Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Side 19
Helgarblað 26.–29. september 2014 Fréttir Viðtal 19 og ljósmyndarar hinna hefðbundnu fjölmiðla fóru á vegum bandaríska hersins til Íraks í upphafi innrásarinn- ar. Þeir skrifuðu undir samning um að þeir myndu ekki flytja fréttir sem gætu ógnað hagsmunum hersins. Talað hefur verið um innmúraða [e. embedded] blaðamenn í þessu samhengi. Þeir voru háðir hernum um upplýsingar, fengu að fylgja her- mönnum í leiðangra og segja sögur af sigrum þeirra. Þeir sem ekki hegð- uðu sér sem skyldi voru hins vegar sendir rakleiðis heim. Þetta gerði það að verkum að gríðarlegt mannfall óbreyttra borgara varð síður frétta- efni en til dæmis fagnaðarlæti Íraka á götum úti. Þetta var og er opinber stefna bandaríska hersins sem hafði verið gagnrýndur fyrir of lítið aðgengi blaðamanna í Persaflóastríðinu. „Í hreinskilni, þá er verkefni okkar að vinna stríðið. Hluti af því er upp- lýsingastríð. Þannig að við munum reyna að stjórna upplýsingaflæðinu,“ sagði liðsforinginn Rick Long til að mynda í viðtali við UC Berkeley News í mars 2004. Ég spyr Pilger hvort sam- band bandaríska hersins við blaða- menn hafi breyst eitthvað síðan hann starfaði sem stríðsfréttaritari í Víetnam. „Eins og ég útskýrði þá hefur áróðurskerfið ekkert breyst. Það sem hefur breyst er að nú eru fórnarlömb styrjalda að mestu óbreyttir borgarar; fyrstu „stríðin gegn óbreyttum borgur- um“ voru stríð Bandaríkjanna í Kóreu og Víetnam á sjötta og sjöunda ára- tugnum. Blaðamenn fluttu fréttir af þessu, en fáir útskýrðu hvers vegna.“ Í skuld við hina þjáðu Í þessu samhengi má nefna að að- eins tíu prósent þeirra sem létust í fyrri heimsstyrjöldinni voru óbreyttir borgarar. Til samanburðar var þessi tala fimmtíu prósent í þeirri síðari og sjötíu prósent í Víetnamsstríðinu sem margir vilja meina að hafi tapast í fjöl- miðlum. Í ljósi þessa kom það blaða- manni töluvert á óvart þegar Pilger greindi frá því í mynd sinni að níutíu prósent allra þeirra sem létu lífið í Írak hafi verið óbreyttir borgarar. Þannig má ljóst vera að bandaríska hernum hafði tekist að vinna „upplýsinga- stríðið“ og gott betur. Heimildamynd Pilgers og Davids Munro, Year Zero: The Silent Death of Cambodia, vakti mikla athygli þegar hún var sýnd árið 1979. Í myndinni gaf að líta land sem hafði verið sprengt aftur í steinöld, yfirgefna höf- uðborg, sveltandi börn, og lækna sem biðluðu til alþjóðlegra hjálpar- samtaka um að senda hjálpargögn. Áhorfendum mátti vera ljóst að fólk- ið fyrir framan myndavélina var að deyja úr vannæringu og hungri, og margt þeirra dó reyndar stuttu síðar. „Hið dulda stríð er sannleikurinn“ n John Pilger segir ráðandi fjölmiðla dreifa fréttatilkynningum Hvíta hússins gagnrýnislaust Blaðamaður spyr Pilger hvaða áhrif þessi lífsreynsla hafi haft á hann. Aug- ljóslega heilmikil, segir hann: „Áhrifin eru umtalsverð. Eitt er að þetta opnaði augun mín og gerði það að verkum að ég vildi segja frá „hinni hliðinni“ – sannleikanum. Ég skuld- aði það hinu þjáða fólki sem ég festi á filmu.