Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Side 40
Helgarblað 26.–29. september 201440 Lífsstíll
Komdu
ástinni á óvart
Óvæntir atburðir halda okkur
hamingjusömum, samkvæmt
nýrri rannsókn. Tveir þriðju
Breta segja að hugulsamar
óvæntar uppákomur af hálfu ást-
vina geri þá helst hamingjusama.
Flestir vildu að búið væri að
elda óvænta máltíð fyrir þá þegar
þeir kæmu heim úr vinnunni.
Í öðru sæti var óvæntur te- eða
kaffibolli á slæmum degi. Í þriðja
sæti er óvænt orðsending frá
ástvini í veskið eða undir kodd-
ann. Fjórði vinsælasti óvænti
atburðurinn er ef einhver væri
búinn að klára heimilisverkin
áður en vinnudeginum lyki og í
fimmta sæti er að fá send blóm í
vinnuna.
C-vítamín gott
gegn streitu
Rannsókn, sem gerð var við
Alabama-háskólann í Banda-
ríkjunum, staðfestir jákvæð
áhrif C-vítamíns gegn streitu.
Viðvarandi streita, hvort sem
hún er vegna daglegs álags eða
atburða á borð við að missa
vinnu, heimili eða ástvin, hef-
ur áhrif á líkamsstarfsemina.
Nýrnahetturnar framleiða meira
af streituhormónum og adrena-
líni sem verður til þess að við
verðum örmagna, missum hár,
fáum bólur, vöðvabólgu og
verðum líklegri til að fá flensu,
kvíða eða þunglyndi.
Rannsakendur komust hins
vegar að því að C-vítamín dreg-
ur úr viðbrögðum líkamans við
streitu og verndar á sama tíma
nýrnahetturnar.
Mjólkurvörur
gegn offitu
Aukin neysla á mjólkurvörum
gæti leitt til minni líkamsfitu,
lægri BMI-stuðuls og jafnvel
lengra lífs. Ný rannsókn frá
Monash-háskólanum í Ástralíu
leiddi þetta í ljós. Heilsa og mat-
arvenjur fjögur þúsund Kínverja
voru rannsakaðar en eins og
kunnugt er inniheldur hefðbund-
ið kínverskt mataræði ekki mikið
af mjólkurvörum. Í ljós kom að
þeir sem borða engar mjólkur-
vörur voru með hærri BMI-stuð-
ul, meiri líkamsfitu, hærri blóð-
þrýsting og jafnvel minni lífslíkur
en þeir sem borða mjólkurvörur
allt að sjö sinnum á viku.
Þess má geta að niðurstöðurn-
ar eru í takt við aðrar rannsóknir
um áhrif mjólkurvara á heilsu.
Í
amstri hversdagsins er auðvelt að
gleyma litlu hlutunum sem halda
sambandinu gangandi. Mörg pör
átta sig hins vegar ekki á því að
það þarf yfirleitt ekki mikla fyrir-
höfn til þess að bæta sambandið svo
um munar. Það eru litlu hlutirnir í
lífinu sem skipta mestu máli. Eftir-
farandi eru tíu leiðir til þess að bæta
sambandið en þær birtust nýlega í
bandaríska tímaritinu TIME.
1 Slökkvið á símanum Ef þú átt það til að festast á Face-
book á matmálstíma er kominn tími
til að slökkva á símanum. Margar
rannsóknir hafa sýnt fram á neikvæð
áhrif samfélagsmiðla á sambönd.
Í grein TIME segir að algengt sé að
fólk líti frekar á símann í stað þess
að leysa ágreiningsefni þegar þau
koma upp. Slíkt auki fjarlægð milli
ástvina.
2 Farið í rúmið á sama tíma Ef ykkur finnst þið aldrei eiga
lausa stund saman gæti verið þjóð-
ráð að fara í háttinn á sama tíma.
Jafnvel þótt að þú sért nátthrafn þá
gætir þú læðst fram úr þegar maki
þinn er sofnaður. Passið ykkur líka
á að fá nægan svefn því rannsóknir
hafa sýnt fram á að svefnleysi eykur
líkur á rifrildum.
3 Helltu upp á kaffi fyrir maka þinn Eins og áður segir
þarf yfirleitt ekki mikil rómantísk
tilþrif til þess að heilla makann. Það
gæti verið nóg að hella upp á kaffi
fyrir hann á morgnana. Rannsóknir
sýna að regluleg, hugulsöm uppá-
tæki auka ánægju í sambandi. Eftir
langan tíma í sambandi fer fólki
oft að finnast sem því sé tekið sem
sjálfsögðum hlut. Þessir litlu hlutir
koma í veg fyrir það.
4 Rifjið upp fyndin augnablik Pör
sem kunna að
hlæja saman,
til dæmis að
því sem af-
greiðslumaðurinn sagði við ykkur í
búðinni, eru samkvæmt rannsókn-
um hamingjusamari en þau sem
minnast ánægjulegra augnablika
án þess að hlæja. Hláturinn lengir
sambandið.
