Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Qupperneq 25
Umræða 25Helgarblað 26.–29. september 2014
Ég gefst aldrei upp Hann var sannkallaður
eldhugi
Fegin að hann er
farinn
Óli Geir gerir myndband og segir lífið ekki alltaf dans á rósum. – DV Harpa Cilia Ingólfsdóttir, ekkja Jóhanns Péturs Sveinssonar, minnist Jóhanns. – DVAnna Guðjónsdóttir var í níu daga á sjúkrahúsi. – DV
Strákarnir okkar í hvalnum
A
lllengi og við ýmis tæki-
færi hafa hugtökin Við Ís-
lendingar og réttur okkar
Íslendinga verið notuð til
að fylkja þjóðinni að baki
tilteknum málstað oft byggðum á
tilfinningum og sem valdhafar hafa
viljað afla þjóðarfylgis við. Margir
fjölmiðlar hafa svo notað sömu
hugtök í fréttaflutningi sínum af
viðkomandi málum.
Hvalur hf. var stofnað 1948, og
var fyrsta og eina hvalveiðiútgerðin
í eigu íslenskra aðila sem gerði út á
stórhvalaveiðar. Tveimur áratugum
síðar var ofveiði á flestum hvala-
tegundum staðreynd sem helstu
hvalveiðiþjóðir heims tóku að horf-
ast í augu við. Aukins þrýstings fór
að gæta um allan heim um allsherj-
arbann við viðskiptaveiðum á hval
og tók það gildi með samþykkt Al-
þjóðahvalveiðiráðsins árið 1986.
Nú er svo komið að aðeins eitt
fyrirtæki í heiminum stendur í
milliríkjaviðskiptum með afurðir
af hvalategund á válista, Hvalur
hf. sem rekið er og stjórnað af að-
aleiganda þess Kristjáni Loftssyni.
Kristján erfði fyrirtækið af föður
sínum sem fékk aðstöðuna afhenta
að lokinni seinni heimsstyrjöldinni.
Takmarkaður áhugi
Fram að þeim tíma var áhugi Ís-
lendinga á hvalveiðum mjög tak-
markaður. Reyndar er óhætt að
fullyrða að óvíða í heiminum hafi
andstaða við iðnaðarveiðar á hval
verið meiri en einmitt á Íslandi.
Frá 1880 og vel fram á tuttugustu
öldina voru haldnir borgarafund-
ir allt frá Eskifirði til Siglufjarðar
þar sem veiðunum var mótmælt
og smám saman mótaðist krafa um
hvalveiðibann. Það var loks sam-
þykkt árið 1913 af Alþingi sem fór
þá með heimastjórnarvald.
Það er engum blöðum um það
að fletta að andstaðan við hvalveið-
ar erlendra aðila við Ísland spilaði
inn í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga
þótt þeim þætti hafi ekki verið
gert hátt undir höfði. Hin djarfa
ákvörðun Alþingis var til marks
um sjálfstraust þjóðar sem var til-
búin að bjóða gömlu herraríkjun-
um, Noregi og Danmörku, birginn.
Norðmenn voru enda æfir og beittu
bæði Dani og Íslendinga miklum
þrýstingi að fá að hefja veiðar við
landið að nýju. Íslendingar stóð-
ust þann þrýsting allt til ársins 1928
en gáfu þá eftir. Fljótlega eftir að Ís-
lendingar afléttu banninu kom í ljós
að Íslandssléttbaknum hafði verið
útrýmt.
35 ríki mótmæla
Mánudaginn 15. september mót-
mæltu 35 ríki með formlegum hætti
viðskiptaveiðum við Ísland. Í þess-
um hópi eru nær öll helstu vina- og
viðskiptaríki Íslands. Þetta er í fjórða
sinn frá árinu 2006 sem veiðun-
um er mótmælt með þessum hætti
en aldrei fyrr hafa öll hin 28 ríki
Evrópusambandsins verið í hópn-
um ásamt með Bandaríkjunum.
Þetta er óneitanlega til marks um
að krafan um að íslensk stjórnvöld
virði alþjóðalög og samþykktir fer
vaxandi. Viðbrögð sjávarútvegs- og
utanríkisráðherra gefa þó ekki til-
efni til bjartsýni en helst má á þeim
skilja að þeir telji frjáls félagasam-
tök stýra utanríkisstefnu þessara 35
ríkja.
