Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Page 29
Helgarblað 26.–29. september 2014 Fólk Viðtal 29
af kaþólskum hjálparsamtökum.
Ég skildi farangurinn eftir í anddyri
hússins sem ég bjó í og hljóp upp
að ná í dót en á meðan tóku þau allt,
töskurnar, vídeókameruna, mynda
vélina og allt draslið en skildu eftir
miða á útidyrahurðinni um að þau
væru safna fötum fyrir þriðja heim
inn. Ég keypti mér tannbursta en fór
heim í fötunum sem ég stóð í,“ segir
hún og bætir við að ferðin heim hafi
tekið nokkra daga. „Við lentum í
svakalegu óveðri á Ermarsundi og í
fyrsta skipti á ævinni varð ég sjóveik
og ældi eins og múkki. Ég lá bara í
koju, vissi ekki hvort væri dagur eða
nótt og bað guð um að taka mig. Ekki
mjög töff. En ég gafst samt ekki upp
og gerði fjölda annarra tilrauna til að
flytja til útlanda.“
Níu ára aldursmunur
Foreldrar Sigríðar Elvu heita
Vilhjálmur Gíslason og Olga Sverris
dóttir. Sigríður Elva á einn yngri
bróður, Hjalta Eyþór, sem hefur ný
lokið námi í óperusöng í Vín. Að
spurð segist hún hafa verið skelfi
legur unglingur. „Ég var algjört
skrímsli og hafði endalaust gaman
af því að rökræða. Ég var óþolandi
stálminnug og gat vitnað orðrétt í
það sem fólk hafði sagt fyrir viku og
hafði mest gaman af því að kaffæra
fólk í rökræðum. Ég var alveg hund
leiðinleg, ég held að foreldrar mín
ir geti alveg vottað það. Ég var þras
gjörn og var með uppsteyt í skóla og
mætti illa – tók sem sagt mótþróa
skeiðið með trompi,“ segir hún og
bætir við að hún óttist meira en flest
að fá þessa hegðun í bakið.
„Mamma og pabbi eru búin að
fyrirgefa mér þessi læti. Ég skildi það
aldrei en skil það betur núna eftir að
ég varð sjálf mamma. Persónulega
hefði ég örugglega bara sent mig í
vist en þau fyrirgefa allt.“
Sigríður er í sambúð með Teiti
Þorkelssyni og saman eiga þau
dótturina Andrá. Sigríður var að
eins 22 ára þegar þau kynntust en
Teitur er níu árum eldri. „Mér fannst
ég voðalega fullorðin en í baksýnis
speglinum var ég það ekki. Eflaust
hefur einhverjum vinum hans fund
ist ég full ung. En ég er dauðfegin
að hafa kynnst honum. Hann er
líka seinþroska svo við erum á svip
uðu plani,“ segir hún brosandi og
bætir við að þau hafi kynnst á Kaffi
barnum. „Hann var jakkafataklædd
ur maður á framabraut og alls ekki
mín týpa. Mér leist ekkert á hann til
að byrja með en hann hékk á barn
um þar sem ég vann og náði að
sannfæra mig um að fara með sér
á stefnumót. Í kjölfarið komst ég að
því að jakkafataklæddir menn geta
líka verið skemmtilegir. Hann kom á
óvart; hafði alist upp í Miðbænum og
hafði verið í sveit, hafði ekki áhuga á
fótbolta og gekk ekki í hvítum sport
sokkum.“
13 ár heil eilífð
Þau Teitur hafa verið saman í 13 ár en
eru ekki gift. „Mér hefur alltaf fundist
eitthvað ótrúlega óaðlaðandi að vera
gift og leist skelfilega á þá tilhugs
un framan af en hin síðari ár höfum
við verið að tala um að láta verða að
þessu einhvern tímann. Aðallega til
að halda gott partí úti í sveit og bjóða
öllum vinum okkar. Helsti ágrein
ingurinn stendur á því að hann vill
hafa athöfnina í sveitakirkju en ég
myndi frekar borða gler en að gifta
mig í kirkju. Það er samt spurning
hvort við þurfum ekki að drífa í þessu
svo barnið lifi ekki með foreldrum í
synd.“
Hún játar því að sambandið með
Teiti sé líklega það eina sem hún hafi
ekki gefist upp á. „Þetta er eiginlega
alveg mögnuð frammistaða. Þrettán
ár! Það er heil eilífð. Og nú sé ég ekk
ert annað fyrir mér en að taka önnur
þrettán ár til viðbótar.
