Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Side 52
52 Fólk Helgarblað 26.–29. september 2014
Ný plata í
vinnslu
Söngkonan Kelly Clarkson vinnur
nú að nýrri plötu sem mun koma
út snemma á næsta ári. Þetta
staðfesti hún á samskiptavefnum
Twitter um síðustu helgi. Í fyrstu
sendi hún út óræð og djúp skila-
boð en síðar kom í ljós að þau
innihalda laglínu af næstu plötu.
Þegar aðdáandi spurði hana nán-
ar út í plötuna svaraði hún: „Ég er
svo stolt af næstu plötu. Mögulega
inniheldur hún sérstakan gest …
kannski :) Hún kemur ekki út fyrr
en snemma á næsta ári.“
Clarkson hefur ekki sent frá
sér nýtt efni síðan árið 2011, ef
frá er talin jólaplata árið 2012, og
er því óhætt að segja að aðdá-
endur hennar bíði í ofvæni eftir
næstu plötu.
Sáttar í barnleysi
n Stjörnurnar nefna margar ástæður fyrir að eignast ekki börn
Alheimspressan virðist afskaplega upptekin af því hvort að nafntogaðar konur séu að eignast börn eða ekki.
Allir miðlar fluttu fréttir af því þegar Vilhjálmur krónprins og Katrín kona hans tilkynntu að þau ættu von á
sínu öðru barni. En upp á síðkastið hafa konur farið að tala meira um það að eiga ekki börn. helgadis@dv.is
Jennifer Aniston „Við höfum ekki áhyggjur af því að eignast börn, ég er
bara spurð að þessu í viðtölum eða á rauða dreglinum. Þetta eru óþarfa spurningar því
ástæður þess að fólk eignast ekki börn geta verið margar. Það er val hvers og eins hvort
viðkomandi vilji börn í lífi sínu eða ekki.“ – Jennifer Aniston, ágúst, 2013
Cameron Diaz „Það er mun meiri vinna að eiga börn, að hafa annað líf en
þitt eigið sem þú berð ábyrgð á. Ég ákvað að eignast ekki börn og lífið varð auðveldara fyrir
vikið, þó að það hafi ekki verið einföld ákvörðun. Börn þurfa athygli á hverjum degi í allavega
18 ár. Ég vil vernda fólk en ég hef aldrei fundið þörf til að verða móðir. Ég er sú sem ég er og lífið
er gott akkúrat núna. Ég hef gert ýmislegt og mér er alveg sama.“ – Cameron Diaz, ágúst, 2014.
Kim Cattrall „Ég er kona á
ákveðnum aldri sem hef aldrei eignast börn
eða ílengst á einum stað. Ég hef gaman af
börnum en ekki lengi í einu. Mér finnst þau
krúttleg, fyndin og ljúf en svo fæ ég
hausverk.“
– Kim Cattrall, apríl, 2008.
Anjelica Huston „Mig
hefur oft langað í börn en ég hef líka verið
þakklát fyrir að eiga þau ekki. Ég fer í keng
ef ég þarf að fara frá hundinum mínum í
meira en fimm daga. Ég veit ekki hvernig ég
gæti kvatt börnin mín á morgnana til að
fara að vinna. Það eru konur sem geta það
en ég er ekki viss um að ég gæti það.“
– Anjelica Huston, nóvember, 2011
Betty White „Ég hef aldrei
séð eftir því að eignast ekki börn. Ég veit að
ef ég hefði orðið ólétt þá hefðu barneignir
átt hug minn allan. En ég ákvað að eignast
þau ekki því ég vildi einbeita mér að
ferlinum mínum og ég veit að ég hefði ekki
getað haldið athyglinni við bæði barneignir
og ferilinn.“
– Betty White, maí, 2011.
Katharine Hepburn
„Ég hefði verið hræðileg móðir því ég er í
rauninni afskaplega sjálfselsk manneskja.
Ekki að það hafi stoppað fullt af fólki í að
eignast börn.“
– Katharine Hepburn, í ævisögu hennar,
2003.
Dolly Parton „Ég ólst upp í
stórri fjölskyldu þar sem átta krakkar voru
yngri en ég. Nokkur systkina minna komu
svo og bjuggu hjá mér þegar ég flutti að
heiman. Ég elska börn systkina minna líkt
og mín eigin barnabörn og nú á ég jafnvel
langömmubörn! Ég hugsa oft að það hafi
ekki verið mín örlög að eignast börn en í
staðinn get ég átt eitthvað í öllum börnum.“
– Dolly Parton, maí, 2014
Oprah Winfrey „Ef ég ætti
börn þá myndu þau hata mig … Þau hefðu
endað í svipuðum þætti og mínum, að tala
um mig; eitthvað í lífi mínu hefði orðið undir
og það hefði örugglega verið börnin.“
– Oprah Winfrey, desember, 2013
Gloria Steinem „Ég er
fullkomlega sátt við að eiga ekki börn. Ég
meina, það þurfa ekki allir að lifa sama
lífinu. Eins og einhver sagði: „Allir þeir sem
eru með móðurlíf þurfa ekki að eignast
börn, ekki frekar en allir þeir sem eru með
raddbönd þurfa að vera óperusöngvarar“.“
– Gloria Steinem, október, 2011
Helen Mirren „Það voru ekki
örlög mín að eignast börn. Ég hélt alltaf að
það myndi gerast einn daginn, en það gerðist
aldrei og mér var alveg sama hvað fólki fannst.
Það voru bara leiðinlegir, gamlir karlar sem
spurðu mig hvort ég ætti börn. Þegar ég sagði
„nei“ þá sögðu þeir alltaf: „Ha? Engin börn?
Jæja, þú verður að fara að flýta þér, gamla!“,
ég sagði þeim bara að fara þangað sem sólin
skín aldrei!“ – Helen Mirren, febrúar, 2013
Safakúrar
óþarfir
Safakúrar eru afar vinsælir hjá
stjörnum fyrir verðlaunaaf-
hendingar, en leikkonan Julianne
Moore segir þá algjörlega til-
gangslausa. „Ég fór á safakúr
fyrir eina Golden Globe-hátíð-
ina, ég var á honum í þrjá daga
og eina þyngdin sem ég missti
var úr hausnum á mér!“ Í nýjasta
tölublaði New Beauty Magazine
prýðir Julianne forsíðuna en í
blaðinu talar hún meðal annars
um hvernig hún heldur sér ung-
legri og segir hún sólarvörn, vatn,
andlitsolíur frá L‘Oreal og litla
saltneyslu hjálpa til. Til að halda
sér í formi hleypur hún og lyftir
léttum lóðum heima hjá sér.
Jeremy Renner
kvæntur
Jeremy Renner, sem leikur
Hawkeye í Avengers-myndun-
um, hefur staðfest við netmið-
ilinn Capitol File að hann hafi
kvænst kærustu sinni, kanadíska
módelinu Sonni Pacheco, en þau
eiga 17 mánaða dóttur saman.
Ástæða þess að hann hélt þessu
leyndu er að hann vildi vernda
einkalíf fjölskyldu sinnar. „Það er
pirrandi þegar ég er eltur þegar
ég er með fjölskyldunni. Það hef-
ur mikið verið talað um mig en
því minna sem ég segi því minna
veit fólk og það virðist gera mig
áhugaverðari.“ Hann sagði bestu
ákvörðun sína hafa verið að bíða
með að eignast barn, en hann er
43 ára að aldri.