Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Side 38
Helgarblað 26.–29. september 201438 Lífsstíll Tækni
Litla Uber-þúfan
veltir þungu hlassi
Á
rið 2009 höfðu þeir Travis
Kalanick og Garrett Camp
fengið nóg af því hve erfitt
var að finna leigubíl í mið-
borg San Francisco. Báðir
höfðu þeir starfað sem frumkvöðl-
ar í tölvu- og tæknigeiranum og
Camp hafði nýlega selt leitarvélina
Stumble Upon til eBay. Hann var því
í leit að nýju verkefni og ákvað að
tækla vandamálið – að finna leigu-
bíl á skömmum tíma. Smáforritið
Uber varð til í byrjun ársins 2010 og
síðan þá hefur það vaxið á ótrúleg-
um hraða.
Í dag er fyrirtækið metið á yfir
tvo milljarða króna og stofnandi
Plain Vanilla, Þorsteinn B. Friðriks-
son, sagði í fyrirlestri á dögunum
að verðmæti stórútgerðarinnar HB
Granda væri aðeins 1/40 af virði
Uber. Hvað veldur því að fyrirtækið
verður svona stórt og hvernig hef-
ur lagaumhverfið haft áhrif á fram-
gang fyrirtækisins Uber, sem í dag
er svo miklu meira en bara smá-
forrit í síma. Að undanförnu hefur
DV fjallað um leigu á einkabílnum
til einstaklinga, þar sem hugtak-
ið jafningjaleiga hefur verið til um-
fjöllunar. Það er nokkuð ólíkt hug-
mynd Uber, þar sem sú hugmynd
snýst um að einkabíllinn sé leigður
til annarra án bílstjóra. Þannig má
komast hjá því að þurfa að eiga bíl,
en í tilfelli Uber snýst hugmyndin
um að gera leigu á bíl með bílstjóra
sem skilvirkasta.
Vildu geta leigt
limmósínu með hraði
Það var á ráðstefnu í París árið
2008 sem stofnendurnir Kalanick
og Camp fengu hugmyndina fyrst.
Camp vildi geta leigt lúxusbíla með
hraði og datt í hug að búa til þjón-
ustu þar sem hægt var að leigja lim-
mósínu með bílstjóra og deila henni
með öðrum á sem auðveldastan
máta. Sú hugmynd þróaðist fljótt
yfir í UberCab og í janúar árið 2010
var forritið komið í prófanir hjá
þeim félögum og vinum þeirra. Það
var svo í júlí sama ár sem forritið var
opinberlega komið inn í Appstore
hjá Apple og notendur gátu náð í
það.
Þóknun byggir á
einkunn viðskiptavinar
Forritið virkar þannig að notandinn
sendir inn beiðni í gegnum smá-
forritið UberCab. Snjallsíminn finn-
ur staðsetningu notandans og út frá
henni fer beiðni til ökumanna í ná-
grenninu. Sá sem samþykkir beiðn-
ina keyrir síðan til notandans, sem
er búinn að merkja inn áfangastað
sinn á meðan hann bíður eftir bíln-
um. Ökumaðurinn lætur svo vita
þegar hann er kominn og þegar not-
andinn sest inn í bílinn ýtir hann á
takka í smáforritinu, sem segir að
hann sé lagður af stað. Ökumaður-
inn er líka með smáforritið hjá sér,
og ýtir á takka sem segir að ferðinni
sé lokið þegar áfangastað er náð.
Þá fer greiðslan fram í gegnum for-
ritið, þegar UberCab gjaldfærir á
kreditkort sem notandinn er búinn
að setja inn upplýsingar um. Kostn-
aðurinn er mældur út frá kílómetra-
fjölda og tímalengd ferðarinnar.
Þóknun ökumannsins frá Uber
er svo einnig byggð á umsögn not-
andans, sem gefur honum einkunn
að ferðinni lokinni. Þannig fær hann
betur borgað sé einkunnin hærri
og leggur sig því meira fram við að
veita góða þjónustu. Verðið hækkar
einnig eftir því sem eftirspurn eykst,
en það kemur þá skilmerkilega fram
þegar bíll er pantaður.
