Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Síða 42
Helgarblað 26.–29. september 201442 Sport Margir frábærir leikmenn hafa litið dagsins ljós í ensku úrvalsdeildinni frá stofnun hennar árið 1992. Því miður hefur þeim ekki öllum tekist að standa uppi sem sigurvegarar í þessari erfiðustu fótboltadeild í heimi. Vefritið GiveMeSport tók saman lista yfir bestu leikmennina sem aldrei hafa unnið deildina með liðum sínum. Sumir þessara leikmanna eru hættir á meðan aðrir eru enn í fullu fjöri. einar@dv.is Brad Friedel Bandaríkjamaðurinn hefur verið einn allra besti markvörður úrvalsdeildarinnar frá stofnun hennar. Hann er einnig sá leikmað- ur sem verið hefur einna lengst í deildinni, eða í sautján ár samfleytt. Aðrir markmenn eins og Jussi Jaaskelainen, Mark Scwarzer og Tim Howard komu einnig til greina í valinu en reynsla og stöðugleiki Friedels kemur honum í búrið í úrvalsliðinu. Þó að Friedel hafi ekki unnið úrvalsdeildina hefur hann tvisvar orðið bikarmeistari á Englandi og þrisvar deildabikarmeistari. Unnu aldrei deildina Jamie Carragher Carragher er einn þriggja leikmanna í liðinu sem aðeins hefur spilað fyrir eitt félag. Þó að Carragher hafi aldrei unnið deildina með Liverpool efast enginn um gæði þessa leikmanns sem hefur nú lagt skóna á hilluna. Carragher er einn leikjahæsti leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar en í heildina lék hann 508 leiki í deild og 738 leiki í það heila. Carragher var í tvö skipti mjög nálægt því að verða Englandsmeistari, en árin 2002 og 2008 endaði Liverpool í 2. sæti í úrvalsdeildinni. Stuart Pearce Pearce var grjótharður nagli sem var aldrei hræddur við að henda sér í tæklingar. Hann spilaði með Nottingham Forest, Newcastle, West Ham og Manchester City í úrvalsdeildinni áður en hann hætti í fótbolta árið 2002. Pearce er minnst sem eins allra besta vinstri bakvarðar Englendinga en á löngum ferli sínum lék hann 78 landsleiki. Því miður tókst þessum magnaða bakverði aldrei að verða Eng- landsmeistari. Honum tókst þó að vinna enska deildabikarinn í tvígang með Forest. Marcel Desailly Þessi nautsterki varnarmaður var ótrúlega öflugur í liði Chelsea – áður en Roman Abramovich keypti félagið. Á þeim tíma var Chelsea ekki jafn sterkt og það er í dag og mátti síns lítils gegn félögum á borð við Arsenal og Manchester United. Hann gekk í raðir Chelsea árið 1998 frá AC Milan og lék með Chelsea í sex ár. Eini titill hans með Chelsea kom árið 2000 þegar Chelsea varð bikarmeistari. Desailly átti meira skilið enda frábær varnarmaður. Ledley King Hver veit hvað hefði orðið úr Ledley King hefði hann haldist heill á sínum ferli? King var geysiöflugur í liði Tottenham og vonarstjarnan í vörn Englendinga. Hann kom inn í aðallið Tottenham árið 1999 og lék með liðinu allt til ársins 2012 er að hann neyddist til að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Á þessum 14 tímabilum lék hann aðeins 268 leiki í deildinni, 19 leiki á tímabili að meðaltali. King er í dag 33 ára og væri eflaust enn í fullu fjöri með Tottenham ef hann væri heill heilsu. Robbie Fowler Þessi mikli markahrókur lék lengst af á sínum ferli með Liverpool en kom þó við hjá Leeds og Manchester City í úrvalsdeildinni. Hann skoraði 125 mörk í úrvalsdeildinni með Liverpool og alls 162 mörk. Aðeins fimm leikmenn í sögu úrvalsdeildarinnar hafa skorað fleiri mörk en hann og allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa unnið úrvalsdeildina; Alan Shearer, Andy Cole, Thierry Henry, Wayne Rooney og Frank Lampard. Þjálfarinn Harry Redknapp Þó að Redknapp hafi oft náð fínum árangri með lið sín hefur hann aldrei fengið tækifæri til að stýra allra bestu liðum Englands. Árið 2010 var hann valinn þjálfari ársins og þá hefur hann sjö sinnum verið valinn stjóri mánaðarins. Stærsti titill hans er bikarmeistaratitill með Portsmouth sem vannst árið 2008. Gianfranco Zola Þessi smái en knái Ítali er einn allra besti leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar. Eins og kunnugt er lék hann með Chelsea í úrvalsdeildinni en yfirgaf félagið viku áður en Roman Abramovich keypti klúbbinn. Þó að Chelsea-liðið hafi ekki verið eins sterkt þá og það er það nú var það býsna öflugt – og er það ekki síst Zola að þakka sem lék listir sínar hjá félaginu ásamt Eiði Smára Guðjohnsen og Jimmy Floyd Hasselbaink. Í heildina lék hann 229 leiki með Chelsea og skoraði 59 mörk. David Ginola Hver man ekki eftir hinum hárprúða Frakka David Ginola sem sýndi listir sínar um hverja helgi með Newcastle og síðar Tottenham? Ginola gekk í raðir Newcastle frá Paris St. Germain árið 1995 og sló strax í gegn. Hann komst í tvígang nálægt því að verða Englandsmeistari en árin 1995 og 1997 lenti Newcastle í 2. sæti í deildinni. Árið 1999 var hann kjörinn leikmaður ársins á Englandi af leikmönnum deildarinnar og einnig af blaðamönnum. Þessi nafnbót gulltryggir hann í liðið. Gareth Bale Gareth Bale var valinn leikmaður ársins á Englandi vorið 2013 eftir að hafa nánast einn síns liðs skilað Tottenham í 5. sæti úrvalsdeildarinnar það tímabil. Bale lék í sex ár með Tottenham og var algjörlega magnaður, sérstaklega síðustu þrjú árin sín með Lundúnaliðinu. Eins og flestum er kunnugt var Bale seldur til Real Madrid fyrir rúmu ári þar sem hann hefur staðið sig vel. Enginn skyldi þó útiloka að hann muni snúa aftur í úrvalsdeildina einn góðan veðurdag. Steven Gerrard Gerrard er ekki bara í liðinu heldur er hann einnig með fyrirliðabandið. Steven Gerrard hefur að nær öllu leyti átt stórglæsilegan feril með Liverpool og verið sem kóngur í ríki sínu um langt skeið. Það er ljóst að hans verður minnst sem eins besta leikmanns í sögu félagsins. En honum hefur samt aldrei tekist að vinna úrvalsdeildina með Liverpool og er það eini stóri titillinn sem hann hefur aldrei unnið með félaginu. Hann komst grát- lega nálægt því á síðustu leiktíð en Liverpool klúðraði málunum illilega á lokasprettinum. Cesc Fabregas Spænski miðjumaðurinn er einn af fáum í þessu liði sem á enn möguleika á að vinna úrvals- deildina. Fabregas lék um nokkurra ára skeið með Arsenal en á tíma hans hjá félaginu tókst Arsenal aldrei að verða Englandsmeistari. Hann vann þó bikarmeistaratitil með félaginu 2005. Eins og flestum er kunnugt leikur Fabre- gas nú listir sínar hjá ógnarsterku liði Chelsea eftir dapran tíma hjá Barcelona. Það eru í raun nokkuð góðar líkur á að Fabregas muni stimpla sig úr þessu liði á næstu misserum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.