Það er alltaf líf og fjör í kringum
Teit, það bjargar málunum. Hann er
ævintýragjarn og hefur gaman af því
að ferðast. Við deilum öllum skoðun
um á þessum grunnþáttum, erum
bæði flökkukindur og ævintýrapésar.
Ég hugsa að ég gæti ekki verið með
manni sem legði ofuráherslu á að
eignast stærri bíl og stærra hús. Eða
jú, kannski stærri bíl en ekki stærra
hús,“ segir hún og brosir. „Við erum
bestu vinir. Er það ekki lykilatriðið í
þessu öllu saman? Að pör séu góðir
vinir. Ég held að ég myndi ekki end
ast lengi í að búa með manneskju
sem væri ekki vinur minn.
Svo er Teitur líka stuðningsfull
trúinn minn; man hvar ég setti lykl
ana mína og símann. Hann gengur
á eftir mér og hirðir upp smádraslið
sem ég skil eftir úti um allt. Hann er
alveg ótrúlega þolinmóður. Ég væri
löngu búin að gefast upp á mér,“
segir hún og bætir við að það taki
hana ávallt langan tíma að komast
út á morgnana. „Og þá er ég hepp
in að vera með lykla, síma og veskið.
Teitur þarf regulega að díla við það
að ná ekki í mig hálfan daginn af því
að ég gleymdi símanum inni í ísskáp.
Það er mjög týpískt.“
Helvítis Teletubbies
Þrátt fyrir að vera alsæl í móðurhlut
verkinu voru barneignir aldrei ofar
lega á listanum hjá Sigríði Elvu. „Það
var komið meira eggjahljóð í Teit en
mig. Ég hafði ýtt þessu lengi á und
an mér og var komin á þá skoðun að
langa ekki til að eignast barn; að það
væri best að sleppa því bara. En svo
varð ég óvart ófrísk.
Ég fór að grenja og það má vera að
ég hafi sagt „en ég er svo ung“ áður
en ég fattaði að það væri alls ekki til
fellið. Það tók mig smá tíma að sætt
ast við þetta.
Ég hélt að lífið væri búið. Nú væri
ekkert nema helvítis Teletubbies,
bleiuskiptingar og viðbjóður framund
an. Sem sagt drepleiðinlegt líf. Ég var
alveg viss um að fólk væri að ýkja þegar
það sagði að þetta væri það merkileg
asta sem það hefði gert; að það væru
einfaldlega samantekin ráð foreldra til
að draga aðra með sér niður í bullið.
Nú stend ég mig að því að segja
nákvæmlega það sama við aðra og
þakka bara fyrir að vera ekki ein
stæð móðir því þá væri ég búin að
gera alla í kringum mig geðveika. Í
staðinn tölum við Teitur tímunum
saman um hvað hún er sæt. Ég er
sem sagt gjörsamlega dottin í pakk
ann. Það er gott að hafa rangt fyrir
sér stundum.“
Blæðandi geirvörtur
Hún viðurkennir að hafa haft áhyggj
ur af því að hún yrði ekki nógu góð
móðir. „Ég hélt að ég hefði ekki
áhuga á þessu; að ég ætti stöðugt eft
ir að reyna að losa mig við krakkann
af því að ég vildi gera eitthvað ann
að. Ég hélt í alvöru að fyrstu tvö, þrjú
árin væru drepleiðinleg. Ég veit ekki
hvað ég var að spá því mér er búið að
finnast þetta stórkostlegt – fyrir utan
tvær fyrstu vikurnar. Ég hafði marg
heyrt lýsingar af þeirri töfrastundu
og englasöng þegar ég fengi barnið í
hendurnar. Mér leið meira eins og ég
væri að koma í mark eftir maraþon
en með lítið krumpað dýr í fanginu.
Það var enginn englasöngur. Og svo
þurfti ég að fara að læra á þetta.
Mér fannst ótrúlega erfitt að vera
svona lokuð inni fyrstu tvær, þrjár
vikurnar. Alveg sjúklega erfitt. En
þetta hefur allt verið upp á við síðan,“
segir hún og bætir við að henni þyki
ekki rétt að tengja of mikinn glamúr
við barnsfæðingu. „Það er ekkert gott
að eignast barn. Og sitja svo heima
með blæðandi geirvörtur í tvær vik
ur með barn sem þú kannt ekkert á.