“ Árás úr launsátri Meðan á myndatökunni stóð voru þeir Munro varaðir við því að Pilger væri á dauðalista Rauðu kmeranna. Eitt sinn sluppu þeir naumlega und- an árás úr launsátri. Pilger fjallaði sjálfur um myndina með þessum orð- um í grein í New Statesman þann 11. september 2006: „Year Zero sýndi ekki einungis fram á hrylling Pol Pot-áranna, hún sýndi hvernig „leynilegar“ loftárásir Nixons og Kissingers á þetta land höfðu ráðið úrslitum í að undirbúa jarðveginn fyrir uppgang Rauðu kmerana. Hún sýndi líka hvernig Vestrið, leitt af Bandaríkj- unum og Bretlandi, var að þröngva viðskiptabanni, líkt og um miðalda- umsátur væri að ræða, upp á laskað- asta ríki jarðar. Þetta voru viðbrögð við þeirri staðreynd að frelsari Kambódíu var Víetnam – land sem hafði tilheyrt röngum hópi í kalda stríðinu og hafði nýlega sigrað Bandaríkin. Þjáning Kambódíu var vísvitandi hefnd. Bretland og Bandaríkin studdu meira að segja við kröfur Pol Pot um að þeirra maður fengi að halda sæti Kambódíu hjá Sameinuðu þjóðun- um, á meðan Margaret Thatcher kom í veg fyrir að barnamjólk kæmist til eftirlifenda martraðastjórnar hans. Lítið af þessu komst í fréttirnar.“ Almenningur enn upplýstur Myndin hafði gríðarleg áhrif á bresk- an almenning og um 45 milljónir punda söfnuðust í sérstakri neyðar- söfnun – þeirri fyrstu sem fram fór vegna ástandsins í Kambódíu. Pilger tjáði sig um þetta í sömu grein í New Statesman: „Fyrir mér opinberuðu viðbrögð almennings við Year Zero lygina á bak klisjuna um „samúðarþreytuna“, afsökun sem sumir dagskrárstjórar nota til þess að réttlæta yfirstand- andi hnignun í átt til bölsýni og aðgerðaleysis í Stóra Bróðurlandi. Fyrst og fremst, lærði ég að heimilda- mynd gæti endurheimt sameiginlegar, sögulegar og stjórnmálalegar minn- ingar, og sýnt fram á falinn sannleika þeirra. Verðlaunin voru samúðarfull- ur og upplýstur almenningur, og það er hann enn.“ „Hlutlaus blaðamennska“ ákveðin afstaða Öllum sem lesa þetta má vera orðið ljóst að Pilger er ekki hræddur við að segja skoðanir sínar hátt og skýrt. Hann byggir þær enda líka á reynslu og þekkingu sem hann hefur viðað að sér um áratuga skeið. Blaðamennsk- an sem Pilger stundar er beinskeytt- ari, beittari og jafnvel harkalegri en hin svokallaða „hlutlausa blaða- mennska“ sem við eigum að venjast. Ég spyr Pilger hvers vegna hann taki svo afdráttarlausa afstöðu í verkum sínum. Hann neitar því hins vegar að svo sé, snýr dæminu við, og bendir á að ráðandi blaðamennska sé einmitt ekki hlutlaus: „Nei, hin „afdráttarlausa afstaða“ er tekin af þeim sem vinna innan kerf- isins. Afstaða þeirra er ótvíræð, mögu- lega ótæk. Þau eru ekki hlutlaus. Þau flytja fréttir af því sem þeim er sagt; þau aðlagast viðurkenndum forsend- um; þau taka hlutina úr samhengi; þau nota klisjur valdsins; þau fylgja „línunni“, sama hversu illa skilgreind sú lína kann að vera. Taki ég afdrátt- arlausa afstöðu, gengur hún út á að segja frá því sem valdið vill ekki að ég eða lesendur mínir fái vitneskju um. Ég reyni að flytja fréttir út frá lögmæt- um, siðferðilegum sjónarhóli – svona „rétt og rangt“ siðalögmáli sem okkur var ætlað að læra sem börn og ætti að einkenna starfsævi okkar, sérstaklega ef við erum blaðamenn.“ Merkingarlaust hlutleysi Í síðustu heimildamynd sinni, Utopia, kannar Pilger reynslu frum- byggja Ástralíu og „niðurrif mennsku þeirra“ eins og hann orðar það. Fyrir blaðamann sem hefur fjallað um hælisleitendur á Íslandi, er ekki kom- ist hjá því að sjá líkindin þarna á milli. Í báðum tilvikum er um að ræða jaðar hópa, svo til réttlausa sem hafa litla sem enga rödd í samfélaginu – orð þeirra vega lítið þegar þeim er mætt með opinberum tilkynningum stjórnvalda. Blaðamaður spyr Pilger hvort hlutlaus blaðamennska ráð- andi fjölmiðla geti í slíkum tilvikum virkað sem eins konar verkfæri í þágu þeirra sem hafa völdin. Hann svarar með því að gagnrýna skilgreininguna á „hlutlausri blaðamennsku.