsalaun. Fjórum mánuðum síðar var ég búin með spariféð og mamma, sem var að vinna hjá Eimskipum á þessum tíma, ætlaði sko ekki að borga fyrir mig flugmiðann heim úr þessari frægðar- för, en reddaði mér í staðinn fari með fragtara. Talandi um að koma heim með skottið á milli lappanna. Ég fór um borð í Rotterdam, en áður en ég yfirgaf París var ég rænd „Hélt að lífið væri búið“ Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Sjónvarpskonunni Sigríði Elvu Vilhjálmsdóttur líður hvergi betur en í flugvél á hvolfi. Hún ætlaði sér aldrei að verða móðir og grét þegar hún komst að því að hún væri barnshafandi. Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við Sigríði Elvu um eirðarleysið, ástina sem hún fann óvænt í jakkafataklæddum manni, ferðalögin, adrenalínfíknina og þá staðreynd að hún hætti í skóla aðeins 16 ára að aldri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.