Það hefur verið klókur leikur hjá
þeim sem vilja nota hvalveiðarn-
ar til að auka eigin áhrif og völd að
tala stöðugt um þær sem hvalveið-
ar okkar Íslendinga og rétt okkar Ís-
lendinga til veiða á hval.
Strákarnir okkar
Strákarnir okkar í hvalnum hafa náð
að skapa þá vænisýki að ef lát verði
á hvalveiðum þá verði það þorsk-
urinn næst eða eitthvað annað þótt
nákvæmlega ekkert samband sé þar
á milli. Þegar tugir hvalveiðiþjóða
ákváðu að stöðva veiðar á hval á
ofanverðri 20. öld hafði það engin
áhrif á nýtingu annarra auðlinda
innan lögsögu viðkomandi ríkja.
Þannig verður það auðvitað líka
hér þegar komist verður að þeirri
óhjákvæmilegu niðurstöðu að láta
hvalveiðarnar víkja fyrir stærri og
mikilvægari hagsmunum.
Og talandi um strákana okkar.
Nú þegar hvalaskoðun hefur
sannað sig svo um munar sem arð-
bær atvinnugrein og jákvæð nýting
hvalastofna við landið þá væri
kannski ekki úr vegi að stjórnmála-
menn færu að tala um hvalaskoðun
okkar Íslendinga og rétt okkar Ís-
lendinga til sjálfbærrar hvala-
skoðunar í friði fyrir hvalveiðum. n
Sigursteinn Másson
fulltrúi IFAW á Íslandi skrifar
Aðsent
„Norðmenn
voru enda æfir
og beittu bæði Dani
og Íslendinga miklum
þrýstingi að fá að hefja
veiðar við landið að nýju.
Mest lesið
á DV.is
1 Var nýflutt til Spánar
Unga konan sem lést í borginni Algeciras
á Spáni 16. september var rúmlega
tvítug. Hún hafði nýlega flutt til Spánar
og ætlaði að setjast að í borginni.
56.817 hafa lesið
2 Misskildi kosningar í Skotlandi
Þingkonan Vigdís Hauksdóttir sýndi
Skotum samstöðu á dögunum og mætti
í Skotapilsi í vinnuna, en þeir kusu um
hvort landið ætti að vera sjálfstætt frá
Bretlandi á fimmtudag. Eitthvað virðist
Vigdís þó hafa misskilið kosningarnar því
miðað við stöðuuppfærslu hennar taldi
hún að Skotar vildu sjálfstæði frá ESB.
46.542 hafa lesið
3 „Ég brást henni“ Fjölmiðlamaðurinn Sigurjón
Magnús Egilsson slasaðist
alvarlega þegar hann féll af vélhjóli á
dögunum en er staðráðinn í að ná bata.
Hann segist hafa brugðist dóttur sinni.
42.916 hafa lesið
4 Gerðu grín að ummælum um múslima og mosku
„Þetta er allavega konan sem er á móti
moskum í Reykjavík, horfið á hana. Engir
múslimar og [… ógreinilegt orð …] fatl-
aðir [?],“ sagði Guðfinna Jóhanna Guð-
mundsdóttir, í samkvæmi hagfræði- og
stjórnmálafræðinema þar sem hún birt-
ist óboðin ásamt Vigdísi Hauksdóttur
og Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur,
síðastliðið föstudagskvöld.
38.958 hafa lesið
5 Skeljagrandabróðir flúinn til Algeciras
Kristján Markús Sívarsson flutti til
Algeciras á Spáni í
upphafi mánaðar,
stuttu eftir að
hann losnaði úr
gæsluvarðhaldi
vegna gruns um
aðild að Voga-
málinu.
36.942
hafa lesið
6 Arna Bára með Playboy á Jamaíku
Hin 26 ára gamla Arna Bára Karlsdóttir
er stödd þessa
dagana á hinni
fallegu eyju
Jamaíku þar sem
hún situr fyrir á
ljósmyndum fyrir
Playboy.
33.697
hafa lesið
Myndin Green Cooler Flutningaskipið Green Cooler, sem strandaði í Fáskrúðsfirði í vikunni, liggur nú laskað við festar í Sundahöfn og bíður þess sem verða vill.
Mynd SIGTryGGur ArI