“ „Aftur notar þú dulið áróðurs- tungumál – þú ert ekki „hlutlaus“ vegna þess að dagskrárstjóri, eða rit- stjóri, eða fjölmiðlafræðingur segir þér að „meginstraumurinn“ sé hlutlaus. Þetta orð [hlutleysi] hefur misst mál- fræðilega merkingu sína; það hefur lítið að gera með staðreyndir, sann- leikann.“ „Sköpunarverk Vestursins“ Eins greint var frá hér að ofan hefur Pilger starfað sem stríðsfréttaritari í fjölmörgum löndum. Undanfarið höfum við horfst í augu við hryllileg myndbönd þar sem grímuklæddir menn „Íslamska ríkisins“ afhausa blaðamenn í fjarlægum löndum. Það lítur út fyrir að nýir óvinir séu mættir í bæinn. En hverjir eru ISIS/ISIL? Geta þeir (rétt eins og Pol Pot, bin Laden, Pinochet og fleiri) mögulega þakk- að Bandaríkjunum völd sín og land- vinninga? „Jú, flestir þessara frægu púka geta þakkað „okkur“ á Vesturlöndum fyrir völd sín. Hugleiddu hvernig, á fjórða áratugnum, evrópsku fasistarn- ir vöktu aðdáun í evrópsku lýðræðis- ríkjunum. Í Kambódíu hefði Pol Pot aldrei komist til valda hefði ekki verið fyrir loftárásir Bandaríkjanna – deja vu ISIL, áhrifaríkt sköpunarverk Vest- ursins.“ Staðið uppi í hárinu á valdníðingum „Það ríkir ótti á öllum fréttastofum landsins,“ segir fréttamaður 60 mínútna, Dan Rather, í heimilda- myndinni Duldu stríði. Ég spyr Pilger að lokum hvort hann hafi sjálfur fundið fyrir þessum ótta, og hver sé besta leiðin til þess að eiga við hann? „Ég hef verið stoppaður og fældur frá og ritskoðaður af þeim sem eru í þjónustu hinna mjög svo valda- miklu. Það er hættan sem fylgir starf- inu. Það er þess vegna sem það er svo mikilvægt að standa uppi í hárinu á valdníðingum blaðamennskunnar. Þess vegna eru störf og ögrun upp- ljóstrara eins og Edwards Snowden, Julians Assange og Chelsea Manning svona mikil ógn.“ Heimildamyndin Dulið stríð er hluti af dagskrá RIFF þetta árið. Pilger mun sitja fyrir svörum í Bíó Paradís næstkomandi fimmtudag, að sýningu lokinni, en hún hefst klukkan 19.30. n „Næstum án undantekn- inga er ekki um blaða- mennsku að ræða; þetta er fréttatilkynning Hvíta hússins í ýmsu formi. Sannleikurinn í skugganum Níutíu prósent þeirra sem féllu í átökunum í Írak voru óbreyttir borgarar. Í Duldu stríði er skýrt hvernig „innmúraður blaðamenn“ urðu leiksoppar í „upp- lýsingastríði“ bandaríska hersins; þeir fluttu ekki fréttir sem gátu komið hernum illa. Þannig hvarf sannleikurinn í skuggann af áróðri í hinum frjálsu fjölmiðlum hins vestræna heims. Áróðurinn á yfirborðinu Pilger segist sífellt verða vitni að því hvernig sagan endurtekur sig. Nýir óvinir birtast og hverfa, almenningur sér myndir frá Pentagon, af „stjórnstöðvum þeirra“ í frumskógum eða eyðimörkum, en allt sé þetta meira og minna lygi og áróður. Fylgir starfinu Pilger segist hafa verið fældur frá og ritskoðaður af þeim sem þjónusta valdið. Það sé hættan sem fylgi starfinu og því sé svo mikilvægt að standa uppi í hárinu á valdníðingum blaðamennskunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.