Og engan leiðarvísi. Það mætti alveg
tala meira um það. Ég var undir það
búin að sjálf fæðingin yrði það versta
sem gæti komið fyrir mig en enginn
hafði talað við mig um það sem ger
ist eftir það. Mér fannst ekkert mál að
fæða, hún var bara að flýta sér eins
og mamma sín og var komin áður en
ég vissi af. Ég ætlaði að fá allt dóp í
heimi og liggja í kóma með mænu
deyfingu en þetta gerðist allt svo
hratt og var búið áður en ég vissi af.
Allt sem á eftir kom; að ég ætti
að verða autómatísk ástfangin af
barninu um leið og ég fékk það í
hendurnar, það gerðist ekki. Ég
horfði bara á þetta barn og var ekkert
sérstaklega tengd því fyrstu dagana.
En það kom hægt og bítandi og nú sé
ég ekki sólina fyrir þessu barni.
Ég var svo stolt af mér þegar ég
var búin að fæða hana. Fannst ég
hafa unnið mikið líkamlegt afrek.
Þá langaði mig í tíu í viðbót en veit
núna að maður þarf að sinna þessu.
Ég held að ég væri til í tvö til þrjú.
Ég held að athyglisgáfan myndi ekki
ráða við meira.“
Feimin við að nota nafnið
Dóttirin heitir hinu fallega nafni
Andrá. „Andrá var strákur þar til við
fórum í 20 vikna sónar og því höfðum
við nokkur strákanöfn á kantinum.
En svo reyndist strákurinn kvenkyns
og þá fórum við að lesa nafnabækur
og bjuggum til lista. Daginn áður en
hún fæddist komumst við að því að
Andrá var efst á lista okkar beggja.
Svo mætti hún, í sömu andrá.
Okkur langaði ekki að láta skíra
í höfuðið á einhverjum og heitandi
Sigríður langaði mig ekki að velja
mjög algengt nafn. Ég man eftir að
hafa verið í bekk með fjórum öðrum
Sigríðum – en meiningin var kannski
ekki að hafa það svona sjaldgæft.
Við vorum feimin við nafnið fyrst
og sögðum nafnið ekki upphátt fyrr
en hún var sex mánaða. Við vorum
hrædd um að það væri of speisað.
Hún var bara Lillan framan af. En
núna kemur ekkert annað nafn til
greina.“
Hún segir þau Teit samstíga í for
eldrahlutverkinu. „Við höfum náð að
deila með okkur verkum. Annars er
Teitur svo mikil barnagæla. Hann er
fæddur í þetta hlutverk. Enda þyk
ir henni hann miklu skemmtilegri
en ég,“ segir hún og bætir við að
það sé ofarlega á stefnuskránni að
sýna Andrá heiminn. „Við höfðum
skipulagt hluta af fæðingar orlofinu
í Túnis. Mig langaði að lappa upp á
frönskuna einhvers staðar þar sem
væri hlýtt. Hins vegar var ég beðin
um að gera bílaþáttinn þegar hún
var aðeins fjögurra mánaða svo
ferðaplönin voru sett á ís. Andrá kom
í staðinn með mér í vinnuna – sem
var skrautlegt á köflum. En við erum
staðráðin í að komast með hana í al
mennilegt ferðalag.
Hún er mjög hrifin af flugvélum,
eins og mamman, og eitt af fyrstu
orðunum hennar var „flugvél“. Ég
sprakk næstum því úr stolti og fannst
ég hafa náð einhverjum árangri í
uppeldinu.“
Orðin væmnari
Hún viðurkennir að móðurhlutverkið
hafi breytt henni að einhverju leyti.
„Já og nei. Ég er alltaf sama ég, en
hef orðið umburðarlyndari gagnvart
fólki. Forgangsröðunin er líka önn
ur, nú er Andrá í fyrstu fimm sætun
um og svo allt annað. Ætli ég sé ekki
orðin væmnari. Ég var ekki í því að
sitja og stara og velta fyrir mér feg
urð heimsins – eins og ég geri núna.
Ég get horft á hana sofandi og verið
öll hlý og mjúk í hjartanu. Ég var ekki
þannig. Eins get ég grenjað yfir bíó
myndum sem er nýtilkomið svo ég er
greinilega orðin væmnari.“
En er adrenalínfíkillinn sem
líður best í flugvél á hvolfi orðin
lífhræddari eftir að hann varð
mamma?
„Það var búið að hræða mig
Eirðarlaus
adrenalínfíkill
Sigríður Elva á
erfitt með að sitja
kyrr lengur en í
klukkutíma.
MyNdir SigTryggur Ari
„Ég er bara
ekki góð
í að klára það
sem ég byrja á.
Það fer mér illa.