5 Hreyfið ykkur Hreyfing losar endorfín, svokallað
gleðihormón líkamans, og
endorfín eykur einnig kyn-
ferðis- lega
örvun. Athafnir á borð við fjallgöng-
ur, hlaup og hjólreiðar geta þannig
aukið ástríðuna í sambandinu. Ekki
væri verra ef þið hefðuð tök á að
hreyfa ykkur saman.
6 Prófið eitthvað nýtt Pör sem eru óhrædd við að
prófa eitthvað nýtt saman eru
hamingjusamari samkvæmt
rannsókn sem birtist í
fræðitímaritinu Journal
of Personality and
Social Psychology. Ekki
er nauðsynlegt að fara
út í neinar öfgar á borð við
fallhlífarstökk eða safaríferð.
Nóg getur verið að setja tónlist
á og dansa aðeins fyrir matinn.
Eða elda eitthvað nýtt, til dæmis
heimagert sushi.
7 Kryddið kynlífið Ef kynlíf-ið er orðið hversdagslegt og
leiðigjarnt er lykillinn að breyta til.
Til dæmis er hægt að krydda upp á
kynlífið með því að prófa að vera á
nýjum stöðum á heimilinu. Passið
ykkur hins vegar á því að ofhugsa
þetta ekki eða ræða í þaula. Einföld
setning á borð við: „Við erum ein
heima. Hvað segir þú um að prófa
eldhúsborðið?“ er nóg.
8 Faðmist Snerting án kynlífs, til dæmis að faðmast eða
haldast í hendur, er alveg jafn mikil-
væg og kynlíf. Þessi snerting styrkir
sambandið og því meira sem þið
snertið hvort annað því betur líður
ykkur saman.
9 Spyrjið nýrra spurninga Samtöl para snúast yfirleitt um
vinnuna, börnin eða vinahópinn.
Ekki gleyma að spyrja hvort annað
persónulegra spurninga. Við breyt-
umst öll með tímanum og líkur eru
á að áhugamál og hugðarefni maka
þíns hafi breyst frá því þið kynntu-
st. Talið um kvikmyndir, tónlist og
hvað þið mynduð gera með stóra
lottóvinninginn.
10 Segið takk Hugsaðu út í það hvenær maki þinn hjálpaði
þér síðast eða lét þér líða vel, og
þakkaðu honum fyrir. Eftir ákveðinn
tíma fer fólk að gera ákveðnar kröfur
til maka síns og gleymir að þakka
fyrir þegar þeim er mætt. Hefur þú
einhvern tíma þakkað maka þínum
einfaldlega fyrir að vera í lífi þínu?
Tíu leiðir til að
bæta sambandið
n Slökkvið á símanum n Faðmist n Prófið eitthvað nýtt
Faðmist Snerting án
kynlífs, til dæmis að
faðmast eða haldast
í hendur, er alveg jafn
mikilvæg og kynlíf.
Mynd ShutterStock
Fólk með miðstaf í nafni er talið gáfaðra
Fólk sem ekki notar upphafsstafi eftirnafna sinna stendur verr að vígi en þeir sem nota þá
R
annsakendur frá Bretlandi og
Írlandi hafa komist að því að
fólk sem notar upphafsstaf eft-
irnafns síns, í útgáfu eða á vett-
vangi þar sem greindar er krafist, er
sjálfkrafa talið gáfaðra og virðulegra
en fólk sem gerir það ekki. Þetta kem-
ur fram í niðurstöðum rannsóknar
sem nýlega voru birtar í European
Journal og Social Psychology.
Alls voru framkvæmdar sjö mis-
munandi rannsóknir. Þátttakendur
voru meðal annars beðnir um að
lesa fræðilegar greinar eftir höfunda
með ýmist engan, einn eða fleiri
upphafsstafi í miðju nafni og meta
hversu vel greinarnar væru skrifað-
ar. Þá var annar hópur beðinn um
að giska á félagslega og akademíska
stöðu einstaklinga aðeins út frá nöfn-
um þeirra. Aðrir þátttakendur fengu
nafnalista á blaði, sem voru ýmist
með miðstafi eða ekki, og áttu að
velja sér liðsfélaga í ímyndaða spurn-
ingakeppni.
Niðurstöðurnar voru ávallt þær
sömu. Þátttakendur mátu ókunn-
ugt fólk með upphafsstafi eftirnafna
sinna í nafninu gáfaðra en aðra
ókunnuga sem ekki höfðu miðstafi í
nafni sínu.
„Þessi skýru áhrif munu lík-
lega fara í taugarnar á sumum. Fólk
sem notar ekki upphafsstafi í miðju
nafni stendur verr að vígi en þeir
sem hafa miðstafi í nöfnum sínum.
Fyrrnefndi hópurinn á því á hættu
að vera talinn standa sig verr en
þeir sem nota miðstafi og jafnvel
álitinn tiltölulega heimskari,“ segja
rannsakendur meðal annars í niður-
stöðum sínum. n dagur B. eggertsson Mögulega var það B-ið sem kom Degi í borgarstjórastólinn.