Deildu um regluverk
Í október fékk fyrirtækið bréf frá
yfir völdum í Kaliforníu, þess efn-
is að fyrirtækið skyldi stöðva starf-
semi þegar í stað. Ástæðan var sú að
þeir virtust starfa sem leigubílafyrir-
tæki án þess að hafa til þess tilskilin
leyfi. Kalanick og félagar héldu því
hins vegar fram að þeirra starfsemi
heyrði ekki undir regluverkið um
leigubílafyrirtæki, sem venjulega
eiga sína bíla og eru með bílstjóra
í vinnu hjá sér. Það er það sem að-
greinir Uber frá öðrum, bílstjórarnir
þurfa sjálfir að hafa leyfin til að
keyra gegn gjaldi og eiga bílana
sjálfir. Uber er í raun ekkert annað
en miðlun. Fyrirtækið starfar hins
vegar með öðrum fyrirtækjum sem
bjóða upp á leigubílaþjónustu eða
skutl á eðalvögnum.
Sömdu um sektina
„Í hverri borg sem við förum til
mun á endanum einhver af reglu-
vörðunum búa til einhverja ástæðu
svo hægt sé að halda okkur frá því
að byrja með, eða viðhalda okk-
ar rekstri,“ sagði Kalanick á ráð-
stefnu árið 2012. Þetta hefur þó ekki
verið raunin í öllum ríkjum Banda-
ríkjanna, því sums staðar var hug-
myndinni vel tekið og reglunum var
breytt á þann veginn að þær næðu
utan um starfsemi fyrirtækisins og
annarra af sama toga, án þess að
banna hana. Fyrirtækið var aftur á
móti sektað um rúmlega tvær millj-
ónir af samgönguyfirvöldum í Kali-
forníu árið 2012, en náði síðan
samkomulagi við þau um að fyrir-
tækið mætti halda áfram rekstri sín-
um. Í kjölfarið var einnig fallið frá
sektinni og í samkomulaginu seg-
ir að starfsemi fyrirtækja á borð við
þeirra myndi verða gerð lögleg, sem
var og gert. Með þessu var grunnur-
inn lagður að samkomulagi við
samgönguyfirvöld í öðrum ríkjum
sem höfðu sett sig upp á móti starf-
semi fyrirtækisins.
Uber gegn Taxi
Þetta var þó ekki eina vandamál
Uber, því leigubílafyrirtækin hafa
sett sig mjög upp á móti Uber. Kala-
nick sat fyrir svörum á ráðstefnu
í vor og gekk hann svo langt að
segja að þeir ættu í stríði við hina
hefðbundnu leigubílstjóra. „Við
erum í pólitískri herferð, þar sem
okkar frambjóðandi er Uber og and-
stæðingurinn er hálfviti sem kall-
ast Taxi. Engum líkar vel við hann,
hann hefur ekki góðan karakter, en
hann er svo samofinn hinum póli-
tíska heimi að margir eiga inni hjá
honum greiða,“ sagði Kalanick.
Uber hefur fært út kvíarnar erlendis
og hefur fyrirtækinu verið harð-
lega mótmælt af leigubílstjórum í
Englandi og Frakklandi svo dæmi
séu tekin. Kalanick sagði við sama
tækifæri: „Við verðum að láta sann-
leikann koma fram um hve hættuleg
og illgjörn leigubílahliðin á þessum
bransa er.“
Risasmáforrit
Ekki er útlit fyrir að Uber sé á leið til
Íslands á næstunni, en um það er þó
lítið hægt að fullyrða. Gera má ráð
fyrir því að markaðurinn á Íslandi
sé kannski ekki nægjanlega stór
til þess að Uber geti hugsað sér að
vera með starfsemi hér. Hugmynd
þeirra félaga um að umbylta leigu-
bílabransanum er enn í fullu fjöri og
það virðist sem þetta smáforrit sé að
gera nákvæmlega það sem þeir sáu
fyrir sér. Baráttan við hagsmuna-
aðilana er enn til staðar en Uber er
komið til að vera, og í raun er það
rangnefni að kalla þetta smáforrit.
Setningin ódauðlega úr myndinni
með Allt á hreinu á hér vel við um
Uber: „Ég hef aldrei komið inn í hús
sem er svona lítið að utan en stórt
að innan.“ n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Við verðum að láta
sannleikann koma
fram um hve hættuleg og
illgjörn leigubílahliðin á
þessum bransa er.
Ósáttir leigubílastjórar
Leigubílstjórar hafa margir
hverjir verið ósáttir við Uber,
ekki síst vegna þess að þeir
telja að illa sé staðið að
tryggingamálum. Það hefur
gefið leigubílafyrirtækjum
aukinn kraft í baráttu sinni
gegn Uber. MynD ReUTeRS
n Vilja gjörbylta leigubílabransanum n Smáforrit sem er 40-falt verðmætara en HB Grandi
Vilja umbylta leigubílabransanum „Við erum í pólitískri herferð, þar sem okkar fram-
bjóðandi er Uber og andstæðingurinn er hálfviti sem kallast Taxi.“ MynD ReUTeRS